Morgunblaðið - 09.08.2018, Blaðsíða 57
58 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Hinsegin dagar eru nú haldnir í tutt-
ugasta sinn en hátíðin fór fyrst fram
árið 1999. Yfirskrift Hinsegin daga í
ár er baráttu-
gleðin, sem vísar
til þrotlausrar
baráttu Samtak-
anna ’78 og alls
hinsegin fólks á
Íslandi á síðustu
áratugum fyrir
bættum rétt-
indum og sam-
félagsstöðu, segir
Gunnlaugur
Bragi Björnsson,
formaður Hinsegin daga, í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins.
„Að sama skapi fangar yfirskriftin
gleðina sem einkennir hinsegin sam-
félagið og baráttu þess,“ segir Gunn-
laugur að auki um yfirskrift hátíð-
arinnar. Þá segir hann að það megi
velta því fyrir sé hvaðan þessi gleði
kemur, þ.e.a.s. hefur hún alltaf verið
einlæg eða hefur þetta verið leið til
þess að brynja sig frá umhverfinu og
samfélaginu?
Gleðin verður einlægari
„Við stöndum í þeirri trú að gleðin
verði sífellt einlægari eftir því sem
fleiri sigrum er fagnað. Á móti kem-
ur, eins og við vitum, er ennþá ým-
islegt sem við þurfum að minna á og
berjast fyrir,“ segir Gunnlaugur og
bendir á að Ísland sé að dragast aft-
ur úr nágrannalöndum hvað laga-
lega stöðu hinsegin fólks varðar, þá
helst hvað varðar stöðu og réttindi
trans- og intersex-fólks.
„Auk þess þurfum við stöðugt að
fræða og vera á varðbergi því það
hefur sýnt sig að réttindi sem hefur
verið barist fyrir og hafa fengist
geta, því miður, einhvern veginn
auðveldlega horfið,“ segir Gunn-
laugur einnig um hvar baráttan
stendur í dag. Óneitanlegt er þó,
segir Gunnlaugur, að Ísland stendur
mjög framarlega á heimsvísu þegar
kemur að stöðu og réttindum hin-
segin fólks.
Gleðigangan á laugardag er há-
punktur hátíðarinnar og tugþús-
undir gesta fylgjast með henni ár
hvert. Gönguleiðinni var breytt á
síðustu hátíð og var leiðinni snúið
við. Gunnlaugur segir aðspurður að
mikil ánægja hafi verið með hvernig
það tókst til. Gangan hófst á Hverf-
isgötu í fyrra en í ár hefst hún á Sæ-
braut við tónlistarhúsið Hörpu.
Göngunni stillt upp við Hörpu
„Það skapaðist mjög skemmtileg
stemning á Hverfisgötunni í upp-
stillingu göngunnar, því er ekki
hægt að neita, en gatan var heldur
þröng fyrir allan þennan fjölda auk
ökutækja. En ég held að það verði
ekki síður skemmtilegt að stilla upp
göngunni við Hörpu með Faxaflóa
og Esjuna í bakgrunni,“ segir Gunn-
laugur. Að sama skapi, bætir Gunn-
laugur við, var mikil kátína með það
að enda gönguna í Hljómskálagarð-
inum í fyrra og verður það sama upp
á teningnum í ár. Um 30 atriði hafa
tekið þátt í Gleðigöngunni und-
anfarin ár og er reiknað með svip-
uðum fjölda í ár.
Gangan verður eins og áður með
allra glæsilegasta móti og segir
Gunnlaugur að engum ætti því að
leiðast á laugardaginn. Hefst upp-
stilling í gönguna kl. 12 á hádegi og
lagt verður af stað stundvíslega kl.
14 frá gatnamótum Sæbrautar og
Faxagötu. Göngunni lýkur við Sól-
eyjargötu þar sem glæsilegir úti-
tónleikar taka við í Hljómskálagarð-
inum.
Fagna tilverunni í litadýrð
Í Gleðigöngunni, segir á vef Hin-
segin daga, sameinast lesbíur,
hommar, tví- og pankynhneigðir,
trans-fólk, intersex-fólk og aðrir hin-
segin einstaklingar í einum hópi
ásamt fjölskyldum sínum og vinum
til að staðfesta tilveru sína og minna
á baráttumál sín. „Auk þess, eins og
nafnið gefur til kynna, lögðu stofn-
endur göngunnar árið 1999 mikið
upp úr því að gleðin væri við völd.
Fyrst og fremst er það sýnileikinn
og að koma saman, raddir okkar eru
sterkari þegar við erum sameinuð,“
segir Gunnlaugur um hvaða þýðingu
Gleðigangan hefur.
Litir, gleði og jákvæð orka ein-
kenna gönguna svo úr verður mikill
sameiningarkraftur. „Auðvitað hef-
ur gangan eins og hátíðin öll marg-
þættan tilgang. Við viljum sýna
þakklæti og gleðjast yfir því sem
hefur afrekast en einnig nýta orkuna
til að ná lengra í okkar baráttu-
málum og hampa hinsegin menn-
ingu, sem er svo sterk,“ segir Gunn-
laugur.
Sýnileiki og umræða er meiri
Myndast hefur hefð fyrir ýmiss
konar viðburðum og listum, sem
hafa dafnað í hinsegin samfélaginu
og eru nú að stækka og verða víð-
tækari. „Til að mynda er ekki langt
síðan drag var bundið við homma og
hinsegin samfélagið en er í dag orðið
gríðarlega stór geiri eins og við
Jákvæð orka Líkt og nafnið gefur til kynna er gleðin ávallt við völd í Gleðigöngunni ár hvert
þar sem áfangasigrum í réttindabaráttu, hinsegin menningu og fjölbreytileikanum er fagnað.
Morgunblaðið/Hanna Andrésdóttir
Litadýrð Í Gleðigöngunni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans-fólk, inter-
sex-fólk og aðrir hinsegin einstaklingar í einn hóp og koma baráttumálum sínum á framfæri.
Baráttugleðin ríkir á Hinsegin dögum
Viðburðir Hinsegin daga yfir 30 talsins Hátíðin nær hámarki á laugardag með Gleðigöngunni
Gunnlaugur
Bragi Björnsson
Matthew Landrus, listfræðingur og
prófessor við Oxford-háskóla, telur
sig geta sannað að málverkið Salva-
tor Mundi, eða Bjargvættur heims-
ins, sem eignað var Leonardo da
Vinci og selt fyrir metfé í nóvember
sl. sé að stærstum hluta málað af ein-
um aðstoðarmanna hans, Bern-
ardino Luini. Þessu greinir The
Guardian frá.
„Ég get sannað að Luini málaði
stærstan hluta verksins. Sönnunin
felst í því að bera saman Bjargvætt
heimsins og önnur málverk Luini,“
segir Landrus og telur að Leonardo
hafi aðeins málað 5-20% af verkinu
en Luini verið að-
almálarinn.
Uppboðshúsið
Christie’s seldi
verkið fyrir jafn-
virði nær 47 millj-
arða íslenskra
króna síðla síð-
asta árs, sem var
hæsta verð sem
greitt hafði verið
fyrir verk eins
gömlu meistaranna. Í frétt The Gu-
ardian kemur fram að verk Luini
séu yfirleitt seld fyrir innan við 138
milljónir íslenskra króna.
Telur rangt að eigna da Vinci verkið
Bjargvættur
heimsins
rifjar upp að
hann, þegar
hann kvaddi
hlutverkið 2002,
hafi alls ekki átt
von á því að snúa
aftur – þrátt fyr-
ir að hafa alla tíð
verið afar stoltur
af hlutverkinu. Á
fyrrgreindri ráð-
stefnu gaf Stewart til kynna að
breytinga væri að vænta. „Mögu-
lega verð ég ekki lengur skipstjóri.
Hann verður kannski ekki sá Jean-
Luc sem þið þekkið best,“ sagði
Stewart, en fyrir liggur að nýja
þáttaröðin gerist 20 árum eftir að
Nemesis lýkur.
Patrick Stewart snýr aftur sem Picard
Patrick Stewart
Breski leikarinn Patrick Stewart
upplýsti á Star Trek-ráðstefnu í
Las Vegas um helgina að hann
hygðist bregða sér aftur í hlutverk
Jean-Luc Picard skipstjóra á geim-
skipinu USS Enterprise. Stewart
fór með hlutverk Picard í sjón-
varpsþáttaröðinni Star Trek: The
Next Generation á árunum 1987 til
1994 og í fjórum kvikmyndum, en
seinust þeirra er Nemesis frá 2002.
„Það kemur mér ánægjulega á
óvart hversu spenntur og upp-
tendraður ég er við tilhugsunina
um að fá að bregða mér aftur í
hlutverk Jean-Luc Picard og fá
tækifæri til að kanna nýjar víddir
persónunnar,“ skrifar Patrick
Stewart á Twitter-síðu sinni og
Z-brautir &
gluggatjöld
Opið mánud.-föstud. 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is |
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Falleg gluggatjöld
fyrir falleg heimili