Morgunblaðið - 08.08.2018, Side 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2018
TE
N
G
IT
A
U
G
A
R Fallvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Fjölbreytt og gott úrval til á lager
Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini
Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði
FA
LLB
LA
K
K
IR
BELTI
ICQC 2018-20
Tónlistarkonan Beyoncé upplýsir í
forsíðuviðtali við Vogue að hún sé af-
komandi þrælahaldara. „Ég skoðaði
rætur mínar nýverið og komst að því
að ég er afkomandi þrælahaldara sem
varð ástfanginn af og kvæntist þræl,“
segir Beyoncé og tekur fram að hún
hafi þurft að melta þessar upplýs-
ingar um tíma. „Ég velti fyrir mér
hvaða þýðingu þetta hefði og reyndi
að setja hlutina í stærra samhengi,“
segir Beyoncé og bendir á að ættar-
saga hennar einkennist af óheil-
brigðum samskiptum kynjanna, van-
trausti og valdamisbeitingu. „Þegar
ég gerði mér grein fyrir þessu var ég
fyrst fær um að skoða og laga slík
átök í mínum persónulegu sam-
skiptum,“ segir Beyoncé, en í við-
talinu er rifjaður upp orðrómur þess
efnis að Jay-Z, eiginmaður, hennar
hafi verið henni ótrúr. Sjálf lýsir hún
eiginmanni sínum sem „hermanni“
sem veiti henni „mikilvægan stuðn-
ing“. Myndirnar sem fylgja viðtalinu
tók Tyler Mitchell, sem er aðeins 23
ára og fyrsti þeldökki maðurinn sem
fær birta forsíðumynd á Vogue.
Afkomandi þrælahaldara
Frjó Beyoncé í febrúar 2017 þegar
hún var ólétt að tvíburum sínum.
AFP
Byrjað var um helgina að rífa
vinnustofur kínverska listamanns-
ins Ai Weiwei í Beijing. Frá þessu
greinir AFP. Þrjú ár eru síðan Ai
flúði heimaland sitt, en hann hefur
verið óragur að gagnrýna kínversk
stjórnvöld. Hann býr nú og starfar í
Berlín. Þaðan deildi hann mynd-
bandi af niðurrifinu, sem hann seg-
ir hafa byrjað fyrirvaralaust. Á
myndbandinu sjást starfsmenn Ai
reyna að bjarga listaverkum úr
vinnustofunni. AFP hefur eftir Ga
Rang, aðstoðarmanni Weiwei, að
búast hafi mátt við niðurrifinu, þar
sem leigusamningurinn rann út síð-
asta haust, en mun lengri tíma hafi
tekið að tæma rýmið en áætlað var.
Vinnustofa Ai í Beijing rifin
AFP
Rústir Stórar vinnuvélar voru not-
aðar til að rífa vinnustofuna.
Ásdís Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
Líklega myndu fáir kjósa að standa
einir á sviði og opinbera sín innstu
leyndarmál; leyndarmál sem eru
svo viðkvæm að fjölskyldunni er
ekki boðið í leikhúsið. Það er ná-
kvæmlega það sem Íslandsvinurinn
Ben Strothmann ætlar að gera í
dag klukkan 17 á sviði Tjarnarbíós.
Strothmann er á Íslandi í sjöunda
sinn til þess að taka þátt í Hinseg-
in dögum. Hann er betur þekktur
sem vegan-draggdrottingin Honey
LaBronx, en hún hefur skemmt á
Íslandi við góðan orðstír. Stroth-
mann ferðast mikið um Bandaríkin
sem Honey og safnar í leiðinni fé
fyrir Anonymous for the Voiceless
og breiðir út boðskap veganisma.
Skrautlegar sögur
úr fortíðinni
En í dag mun hann standa ber-
skjaldaður á sviði sem hann sjálfur;
enginn búningur, enginn farði.
Hann ætlar að segja áhorfendum
sögu sína sem hófst þegar hann var
lítill drengur í Wisconsin og upp-
götvaði samkynhneigð sína. Veg-
ferð hans til fullorðinsára var þyrn-
um stráð en Ben flutti til New
York þar sem hann lenti í klóm
áfengis og eiturlyfja. Eftir að botn-
inum var náð hófst leiðin til betra
lífs. Úr þessu öllu varð til ein-
leikurinn Coming Clean.
„Ég vissi ekki einu sinni að ég
væri að skrifa leikrit þegar ég
skrifaði þetta,“ segir Strothmann.
„Málið var að árið 2014 ákvað ég
með góðum fyrirvara að vera með
einleik í kirkju í New York en þeg-
ar styttist í sýningu hafði ég ekki
skrifað staf. Viku fyrir sýningu
sagðist ég vera hættur við en sýn-
ingarstjórinn sagði mér að ég yrði
að standa við orð mín; ég yrði þá
bara að lesa símaskrána á sviði,“
segir hann.
Þá voru góð ráð dýr og Stroth-
mann ákvað að segja áhorfendum
allra neyðarlegustu sögur lífs síns.
„Ég ákvað fyrst að biðja áhorf-
endur að steinþegja yfir þessum
leyndarmálum og þeir mættu ekki
segja nokkurri lifandi sálu frá
þessu; sýningin yrði bara þetta
eina kvöld. Ég sagði þeim ýmislegt
um mig sem hvorki vinir mínir né
fjölskylda vissi um mig. Ég lifði
ansi skrautlegu, spennandi og ógn-
vekjandi lífi áður en ég varð edrú.
Þessar sögur eru svo góðar að þær
mega ekki að gleymast þótt þær
geti sært einhverja. Þannig að ég
fór á svið og sagði þessar sögur og
hafði ekki hugmynd um hvernig
þessu yrði tekið,“ segir Stroth-
mann.
„Þetta er allt dagsatt“
Það var fullt hús þetta kvöld,
honum til mikillar furðu, og það
sem meira var, fólk skellihló.
„Það var svo furðulegt, ég þurfti
alltaf að gera hlé á máli mínu því
fólk hló svo mikið. En ég hugsaði
þetta aldrei sem leikrit, ég var
bara á sviði að segja sögur,“ segir
hann og segist aldrei hafa ætlað að
sýna þetta aftur. Í fyrra
ákvað hann, eftir mikla
pressu, að sýna einleikinn
aftur og í þetta sinn troð-
fyllti hann stóran sal í leik-
húsi í New York. Í tilefni
Hinsegin daga er
Strothmann nú
kominn til Ís-
lands og ætlar
að sýna ein-
leikinn sinn
hérlendis.
„Ég er
alltaf
hálf-
stressaður að hugsa
til þess að fólk er
að koma á sýn-
inguna mína. Þeg-
ar leikstjórinn end-
urtekur kannski
línu frá mér hugsa
ég stundum, guð
minn góður, ekki
segja þetta! Leik-
ritið er mjög
beinskeytt og jafnvel gróft.
Ég er ekki að reyna að vera
dónalegur en vegna eðlis
efnisins sem ég er að fjalla
um er engin önnur leið en
að tala um það eins og
það er,“ segir hann.
„Fólk spyr mig oft eftir
leikritið hversu mikið af
þessu sé í raun sann-
leikur. Ég svara bara,
ertu að grínast? Þetta er
allt dagsatt. Fólk trúir
þessu ekki og heldur að ég
hafi verið að ýkja,“ segir
hann og bætir við:
„Ég myndi ekki vilja að for-
eldrar mínir sæju leikritið.“
Að skjóta sig í fótinn
En einleikurinn er ekki ein-
ungis grín því sumar sögurnar
eru harmrænar. „Þetta er ekki
grískur harmleikur en ef ég
passa mig ekki getur sýningin
orðið þung og sorgleg. Ég hef
þurft að vinna í þessu til þess að
halda þessu léttu og fyndnu en
þetta er líka alvarlegt,“ segir hann
og hlakkar til að leyfa Íslendingum
að kynnast sér betur.
„Ef ég vildi að einhver vissi
allt um mig byði ég honum á
þetta leikrit. Annars get ég varla
hugsað um það, þá hugsa ég
bara; hvað er ég að gera? Það er
dálítið eins og ég sé að skjóta
mig í fótinn,“ segir hann og seg-
ist ekki vita hvort Íslendingar
muni mæta.
„Ég hef ekki hugmynd um
hvort fimm mæta eða hundrað,
það kemur bara í ljós. Og ef ég
gleymi línunum mínum þá bið ég
bara ljósamanninn að hjálpa
mér,“ segir hann og brosir.
Honey mætir á svið
Strothmann ætlar ekki að láta
sér nægja að afhjúpa líf sitt í
Tjarnarbíói því næstkomandi
miðvikudag, 15. ágúst, mun
Strothmann bregða sér í líki
Honey LaBronx og skemmta
fólki á Gauki á Stöng til styrktar
Íslandsdeild Anonymous for the
Voiceless. Hefst sú skemmtun
klukkan 21 en húsið verður opnað
hálftíma fyrr.
Strothmann mun dvelja hér
nánast allan ágústmánuð og held-
ur svo af stað til Bandaríkjanna í
sýningarferð um landið sem
Honey. En Ísland er alltaf á dag-
skrá hjá honum, enda notar hann
hvert tækifæri til að heimsækja
vini og æfa íslenskuna, en hann
talar ágætis íslensku þótt hann
sé farinn að ryðga að eigin sögn.
Íslenskuna hefur hann lært á síð-
ustu fimmtán árum vegna aðdá-
unar sinnar á Björk.
Leyndarmál fortíðar afhjúpuð
Íslandsvinurinn Ben Strothmann sýnir kómískan einleik byggðan á lífi sínu og hvernig hann tókst
á við samkynhneigð sína og fíknir Biður áhorfendur að steinþegja yfir leyndarmálum sínum
Ljósmynd/Steven Fontas
Drag Strothmann
sem Honey
LaBronx.
Leyndarmál Bandaríkjamaðurinn Ben Stroth-
mann ætlar að opinbera líf sitt á sviði Tjarnar-
bíós klukkan 17 í dag. Þar mun hann segja
ófeiminn frá neyðarlegustu atvikum ævi sinnar
í einleiknum Coming Clean.
Ljósm./Anthony
Moringello