Morgunblaðið - 09.08.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 09.08.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018 Holtasmári 1 201 Kópavogur sími 571 5464 Str. 38-52 Smart gallabuxur fyrir smart konur Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Háannatíminn á tjaldsvæðinu á Eg- ilsstöðum byrjaði mun fyrr þetta árið en síðustu ár. Annirnar má vafalaust rekja til blíðskaparveð- ursins sem þar hefur verið, að sögn Ísleifs Gissurarsonar, starfsmanns á tjaldsvæðinu. „Við höfum þurft að senda fólk á aðra staði sumar helgar og höfum tekið gamla tjaldsvæðið í notkun,“ segir Ísleifur. Fyrir nokkrum árum skipti bærinn um tjaldsvæði og var því eldra tjaldsvæðið autt. Ráðast þurfti í endurbætur á gamla svæð- inu svo hægt væri að senda fólk þangað. „Aðsóknin hefur verið ótrúlega mikil, við munum ekki eft- ir því að bæði tjaldsvæðin hafi verið í notkun á sama tíma,“ segir Ísleif- ur. Tjaldsvæðin í nágrenninu hafa einnig verið vel sótt enda blómleg- ur tími og hásumar. Þakka má hlýja veðrinu á Egilsstöðum fyrir aðsóknina en einnig hefur rigning- arveðrið á höfuðborgarsvæðinu haft áhrif, að sögn Ísleifs. Búist var við því að erlendir ferðamenn yrðu í meirihluta á tjaldsvæðinu á Egilsstöðum en það varð ekki raunin og hafa Íslend- ingar verið í meirihluta á svæðinu. „Núna eftir verslunarmannahelgi má búast við því að Íslendingarnir fari að tygja sig aftur í bæinn í vinnu. Þá koma erlendu ferðamenn- irnir í meiri mæli,“ segir Ísleifur. Í sumar hafa sögulega fáir heim- sótt tjaldsvæði á Suður- og Vest- urlandi. Á tjaldsvæðinu á Stykk- ishólmi voru heimsóknir í júlí 2018 um 42% færri en í júlí 2017. Að sögn upplýsingafulltrúa á tjald- svæðinu hafa gestir þurft að hætta við komu vegna veðurs en flestir gestir á svæðinu eru erlendir ferða- menn. Þó létu fleiri sjá sig á tjald- svæðinu þegar hin árlega kokteil- helgi var haldin í bænum 20.-21. júlí. Hluta tjaldsvæðisins á Þingvöll- um hefur verið lokað sökum vætut- íðarinnar. Mun færri en áður hafa heimsótt tjaldsvæðið í sumar og mætti rekja það til slæms veðurs. ,,Það hefur rignt svo mikið að hús- bílar hafa fest og spólað í grasinu,“ segir Torfi Stefán Jónsson, starfs- maður í þjóðgarðinum. Að hans sögn eru flestir gestir á tjaldsvæð- inu erlendir ferðamenn en mun minna er um Íslendinga en á árum áður. Metaðsókn á tjaldsvæði fyrir austan Morgunblaðið/Árni Sæberg Tjaldsvæði Veðrið virðist hafa talsverð áhrif á hvar fólk kýs að fara í útilegu. Færri tjalda á Þingvöllum en áður.  Gamalt tjaldsvæði tekið í notkun á ný á Egilsstöðum til að mæta fjölda gesta  Íslendingar í meiri- hluta  Færri gista á tjaldsvæðum á Suður- og Vesturlandi  Mikil væta á tjaldsvæðinu á Þingvöllum menn geta komið fram. Ef lögreglu- maður fær til dæmis högg í andlitið og myndarlegt glóðarauga, þá er ekki víst að hann geti sinnt löggæslu úti. Það snýst um að við séum ekki með fólk úti í löggæslu sem er sjá- anlega meitt,“ segir hann. „Stund- um þurfum að taka fólk í skjól og setja í önnur störf tímabundið eða þá að fólk er beinlínis slasað og er frá í lengri tíma,“ bætir Ásgeir Þór við. Aðspurður segir hann að til séu dæmi um hótunarbrot gegn lög- reglumönnum utan eiginlegra af- skipta af fólki. „Yfirleitt verða hót- unarbrotin þó þegar handtaka eða valdbeiting á sér stað. Þá geta ljót orð og jafnvel beinar hótanir gegn lögreglumönnum verið viðhöfð, oft í víðara samhengi,“ segir hann. öllum tilvikum um að ræða grun um ofbeldi, en mun fátíðara er að konur séu grunaðar um hótunarbrot. Spörk og hnefahögg algeng Að jafnaði leiða ekki af ofbeld- isbrotunum miklir áverkar og al- geng dæmi um árásir eru spark eða spörk í fætur eða hnefahögg í andlit. Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlög- regluþjónn hjá Lögreglunni á höf- uðborgarsvæðinu, segir það tiltölu- lega fátítt að lögreglumenn séu frá störfum í langan tíma vegna ofbeld- isbrota, en þó séu dæmi um það. „Það kemur fyrir að við missum fólk til lengri tíma. Þetta hefur tals- verð áhrif á allt okkar starf,“ segir hann og nefnir að algengir áverkar séu tognanir og mar. „Þetta getur líka varðað það hvernig lögreglu- Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Ofbeldis- og hótunarbrotum gegn lögreglumönnum á höfuðborgar- svæðinu hefur farið fjölgandi árið 2018 miðað við meðaltal síðustu þriggja ára. 42 ofbeldisbrot voru skráð á fyrstu sex mánuðum ársins og 20 hótanir um ofbeldi. Fjölgaði ofbeldisbrotum um 64% á fyrstu sex mánuðum ársins miðað við meðaltal á sama tímabili síðustu þrjú ár. Hót- unum um ofbeldi fjölgaði um 36% á fyrstu sex mánuðum ársins. Langflest brota af þessum teg- undum eru framin í tengslum við valdbeitingu lögreglu, handtöku eða önnur afskipti og eru karlmenn um 76% þeirra sem fremja slík brot. Þegar konur eiga í hlut er í nær Morgunblaðið/Eggert Lögregla Ofbeldis- og hótunarbrotum fjölgaði á fyrri hluta ársins. Eiga þau sér flest stað við valdbeitingu lögreglu. Ofbeldi og hótanir í garð lögreglu tíðari  Karlmenn í miklum meirihluta meðal meintra gerenda Undirbúningur er hafinn að því að gefa nýjum náttúrufyrirbærum í Hítardal nafn. Það eru framhlaupið og vatnið sem myndaðist innan við það. Finnbogi Leifsson, bóndi í Hítar- dal, hefur sagt frá því í færslu á Face- book að fólkið á bænum leggi til að framhlaupið fái nafnið Hrynjandi og vatnið heiti Bakkavatn. Rökin fyrir nafninu á vatninu er að svæðið sem vatnið er á og stærra svæði nefnist Bakkar. Málið er þó ekki svona einfalt því örnefni þurfa að fara í ákveðið ferli. Heimamenn eiga að leggja hug- myndir sínar fyrir örnefnanefnd sem segir álit sitt á þeim og síðan tekur sveitarstjórn ákvörðun um það hvaða nafn verður fyrir valinu. Berghlaupið snertir tvær jarðir. Það kom úr eyðijörðinni Hítardals- völlum sem er í eigu Borgarbyggðar og hljóp yfir land Hítardals. Vatnið er hins vegar allt innan lands Hítardals. Byggðaráð Borgarbyggðar hefur falið sveitarstjóra að annast und- irbúning málsins í samvinnu við heimafólk. helgi@mbl.is Íbúar leggja til heitið Bakkavatn  Undirbúningur hafinn að nýjum ör- nefnum í Hítardal  Málið komið í ferli Ljósmynd/Mihails Ignats Hítardalur Landslagið er breytt og finna þarf nafn á skriðu og vatn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.