Morgunblaðið - 09.08.2018, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is
Bjóðum uppá húsgögn
eftir marga fræga
húsgagnahönnuði.
Mörg vörumerki.
Dóra Magnúsdóttir
dora@mbl.is
Hinir ungu foreldrar eru ósáttir
við það hversu illa hefur gengið að
brúa bilið milli fæðingarorlofs og
leikskóla þó að þau séu að sjálfsögðu
ánægð með að litli karlinn þeirra sé
loksins kominn inn á leikskóla. Þeim
finnst sem að þetta sé vandi ungra
foreldra sem virðist aldrei ætla að
leysast.
„Við erum búin að leysa út alla
hugsanlega greiða varðandi barna-
pössun hjá vinum og vandamönnum,
þaulnýta ömmur og afa,“ segir
Grettir, en þau eru svo heppin að
önnur amman vinnur vaktavinnu og
gat skipulagt sínar vaktir með tilliti
til Tryggva litla og hin amman og
afinn eru hætt að vinna og þau hafa
hjálpað eftir getu. „Svo er maður
búinn að gjörnýta allt sumarleyfið,“
bætir hann við og segir að tæplega
hafi verið hægt að ganga að fleiri
reddingum þegar loksins bauðst
rými á ungbarnaleikskóla á vegum
Háskólans en Grettir er að fara
hefja meistaranám, samhliða vinnu,
í tölfræði við HÍ í haust. „Svo er
bara eins gott að standa sig, svo
maður missi ekki plássið,“ segir
hann en það er ljóst að hann á ærin
verkefni fyrir höndum næstu tvö ár-
in eða svo; að stunda meistaranám
og samhliða vinnu. En hann er bú-
inn að semja við vinnuveitendur sína
um sveigjanleika vegna náms enda
alltaf þörf fyrir góða sérfræðinga í
tölfræði.
Með ólíkindum að þetta bil
skuli ekki löngu vera brúað
„Sko, ég vil ekki vera eitthvað
voðalega neikvæð en það er alveg
með ólíkindum hvað það gengur illa
að brúa bilið og hvað maður heyrir
alltaf að til úrbóta komi eftir ár, eða
hálft ár eða bara einhvern tíma síð-
ar. Það er alveg ljóst að dauð-
þreyttir foreldrar með lítil börn eru
langversti hópurinn til að þrýsta á
um breytingar. Kannski þess vegna
sem ekkert eða lítið gerist í dagvist-
unarmálum fyrir þennan aldurshóp
ár eftir ár, eða jafnvel áratugum
saman. Það er bara út í hött að allir
foreldrar níu til 18 mánaða gamalla
barna séu bara alltaf í lausu lofti á
vinnumarkaði, þurfi að stóla á for-
eldra, ættingja, sveigjanlega at-
vinnuveitendur og taka út allt sum-
arfrí og launalaus leyfi. Svo getur
þetta ástand líka bitnað á samstarfs-
fólki. Þannig að það er með ólík-
indum að ekki skuli hafa verið búið
að brúa þetta alræmda bil fyrir
löngu,“ segir Sólveig Ása.
Vistun fyrir Tryggva litla var
þessu unga pari, eins og öllum úti-
vinnandi foreldrum, bráðnauðsyn-
leg, ekki síst í ljósi þess að Sólveig
var að taka við nýju ábyrgðarmiklu
starfi en það er aðeins vika síðan
hún tók við stöðu framkvæmda-
stjóra alþjóðlegu fræðslusamtak-
anna AFS.
Hún er þó öllum hnútum kunnug
enda búin að starfa sem deildar-
stjóri nema á vegum samtakanna í
sjö ár. Þess vegna þekkirhún manna
best um þau ólíku og stundum erf-
iðu mál sem upp geta komið í
tengslum við nemana, bæði erlenda
nema hérlendis og íslenska nema í
útlöndum. Hún fór sjálf út sem
skiptinemi þegar hún var 17 ára til
Denver í Bandaríkjunum og heldur
enn góðu sambandi við fjölskyldu
sína. Og ekki bara hún heldur haldi
foreldrar hennar góðu sambandi við
skiptiforeldra hennar í Bandaríkj-
unum og því ljóst að þarna varð til
vinátta fyrir lífstíð.
Horfði upp á
Bandaríkin breytast
„Ég var í Bandaríkjunum þegar
flogið var á tvíburaturnana í New
York, það var atburður sem yfirleitt
er kallaður 9/11 á ensku og sá hrein-
lega hvernig Bandaríkin breyttust
og þjóðernishyggjan tók yfir sam-
félagið að því er virtist. En í heildina
var þetta mjög jákvæð og lærdóms-
rík upplifun, eins og skiptinám er
fyrir langflesta.
Sólveig Ása stendur frammi fyrir
þeirri áskorun um þessa mundir að
finna fjölskyldur fyrir þann tölu-
verða fjölda erlenda nema sem lang-
ar að koma í skiptinám til Íslands.
„Aðalmálið í þessu öllu saman er að
sannfæra fólk um að þetta sé ekki
svo mikið mál. Að skiptineminn eigi
einfaldlega að vera hluti af fjöl-
skyldunni og að þetta sé ekki eins
og að fá gest frá útlöndum sem þú
þarft að halda uppi með „Gullfoss-
Geysi“ dagskrá í heilt ár. Þegar fólk
áttar sig á því og er búið að sann-
reyna að koma skiptinemans inn á
heimilið er í raun minna mál en
flestir gera sér í hugarlund er eft-
irleikurinn auðveldur,“ segir Sólveig
Ása.
Hún segir að stundum verði þó
árekstrar menningarheima, eðli-
lega. Mikilvægast sé þá að tala um
hlutina strax, birgja þá ekki inni, þá
sé hægt að leysa flest. Það eigi bæði
við um nema, hérlendis og erlendis
en líka fjölskyldurnar. Reyndar eru
sumir af þessum árekstrum bráð-
fyndnir eins og til dæmis taílenski
strákurinn sem ætlaði að vera voða
góður og elda fyrir fjölskyldu sína.
Þau biðu róleg en voru farin að
undrast lætin úr eldhúsinu, kíktu
inn og sáu að það var allt á hvolfi.
Skýringin lá í því að fjölskyldan
hans var vön að elda úti og hann því
ekki vanur að þurfa að hugsa um
það sem fer á gólfið/jörðina með
sama hætti inni og úti. Sólveig Ása
segir líka að viðbrigðin geti verið
gríðarlega mikil, til dæmis fyrir
ungmenni sem elst upp í fámenni úti
á landi og fer til erlendrar stór-
borgar, sem og skiptinemann frá
Hong Kong sem flutti í þorp úti á
landi sem var fámennara en blokkin
þar sem hann bjó ásamt fjölskyldu
sinni.
Sólveig Ása segir að vinnan í
kringum skiptinemana sé fyrst og
fremst gefandi og skemmtileg, þó að
upp komi stundum krefjandi atvik.
Einnig að skiptinám sé eins og
framhaldsnámskeið í víðsýni, sam-
kennd og ábyrgðartilfinningu fyrir
krakkana sem taka þátt. Skipt-
inámið er oft stóra stökkið fram á
við í þroska þessara krakka og ætti
að vera metið til eininga í fram-
haldsskólanum enda má segja að
skiptinám sé eins og heils árs of-
urkúrs í lífsleikni.
Mikilvægt að meta
skiptinám til eininga
„Það er mikilvægt að fá námið
metið og við eigum í viðræðum núna
við menntamálaráðuneytið um það.
Einnig vegna þess að það er svo
mikið í boði fyrir ungmenni í dag,
miklu meira en bara þegar ég fór ut-
an á sínum tíma, og því mikilvægt í
allri samkeppninni um tíma ungs
fólks að skiptinámið sé metið til ein-
inga. Við finnum alveg fyrir stytt-
ingu framhaldskólans í þessu sam-
hengi,“ segir Sólveig Ása.
Hún segir einnig að AFS þurfi
líka að svara kalli tímans. Samtökin
fögnuðu 60 ára afmæli sínu hér á Ís-
landi í fyrra en eru rúmlega 100 ára
á heimsvísu og þau geta ekki haldið
áfram að starfa eins og þau gerðu í
upphafi eða fyrir 20 árum. „Þess
vegna erum við að bjóða upp á
skiptinám fyrir fólk á öllum aldri og
líka í styttri tíma. Þ.e.a.s. ekki bara
fyrir 15-18 ára krakka í tæpt ár.
„Gæti ég þá farið til dæmis ein í
skiptinám til Argentínu?“ spyr
blaðakona vongóð.
„Já, það er einmitt heila málið,
segir Sólveig Ása. „AFS eru friðar-
samtök þar sem skiptinemar, fjöl-
skyldur og sjálfboðaliðar vinna
markvisst að því að tengja saman
menningarheima. Þetta er grunn-
skilgreiningin á samtökunum og við
þurfum að aðlagast breyttum heimi
með fleiri aðferðum fyrir okkar fólk;
skiptinemana, sjálfboðaliða og fjöl-
skyldur,“ segir Sólveig Ása að lok-
um og ljóst að skiptinemar hér-
lendis og ytra eru í góðum höndum
undir styrkri stjórn þessarar skel-
eggu konu.
Á Teigunum hefur lítil
fjölskylda komið sér fyr-
ir í kósí íbúð sem þau
hafa verið að gera upp.
Þetta eru þau Sólveig
Ása, framkvæmdastjóri
AFS, maðurinn hennar
Grettir sem vinnur í
greiningardeild Lands-
bankans og sonur þeirra
Tryggvi en hann komst
nýlega inn á ungbarna-
leiksskóla eftir mikla
baráttu við að finna
pláss.
Vansvefta foreldrar vonlaus þrýstihópur
Morgunblaðið/Hari
Fagna leikskólaplássi Grettir og Sólveig Ása fengu nýlega pláss fyrir Tryggva litla eftir að hafa innheimt alla
hugsanlega greiða hjá ömmu og öfum, vinum og vandamönnum. Þau segjast eiga erfitt með að skilja af hverju svo
illa gengur að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla.