Morgunblaðið - 08.08.2018, Síða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2018
Korpúlfsstaðir í kvöldglýju Í ljósaskiptunum smýgur gulleit birtan á stöku stað gegnum Korpúlfsstaði, stórbýlið sem Thor Jensen lét reisa á þriðja áratug síðustu aldar.
Kristinn Magnússon
„Á mánudaginn
komu hingað til borgar
frá Íslandi tveir ungir
og efnilegir menn, báð-
ir ættaðir af Sauðár-
króki, en þeir eru Kári
Jónsson sonur Jóns
Björnssonar verzl-
unarmanns og konu
hans Unnar Magnús-
dóttur, og Eiríkur
Haukur Stefánsson,
sonur Stefáns Vagnssonar og konu
hans Helgu Jónsdóttur; þeir munu
hafa í hyggju, að ílengjast hér í
landi, ef alt gengur að óskum.“
Þannig hljóðaði stutt frétt í Lög-
bergi, blaði Vestur-Íslendinga í
Kanada, 17. júní 1954, sama dag og
haldið var upp á 10 ára afmæli lýð-
veldisins. Daginn áður hafði Heims-
kringla birt frétt sama efnis. Kári og
Haukur (Húggi eins og hann var
alltaf kallaður) voru þá báðir á 21.
aldursári, fæddir 1933. Ævintýraþrá
leiddi þessa ungu Króksara til að
freista gæfunnar í Kanada, en erfitt
atvinnuástand spilaði þar einnig inn
í. Báðir áttu þeir drauma sem ekki
rættust í Kanada. Kári er faðir þess
er hér skrifar.
Fábreytni og höft
Á sjötta áratug síðustu aldar voru
tækifærin á Íslandi ekki mörg fyrir
unga menn. Atvinnulíf var einhæft,
höft við lýði enda höfðu vindar frels-
is sem fylgdu Viðreisnarstjórn Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks 1959
til 1971 ekki fengið að blása um þjóð-
félagið.
Í leiðara Morgun-
blaðsins 21. mars 1953
var bent á að lífskjör
„þessarar þjóðar eins
og annarra þjóða hljóta
fyrst og fremst að
byggjast á því, að hún
eigi í fyrsta lagi sem
fullkomnust fram-
leiðslutæki til þess að
bjarga sér með, og í
öðru lagi að rekstur
þessara tækja hvíli á
heilbrigðum grund-
velli“. Í mörgu hafði Ís-
lendingum orðið ágengt að byggja
upp eftir seinni heimsstyrjöldina, –
„afla sér nýrra og fjölbreyttari
tækja til atvinnurekstrar síns til
lands og sjávar,“ eins og Morgun-
blaðið sagði en bætti við:
„En það er ekki nóg að við eign-
umst mörg og fullkomin atvinnu-
tæki. Það verður að vera hægt að
reka þessi tæki þannig að þau skapi
almenningi atvinnu og öryggi um af-
komu sína.“
Haraldur Júlíusson, kaupmaður á
Sauðárkróki, (móðurafi Einars K.
Guðfinnssonar, fyrrverandi ráð-
herra og þingmanns) lýsti ástandi í
atvinnumálum ágætlega í bréfi til
Kára í janúar 1955. Þar greinir hann
frá því að ríkisstjórnin hafi keypt
togarann Vilborgu frá Vestmanna-
eyjum og „ætlar hann handa Sauð-
árkrók og Ólafsfirði en þó ekki gef-
ins heldur eiga þessir aðilar að
kaupa hann en vitanlega verður það
aldrei nema formið því líkur eru litl-
ar fyrir að sú útgerð geti borið sig
hér frekar en annarstaðar nema síð-
ur og þá verður það auðvitað Ríkið
sem verður að hlaupa undir bagga
því ekki geta þessir aðilar tekið á sig
taprekstur að neinu ráði“. Haraldur
segir einnig frá því að um áramótin
hafi komið „dálítið smásíldarhlaup
og var hún veidd til niðursuðu, er
búið að framleiða nokkra tugi þús-
unda dósa sem allar seljast um leið,
hefur skapast við dágóð atvinna fyr-
ir nokkrar stúlkur og karlmenn“.
Einnig var gerð tilraun til að bræða
eitthvað af síldinni en Haraldur seg-
ir að það verði ekki „gróða fyrir-
tæki“.
Haftastefna og kjarabótastefna
Fyrir þingkosningar í júní 1953
gaf Ólafur Björnsson, prófessor og
frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins,
út bókina Haftastefna og kjarabóta-
stefna. Þar lagði hann áherslu á
mikilvægi frjálsrar verslunar, sem
tryggi „lægstan dreifingarkostnað
og hagkvæmust innkaup“. Ólafur
færði rök fyrir því að hagur launa-
fólks væri best tryggður með frjálsi
samkeppni og því ættu samtök
þeirra að beita sér fyrir frjálsu
neysluvali og jafnvægi í þjóðar-
búskapnum, en ekki að knýja fram
óraunhæfar kauphækkanir. Ólafur
var formaður BSRB 1948 til 1956.
Fyrir yngra fólk sem gengur að
frelsinu sem vísu og telur góð lífs-
kjör sjálfsögð er erfitt að skilja
þjóðfélagsbaráttuna sem oft var ill-
víg, fyrir og eftir síðari heimsstyrj-
öld. Tekist var á um hugmynda-
fræði miðstýringar og alræðis
annars vegar og athafnafrelsis ein-
staklinganna hins vegar. Þegar
ungu mennirnir frá Sauðárkróki
ákváðu að leggjast í víking til Kan-
ada var flestu í efnahagslífinu hand-
stýrt af stjórnvöldum. Fjár-
málamarkaður var ekki til og vextir
voru ákveðnir af ríkisstjórn. Gengi
var mismunandi eftir vörum og
svartamarkaður með gjaldeyri var í
blóma. Flest var háð leyfum og
vöruúrval fátæklegt.
Það er því ekki að furða að frelsið
í Kanada hafi vakið athygli ungu
vinanna frá Króknum. Í bréfi til föð-
ur síns í september 1954 segir Kári
að verslunarhættir séu gróskumikl-
ir, kenni þar margra grasa og margt
megi læra „ef vel er tekið eftir“:
„Það sem maður tekur fyrst eftir,
er frelsið, sem ríkjandi er á flestum
sviðum. Allar búðir eru yfirfullar af
varning og verð og gæði afar mis-
jafnt. Þar sýnir að verzlunarmaður-
inn hefur frelsi í vali og álagningu.“
Kári hreifst af „sjálfsafgreiðslu“ í
verslunum og framkomu afgreiðslu-
fólksins sem sé „mjög eftirtektar-
verð, vegna kurteisi og alúðar, sem
það hefur til að bera í ríkum mæli“.
Hann skynjaði hvernig frelsi og
samkeppni laðaði fram það besta.
Ekki langt frá eikinni
Vinirnir sem fóru á vit ævintýr-
anna í Kanada fyrir 64 árum sneru
aftur heim reynslunni ríkari og
kunnu að meta Ísland betur en áður
– sáu landið í bjartara ljósi. Báðir
tóku þeir þátt í, hvor með sínum
hætti, að umbreyta Íslandi og gera
það að einu öflugasta velferðarríki
heims. Þeir fengu að upplifa hvern-
ig Ísland braust úr fjötrum hafta og
helsis. Þeir, ásamt öðrum af þeirra
kynslóð, lögðu grunninn að öflugra
og fjölbreyttara atvinnulífi –
tryggðu að þeir sem á eftir komu
fengju tækifæri sem þeir gátu aldr-
ei látið sig dreyma um, hvorki í
Kanada né á Íslandi.
Vinirnir féllu báðir frá á besta
aldri. Kári árið 1991 og Húggi rúmu
ári síðar – 58 og 59 ára. Eitthvað
segir mér að þeir ættu erfitt með að
skilja íslenskt þjóðfélag í dag. Báðir
væru ánægðir með þann gríðarlega
árangur sem náðst hefur, þar sem
Íslands hefur skipað sér á bekk
mestu velmegunarþjóða sögunnar.
Hvorugur gæti hins vegar komið
því heim og saman hvernig í ósköp-
unum nokkrir verkalýðsforingjar
telja rétt að taka upp gömul vinnu-
brögð og efna til átaka um tugpró-
senta kauphækkanir sem engin
innistæða er fyrir.
Og eitt veit ég fyrir víst. Faðir
minn hefði aldrei haft skilning eða
tekið undir með þeim stjórnmála-
mönnum sem ala á andúð og tor-
tryggni í garð einstakra atvinnu-
greina og fyrirtækja og nýta hvert
tækifæri sem gefst til að grafa und-
an gjaldmiðli sjálfstæðrar þjóðar. Í
þessu efni a.m.k. féll eplið ekki
langt frá eikinni.
Eftir Óla Björn
Kárason » Vinirnir sem fóru
til Kanada fyrir 64
árum sneru heim.
Þeir, ásamt öðrum af
þeirra kynslóð, lögðu
grunninn að einu mesta
velferðarríki heims.
Óli Björn Kárason
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Að meta Ísland betur en áður