Morgunblaðið - 09.08.2018, Síða 44
MINNINGAR 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018
Elsku amma mín. Þegar ég
hugsa til þín þá sé ég fyrir mér all-
ar þær góðu stundir sem ég átti í
sveitinni; pönnukökur, heimaln-
ingar að fá pela og hláturinn þinn.
Mér fannst alltaf svo gaman að
fara upp í sveit og er sveitin okkar
enn þann dag í dag uppáhalds
staðurinn minn og mun að öllum
líkindum vera það áfram um
ókomna tíð.
Þú varst einhver sú sterkasta
kona sem ég hef þekkt og þú munt
ávallt vera stór fyrirmynd í mínu
lífi. Ég hitti þig síðast fyrir tveim-
ur vikum og ef ég hefði vitað að
það væri í síðasta skiptið þá hefði
ég líklegast aldrei getað farið frá
þér. Tilhugsunin um að hitta þig
aldrei aftur ristir dýpra en ég get
sett í orð, en þá er gott að halda
fast í allar þær góðu minningar
sem þú gafst mér. Þessar minn-
ingar mun ég hafa með mér í
gegnum lífið og nota þær til að
minnast þín og hversu heppin ég
var að hafa fengið þig sem ömmu.
Mikið óskaplega elska ég þig og
sakna þín innilega. Ég vona að þér
líði vel með afa og Hrafnkeli. Við
sjáumst svo einn daginn aftur, og
endilega kíktu í heimsókn ef þú
getur.
Þegar eitt ferðalag endar
hefst næsta.
Þú kvaddir okkur,
ferðbúin,
tilbúin.
Sumarlandið bíður,
ég bið að heilsa
og sé þig svo seinna.
(Þóra Sif Guðmundsdóttir)
Þóra Sif Guðmundsdóttir.
Elsku dásamlega Unnur amma
mín hefur nú kvatt þennan heim
og er nú komin til Gísla afa og ég
sé þau fyrir mér una sér vel yfir
nýbökuðum kleinum og flatkökum
með góðan kakóbolla, með sveit-
ina sína allt í kring.
Amma var kjarnakona sem
vildi öllum vel. Hún sýndi öðrum
hlýju og umhyggju og tók vel á
móti öllum þeim sem komu til
hennar á Syðri-Hamra. Öll þau
skipti sem ég kom til hennar fann
ég að henni þótti vænt um mig og
ég fann það í innilegu faðmlagi
hennar. Hún gaf ríflega af öllu og
hugsaði alltaf um hvernig hún
gæti glatt aðra. Kærleikur í garð
náungans var henni í blóð borinn
eins til allra dýra og náttúrunnar.
Ég var svo heppin að fá það
tækifæri að koma til ömmu og afa
upp í sveit og upplifa náttúruna og
frelsið að hlaupa um og vera ég
sjálf, orkuboltinn sem var alltaf
hlaupandi upp um alla kletta og
hóla en það nýttist vel í bústörfin
og verð ég alltaf þakklát fyrir það
tækifæri að upplifa sveitalífið, en
skemmtilegastur þótti mér hey-
skapurinn. Þá kom mikið af fólki,
amma passaði upp á að allir fengu
gott að borða og ég man gleðina
og orkuna sem ríkti þá. Sveita-
störfin voru erfiðisvinna en upp-
lifun mín var gleði og almenn
vinnusemi við það að klára verkið
en þessi vinnusemi hefur fylgt
mér allt mitt líf.
Eftir langan dag var komið að
kvöldkaffinu og var þá hlustað á
útvarpið og fengið sér eitthvað
ljúffengt sem amma hafði bakað
og spjallað um daginn og veginn.
Þetta voru ljúfar stundir sem mér
Unnur S.
Óskarsdóttir
✝ Unnur S. Ósk-arsdóttir fædd-
ist 9. apríl 1932 á
Skammbeinsstöð-
um í Holtum. Hún
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Lundi á
Hellu 27. júlí 2018.
Útförin fer fram
frá Kálfholtskirkju
í dag, 9. ágúst 2018,
klukkan 14.
þykir vænt um þótt
ég hafi ekki kunnað
að meta þær þá sem
barn en í dag á ég
þessar minningar í
hjarta mínu um
ókomna tíð.
Takk, elsku
amma, fyrir að vera
opin, fyndin, ljúf og
að þykja svona vænt
um mig. Takk fyrir
að hugsa svona vel
um mig þegar ég kom til þín í
sveitina. Takk fyrir að þykja
svona vænt um börnin mín þegar
þú hittir þau í fyrsta sinn og um-
fram allt takk fyrir að vera amma
mín.
Ég var heppin að eiga þig sem
ömmu mína og ég mun aldrei
gleyma þér og ég ber stolt þitt
nafn og ætla að tileinka mér um-
hyggjusemi þína og hvernig þú
hugsaðir um fólkið i kringum þig.
Þú ert fyrirmynd sem allir ættu að
líta upp til. Ég elska þig og við
sjáumst í sumarlandinu einn dag-
inn.
Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins
blóm
er verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir þann allsherjardóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson)
Þín,
Unnur María.
Elsku amma mín.
Nú hefur þú kvatt þennan heim
og langþráðir endurfundir í hand-
anheimum framundan. Einlægt
bros og ljósar krullur munu
stökkva upp um hálsinn á þér og
fagna komu þinni, við hin munum
hins vegar syrgja þig af öllu
hjarta.
Það hafa verið forréttindi að
vera dótturdóttir þín og fá að alast
upp innan um hlýjuna, þolinmæð-
ina og þrautseigjuna sem geislaði
alltaf frá þér. Sem barn í sveitinni
þinni leið mér alltaf vel og fékk að
upplifa margt sem jafnaldrar mín-
ir í borginni upplifðu aldrei.
Mér eru svo margar stundir
minnisstæðar og hringsnúast þær
nú allar í huga mér á meðan ég
felli tár yfir þessum óbærilega
missi. Þegar við vorum saman í
berjamó, þegar við settum niður
kartöflur, þegar ég fékk að gefa
heimalningnum úr pela og þegar
ég fékk þá merkilegu vinnu að tína
sprekin í trjágarðinum þínum. Þú
kenndir mér að vinna og um-
hyggja væri dyggð, án þess að
segja það beinum orðum, heldur
sýndir þú mér það í verki.
Núna þegar ég er eldri geri ég
mér sífellt betur grein fyrir því
hve sterk kona þú varst. Alltaf
varstu komin á fætur á undan öll-
um og tilbúin með morgunmatinn,
það voru alltaf hrein föt, húsið
hreint, hádegismatur, kaffitími og
kvöldmatur og oft á tíðum kvöld-
kaffi. Mér fannst það alltaf svo
mikil fríðindi þegar við krakkarnir
fengum kex í kvöldkaffi áður en
við fórum í háttinn. Og ekki fóru
gestir sem litu við varhluta af
gestrisni þinni þegar þeir stungu
inn nefjum. Þessi vinna sem þú
lagðir á þig svo öðrum liði vel,
þessi ósýnilega vinna húsfreyj-
unnar, henni gleymi ég aldrei og
mun aldrei taka sem sjálfsögðum
hlut.
Aldrei fann ég fyrir því að sam-
band okkar breyttist með árunum
sem liðu, þú tókst alltaf svo vel á
móti mér þegar ég leitaði til þín.
Þegar ég hringdi frá Danmörku
og þú kenndir mér að steikja
kleinur í gegnum símann en neit-
aðir að kenna mér að steikja flat-
kökur því það myndi vera alltof
mikil bræla í litlu íbúðinni minni í
Danaveldi og það væri óhollt fyrir
Kötlu. Þegar þú hjálpaðir mér að
rekja sögu lopapeysunnar á Ís-
landi, bæði með því að rifja upp
ullarflíkur sem þú klæddist sem
barn og þína eigin sögu sem
prjónara.
Þegar þú sýndir Eskil að það
væri hægt að kveðja með handa-
bandi þegar honum fannst erfitt
að kveðja fólk með faðmlagi var
mér einnig ómetanlegt. Þú varst
alltaf með leið til þess að öllum liði
vel og fór fólk alltaf brosandi frá
þér og mun ég líka kveðja þig með
brosi því að þú varst amma mín.
Af öllu hjarta,
Guðmunda Dagbj. (Dagga).
Með hlýju í hjarta vil ég minn-
ast elsku Unnar sem var gift móð-
urbróður mínum, honum Gísla.
Unnur á Hömrum, eins og hún
einatt var kölluð innan fjölskyld-
unnar, var einstaklega skemmti-
leg og ljúf kona. Sem barn fór ég
oft í heimsókn að Syðri-Hömrum,
bæði til styttri og lengri tíma, þar
sem amma mín, Magga frænka,
Unnur og Gísli og börn þeirra
bjuggu.
Í minningunni var Unnur mjög
til staðar fyrir okkur krakkana
þótt hún hefði sannarlega næg
önnur verkefni á sinni könnu. Hún
spjallaði mikið við okkur, hló að
uppátækjum okkar og gaukaði
gjarnan óvænt að okkur mola.
Kleinurnar hennar og flatkökur
voru einstaklega góðar. Unnur
vakti traust barnshjartans og
nærvera hennar var góð. Þessi til-
finning gagnvart Unni var einnig
til staðar þegar maður fullorðnað-
ist og það var ávallt gott að hitta
hana.
En lífið var ekki alltaf sárs-
aukalaust hjá Unni. Það var mikill
harmur fyrir fjölskylduna þegar
Hrafnkell sonur þeirra Gísla dó á
barnsaldri. Þegar aldur færðist
yfir, þau Gísli orðin ein í kotinu og
hætt hefðbundnum búskap, urðu
líka þáttaskil og breytingar sem
þurfti að takast á við. Unnur var
þó alltaf með nokkrar rollur sem
glöddu hjarta hennar mikið, ekki
síst á vorin. Mér þótti mjög vænt
um þegar Unnur sendi mér mynd
til Noregs af kindunum sínum,
það var greinilegt að þær gegndu
mikilvægu hlutverki í lífi hennar.
Unnur var félagslynd og var
því hin ánægðasta þegar hún fékk
pláss á dvalarheimilinu Lundi á
Hellu. Það var mikill léttir fyrir
hana þegar Gísli tók einnig
ákvörðun um að þiggja dvalar-
pláss þar og bjó hann þar fram að
sínum dánardegi í desember 2013.
Unni leið ávallt mjög vel á
Lundi og var yndislegt að hitta
hana þegar við systurnar og dæt-
ur okkar heimsóttum hana í mars
á þessu ári.
Ég votta Ástu og Erlingi og
fjölskyldum þeirra samúð mína.
Megi minning um góða konu lifa.
Arndís Þorsteinsdóttir.
Nú hefur Unnur á Syðri-Hömr-
um kvatt þennan heim.
Unnur var gift Gísla móður-
bróður okkar og bjó fjölskyldan á
Syðri- Hömrum en í heimili hjá
þeim voru einnig amma okkar,
Arndís Þorsteinsdóttir, og
frænka, Margrét Illugadóttir. Oft
fórum við í bíltúr að Hömrum og
alltaf voru móttökurnar jafn góð-
ar. Þar var tekið á móti okkur með
útbreiddan faðminn. Við eldri
systkinin munum vel eftir gamla
bænum og eru það sérstakar og
dýrmætar minningar. Á Hömrum
fengum við að valsa um allt, kíkja í
fjósið, ná í hest og hrúgast á bak
eins mörg og við komust fyrir og
ævintýralegt var að leika sér í
klettunum. Já, það var gaman að
koma að Hömrum.
Við minnumst Unnar sem hlát-
urmildrar, gamansamrar konu
sem alltaf tók svo hlýlega á móti
okkur þegar við komum í heim-
sókn. Hún var myndarleg hús-
móðir og mikið var gott að setjast
við eldhúsborðið þeirra og gæða
sér á heimabökuðu góðgætinu
sem alltaf var þar á borðum. Hún
hugsaði vel um ömmu og Möggu,
og alla í kringum sig, hvort sem
það voru menn eða málleysingjar.
Fyrir það ber að þakka.
En Unnur fór ekki í gegnum líf-
ið án áfalla. Hrafnkell sonur henn-
ar lést, aðeins tæplega 13 ára
gamall, af slysförum. Slíkur harm-
ur markar djúp spor.
Unnur og Gísli dvöldu síðustu
árin á Lundi á Hellu en Gísli lést
árið 2013.
Lífsgöngu Unnar er lokið en
við eigum dýrmætar og góðar
minningar um hana og fólkið okk-
ar á Syðri- Hömrum.
Við sendum Ástu, Erlingi og
þeirra fjölskyldum samúðarkveðj-
ur. Systkinin frá Ártúni 8,
Arndís, Sigríður,
Jóna, Garðar,
Margrét og Sigrún.
Unnur Óskarsdóttir frá Syðri-
Hömrum í Ásahreppi er gengin
sinn veg og eftir sitjum við með
minningarnar einar um hana og
þær eru góðar.
Ég kynntist Unni fyrir um tutt-
ugu árum er ég heimsótti hana á
síðkvöldi og sá strax að þarna var
væn kona og það var tilhlökkunar-
efni að fá að kynnast henni betur.
Unnur var ekki mikið fyrir að tjá
tilfinningar sínar, bar þær ekki á
borð fyrir alla en þegar við tókum
„pedicure og manicure“ inni á baði
á Syðri-Hömrum og klipptum hár
og lögðum, þá sagði hún mér ým-
islegt um líf sitt. Það var aðdáun-
arvert að heyra hvað hún dró allt-
af fram það besta í samferðafólki
sínu en var þó raunsæ og talaði
um mismun á stöðu karla og
kvenna um miðja síðustu öld. Hún
sagði að hún hefði oft óskað sér að
vera karl á þeim tíma.
Hún bjó lengi vel með tvær aðr-
ar húsmæður á heimilinu, tengda-
móður sína og frænku hennar.
Það sem henni þótti verst í þessari
sambúð sem var á ýmsan hátt góð,
var að þeim frænkum kom ekki
saman um uppeldið á börnunum á
heimilinu. Hún var oft í hlutverki
sáttasemjara í deilum þessara
kvenna og hugsaði oftar en einu
sinni hvort ekki hefði verið gott að
vera eina húsmóðirin á heimilinu
og hafa þannig meira um uppeldi
barna sinna að segja. Hún taldi þó
að afkomendur hennar hefðu orð-
ið hið vænsta fólk.
Við Unnur fórum nú í seinni tíð
saman í nokkrar ferðir upp að
Skammbeinsstöðum í Holtum en
þar var hún fædd og upp alin.
Meðan við borðuðum samlokur og
drukkum appelsín var gaman að
hlusta á hana segja frá æsku sinni
á þeim stað en þar hafði henni liðið
vel. Hún rifjaði upp eitt og annað
varðandi búskaparhætti í þá daga
og þá gleði sem oft ríkti við bú-
störfin. Hún minntist þess hve
mikið frjálsræði það hefði verið að
hjóla niður brekkurnar og fá vind-
inn í fangið og heyra um leið í fugl-
unum og lækjunum. Frásögn
hennar var svo lifandi og hrífandi
að ég sá þetta allt fyrir mér og
naut þess að sjá hana brosa yfir
minningum sínum.
Það var mikil tónlist á æsku-
heimili hennar en pabbi hennar
var organisti í Marteins-
tungukirkju og Unnur söng þar í
kirkjukórnum auk þess sem hún
lærði orgelleik af pabba sínum og
spilaði alla tíð. Oft kom heimilis-
fólkið á Skammbeinsstöðum sam-
an og söng og trallaði sér til
skemmtunar auk þess sem það
spilaði oft á spil á vetrarkvöldum.
Unnur var mikil handavinnu-
kona og naut ég góðs af því þegar
ég fór í gegnum textílmennt í
Kennaraháskólanum. Hún var
alltaf tilbúin til þess að aðstoða
mig og var mikið flinkari en ég við
allt. Hún prjónaði reglulega ullar-
leista á strákana mína og voru
þeir henni afar þakklátir fyrir það.
Fallegri sokka var ekki hægt að
fá.
Unnur var mikill húmoristi og
sá ýmislegt skemmtilegt í fari
samtíðarmanna og sveitunga. Það
var aldrei meinhæðni eða öfund í
þessum sögum. Unnur talaði aldr-
ei illa um nokkurn mann, bara
gleði og hlátur sem fylgdi þessum
frásögnum. Það var gaman að
hlæja með henni og ekki versnaði
nú kompaníið þegar Ásta dóttir
hennar var mætt á staðinn. Mikið
óskaplega var gaman að hlæja
með þessum elskum að öllu og
engu.
Þegar ég heimsótti Unni í síð-
asta sinn, rúmum sólahring fyrir
dauða hennar, kom til hennar hóp-
ur afkomenda í heimsókn. Tveir
þeir yngstu fóru að spila á orgel
langömmu sinnar til að gleðja
hana og stytta henni stundirnar
og var það falleg stund. Ég vona
að gæfa fylgi þessum ungu afkom-
endum Unnar minnar og fólkinu
hennar öllu um langan aldur.
Ragnheiður Jónasdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRÐUR JÓN SVEINSSON,
Hátúni 17,
Vík í Mýrdal,
lést á Dvalarheimilinu Hjallatúni föstudaginn
3. ágúst. Útförin fer fram frá Víkurkirkju,
föstudaginn 10. ágúst kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Víkurkirkju, reikn. 0317-13-1406,
kt. 700269-0869.
Áslaug Halla Vilhjálmsdóttir
Sveinn Þórðarson Inger Schiöth
Sólveig Þórðardóttir Árni Eiríksson
Kristján Þórðarson Sigrún Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku pabbi minn, sonur okkar, bróðir og
barnabarn,
EINAR KRISTJÁN GUÐMUNDSSON,
Tjarnarbóli 14,
Seltjarnarnesi,
lést fimmtudaginn 2. ágúst.
Útför auglýst síðar.
Alía Margrét Einarsdóttir
Guðmundur Gunnarsson Thassanai Thaebthao
Ingifríður Ragna Skúladóttir Guðmundur Guðbjartsson
Guðmundur Dór Guðmunds. Hrafnkell Skúli Guðmundsson
Alexía Ýr Magnúsdóttir
Patrik Birnir Guðmundsson
Aron Máni Guðmundsson
Margrét Dóra Guðmundsd. Moritz W. Sigurðsson
Bróðir okkar,
HALLUR JÓHANNESSON,
Dalbraut 21,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
laugardaginn 5. ágúst. Útför fer fram frá
Reynivallakirkju í Kjós laugardaginn
11. ágúst klukkan 14.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristján Jóhannesson
Leifur Kr. Jóhannesson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
HALLGRÍMUR GUÐJÓNSSON,
fyrrv. bóndi,
Hvammi í Vatnsdal,
er látinn.
Útför auglýst síðar.
Ingibjörg R. Hallgrímsdóttir Gísli Ragnar Gíslason
Þuríður Kr. Hallgrímsdóttir Finnborgi Kjartansson
Margrét Hallgrímsdóttir Gunnar Þór Jónsson
Hafsteinn Gunnarsson Ásta Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
EINAR EINARSSON
flugumferðarstjóri,
Espigerði 4, Reykjavík,
lést laugardaginn 4. ágúst.
Jarðarför auglýst síðar.
Una Ásgeirsdóttir
María Marta Einarsdóttir
Kristín Einarsdóttir
Jón Ásgeir Einarsson Sólveig Gyða Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn