Morgunblaðið - 08.08.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2018
Renew
Nánari upplýsingar á www.geosilica.is
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og geoSilica.is
Heilbrigt hár
Unnið úr 100% náttúrulegum
jarðhitakísil og kopar og sink
í hreinu íslensku vatni.
• dregur úr hárlosi
• styrkir hár og
minnkar hættu á
brotnum endum
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Gísli Halldór Magnússon, bóndi á
Ytri-Ásum, segir nær öruggt að fé
hafi farist í Skaftárhlaupinu en
hversu margt sé nær ómögulegt að
segja að svo stöddu. „Bæði hefur það
getað hafa farist í hlaupinu og svo er
þetta endalaust að drepast í drull-
unni á eftir,“ segir Gísli sem sjálfur
náði að bjarga einhverju fé nálægt
sínu búi. „Þegar það flæddi hér náð-
um við að bjarga fé hér sem við viss-
um um en ég sá hér inn frá að þar
voru einhverjir skrokkar inni við
gljúfrið bara í hringiðu vatnselgs-
ins,“ segir Gísli. „Þetta fór út um allt
hraun þar sem er fé. Bæði hér inn á
afrétti hjá okkur og inn hjá Múla
sem er næsti bær fyrir innan.“
Féð finnst við næstu smölun
Hann segir að það hafi verið til-
viljun að þau hafi séð eitthvað af sínu
fé rétt við bæinn og náð að bjarga
því. Líklega verður ekki hægt að
segja hversu margt fé fórst fyrr en í
næstu smölun. „Þegar farið verður
að smala þá finnst þetta nú sjálfsagt.
Það er ekki farið að sjatna neitt af
viti og vatnið er ekki nærri hlaupið
fram ennþá. Þetta er hér út um öll
hraun og örugglega hérna inn í inn-
hraunum líka. Það var einhver að
segja að það hefði sést skrokkur af
kind fljótandi við Kúðafljót og kom-
inn þá fram úr öllu. Þannig að það er
nær öruggt að það hafi farist eitt-
hvað af fé en hve margt get ég ekki
svarað.“
Rennsli Skaftár við Sveinstind
hefur farið minnkandi og var nærri
400 m3/s á hádegi í gær. Rennsli í
byggð fer einnig minnkandi og mun
draga úr vatnsmagni í Skaftá næstu
daga. Hins vegar er vatnsmagn í
Grenlæk og Tungulæk enn að
aukast. Þar skilar sér vatn sem
runnið hefur út í Eldhraun og renn-
ur svo út í lækina.
Nær öruggt að
fé hefur drepist
Kindaskrokkar í hringiðu í hlaupinu
Morgunblaðið/RAX
Skaftárhlaup Nokkrir sólarhringar
eru í að áin nái eðlilegu rennsli.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Þetta kerfi er brothætt og það þarf
því að reyna að rækta það eins vel og
mögulegt er til þess að kerfið skili
þeim árangri sem að er stefnt,“ segir
Steingrímur Ari Arason, forstjóri
Sjúkratrygginga Íslands, um reynslu
af nýju fjármögnunarkerfi heilsu-
gæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu
sem innleitt var fyrir rúmu ári.
Nýja fjármögnunarkerfinu er
ætlað að sjá til þess að fjármagn til
rekstrar hverrar stöðvar endurspegli
þann hóp skjólstæðinga sem heilsu-
gæslan þjónar. Fjármagn fylgir
hverjum einstaklingi svo ef ein-
staklingur ákveður að færa sig yfir á
aðra heilsugæslustöð þá færist fjár-
magnið með honum þangað. Hver og
einn hefur frelsi til að skrá sig hjá
þeirri heilsugæslustöð sem hann kýs.
23% fleiri komur í Firði
Eftir að nýja fjármögnunar-
kerfið var innleitt hefur aðsókn á
heilsugæslustöðvar breyst, sam-
kvæmt nýrri skýrslu Sjúkratrygg-
inga Íslands. Komum á heilsugæslu-
stöðvar höfuðborgarsvæðisins
fjölgaði að meðaltali um 4% á milli ár-
anna 2016 og 2017 en þær fóru úr
471.036 í 488.193. Hlutfallslega fjölg-
aði þeim mest í heilsugæslunni í
Firði, eða um 23%, og í Efstaleiti, eða
um 22%. Komum fækkaði um 11% í
Grafarvogi og 9% í Efra-Breiðholti.
Það verður til þess að þær stöðvar fá
minna fjármagn en ella. Spurður
hvort ekki sé óánægja með það segir
Steingrímur: „Það örlar eitthvað á
því.“
Markmið nýja fjármögnunar-
kerfisins er að heilsugæslustöðvar
sinni skjólstæðingum sínum betur.
„Vegna þess að fólk getur sjálft valið
er stöðvunum í raun veitt gríðarlega
mikið aðhald og er mikið keppikefli
fyrir hverja og eina stöð að halda sín-
um skjólstæðingum.“
Steingrímur segir áríðandi að
sama fjármögnunarkerfi sé innleitt á
landsvísu. „Það er algjört lykilatriði
og í raun hafa menn ekki langan tíma
til þess að klára það. Við sjáum alveg
merki þess að það fer að hrikta í
grunnforsendum þessa kerfis ef það
verður ekki gert. Í nýja kerfinu getur
fólk skráð sig annars staðar en lög-
heimili þess segir til um. Mikið er um
það að fólk sem býr úti á landi skrái
sig á stöðvar höfuðborgarsvæðisins.
Þá lendum við í vandræðum með fjár-
mögnunina vegna þess að það er ekki
sama kerfi kerfið úti á landi og því
fylgja engir fjármunir fólki sem það-
an kemur. Einnig ef fólk fer aftur út á
land án þess að afskrá sig af heilsu-
gæslustöð á höfuðborgarsvæðinu, þá
eru greiðslurnar til stöðvarinnar ekki
skertar.“
Gjörbreytt aðsókn á heilsugæslustöðvar
Taka þarf upp nýtt fjármögnunarkerfi á landsvísu að mati forstjóra Sjúkratrygginga Íslands
Fjöldi skjólstæðinga stýrir m.a. fjármögnun hverrar stöðvar Dreifing hefur breyst mikið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heilsugæsla Breytt fyrir-
komulag hefur áhrif á komur.
Tveir ferðalangar leggja mat á möguleika hvíts á ofvöxnu taflborðinu á
Miðbakkanum í Reykjavík. Öllu makindalegri er maðurinn sem stýrir
svörtu mönnunum; situr kappklæddur og bíður næsta leiks.
Morgunblaðið/Valli
Ekki teflt á tvær hættur
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Reykjanesbæ er gert að veita að-
gang að reikningum sem gefnir voru
út í tilefni af árshátíð Reykjanes-
bæjar árið 2017 samkvæmt niður-
stöðu úrskurðarnefndar um upplýs-
ingamál.
Bærinn hafði áður synjað aðila um
þessar upplýsingar á grundvelli þess
að þær byggðust á einka-, fjárhags-
og viðskiptamálefnum einstaklinga
og lögaðila. Var synjun bæjarins
kærð til úrskurðanefndar um upp-
lýsingamál í janúar, sem úrskurðaði
nýlega að bærinn skyldi afhenda
kæranda umbeðin gögn, eftir að hafa
afmáð úr þeim bankaupplýsingar
einstaklinga. Í kærunni kom m.a.
fram að kærandi féllst ekki á rök-
semdir Reykjanesbæjar, þar sem
ekki hefði verið sýnt fram á að gögn-
in innihéldu upplýsingar sem rétt-
lættu synjun á beiðni hans. Þar að
auki mættu þeir sem ættu í viðskipt-
um við sveitarfélagið vera við því
búnir að mæta samkeppni og átta sig
á að upplýsingalög giltu um starf-
semi hins opinbera.
Úrskurðarnefndin tók undir slík
sjónarmið, taldi synjun bæjarins á
grundvelli þess að standa vörð um
mikilvæga og viðkvæma viðskipta-
og einkahagsmuni ekki eiga rétt á
sér. „Að því er varðar fjárhags- eða
viðskiptahagsmuni lögaðila er sér-
stök áhersla lögð á rétt almennings
til upplýsingar um ráðstöfun opin-
berra fjármuna,“ segir í úrskurðin-
um. Þá telur nefndin að þótt vísað sé
til upplýsinga um fjármál einstak-
linga, „verður ekki talið að einstakur
reikningur listamanns fyrir skemmt-
un á árshátíð gefi slíka innsýn í fjár-
mál viðkomandi að rétt sé að tak-
marka aðgang að honum og víkja
þannig til hliðar upplýsingarétti al-
mennings um ráðstöfun opinberra
fjármuna.“
Opinbera kostnað við árshátíð
Reykjanesbæ ber að afhenda reikninga vegna skemmtanahalds
Morgunblaðið/Ómar
Ráðhúsið Reykjanesbær þarf opna
reikninga fyrir árshátíð bæjarins.
Engar kærur liggja fyrir í þeim
þremur kynferðisbrotamálum sem
eru til rannsóknar hjá Lögreglunni
í Vestmanneyjum eftir Þjóðhátíð
um helgina. Kona varð fyrir kyn-
ferðislegri áreitni á bílastæði í
dalnum að kvöldi laugardags. Í hin-
um tveimur er uppi grunur um
misneytingu. Að söng Páleyjar
Borgþórsdóttur, lögreglustjóra í
Vestmannaeyjum, verða ekki gefn-
ar frekari upplýsingar um þessi
mál.
Heildarfjöldi fíkniefnamála var
35 að þessu sinni, árið 2017 voru
málin 47, árið 2016 voru málin 30
og árið 2015 72 talsins. Grunur er
um sölu- og dreifingu í tveimur
þessara mála. Þá komu fimm lík-
amsárásir inn á borð lögreglu.
Mál til rannsóknar
í Reykjavík
Lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu barst um helgina tilkynning um
nauðgun í umdæmi sínu. Fram
kemur í skriflegu svari lögreglu við
fyrirspurn Morgunblaðsins að mál-
ið sé til rannsóknar og að frekari
skýrslutökur eigi eftir að fara
fram. Ekki sé hægt að veita frekari
upplýsingar um málið.
Morgunblaðið hefur upplýsingar
um atvikalýsingu í málinu sem lög-
regla vildi ekki staðfesta þegar eft-
ir því var leitað í gær.
Engin
brot kærð
Þrjú kynferðisbrot
á Þjóðhátíð í Eyjum