Morgunblaðið - 08.08.2018, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Reyndu að hugsa um þá kosti sem þú
býrð yfir og útilokaðu galla þína. Skipulagning
er allt sem þarf til að þú getir klárað þau verk-
efni sem bíða þín.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er orðið fullkomlega tímabært að
þú hafir samband við vini þína þótt þeir hafi
látið vera að hafa samband við þig. Samtöl við
þá fá aukið vægi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Gamansemi þín gengur vel í aðra
svo þú ert vinsæll meðal vina og samstarfs-
manna. Njóttu þess að tala við aðra, jafnvel þá
sem þú hittir úti á götu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það skiptir engu máli hversu lengi þú
talar, fólk er ekki að hlusta. Mundu að ekki eru
allir viðhlæjendur vinir svo að þú þarft að velja
þá sem eru þér traustir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Breytingar breytinganna vegna hafa ekk-
ert upp á sig. Þú þarft að tryggja að skoðanir
þínar komist á framfæri. Aðeins þannig áttu
möguleika á því að ná árangri.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur mikla orku og getur afrekað
tvisvar sinnum meira en vanalega. Nú er rétti
tíminn til þess að koma hugmyndum þínum á
framfæri við starfsfélaga þína og yfirmenn.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ekki neyða ráðgerðum þínum upp á aðra,
leyfðu hlutunum að ráðast. Þú skalt ekki
reikna með stuðningi annarra sem gefnum
hlut. Þú þarft á öllum þínum kröftum að
halda.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það felst áskorun í að binda enda
á vissa hluti þessa dagana. Ef þú ert hreinn og
beinn þarftu ekki að fara af milli staða með
kólgubakka yfir höfðinu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Haltu persónulegum samskiptum
á léttum og áhyggjulausum nótum, það færir
þér heppni. Einbeittu þér að því að taka til í
þínum eigin ranni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú getur ekki breytt öðru fólk, bara
viðbrögðum þínum við þeim. Sumt er manni
ekki gefið að skilja svo þú skalt ekki einu sinni
reyna það.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að sinna persónulegum
málum í dag og gætir þurft að hagræða ýmsu
til þess að geta það. Reyndu að komast hjá því
að munnhöggvast við samstarfsmenn þína.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér finnst óþolandi þegar aðrir grípa
inn í starf þitt og reyna að beina þér á aðrar
brautir en þú vilt. Haltu þínu striki því sumum
er ekki sjálfrátt vegna eigin mistaka.
Mývetningurinn Friðrik Stein-grímsson brá sér suður á mót
harmonikkuleikara, sem haldið var á
Borg í Grímsnesi, og orti á laugar-
dagsmorgun kl. hálfníu – og er sterk
og skemmtileg hrynjandi í stökunni:
Eftir nætur ógnar vætu
eygir glætu sála mín;
laugardagur ljós og fagur
léttir hag er sólin skín.
Ég gat ekki stillt mig um að fletta
upp í bragfræði Sveinbjarnar Bein-
teinssonar og þar er hátturinn sagður
„langhenda, þríkveðið“ og gefið þetta
dæmi:
Hlynur dvaldi á værðar valdi
vetrarkalda hríðarnótt.
Þegar birti vera virtist
veðurkyrrt og lygnurótt.
Pétur Stefánsson orti um veðrið í
Reykjavík á laugardag og lá vel á
honum:
Hér geislar nú glaðværðin sanna
sem grípa vill hali og svanna,
því fögur er hlíðin
og frábær er tíðin
á frídegi verslunarmanna.
En það var annað hljóð í strokknum
hjá Þóri Jónssyni norður á Ólafsfirði:
Úrill tíðin ekki gleður.
Engin sól á belgina.
Hér er þokuvætuveður
um vitlausramannahelgina.
Um helgarlok orti Pétur:
Eftir glaum og gleðimót
mun gleymskan ýmsa þjaka,
og eflaust kemur einhver snót
ólétt heim til baka.
Og af sama tilefni yrkir Ármann
Þorgrímsson:
Vildu allir ljóst og leynt
lífsgleðina finna.
Engum hefði orðið meint
af þó drykki minna.
Konráð Gíslason sagði að for-
eldrar sínir hefðu verið hagmæltir
en móðir sín hagmæltari. Eftir þau
væri t.d.:
Að yrkja kvæði ólán bjó
eftir fornri sögu.
Gaman er að geta þó
gert ferskeytta bögu.
Móðir Konráðs, Efemía, átti seinni
partinn og stóð ekki á.
Þorsteinn Gíslason orti um vor-
himininn – sem Guðmundur Finn-
bogason sagði að allir lærðu undir
eins:
Þú ert fríður, breiður, blár
og bjartar lindir þínar;
þú er víður heiður, hár
sem hjartans óskir mínar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Á verslunarmannahelgi
eru veður misjöfn
„EN Á MANNAMÁLI... LÍKAR ÞÉR VEL VIÐ
MIG?“
„YFIRLEITT TÖKUM VIÐ EKKI VIÐ
NEMENDUM Í FYRSTA BEKK FYRR EN ÞEIR
ERU ORÐNIR FIMM ÁRA.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... ekki á jöfnum
grundvelli.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HVAÐ MÉR
FINNST UM ÞIG
SKÓGAR-
BJÖRN!
HONUM FINNST
ÞETTA SKEMMTILEGT
ÞETTA ER ÁN
NOKKURS VAFA EKKI
ENGLAND!
EN VIÐ VERÐUM SAMT
AÐ BORÐA! HVERNIG
OPNA ÉG ÞESSA
HNETU?
LEMDU SIGLINGAFRÆÐINGINN MEÐ HENNI!
Ekkert lát er á hitum í Evrópu. Vík-verji hefur heyrt að lítil hreyfing
sé á ferðum til hinna svokölluðu sólar-
landa í Norður-Evrópu. Eftir hitakóf-
ið í norðrinu heilli ekkert sérstaklega
að halda suður á bóginn í meiri sól.
Fyrir vikið sé hægt að fá sólarlanda-
ferðir á spottprís í Kaupmannahöfn
og Amsterdam.
x x x
Víkverji veltir fyrir sér hvort mark-aðsmenn hafi klikkað á að aug-
lýsa hið svala Ísland í hitahrjáðri Evr-
ópu. Það væri örugglega hægt að
drekkhlaða nokkrar vélar með hita-
hrjáðum Evrópubúum, sem sjá það
fyrir sér í hillingum að sitja niður-
rigndir í tíu stiga hita uppi á einhverri
heiðinni.
x x x
Misskipting á veðri hefur reyndarekki með öllu farið framhjá
miðlum á meginlandinu. Austur-
bæverski fréttavefurinn idowa hafði
samband við ritstjórn Morgunblaðs-
ins og birti í kjölfarið mynd af ferða-
mönnum í regnblautum miðbæ
Reykjavíkur undir fyrirsögninni „Hér
ráða regnhlífar ríkjum í stað sólhlífa“.
x x x
Sagði síðan að á meðan öll Evrópaæmti og skræmti undan þrúg-
andi hitabylgjunni byði eitt land hit-
anum óbugað byrginn með rigningu,
roki og kulda.
x x x
Daginn sem fréttin birtist var hitinnúti við heilar 36 gráður og loft-
kælingin á yfirsnúningi á ritstjórn
idowa, en hitinn aðeins níu gráður á
Íslandi. Í niðurlagi fréttarinnar sagði
að sá sem leitaði „kælingar á dögum
sem þessum þegar vatnið sýður meira
að segja á almenningsbaðstöðum veit
nú af hinum fullkomna ferðastað: Ís-
landi“.
x x x
Sumarið hefur verið fremur gráttog vott sunnanlands og sólar-
dagar fáir. Víkverji hefur fyrir satt að
á dögunum þegar birtist gul viðvörun
frá veðurstofu hafi þónokkrir rokið út
í búð eftir sólvörn þar sem þeir héldu
að verið væri að vara við óvæntu sól-
skini. vikverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er nálægur þeim sem hafa
sundurmarið hjarta, hann hjálpar
þeim sem hafa sundurkraminn anda.
(Sálmarnir 34.19)