Morgunblaðið - 08.08.2018, Side 30
Hildur Loftsdóttir
hilo@mbl.is
Opnun á sýningarverkefninu TORF,
eða Earth Homing: TORF, verður í
kvöld, miðvikudaginn 8. ágúst, kl.
20.00–23.30 í eynni Gróttu, þar sem
sýningin stendur síðan til sunnu-
dagsins 9. september.
Átján íslenskir listamenn eiga
verk á sýningunni, auk þess sem
haldin verður fyrirlestraröð.
Meðal sýningarstaða eru Ráða-
gerði, Albertsbúð, Vitavarðarhúsið,
Gróttuviti og Fræðasetrið í Gróttu.
Sýningarverkefnið hefst á Íslandi
í tilefni af 100 ára fullveldisafmæl-
inu, og heldur síðan til Noregs og
Færeyja, en í sýningaskrá segir að
TORF kanni sameiginlega arfleifð
torfhýsa í þessum þremur norrænu
löndum.
Þrjár ólíkar nálganir
Sýningarstjórn og umsjón með
dagskrá annast Annabelle von
Girsewald, en hún segir að nálgunin
verði ólík í hinum löndunum.
„Sýningarverkefnið hefst hér á
landi með skapandi vinnu listafólks-
ins, þar sem konseptið er að hverj-
um listamanni er úthlutað verkefni í
tengslum við torfhús; eins og bað-
stofa, hurð, gluggi, andi eða veður,“
útskýrir von Girsewald.
„Sýningin í Færeyjum mun snú-
ast um hvaðan hefðin kemur, og
þess vegna valdi ég Noreg. Þar
verður hins vegar sýningin um sam-
anburð á íslenskum og norsk-
samískum arkitektúr. Í Færeyjum
verður vinnustofa með nemendum
frá öllum löndunum, þar sem þeir
vinna með listamönnunum og fá
tækifæri til að tileinka sér þekkingu
fyrirlesaranna. Þess vegna er mjög
áríðandi að sýningin hafi þessa hlið-
ardagskrá þar sem sérfræðingar á
sínu sviði tala,“ segir von Girsewald.
„SÍM bauð mér að vera gestasýn-
ingarstjóri í janúar í fyrra, og þau
höfðu skipulagt fyrir mig heimsókn-
ir í vinnustofur listamanna, og
þannig valdi ég listamennina til
þátttöku á þessa sýningu. Þeir hafa
verið að vinna að þessu í um eitt og
hálft ár,“ segir von Girsewald.
„Seinasta haust var ég síðan með
vinnubúðir um torf á lista-og tónlist-
arhátíðinni Cycles á Gerðsafni, og
þar kom hugmyndin að þessari sýn-
ingu.“
Birgir Andrésson heitinn er einn-
ig með verk á sýningunni.
„Ég vissi af verkunum hans og ég
var mjög hrifin af ljóðateikning-
unum hans sem hann kallaði húsa-
ljóð, þar sem hann vann með hlutföll
og grunnteikningar íslenska torf-
bæjarins. Ég er mjög spennt að fá
verk hans að láni.“
Byggingarefni framtíðarinnar?
„Það var listamaðurinn Hreinn
Friðfinnsson sem kynnti mér fyrst
íslensku torfhúsin, en ég hef verið
að vinna með honum síðan 2013 við
verkefnið hans „House Project“.
Síðan þá hef ég verið heilluð af
þeim, ekki bara fagurfræðilega,
heldur einnig hugmyndafræðilega,
þar sem allar mínar sýningarnar
snúast um heimili. Og torfbæirnir
eru mjög fallegir en líka hluti af
menningu ykkar, menningararfi og
jörðinni, og þar með hluti af sögunni
og þeim þrengingum sem íslenska
þjóðin þurfti að þola.
Ég geri mér grein fyrir að þetta
getur verið viðkvæmt umfjöllunar-
efni hér; torfbæirnir voru bannaðir
og þeir hafa ýmsar neikvæðar teng-
ingar eins og; „að vera nýskriðinn
út úr torfkofanum“. En mér finnst
eins og að nú sé nógur tími liðinn
frá þessum tíma til að heimsækja
hann aftur, og mér finnst hlutverk
mitt sem sýningarstjóri vera að
koma þessu fólki saman, og skoða
þetta á þverfaglegan hátt og frá
misjöfnum sjónarhornum; daglegu
lífi, menningararfi, arkitektúr, og
hvernig við getum mögulega notað
þennan efnivið í byggingar framtíð-
arinnar eftir allt sem við höfum gert
við höfum gert umhverfinu.“
Náttúran ræður
„Ég veit ekki hvað kemur út úr
þessu, en vonandi geta nemendurnir
í Færeyjum sagt okkur hvað við
getum lært af þessum arkitektúr,
og vonandi munu einhver þeirra
íhuga að vinna með torf eða þennan
jarðararkitektúr í framtíðinni á
ábyrgan máta þar sem borin er
virðing fyrir náttúrunni,“ segir von
Girsewald. „Einn mælendanna,
Hrólfur Karl Cela frá Basalt arki-
tektum, mun tala um jarðar-
arkitektúr og hvernig náttúran hef-
ur áhrif á hvernig þeir hanna
byggingar.
Vinna listamannanna er svo tákn-
rænni. Ég úthlutaði Heklu Dögg
Jónsdóttur eldi, og hún ætlar að
hafa gamladags ljósaperur í tveimur
ólíkum húsum, aðra á Gróttu og
hina í Ráðagerði. Ljósaperurnar
munu fylgja flóði og fjöru, og eru
þannig samstilltar við náttúruna;
ljósaperan í Rauðagerði lýsir þegar
Fagur- og hugmyndafræðilega heilluð
Sýningin Earth Homing: TORF er opnuð í Gróttu í kvöld og stendur til 9. september Sýningar-
stjórinn Annabelle von Girsewald segir Hreinn Friðfinnsson hafa kynnt henni íslenska torfið
Morgunblaðið/Valli
Tilhlökkun Sýningarstjórinn Annabelle von Girsewald ásamt listamanninum Ólafi Sveini Gíslasyni.
Fjölbreytni Átján íslenskir listamenn eiga verk á sýningunni.
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2018
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*-�-��,�rKu�,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
æli- & frystiklefar
í öllum stærðum
K
Schola cantorum, Kammerkór Hallgrímskirkju sem
Hörður Áskelsson stjórnar, kemur fram á tónleikum í
kirkjunni í dag kl. 12. Á efnisskránni eru íslenskar og
erlendar kórperlur eftir Jón Ásgeirsson, Jón Nordal,
Sigvalda Kaldalóns, Händel, Byrd, Sigurð Sævarsson,
Þorkel Sigurbjörnsson og Hjálmar H. Ragnarsson. Tón-
leikagestum er boðið upp á kaffi og sætan mola í suður-
salnum að tónleikunum loknum þar sem tækifæri gefst
til að spjalla við söngvarana og kynnast starfi kórsins.
Miðar eru seldir við innganginn og á midi.is.
Schola cantorum syngur í hádeginu
Þorkell
Sigurbjörnsson