Morgunblaðið - 09.08.2018, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018
Áletranir á kletta og náttúrumyndanir í
Stöðvarfirði brjóta í bága við náttúruverndar-
lög. Listamaður fékk heimild fyrir áletrun-
unum frá landeigendum staðarins og heimilaði
Fjarðabyggð verkin. Sigrún Ágústsdóttir,
sviðsstjóri Umhverfisstofnunar, segir að stofn-
unin bíði svara frá Fjarðabyggð. „Þarna er
skýrt bannákvæði í lögunum,“ segir hún.
Umhverfisstofnun ber að fylgja eftir nátt-
úruverndarlögunum og hefur því sent fyr-
irspurn til Fjarðabyggðar um frekari upplýs-
ingar varðandi leyfisveitingu sveitarfélagsins.
„Svo virðist sem fólk sé ekki fullmeðvitað um
efni ákvæðisins. Þarna gæti þurft að efla kynn-
ingu á náttúruverndarlögunum og er það í bí-
gerð,“ segir Sigrún. „Áletrunin hefur átt sér
stað nú þegar en það hefur ekki verið tekin
ákvörðun um framhaldið og verður það gert að
fengnum upplýsingum frá sveitarfélaginu.“
Umhverfisstofnun býst við svörum frá Fjarða-
byggð ekki seinna en í dag, 9. ágúst. Í XII. kafla
71. gr. náttúruverndarlaga segir að hvers konar
áletranir á náttúrumyndanir séu óheimilar og
varði refsingu skv. 9.gr. veronika@mbl.is
Ljósmynd/Kevin Sudeith
Áletranir í Stöðvarfirði standast ekki lög
Fjarðabyggð heimilaði áletranirnar Umhverfisstofnun sendi Fjarðabyggð fyrirspurn og bíður svara
Umdeild listaverk Listamaðurinn Kevin Sudeith skar listilega út lágmyndir, fugl og reiðmann. Svo virðist sem umhverfið og náttúran móti verk Kevins. Þau standast þó ekki náttúruverndarlög.
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Samfélagið lamaðist algjörlega og
maður sá hversu virkilega háð við er-
um rafmagninu,“ segir Aldís Haf-
steinsdóttir, bæjarstjóri í Hvera-
gerði, um rafmagnsleysi sem kom
upp í bænum í gær og stóð yfir í um
níu klukkustundir. Rafmagn er nú
komið á í bænum og allt komið í samt
lag. Spurð um hvort rafmagnsleysið
hafi valdið miklu tjóni kveður Aldís já
við. Nefnir hún í því samhengi fyr-
irtæki sem urðu af viðskiptum í kjöl-
far rafmagnsleysis.
„Verslanir og veitingastaðir auk
annarra aðila á markaði misstu við-
skipti sín. Kostnaður vegna þess að
þjónustustaðir voru lokaðir er því um-
talsverður en góðu fréttirnar eru þær
að svo virðist sem lítið sem ekkert
hafi eyðilagst eða skemmst. Það voru
reyndar einhverjar skemmdir á gufu-
veitunni í sundlauginni þannig að
laugin var lokuð í gær. Á heildina litið
virðist þetta hins vegar hafa sloppið
vel þrátt fyrir að hafa varað svona
lengi,“ segir Aldís og bætir við að afar
sjaldgæft sé að álíka bilun eigi sér
stað.
Eins og Morgunblaðið greindi frá í
gær varð bilun í aflspenni í aðalveitu-
stöðinni í Hveragerði. Til að koma
rafmagni aftur á voru fengnar vara-
aflsstöðvar utan af landi. „Þetta var
keyrt áfram á varaaflsstöðvum sem
komu utan af landi. Nú er þetta hins
vegar komið í samt horf á nýjan leik,“
segir Aldís.
Bilanatíðni aflspenna lág
Til að finna álíka rafmagnsleysi í
bæjarfélagi sem er af sambærilegri
stærð og Hveragerði þarf að fara um
fjögur ár aftur í tímann. Þetta segir
Rósant Guðmundsson, kynningar-
stjóri Rarik. „Á undanförnum árum
hefur orðið einu sinni straumleysi í
stærra bæjarfélagi sem er svipað að
lengd og truflunin í Hveragerði í
fyrradag. Það var á Breiðdalsvík og
stóð sú truflun yfir í tæpar 23 klukku-
stundir,“ segir Rósant.
Að sögn Rósants geta bilanir í afl-
spennum komið upp hvenær sem er.
Með réttu viðhaldi sé bilanatíðni
þeirra hins vegar afar lág. „Aflspenn-
ar geta bilað hvenær sem er. Ef sagan
er samt skoðuð kemur í ljós að með
réttu viðhaldi er tíðni bilana lág. Í ljósi
þess hve dýrir aflspennar eru þá er
iðulega ekki gert ráð fyrir tvöföldu ör-
yggi með aukaspenni á hverjum stað
heldur reynt að hafa tiltækan vara-
spenni sem má flytja á svæðið þegar
þörf krefur,“ segir Rósant.
Spurður um hvort hægt sé að gera
við háspennustrenginn sem talinn er
hafa valdið biluninni segir Rósant svo
vera. Miklar framkvæmdir hafa stað-
ið yfir á lóð Hveragerðisbæjar og lík-
ur eru á að því að framkvæmdaraðilar
hafi rekist í strenginn sem olli
skammhlaupinu. „Bilunin varð á há-
spennustreng og aflspenni í tengivirki
fyrir Hveragerðisbæ. Við vitum ekki
hversu alvarlegt tjónið er hjá við-
skiptavinum en það verður hægt að
gera við bæði strenginn og aflspenn-
inn,“ segir Rósant.
Engin starfsemi í níu klukkustundir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hveragerði Rafmagnslaust var í bænum í um níu klukkustundir í fyrradag og
olli það töluverði tjóni hjá aðilum á markaði vegna lokaðra þjónustustaða.
Rafmagnsleysi í Hveragerði olli töluverðu tjóni hjá verslunum og veitingastöðum Fjögur ár frá
álíka straumleysi í stærra bæjarfélagi Bilanatíðni aflspenna afar lág Sundlaugin enn lokuð í gær
Vodafone er að leggja niður þráðlaust fjarskiptakerfi
sem ýmist er kennt er við eMax eða Lofthraða. Not-
endum sem eru um það bil 200 í dreifbýli á Vesturlandi
og Suðurlandi hefur verið tilkynnt að dreifikerfið verði
lagt niður í áföngum á næstu mánuðum og boðið að
tengjast netinu með öðrum hætti.
Sýn hf. sem er móðurfélag Vodafone tók við þessum
viðskiptum 1. desember sl. þegar það tók við 365 miðl-
um ehf.
Samkvæmt upplýsingum Vodafone hefur notendum
kerfisins fækkað mjög undanfarin ár eða úr um það bil
1.500 í um 200. Það hefur leitt til þess að tekjur kerf-
isins duga ekki fyrir útgjöldum. Ástæðan er meðal ann-
ars sú að ljósleiðarakerfi og háhraða farsímakerfi hafa
verið byggð upp á þeim dreifbýlissvæðum sem helstu
nýttu sér kerfi Lofthraða/eMax áður.
Tengjast á farsímanet
Þá er tilgreint að þetta kerfi sé að mestu leyti byggt
upp á opnu tíðnisviði og sé því viðkvæmt fyrir trufl-
unum.
Notendur eru aðallega í Borgarfirði, Kjós og á Suður-
landi. 30 til 40 þeirra hafa möguleika á að tengjast ljós-
leiðara, samkvæmt upplýsingum frá Sigurbirni Eiríks-
syni, forstöðumanni á tæknisviði Vodafone. Flestir
þeirra sem eftir eru hafi möguleika á að tengjast 4G far-
símaneti. helgi@mbl.is
Vodafone leggur niður
dreifikerfi eMax á næstunni
Aðeins 200 notendur eftir Boðið að tengjast á annan hátt
Hættir Vodafone tók við fjarskiptakerfi eMax/Lofthraða.
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
v
595 1000
AGUAMARINA
Frá kr.
100.995
Frá kr.
149.995
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fr
ir
.
13. ÁGÚST Í 11 NÆTUR
COSTA DEL SOL