Morgunblaðið - 08.08.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.08.2018, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2018 ✝ ErlingurHallsson fædd- ist að Sílalæk í Aðaldal í Suður- Þingeyjarsýslu 15. mars 1936. Hann lést á Landspít- alanum 27. júlí 2018. Foreldar hans voru Hallur Jónas- son, f. 8.1. 1903, d. 18.10. 1972, og Bergljót Guttormsdóttir, f. 13.12. 1906, d. 21.9. 1946. Systk- ini hans voru; Einar, fæddur 1934, dáinn 1936, Aðalsteinn, fæddur 1938, Ingunn, fædd 1942, dáin 2003, og Sigríður Björg, fædd 1945, dáin 2012. Eiginkona Er- lings var Ásta Tryggvadóttir, fædd í Reykjavík, 30. september 1939, dáin 5. ágúst 2016. Börn þeirra: Jónas Pétur, fæddur 12.4. 1958, dáinn 18.5. 2008, Einar, f. 22.4. 1959, Guðrún, f. 2.6. 1961, Tryggvi, f. 3.12. 1962, Hallur, f. 17.7. 1964, dáinn 28.3. 1968 og Erlingur, f. 27.2. 1972. Útför Erlings verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag, 8. ágúst 2018, klukkan 13. Árið er 1971 og ég tíu ára, það er vetur og snjór yfir öllu. Síminn hringir og æskuvinkona mín er í símanum. „Ætlar pabbi þinn að lesa í kvöld?“ spyr hún. „Já“, svara ég. „OK, ég kem þá!“ Á annars frekar nútímalegu heimili mínu var nefnilega hús- lestur tíðkaður. Pabbi las og við mamma og oft vinkona mín sátum við hannyrðir og drukkum í okkur frásagnir af konum og kraftaskáldum, hrakn- ingasögum, eldgosum og lífsbar- áttu Íslendinga í gegnum aldirn- ar. Þetta var mjög einkennandi fyrir föður minn, hann bar keim af sínum uppvexti, maður tveggja heima, með annan fótinn í forn- eskju og hinn tryggilega í nútím- anum. Faðir minn var ljúfur uppal- andi, sem hækkaði aldrei róminn við okkur systkinin, sem gátum þó verið miklir ólátabelgir eins og gengur. Ef hann taldi sig þurfa að leið- beina okkur „sílunum“ sínum, eins og hann kallaði okkur, var það gert með dæmisögum en ekki umvöndunum. Þessar dæmisög- ur sem hann spann upp úr sér voru oft á tíðum mjög kostulegar og fyndnar en við „sílin“ velkt- umst ekki í vafa um hvað betur mátti fara í háttum okkar. Föður mínum hafði vegnað vel í lífinu en hann þekkti aðra tíma og vildi að við systkinin lærðum snemma að það þyrfti að hafa fyr- ir því að eignast vasapening. Hann var útsjónarsamur í þeirri kennslu og setti upp ýmis einföld verkefni sem við gátum leyst í bíl- skúrnum og fengið greitt fyrir eftir uppmælingu. Hann lagði ríka áherslu á lest- ur og leiki, svo sem gátur, kveð- skap og farandsögur sem fóru á milli okkar og uxu að furðuleg- heitum með hverju barni. Þá var mikið hlegið og ærslast. Ég minnist æsku minnar með mikilli hlýju og þakklæti til for- eldra minna fyrir þann tíma sem ég átti með þeim. Minning þeirra lifir. Guðrún Erlingsdóttir. Í dag kveðjum við afa okkar sem við munum sakna sárt en minningarnar ylja. Afi var ótrú- legur! Hann var svo ótal margt. Hann var viðskiptamaður, lista- maður, fræðimaður, skákmaður, góður eiginmaður, mikill fjöl- skyldumaður og þannig mætti lengi telja. Hann og amma reynd- ust okkur ómetanlegur stuðning- ur og þá ekki síst þegar faðir okk- ar, elsti sonur þeirra, lést langt fyrir aldur fram. Eftir að afi veiktist kom hans sterki persónu- leiki skýrt fram. Hann tók hverj- um degi fagnandi og með ótrú- legri aðlögunarhæfni náði hann að njóta lífsins. Hann vann eins lengi og heilsan leyfði og í raun miklu lengur. Hann hélt góðu sambandi við alla sína stóru fjöl- skyldu og ekkert gladdi hann meira en velgengni og hamingja sinna nánustu. Afi tókst á við hvert verkefni með aðdáunar- verðri yfirvegun, lífsgleði og já- kvæðni. Hann var áhugasamur um hreinlega allt, framtíðar- róbóta, forsöguleg skrímsli og allt þar á milli. Hann hafði alltaf einhverja góða sögu eða fróð- leiksmola að deila. Við munum sakna afa sárt og hann skilur eftir sig stórt skarð en við erum líka ótrúlega þakk- látar fyrir allar minningarnar og allt það sem hann kenndi okkur. Nú er hann farinn en lifir áfram hjá okkur afkomendum hans um ókomna tíð. Ásta og Sigurlaug Jónasdætur. Fyrstu kynni mín af Erlingi Hallssyni voru fyrir hartnær fjörutíu árum. Þau kynni voru óhjákvæmileg en jafnframt ánægjuleg. Við Jónas Pétur, elsti sonur Erlings og Ástu, höfðum þá ákveðið að rugla saman okkar ör- fáu reytum – rúmfatnaði, tafl- borði og nokkrum vínylplötum. Áður höfðum við reyndar verið ansi flott á því og transportað um borgina þvera og endilanga í glæsivagni Erlings, Pontiac LeMans árgerð 7́7. Á jóladag 1979 var mér formlega boðið í jólamat og þá um leið að hitta væntanlegt tengdafólk. Tengda- foreldrar mínir tóku mér afar vel sem þau og gerðu allar götur síðan. Raunar fannst mér sem ég hefði fæðst á 18. öldinni þegar ég gekk inn í stórglæsilegt hús þeirra í Garðabænum því að bernskuheimili mitt hefði getað rúmast í stofunni þeirra. Erling- ur sá líklega gamla sál í sinni fyrstu tengdadóttur því hann var ólatur við að segja mér gamlar sögur og rifja upp gamlar sagnir auk þess að lána mér bækur sem fjölluðu um fyrri tíma. „Þú átt nú aldeilis eftir að hafa gaman af þessari bók, Begga mín.“ Það reyndist yfirleitt rétt en stundum gat hann ekki stillt sig um að segja frá skemmtilegustu topp- unum í bókunum, sem var dálítið eins og að ljóstra upp um endi á góðri bíómynd. Þannig var Er- lingur, sagnamaður sem ávallt sá spaugilegu hliðarnar í hverri sögu. Ég get ekki minnst Erlings án þess að minnast Ástu. Þó að við Jónas Pétur hefðum heitið hvort öðru ævarandi trúnaði skildu leiðir okkar eftir tuttugu og tveggja ára hjónaband. Ásta tengdamóðir mín sagði oft „þú skildir ekki við okkur Erling“ og það varð raunin. Allir ævidagar sem við áttum saman í þessu lífi voru dagar vináttu og velvilja. Fyrir það þakka ég um leið og ég minnist þeirra heiðurshjóna Ástu Tryggvadóttur og Erlings Hallssonar. Blessuð sé minning þeirra. Bergþóra Einarsdóttir. Enn fækkar í systkinabarna- hópnum, afkomenda Sigríðar Friðjónsdóttur og Jónasar Jón- assonar á Sílalæk í Aðaldal. Nú kveðjum við Erling Hallsson. Hann var næstelsta barn Halls föðurbróður míns og Bergljótar konu hans, sá elsti sem komst upp en eldri var Einar, sem lést um tveggja ára aldur. Erlingur var sterkur persónu- leiki sem auðvelt var að hrífast af. Hann vann við verslunar- og kaupmannsstörf mestalla sína starfsævi og að segja til þess síð- asta. Hann var líka sagnfræðing- ur af Guðs náð. Hann las mikið, grúskaði mikið og var vel að sér um marga hluti sem tengdust ættinni okkar, forfeðrum og mörgu fleiru. Hann vildi segja frá og deila. Fyrir mér var það oft eins og að sitja við sagnabrunn að hlusta á hann. Hann vissi mín sterku tengsl við frændfólk okkar og naut þess að segja mér frá. Erlingur fæddist á Sílalæk en flutti fljótlega til Húsavíkur, þar sem fjölskyldan byggði sér hús við „Rauðatorgið“. Þetta voru lítil einbýlishús sem byggð voru af verkamönnum og var Hallur fað- ir hans einn af þeim sem voru í forsvari fyrir þessar fram- kvæmdir. Árið 1946, þegar Erlingur var tíu ára, varð fjölskyldan fyrir því mikla áfalli að móðir hans féll frá mjög skyndilega og stóð Hallur, pabbi hans, þá einn uppi með fjögur ung börn. Heimilið losnaði upp og fóru þau systkinin hvert í sína áttina. Erlingur var á þess- um tíma hjá frændfólki sínu á Sandsbæjunum, þeim Baldri Guðmundssyni og Signýju Hjálmarsdóttur á Bergi, og ólst hann þar upp fram yfir fermingu. Eftir það kom hann suður og þeir bræður, hann og Aðalsteinn, sameinuðust um að koma sér áfram, sem þeim tókst við góðan orðstír. Byrjuðu sem sendlar, urðu verslunarstjórar og stofn- uðu síðan sín eigin fyrirtæki, fyrst með nýlenduverslanir og síðar húsgagnaverslanir. Þeim gekk mjög vel og voru eftirsóttir, enda einstaklega liðlegir við alla sína kúnna. Erlingur hafði mörg hugðar- efni önnur en lestur, hann tefldi, spilaði brids og golf, og stóð sig vel alls staðar. Hann var einnig mjög listfengur og eftir hann liggja mörg listaverk. Síðustu árin glímdi hann við veikindi og eftir andlát Ástu konu hans flutti hann í Eirborgir, þar sem hann undi hag sínum vel. Þar naut hann þess að eiga fé- lagsskap með öðrum íbúum og var virkur í mörgu. Ég heimsótti hann tvisvar á þeim tíma, sem hann bjó þar og skynjaði mjög vel hvernig um- hverfið þarna bætti honum lífs- gæðin og fylltu það skarð sem hafði orðið við missi eiginkonu og þess að heilsan fór þverrandi. Í apríl sl. hafði Erlingur sam- band við mig og vildi ræða ýmis mál. Ég fór til hans í kjölfarið ásamt Halli, systursyni hans. Hann fór yfir margt með okk- ur og langaði að fá meiri tíma með okkur. Ég færði honum tvær bækur, sem frændi okkar hafði tekið saman um langömmu- bróður okkar, Jón Halldórsson, sem var einn af þeim fyrstu sem fluttu til Vesturheims og settist að í Nebraska á seinni hluta 19 aldar. Bækur sem ég vissi að Er- lingur mundi njóta þess að lesa. Fékk símtöl í kjölfarið þar sem hann lýsti ánægju sinni með þess- ar bækur og þess að kynnast nýj- um þáttum fjölskyldusögunnar. Alltaf stóð til að fara í fleiri heimsóknir, sem ekki urðu, því miður. Ég mun sakna frænda míns, þess að fá ekki að heyra meira frá honum og því sem hann hafði að miðla. Sendi börnum hans og fjöl- skyldum þeirra mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Elín Mjöll Jónasdóttir. Lífið flýtur ekki alltaf áfram lygnt, slétt og fellt. Stundum verða boðaföll og við stöndum uppi manni færri. Samt sem áður heldur lífið áfram enda þótt við séum agndofa yfir örlögunum og megum sætta okkur við að góður vinur okkar hvarf á einu auga- bragði yfir móðuna miklu. Við sem eftir sitjum reynum að skilja hvers vegna okkur var þyrmt en sá sem hinn slyngi sláttumaður valdi mátti mæta örlögum sínum föstudaginn 27. júlí. Kynni okkar fjögurra voru að sönnu ekki löng – eitthvað á ann- að ár, en þeim mun meira gef- andi. Áhugamál okkar allra voru sagnfræði, Íslendingasögurnar, skáldskapur og fleira sem hafði bókmenntalegt eða sögulegt gildi. Það er ekki oft sem fólk á efri árum eignast nýja vini og samræðurnar fá þegar dýpt og inntak. Erlingur Hallsson var nýbúinn að lesa ævisögu Einars Bene- diktssonar í þremur bindum og Leitina að svarta víkingnum, hvorutveggja rit sem heilluðu hann mjög og urðu til mikilla um- ræðna okkar í millum svo og ann- arra sem birtust í sófahorninu í matsalnum sem tengdur er Korp- úlfunum í Borgum. Í kaffinu dró hann oft upp vísur sem hann hafði grafið upp eða ort sjálfur og aldr- ei þreyttist hann á að koma uppá- halds umræðuefni sínu að, þjóð- flutningum og afdrifum Vest-Gota. Hann var ekki lang- skólagenginn en ágætlega menntaður með víðtæka þekk- ingu. Í fyrrasumar bauð hann nokkrum okkar í ferðalag í Fljótshlíðina á slóðir Gunnars á Hlíðarenda. Erlingur var vörpulegur mað- ur, nokkuð hávaxinn og vel hærð- ur en því miður bundinn við hjóla- stól sakir sjúkdóms þess er hrjáði hann. Við viljum þakka honum þann tíma sem við áttum með honum, nutum þeirrar þekkingar sem hann var ósínkur á að miðla öðrum og húmornum sem ætíð var grunnt á. Við vonum að við höfum einnig getað miðlað hon- um nokkru. Þökk fyrir okkur. Auður Hildur Hákonardóttir, Pétur Jósefsson, Ragnhildur Einarsdóttir. Ef ég ætti að skrifa bók um Erling Hallsson yrði það tví- mælalaust hetjusaga með ævin- týraívafi. Þetta yrði líka baráttu- saga, en þó án stríðs eða heiftúðugra átaka, því Erlingur var friðsamur maður þótt hann væri fastur fyrir og vissi hvað hann ætlaði sér. Þetta yrði bók um sorgir og sigra, um auðugt líf og um hamingjuna. Þetta yrði skemmtileg bók og merkileg bók, því Erlingur var skemmtilegur og stórmerkur maður sem lifði auðugu lífi vegna þess hvernig hann var og þeirrar jákvæðu sýn- ar sem hann hafði á lífið og til- veruna. Það þyrfti góðan rithöfund með nóbelsríka hæfileika til að skrifa bók sem þessa svo að sómi væri að. Ég verð því að láta nægja þessi örfáu og fátæklegu orð í minningu tengdaföður míns og ég vona að þeir sem lesa taki viljann fyrir verkið. Erlingur skráði sjálfur sína lífsbók og gerði það á eftirtektar- og aðdáunarverðan máta. Efni- viðurinn sem lífið færði honum var hvorki einfaldur né auðunn- inn og hefði í meðförum annarra auðveldlega getað orðið sorgar- saga. En því var öðru nær. Er- lingur skapaði sér og sínum gott og innihaldsríkt líf. Hann var skapandi með frjóan huga, áhugasamur um allt milli himins og jarðar og alveg einstaklega já- kvæður maður. Erlingur kynntist ungur Ástu konu sinni og það er ekki ofsagt að saman hafi þau fundið ham- ingjuna og borið hana með sér alla tíð, jafnt í gleði og raunum. Ung misstu þau son á barnsaldri og síðar uppkominn son á besta aldri. Þessi áföll tókust þau á við saman og lærðu að lifa með sorg- inni án þess að láta hana yfirtaka líf sitt. Eins og þau hjónin komu mér fyrir sjónir voru þau sam- hent og samrýnd, ótrúlega ólík og svo áberandi hjartanlega ánægð hvort með annað. Það var gaman að kynnast þeim og gott að þekkja þau. Kynnin hefðu svo gjarna mátt vera lengri. Ég vil að lokum votta börnum Erlings og öðrum ástvinum hans samúð mína en samgleðst þeim jafnframt sem áttu því láni að fagna að eiga með honum samleið til lengri eða skemmri tíma. Minningin um þennan mæta mann mun lifa. Margrét Erlendsdóttir. Erlingur Hallsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR BJARNADÓTTIR frá Kóngsbakka, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akranesi, aðfaranótt fimmtudags. Útför hennar fer fram frá Stykkishólmskirkju föstudaginn 10. ágúst klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi. Þorsteinn Jónasson Kristín Rut Helgadóttir Bjarni Jónasson Laufey Magnúsdóttir Agnar Jónasson Svala Jónsdóttir Guðbjörg Guðbjartsdóttir Kristinn Einarsson barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, SVANUR BRAGASON húsasmiður, Boðaþingi 12, lést á krabbameinslækningadeild Landspítalans föstudaginn 3. ágúst. Útförin verður auglýst síðar. Guðbjörg L. Svansdóttir Jón A. Sigurjónsson Karólína V. Svansdóttir Ingibjörg Svansdóttir Kjartan I. Lorange Unnur S. Bragadóttir Jörgen Midander barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VILHJÁLMUR ÓLAFSSON, Arnarsmára 2, Kópavogi, lést á Landspítalanum, Fossvogi, miðvikudaginn 1. ágúst. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 10. ágúst kl. 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd. Birna Þóra Vilhjálmsdóttir Ólafur S. Vilhjálmsson Sigrún Steingrímsdóttir Þórður Örn Vilhjálmsson Jóhanna Ólafsdóttir Sigurlaug Vilhjálmsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær frænka okkar, PÁLÍNA JÓNA ÁRNADÓTTIR, fóstra, sem lést á Dvalarheimilinu Grund föstudaginn 3. ágúst, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 15. ágúst klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Umhyggju, félag langveikra barna. Fyrir hönd aðstandenda, Árni Stefán Björnsson og Pálína Árnadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.