Morgunblaðið - 08.08.2018, Síða 19

Morgunblaðið - 08.08.2018, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2018 Korpúlfsstaðir í kvöldglýju Í ljósaskiptunum smýgur gulleit birtan á stöku stað gegnum Korpúlfsstaði, stórbýlið sem Thor Jensen lét reisa á þriðja áratug síðustu aldar. Kristinn Magnússon „Á mánudaginn komu hingað til borgar frá Íslandi tveir ungir og efnilegir menn, báð- ir ættaðir af Sauðár- króki, en þeir eru Kári Jónsson sonur Jóns Björnssonar verzl- unarmanns og konu hans Unnar Magnús- dóttur, og Eiríkur Haukur Stefánsson, sonur Stefáns Vagnssonar og konu hans Helgu Jónsdóttur; þeir munu hafa í hyggju, að ílengjast hér í landi, ef alt gengur að óskum.“ Þannig hljóðaði stutt frétt í Lög- bergi, blaði Vestur-Íslendinga í Kanada, 17. júní 1954, sama dag og haldið var upp á 10 ára afmæli lýð- veldisins. Daginn áður hafði Heims- kringla birt frétt sama efnis. Kári og Haukur (Húggi eins og hann var alltaf kallaður) voru þá báðir á 21. aldursári, fæddir 1933. Ævintýraþrá leiddi þessa ungu Króksara til að freista gæfunnar í Kanada, en erfitt atvinnuástand spilaði þar einnig inn í. Báðir áttu þeir drauma sem ekki rættust í Kanada. Kári er faðir þess er hér skrifar. Fábreytni og höft Á sjötta áratug síðustu aldar voru tækifærin á Íslandi ekki mörg fyrir unga menn. Atvinnulíf var einhæft, höft við lýði enda höfðu vindar frels- is sem fylgdu Viðreisnarstjórn Sjálf- stæðisflokks og Alþýðuflokks 1959 til 1971 ekki fengið að blása um þjóð- félagið. Í leiðara Morgun- blaðsins 21. mars 1953 var bent á að lífskjör „þessarar þjóðar eins og annarra þjóða hljóta fyrst og fremst að byggjast á því, að hún eigi í fyrsta lagi sem fullkomnust fram- leiðslutæki til þess að bjarga sér með, og í öðru lagi að rekstur þessara tækja hvíli á heilbrigðum grund- velli“. Í mörgu hafði Ís- lendingum orðið ágengt að byggja upp eftir seinni heimsstyrjöldina, – „afla sér nýrra og fjölbreyttari tækja til atvinnurekstrar síns til lands og sjávar,“ eins og Morgun- blaðið sagði en bætti við: „En það er ekki nóg að við eign- umst mörg og fullkomin atvinnu- tæki. Það verður að vera hægt að reka þessi tæki þannig að þau skapi almenningi atvinnu og öryggi um af- komu sína.“ Haraldur Júlíusson, kaupmaður á Sauðárkróki, (móðurafi Einars K. Guðfinnssonar, fyrrverandi ráð- herra og þingmanns) lýsti ástandi í atvinnumálum ágætlega í bréfi til Kára í janúar 1955. Þar greinir hann frá því að ríkisstjórnin hafi keypt togarann Vilborgu frá Vestmanna- eyjum og „ætlar hann handa Sauð- árkrók og Ólafsfirði en þó ekki gef- ins heldur eiga þessir aðilar að kaupa hann en vitanlega verður það aldrei nema formið því líkur eru litl- ar fyrir að sú útgerð geti borið sig hér frekar en annarstaðar nema síð- ur og þá verður það auðvitað Ríkið sem verður að hlaupa undir bagga því ekki geta þessir aðilar tekið á sig taprekstur að neinu ráði“. Haraldur segir einnig frá því að um áramótin hafi komið „dálítið smásíldarhlaup og var hún veidd til niðursuðu, er búið að framleiða nokkra tugi þús- unda dósa sem allar seljast um leið, hefur skapast við dágóð atvinna fyr- ir nokkrar stúlkur og karlmenn“. Einnig var gerð tilraun til að bræða eitthvað af síldinni en Haraldur seg- ir að það verði ekki „gróða fyrir- tæki“. Haftastefna og kjarabótastefna Fyrir þingkosningar í júní 1953 gaf Ólafur Björnsson, prófessor og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, út bókina Haftastefna og kjarabóta- stefna. Þar lagði hann áherslu á mikilvægi frjálsrar verslunar, sem tryggi „lægstan dreifingarkostnað og hagkvæmust innkaup“. Ólafur færði rök fyrir því að hagur launa- fólks væri best tryggður með frjálsi samkeppni og því ættu samtök þeirra að beita sér fyrir frjálsu neysluvali og jafnvægi í þjóðar- búskapnum, en ekki að knýja fram óraunhæfar kauphækkanir. Ólafur var formaður BSRB 1948 til 1956. Fyrir yngra fólk sem gengur að frelsinu sem vísu og telur góð lífs- kjör sjálfsögð er erfitt að skilja þjóðfélagsbaráttuna sem oft var ill- víg, fyrir og eftir síðari heimsstyrj- öld. Tekist var á um hugmynda- fræði miðstýringar og alræðis annars vegar og athafnafrelsis ein- staklinganna hins vegar. Þegar ungu mennirnir frá Sauðárkróki ákváðu að leggjast í víking til Kan- ada var flestu í efnahagslífinu hand- stýrt af stjórnvöldum. Fjár- málamarkaður var ekki til og vextir voru ákveðnir af ríkisstjórn. Gengi var mismunandi eftir vörum og svartamarkaður með gjaldeyri var í blóma. Flest var háð leyfum og vöruúrval fátæklegt. Það er því ekki að furða að frelsið í Kanada hafi vakið athygli ungu vinanna frá Króknum. Í bréfi til föð- ur síns í september 1954 segir Kári að verslunarhættir séu gróskumikl- ir, kenni þar margra grasa og margt megi læra „ef vel er tekið eftir“: „Það sem maður tekur fyrst eftir, er frelsið, sem ríkjandi er á flestum sviðum. Allar búðir eru yfirfullar af varning og verð og gæði afar mis- jafnt. Þar sýnir að verzlunarmaður- inn hefur frelsi í vali og álagningu.“ Kári hreifst af „sjálfsafgreiðslu“ í verslunum og framkomu afgreiðslu- fólksins sem sé „mjög eftirtektar- verð, vegna kurteisi og alúðar, sem það hefur til að bera í ríkum mæli“. Hann skynjaði hvernig frelsi og samkeppni laðaði fram það besta. Ekki langt frá eikinni Vinirnir sem fóru á vit ævintýr- anna í Kanada fyrir 64 árum sneru aftur heim reynslunni ríkari og kunnu að meta Ísland betur en áður – sáu landið í bjartara ljósi. Báðir tóku þeir þátt í, hvor með sínum hætti, að umbreyta Íslandi og gera það að einu öflugasta velferðarríki heims. Þeir fengu að upplifa hvern- ig Ísland braust úr fjötrum hafta og helsis. Þeir, ásamt öðrum af þeirra kynslóð, lögðu grunninn að öflugra og fjölbreyttara atvinnulífi – tryggðu að þeir sem á eftir komu fengju tækifæri sem þeir gátu aldr- ei látið sig dreyma um, hvorki í Kanada né á Íslandi. Vinirnir féllu báðir frá á besta aldri. Kári árið 1991 og Húggi rúmu ári síðar – 58 og 59 ára. Eitthvað segir mér að þeir ættu erfitt með að skilja íslenskt þjóðfélag í dag. Báðir væru ánægðir með þann gríðarlega árangur sem náðst hefur, þar sem Íslands hefur skipað sér á bekk mestu velmegunarþjóða sögunnar. Hvorugur gæti hins vegar komið því heim og saman hvernig í ósköp- unum nokkrir verkalýðsforingjar telja rétt að taka upp gömul vinnu- brögð og efna til átaka um tugpró- senta kauphækkanir sem engin innistæða er fyrir. Og eitt veit ég fyrir víst. Faðir minn hefði aldrei haft skilning eða tekið undir með þeim stjórnmála- mönnum sem ala á andúð og tor- tryggni í garð einstakra atvinnu- greina og fyrirtækja og nýta hvert tækifæri sem gefst til að grafa und- an gjaldmiðli sjálfstæðrar þjóðar. Í þessu efni a.m.k. féll eplið ekki langt frá eikinni. Eftir Óla Björn Kárason » Vinirnir sem fóru til Kanada fyrir 64 árum sneru heim. Þeir, ásamt öðrum af þeirra kynslóð, lögðu grunninn að einu mesta velferðarríki heims. Óli Björn Kárason Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Að meta Ísland betur en áður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.