Morgunblaðið - 08.08.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2018
Ásgeir Long, kvik-
myndagerðarmaður,
vélfræðingur og
þúsundþjalasmiður,
lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði 3. ágúst
síðastliðinn, 90 ára að
aldri.
Ásgeir fæddist í
Hafnarfirði þann 16.
september 1927. For-
eldrar hans voru
Valdimar Sigmunds-
son Long, verslunar-
maður í Hafnarfirði,
og Arnfríður Sigurrós
Einarsdóttir kennari.
Ásgeir stundaði nám í Iðnskól-
anum í Hafnarfirði og útskrifaðist
sem vélstjóri og rennismiður frá
Vélstjóraskólanum. Hann vann
nokkur ár á sjó sem vélstjóri áður
en hann fór að sinna eigin rekstri
og hugðarefnum, einkum kvik-
myndagerð. Hann stofnaði véla-
verkstæðið Litlu vinnustofuna árið
1953 en vann síðar á vélaverkstæði
Jóns Ólafs í Hafnarfirði. Hann
stofnaði einnig báta- og vélaverk-
stæðið Barco árið 1978.
Ásgeir var í hópi frumkvöðla í
kvikmyndagerð á Íslandi. Var
kunnasta kvikmynd hans, Gilitrutt
(1957), meðal annars meðal þeirra
fyrstu í íslenskri kvikmyndasögu.
Aðrar kvikmyndir Ásgeirs eru
Tunglið, tunglið taktu
mig (1955), Íslenskt
skart (1968), Lax í Laxá
(1969), Virkjun (1972)
og Saga um lágmynd
(1990). Þá gerði hann
fjölda heimildarmynda
og auglýsinga.
Hann stofnaði fram-
leiðslufyrirtækið Kvik
sf. ásamt Páli Stein-
grímssyni og Ernst
Kettle í upphafi árs
1973. Stuttu seinna
hófst Vestmannaeyja-
gosið og fyrsta kvik-
myndin sem fyrirtækið
framleiddi var Eldeyjan, sem hlaut
verðlaun á alþjóðlegu kvikmynda-
hátíðinni í Atlanta í Bandaríkjun-
um.
Ásgeir tók fjöldann allan af ljós-
myndum og setti upp sýningar,
hann smíðaði líkan af gufuvél líkt
og var í togaranum sem hann vann
á sem ungur maður en líkanið er til
sýnis í Sjóminjasafninu. Hann ók
meðal annars upp á Esjuna árið
1963 ásamt vinum sínum á bíl sem
hann smíðaði sjálfur. Þá flutti hann
inn og setti upp kirkjuklukkur og
hringingarbúnað í kirkjur á Íslandi.
Eiginkona Ásgeirs var Guðbjörg
Gunnarsdóttur, sem lést árið 2004.
Börn þeirra eru Valdimar f. 1958,
og Björg, f. 1960.
Andlát
Ásgeir Long
VÖNDUÐ JEPPADEKK
Á FRÁBÆRU VERÐI
STÆRÐ 315/70R17
49.600,- kr.
STÆRÐ 285/70R17
46.900,- kr.
ARCTIC TRUCKS | KLETTHÁLSI 3 | 110 REYKJAVÍK | 540 4900
WWW.ARCTICTRUCKS.IS
ÞÚ FÆRÐ JEPPADEKKIN HJÁ OKKUR!
1.259.000
Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Verð frá
m. vsk
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Liðsmenn Sea Shepherd UK, sam-
taka aðgerðasinna í Bretlandi, hafa
fylgst náið með starfsemi Hvals hf. í
hvalstöðinni í Hvalfirði í sumar. Ro-
bert Read, aðgerðastjóri hjá Sea
Shepherd UK, segir að vöktunin sé
sú fyrsta sem stendur yfir heilt hval-
veiðitímabil við hvalstöð Hvals hf.
Meginmarkmið samtakanna er að
koma í veg fyrir ólöglegt dráp á dýr-
um og eyðileggingu heimkynna
þeirra við strendur Bretlands og í
höfum heimsins og er eftirlitið hugs-
að til upplýsingar um hvalveiðar.
„Það hafa verið tveir til fimm frá
okkur á svæðinu í allt sumar. Hlut-
verk okkar er þríþætt, að mynda það
þegar skipin koma inn með hvali,
þegar hvalurinn er skorinn og síðan
höfum við streymt því í beinni út-
sendingu á Facebook-síðu okkar,“
segir Read. „Við tölum líka við þá
ferðamenn sem eiga leið um Hval-
fjörð. Við út-
skýrum fyrir fólki
hvað er um að
vera, hve margir
hvalir eru veidd-
ir, hver kvótinn
er og af hvaða
tegund þeir eru.
Við segjum þeim
að þetta sé ekki
hrefnukjötið sem
borið er á borð á
veitingastöðum í Reykjavík, heldur
sé kjötið nær allt selt til Japans,“
segir hann.
Á vakt allan sólarhringinn
Sjálfboðaliðar frá nokkrum lönd-
um hafa lagt hönd á plóg í eftirlitinu,
sem er fyrsta aðgerð samtakanna á
Íslandi. Eru þeir m.a. frá Bandaríkj-
unum, Kanada og Spáni.
„Samtökin eru tiltölulega ung, en
þar sem hér á landi eru ekki Sea
Shepherd-samtök höfum við starf-
semi á Íslandi og í Færeyjum,“ segir
Read, en nefnir þó að hann hafi verið
í sambandi við áhugasama Íslend-
inga sem vilji stofna séríslensk sam-
tök. „Ég hef sjálfur fylgst með Hval
hf. og Kristjáni Loftssyni allt frá því
ég hitti hann á ráðstefnu Alþjóða-
hvalveiðiráðsins í Madeira í Portú-
gal árið 2009. Upp frá því hef ég
unnið að uppbyggingu Sea Shep-
herd UK og nú getum við sjálf staðið
undir öllum okkar aðgerðum, þ. á m.
eftirlitinu í Hvalfirði,“ segir Read.
„Enginn hópur hefur gert þetta
yfir heilt tímabil, margir hafa komið
og vaktað hvalstöðina í upphafi þess.
Enginn hefur haft fjármagn eða
mannskap til að sinna viðvarandi
eftirliti,“ segir Read og bætir við að
samtökin hafi gistipláss skammt frá
hvalstöðinni þaðan sem sjá megi
skip Hvals hf. í innsiglingu.
„Vaktirnar standa síðan yfir allan
sólarhringinn með þeirri undantekn-
ingu að ef bæði skipin sigla út í einu,
þá fáum við hlé í u.þ.b. fimm til tíu
klukkustundir,“ segir hann.
Morgunblaðið/GSH
Vöktun Sea Shepherd UK við eftirlit í Hvalfirði um helgina. Samtökin munu standa vaktina allt veiðitímabilið.
Munu fylgjast náið með
hvalstöðinni í allt sumar
Sea Shepherd UK fyrst til að vakta Hval hf. heilt tímabil
Robert
Read
Fleiri refir eru á Kjalarnesi og víðar
innan borgarmarka Reykjavíkur en
undanfarin ár. Grenin eru ekki uppi í
fjöllum eins og áður var heldur niðri á
láglendi og jafnvel við sjóinn.
Guðmundur Björnsson, rekstrar-
stjóri Meindýravarna Reykjavíkur-
borgar, segir að grenjavinnsla hafi
gengið vel í umdæminu en þar sem
henni sé ekki að fullu lokið liggi ekki
fyrir upplýsingar um fjölda unninna
dýra. Hann segir þó ljóst að sama
þróun sé í ár og síðustu tvö ár, að ref-
um fari fjölgandi. Hann hefur heyrt af
sömu þróun í nágrannasveitarfélög-
um.
Refir hafa sést í jaðri borgarinnar,
til dæmis í Húsahverfi í Grafarvogi og
við verslun Bauhaus, auk dýra sem
sjást í Grundahverfi á Kjalarnesi.
Þannig var Guðmundur kallaður út
tvisvar í sömu vikunni til að hirða upp
hræ refa sem urðu fyrir bílum á
Vesturlandsvegi. helgi@mbl.is
Refirnir færa sig
niður á láglendið
Ref fjölgar innan borgarmarkanna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Refir Yrðlingar sem fóstraðir voru í Langadal í Þórsmörk kalla á mat.