Morgunblaðið - 09.08.2018, Side 54
90 ára
Heiðveig Hálfdánardóttir
85 ára
Ásbjörn Kristófersson
Edda Konráðsdóttir
Garðar Forberg
Hermann Ágúst Bjarnason
Sigríður Króknes
Sigurður Reynisson
80 ára
Valdís Heiða Þorleifsdóttir
75 ára
Ástvaldur Pétursson
Guðrún S. Guðmundsdóttir
Jón Sigfússon
Júlíana Tryggvadóttir
70 ára
Anna Guðmundsdóttir
Heiðar Jónsson
Hjörvar O. Jensson
John Francis Zalewski
Kári Bjarkar Gestsson
Kristinn Jónsson
Ruth S. Jóhannsdóttir
Smári Jónsson
Sæunn Freydís Grímsdóttir
60 ára
Arnþór Jónsson
Bjarney Jóný Bergsdóttir
Börkur Ingvarsson
Elna Christel Johansen
Eydís S. Ástráðsdóttir
Guðmunda Sævarsdóttir
Guðrún Guðmundsdóttir
Jóhann Kristjánsson
Jón Hlíðar Kristjánsson
Kolbrún Hjörleifsdóttir
Kristján V. Kristjánsson
Ólöf Jónsdóttir
Rúnar Páll Brynjúlfsson
Sigríður Ólafsdóttir
Valur Björnsson
50 ára
Agnes Eyþórsdóttir
Ásdís I. Sveinbjörnsdóttir
Bjarni R. Sigurvinsson
Eydís Valgarðsdóttir
Heidi Didriksen
Heiðlindur H. Högnason
Iðunn Ingólfsdóttir
Jón Ingi Jónsson
Krasimira Petrova Topalova
Oddný Kristín Óttarsdóttir
Pálína Sigurbjörg Buch
Sigríður Jóhannesdóttir
Sveinn Ingimar Sveinsson
40 ára
Dragoslav Ercegovac
Elmar Svavarsson
Gunnar Þór Vilhjálmsson
Henri Palade Ólafsson
Hugrún Ósk Sævarsdóttir
Jacek Wyrwas
Jónas Árnason
Krzysztof Wojcik
Margrét Huld Björnsdóttir
Ragnhildur Tryggvadóttir
Sigurður Ingi Kristinsson
Unnur Björk Hauksdóttir
Unnur Þóra Högnadóttir
Vibhuti Kalia
Þóra Hrönn Þorgeirsdóttir
30 ára
Andri Örn Gunnarsson
Davíð Örn Gunnarsson
Eyþór Pétursson
Ferenc Putnoki
Grétar Skúli Gunnarsson
Kristján F. Sigurbjörnsson
Ragnar Helgason
Róbert Hjaltason
Sif Guðmundsdóttir
Sonja Hrund Ágústsdóttir
Steinar Haraldsson
Steinunn Ýr Hjaltadóttir
Vaidas Bagdanavicius
Til hamingju með daginn
Heiðar stofnsetti eigið fyrirtæki
1987, Snyrti- og tískuhús Heiðars
Jónssonar sem hann starfrækti í
nokkur ár. Þar kenndi hann konum,
jafnt sem körlum, flest sem lýtur að
útliti fólks og framkomu. Hann varð
flugþjónn í ársbyrjun 1999 og var þá
búsettur í yfir þrjátíu borgum, víðs
vegar um heim í tæpan áratug.
Heiðar flutti aftur heim 2008,
kynnti snyrtivörur hjá Forvali og var
flugþjónn hjá Iceland Express auk
þess sem hann ritstýrði vefsíðunni
brúðurin.is.
Heiðar starfaði mikið að fegurð-
arsamkeppnum hér á landi, allt frá
1968. Hann sinnti þá þjálfun og leið-
sögn fyrir keppendur, kom að skipu-
lagningu og uppsetningu keppnanna
og var oft kynnir á þeim.
Fyrir þremur árum fór Heiðar í
Leiðsögumannaskóla Íslands í MK
og útskrifaðist þaðan. Hann hefur
síðan starfað við fararstjórn, að
mestu erlendis, fyrir Úrval Útsýn,
Sumarferðir og Plúsferðir: „Ég
starfa nú við fararstjórn í Almeria á
Spáni og fer fljótlega til Benidorm
svæðisins. Fyrir jólin ætla ég svo að
kynna vörur frá́Ĺoréal. Auk þess eru
ýmis önnur spennandi verkefni á döf-
inni. Það er um að gera að láta ekki
deigan síga – hafa alltaf nóg fyrir
stafni og hafa gaman af því sem mað-
ur tekur sér fyrir hendur. Vinnan
drepur engan.“
Þegar vinnunni sleppir er Heiðar
óperuunnandi og nýtur þess að fara á
leiksýningar, ballett og tónleika:
„Þegar ég var níu ára, árið 1957, las
ég frétt í Morgunblaðinu um tónleika
sem María Callas hafði þá haldið í
París. Þar kom fram að hún hefði
verið í crisu-rauðum kjól, hönnuðum
af Dior. Þremur áratugum síðan
komst ég yfir svart/hvíta vídeospólu
af þessum tónleikum. Allir sjá þessa
spólu í svart/hvítu en ég sé hana í lit
því ég mundi eftir lýsingunni í frétt-
inni.“
Fjölskylda
Kona Heiðars var Bjarkey Magn-
úsdóttir, f. á Hellissandi, 28.5. 1948,
fyrrv. forstöðumaður. Hún er dóttir
Magnúsar Magnússonar frá Vest-
mannaeyjum og Hrefnu Júlíus-
dóttur. Heiðar og Bjarkey slitu sam-
vistum 1998.
Börn Heiðars og Bjarkeyjar eru
Júlíus Steinar Heiðarsson, f. 8.9.
1969, flugstjóri og úrahönnuður, bú-
settur í Reykjavík en sonur hans er
Sæmundur Heiðar, f. 2011; Sigríður
Lára Heiðarsdóttir, f. 9.9. 1971,
kennari í Bandaríkjunum en dóttir
hennar er Viktoría Lára Michell auk
þess sem Sigríður Lára á tvö stjúp-
börn frá fyrrv. hjónabandi, og Áslaug
Olga, f. 5.8. 1978, þjóðfræðingur og
listamaður á Hellissandi en sambýlis-
maður hennar er Ingvar Valgeir Æg-
isson.
Heiðar eignaðist sjö hálfsystkini
samfeðra og tvö sammæðra. Þá voru
fóstursystkini hans fjögur en tvær
fóstursystur hans eru látnar, sem og
hálfsystir hans, sammæðra.
Foreldrar Heiðars: Jón Pálsson, f.
15.3. 1928, d. 13.4. 2008, frá Krossum
í Staðarsveit, lengst af vélstjóri og
vélvirki í Reykjavík, og Steinunn
Benónýsdóttir, f. 27.11. 1927, d. 19.12.
1951, húsmóðir.
Heiðar
Jónsson
Steinunn Kristjánsdóttir
húsfr. í Bergholtskoti
Hafliði Þorsteinsson
b. í Bergholtskoti í Staðarsveit og víðar
Halldóra Hafliðsdóttir
ráðskona á Haukabrekku
Steinunn Benónýsdóttir
vinnukona á Krossum í Staðarsveit
Benóný G. Salómonsson
vinnum. á Krossum í Staðarsveit
Jóhanna Sigurlaug Benónýsdóttir
húsfr. í Ólafsvík
Arnfinnur Jónsson
kólastj. AusturbæjarskólasRóbert Arnfinnsson leikari
Björk
Vilhelms-
dóttir
félagsfr.
og fv.
borgar-
fulltrúi
Guðfinnur
Sveinsson
óperu
söngvari
Kristín
Sveinsdóttir
óperu
söngkona
Kristín
Pálsdóttir
húsfr. og
verslunar-
maður í
Rvík
María
Ásmundsdóttir
saumakona og
myndlistarkona
í Rvík
Áslaug Kristín
Sigurðardóttir
skrifstofum.
hjá lögreglustj.
í Rvík
Kolbrún
Baldursdóttir
sálfræðingur og
borgarfulltrúi
Bergljót
Baldursdóttir
fréttamaður á RÚV
Kristín Stefánsdóttir
húsfr., frá Krossum í Staðarsveit
Ásmundur Jón Jónsson
b. á Krossum
Stefanía Ásmundsdóttir
húsfreyja í Rvík
Páll Jónsson
heildsali í Rvík
Jón Ísleifsson
kennari og vegaverkstj. á Eskifirði
Úr frændgarði Heiðars Jónssonar
Jón G. Pálsson
vélvirki. í Rvík
veinnPálsson
kaupmaður í
Hábæ í Vogum
Hörður Einarsson
hrl. og fyrrverandi
ramkvæmdastjórif
Yngvi Harðarson
hagfræðingur og
framkvæmdastjóri
Ragnheiður Pálsdóttir
húsfr. á Eskifirði, frá Þingmúla
SÞuríður Sveinsdóttir
húsfreyja í Rvík
Ólafur
Jónatansson
verkam. í
RvíkJónatan Ólafsson
íanóleikari, tónskáld og
hljómsveitarstj. í Rvík
p
Erla E.
ónatansdóttir
húsfreyja í
Hafnarfirði
J
Jónatan Garðarsson
dagskrárgerðarm.
og rithöfundur
Erling Ólafsson söngvari
Þuríður Sigurðardóttir
söngkona
Sigurður Ólafsson
söngvari og hestamaður
Salómon Jónatansson
sjóm. í Melshúsi í Ólafsvík, bróðursonur Páls, langafa Megasar
ÍSLENDINGAR 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
RayBan 4175 sólgleraugu
kr. 22.900,-
Sumarið er hér
Frábært
verð á glerjum
Einfókus gler
Verð frá kr. 16.900,-
Margskipt gler
Verð frá kr. 41.900,-
Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af
umgjörðum á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu.
Verið velkomin!
Þórarinn Brandur HelgasonPjeturss fæddist í Stykk-ishólmi 9.8. 1908 en ólst upp á
Hellissandi. Auk þess var hann á
Hæli í Hreppum á unglingsárunum.
Foreldrar hans voru dr. Helgi Pjet-
urss, jarðfræðingur og heimspek-
ingur í Reykjavík, og k.h. Kristín
Brandsdóttir píanókennari.
Helgi var sonur Pjeturs Péturs-
sonar, bæjargjaldkera í Reykjavík,
og Önnu Sigríðar Vigfúsdóttur Thor-
arensen, sýslumanns Sigurðssonar.
Móðir Önnu Sigríðar var Ragnheið-
ur Melsted Pálsdóttir, amtmanns í
Stykkishólmi. Kristín var systir
Unu, móður Hjartar Hjartarsonar
forstjóra, og ömmu Gunnars Hans-
sonar forstjóra og Guðrúnar Hann-
esdóttur félagsfræðings. Önnur syst-
ir Kristínar var Ingveldur, móðir
Brands Brynjólfssonar hrl.
Eiginkona Þórarins var Auður
Svava Ólafsdóttir Pjeturss og eign-
uðust þau þrjá syni, Helga Óla lækni,
Þórarinn Brand rafeindavirkja og
Stefán Pál framkvæmdastjóra.
Systkini Þórarins voru Pétur
Hamar Helgason Pjeturss sem lést
tæplega tvítugur; Anna Sigríður
Helgadóttir Pjeturss, píanóleikari og
kennari í Reykjavík, og Helga Krist-
ín Helgadóttir Pjeturss, húsfreyja í
Reykjavík.
Þórarinn lauk búfræðiprófi frá
Bændaskólanum að Hvanneyri 1928.
Hann stundaði landbúnaðarstörf á
uppvaxtarárunum, var bílstjóri hjá
Bifreiðastöð Steindórs og hjá Stjórn-
arráðinu og ók þá einkum Jónasi frá
Hriflu í hans ráðherratíð, var háseti
á varðskipinu Óðni, en lengst af
verkstjóri hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur 1935-78. Hann starf-
rækti véla- og flutningadeild Raf-
veitunnar í fjölda ára og sá t.d. um
alla þungaflutninga við uppbyggingu
Sogsvirkjananna og línubyggingu
frá þeim.
Þórarinn var mikill hestamaður og
gegndi trúnaðarstörfum fyrir Hesta-
mannafélagið Fák og Hestamanna-
félagið Andvara.
Þórarinn lést 8.12. 1999.
Merkir Íslendingar
Þórarinn B.
H. Pjeturss
30 ára Róbert ólst upp í
Reykjavík og Garðabæ,
býr í Kópavogi, lauk prófi í
rafmagnsiðnfræði frá HR
og starfar hjá Lotu - verk-
fræðistofu,
Systkini: Hjálmtýr, f.
1987, og Natalía, f. 1998.
Foreldrar: Hjalti Gísla-
son, f. 1960, húsasmíða-
meistari, og Svanfríður
Snorradóttir, f. 1963, hús-
freyja og formaður Sam-
býlisins í Krókamýri 2.
Þau búa í Garðabæ.
Róbert
Hjaltason
30 ára Ragnar ólst upp í
Varmahlíð, býr á Sauð-
árkróki, lauk stúdents-
prófi og prófi í ljósmynd-
un frá Tækniskólanum og
starfar hjá ARION banka á
Sauðárkróki.
Maki: Erla Hrund Þór-
arinsdóttir, f. 1989, end-
urskoðandi hjá KPMG.
Sonur: Mímir Orri, f.
2016.
Foreldrar: Helgi D. Gunn-
arsson, f. 1956, og Kristín
Jóhannesdóttir, f. 1953.
Ragnar
Helgason
30 ára Steinunn ólst upp
í Árnesi í Víðidal í Vestur-
Húnavatnssýslu, en er nú
búsett í Reykjavík og
starfar hjá Mjölni.
Sonur: Nökkvi Steinn, f.
2012.
Syskini: Birgitta Dögg
Þrastardóttir, f. 1982,
Guðni Jóhannes Hjalta-
son, f. 1991.
Foreldrar: Ingunn Lena
Bender, f. 1960, og Hjalti
Jóhannesson, f. 1961. Þau
eru búsett í Hafnarfirði.
Steinunn Ýr
Hjaltadóttir