Morgunblaðið - 09.08.2018, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Komið og skoðið úrvalið
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Klassísk gæða húsgögn
á góðu verði
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
fyrir öll tölvurými og skrifstofur
Rafstjórn tekur út
og þjónustar kæli- og
loftræstikerfi
Kæling
Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is
Verð frá kr.
181.890 m/vsk
farið bara beint niður í komuverslun
og í gegn. Svo er líka atriði í þessu
að gallinn við flugvöllinn er sá að
þegar þú kemur erlendis frá þá er
ekki skýr afmörkun á milli brottfar-
arverslana og komuverslunar.“
Hann bendir einnig á að út frá sam-
keppnissjónarmiðum sé ekki heimilt
að selja sumar vörur í komuverslun
sem seldar eru í brottfararversl-
unum, og komi því reglurnar í veg
fyrir að hægt sé að versla í brott-
farverslun við komu til landsins.
Spurður hvers vegna reglurnar
hafi ekki komið til framkvæmda fyrr
segir Guðmundur: „Það var sent
bréf á alla leyfishafa 2011 í fram-
haldi af lagasetningunni. Þá var
vandamálið tæknilegs eðlis. Þetta
hefur svolítið hangið í kerfinu út af
því. Svo var bara farið af stað af full-
um þunga núna af því að við töldum
bara allt of langan tíma liðinn.“
skönnun á brottfararspjaldinu að
það sé kallað eftir flugtímanum,
þ.e.a.s. að brottför sé innan 24 tíma,
og söluaðila, þannig að ef eitthvað
kemur upp þá getum við kallað eftir
þeirri færslu í eftirlitskerfinu eða
eitthvað slíkt. En við söfnum engum
upplýsingum.“
Starfsmenn geta ekki verslað
Spurður hvers vegna sambæri-
legar reglur eigi ekki við þegar far-
þegar koma til landsins vísar Guð-
mundur í lagaákvæðið, sem kveður
einungis á um framvísun spjalds við
brottför úr landi og bætir við:„ Í
raun er krafan sú að þegar þú ætlar
að versla í brottfararverslun þarftu
að fara með vöruna út. Þess vegna
þarftu að vera með brottfararspjald.
Það er m.a. til þess að koma í veg
fyrir að starfsmenn eða einhverjir
aðilar geti verslað þar án gjalda og
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Ferðalangar á leið úr landi hafa að
líkum tekið eftir því að framvísun
brottfararspjalds er skilyrði fyrir
því að hægt sé að kaupa varning í
flugstöðinni í Keflavík.
Reglurnar voru teknar upp 1.
mars að kröfu Tollstjóra, á grund-
velli 104. greinar tollalaga, sem þó
hefur staðið síðan 2011. Í ákvæðinu
segir m.a. að eingöngu sé heimilt að
selja farþegum og áhöfnum milli-
landafara á leið úr landi vörur úr
tollfrjálsri verslun gegn framvísun
brottfararspjalds.
Aðspurður hvort Tollstjóri safni
upplýsingum um farþega svarar
Guðmundur Jóhann Árnason, lög-
fræðingur hjá tollasviði Tollstjóra:
„Tollstjóri tekur engar upplýsingar
úr þessu. Tollstjóri fer fram á við
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Spjald takk! Ferðalangar þessir hafa að líkindum þurft að framvísa brottfararspjaldi þegar þeir komu að kassanum.
Brottfararspjald
skilyrði fyrir tollfrelsi
Ekki hægt að versla í brottfararverslun við heimkomu
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Skaftárhlaupið sem stendur nú yfir
er eitthvert stærsta jökulhlaup sem
mælst hefur í Skaftá frá því að mæl-
ingar hófust.
Nýjar mælingar Veðurstofunnar
sýna að rúmmál hlaupsins er meira
en var í stóra Skaftárhlaupinu árið
2015. Rúmmál hlaupsins er metið
alls 500 gígalítrar og þar af runnu
435 gígalítrar frá Skaftárjökli. Rúm-
mál hlaupsins árið 2015 var metið
um 425 gígalítrar og þar af 364 gíga-
lítrar frá jökli. Sambærileg jök-
ulhlaup að rúmmáli féllu 1970, 1982,
1984, 1995 auk hlaupsins 2015, segir
í tilkynningu frá Veðurstofunni.
Eiginlegu hlaupi lokið
Að sögn Hildar Maríu Friðriks-
dóttur, náttúruvársérfræðings á
Veðurstofunni, er eiginlegu hlaupi
lokið. „Rennslið er orðið það lítið að
þetta er eiginlega komið í með-
alrennsli miðað við árstíma. Í raun
er hlaupinu lokið í þeim skilningi að
það er ekki að bætast í það lengur,“
segir Hildur og bætir við að það taki
rennslið einhverja daga að komast í
eðlilegt horf. Þá sé hlaupvatnið mjög
gruggugt og setið sem berst í hraun-
ið með vatninu mun líklegast stífla
hraunið með tímanum, að sögn Hild-
ar.
Hlaupið í ár var mun umfangs-
meira en Veðurstofan hafði spáð fyr-
ir, þá aðallega vegna þess að Skaft-
árkatlarnir hlupu samtímis.
Laugardaginn 4. ágúst var flogið yf-
ir katlana og kom þá í ljós að hlaup
væri einnig hafið úr vestari Skaft-
árkatli. Talið er vestari og austari
katlarnir hafi tæmt sig á sunnudag
og mánudag og er hlaupið því í rén-
un. Er áætlað að rennsli í byggð fari
nú einnig minnkandi og muni því
draga úr vatnsmagni í Skaftá næstu
daga.
Í gær mældist rennslið við Sveins-
tind um 180 rúmmetrar á sekúndu
en var nærri 400 rúmmetrar á sek-
úndu á þriðjudag.
Undanfarna daga hefur vatn flætt
út í Eldhraun. Þaðan hefur vatnið
skilað sér í árnar Grenlæk og
Tungulæk þar sem vatn stendur
mjög hátt, segir í fréttatilkynningu
Veðurstofunnar. Er áætlað að
rennsli þar minnki um helming á
u.þ.b. 7-10 dögum eftir hlaup þar til
það nær jafnvægi.
Þjóðvegurinn opinn að hluta til
Var 500 metra vegkafla á þjóðvegi
1 lokað og var hann lokaður í nokkra
daga vegna vatnsflaumsins sem
flæddi yfir Eldhraun. Á meðan var
umferð beint um Meðallandsveg
sem er 53 kílómetra langur vegur, að
hluta til malarvegur og einbreiður. Í
gærmorgun var vegkaflinn á þjóð-
vegi 1 opnaður almennri umferð á ný
og var umferðinni þá stýrt á eina ak-
rein. Þá hefur Vegagerðin lokað
brúnni við Eldvatn, sem á fjallvegi
208. Eldvatnsbrú hefur áður komist
í fréttirnar í fyrri hlaupum Skaftár,
en hún laskaðist mikið í hlaupinu
2015.
Stærsta jökulhlaup sem mælst hefur
Rúmmál Skaft-
árhlaups meira en
árið 2015 Hlaup-
inu er nær lokið
Morgunblaðið/RAX
Kraftur Skaftárhlaupið er metið 500 gígalítrar alls og mældist rennsli þess nærri 400 rúmmetrar á sekúndu á þriðjudag. Tveir katlar tæmdu sig í ána.