Morgunblaðið - 09.08.2018, Page 67

Morgunblaðið - 09.08.2018, Page 67
FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 221. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Herdís og Sævar keyptu villu … 2. Ágústa Eva landaði risahlutverki … 3. Hollywood fær það óþvegið 4. Fundu lík fjögurra ára drengs »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Kæra Jelena eftir Ljúdmílu Raz- úmovskaju í leikstjórn Unnar Aspar Stefánsdóttur verður frumsýnd á Litla sviði Borgarleikhússins í apríl á næsta ári. Leikritið fjallar um hóp kraftmik- illa og sjarmerandi nemenda sem koma óvænt í heimsókn til umsjón- arkennara síns með vín og gjafir undir því yfirskini að óska henni til hamingju með afmælið. Fljótlega er ljóst að þau hafa allt annað í huga en að gleðja kennarann sinn og við tekur hrikaleg atburðarás þar sem hlutirnir fara gjör- samlega úr böndunum. Með hlutverk nemendanna fara Haraldur Ari Stef- ánsson, Sigurður Þór Óskarsson, Þur- íður Blær Jóhannsdóttir og Aron Már Ólafsson, sem leikur í sinni fyrstu sýn- ingu í atvinnuleikhúsi, en kennslukon- una leikur Halldóra Geirharðsdóttir. Leikritið naut gríðarlegra vinsælda þegar það var sýnt á Íslandi fyrir tæp- um 30 árum. Kristín Eiríksdóttir færir þýðingu Ingibjargar Haraldsdóttur nær í stað og tíma. Filippía I. Elísdóttir hannar leikmynd og búninga, Björn Bergsteinn Guðmundsson lýsingu og Valgeir Sigurðsson sér um tónlist. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Borgarleikhúsið set- ur upp Kæru Jelenu  Guðbjörg Ringsted opnar mál- verkasýningu að Brúnum í Eyjafjarð- arsveit í kvöld kl. 20. Þema málverk- anna sem hún sýnir er blómamunstur af ís- lenska kven-þjóðbún- ingnum, en Guðbjörg hefur fengist við þetta viðfangsefni und- anfarin ár. Sýningin stendur til 23. sept- ember og er opin alla daga milli kl. 13 og 18. Opnar málverka- sýningu að Brúnum Á föstudag Hæg suðlæg átt og bjart með köflum, en stöku síð- degisskúrir norðaustantil. Hiti 10 til 17 stig. Á laugardag Austan 5- 10 syðst, annars hægari vindur. Víða léttskýjað og hiti 10 til 18 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 2-7 m/s og léttir víða til, en skúrir um landið norðaustanvert. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast sunnan heiða, en 5 til 10 stig norðaustanlands. VEÐUR „Fyrir tveimur mánuðum var ekki ljóst hvort ég gæti kastað spjóti nokkurn tím- ann aftur eða að ég gæti komist til Berlínar. Þannig að ég ætla að njóta þess að vera hérna,“ segir Ásdís Hjálmsdóttir, Íslands- methafi í spjótkasti, sem keppir á sínu sjötta Evr- ópumóti í Berlín í dag. Meiðsli í baki og kálfa hafa truflað undirbúninginn en spjótið gæti farið langt. »2 Nýt þess að keppa verkjalaus á EM „Í hraðari hlaupum myndast frekar lína af hlaupurum, en ekki svona suðupottur þar sem allir hafa ennþá orku til að slást,“ sagði Aníta Hinriks- dóttir sem var dæmd úr keppni eftir undanúrslit í 800 metra hlaupi á Evr- ópumótinu í frjálsum íþróttum í Berl- ín í gærkvöld. Aníta átti í nokkrum stimpingum við sænskan keppanda sem hún þekkir afar vel, og var dæmd úr keppni vegna þeirra. Hún undi dómnum enda hefði tími henn- ar ekki dugað til að komast í úrslit, líkt og hún gerði á EM fyrir tveimur ár- um. Sindri Hrafn Guðmundsson lauk einnig keppni í gær, á sínu fyrsta stórmóti í flokki fullorð- inna. »3 Suðupottur þar sem all- ir hafa orku til að slást KA-menn gengu hnípnir af Akureyr- arvelli í gærkvöld eftir að hafa gert 1:1-jafntefli við FH, í Pepsi-deild karla í knattspyrnu, í mikilvægum leik í baráttunni um sæti í Evrópukeppni á næstu leiktíð. KA komst yfir um miðj- an seinni hálfleik en Brandur Olsen tryggði FH dýrmætt stig með laglegu marki á 90. mínútu. Fjögur stig skilja því liðin áfram að. »4 Jafntefli í Evrópuslag á Akureyrarvelli ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is „Við fengum hugmyndina þegar við kynntumst dansmenningunni hérna á Íslandi og áttuðum okkur á því hvað það er í raun mikil dans- stemning á landinu,“ segja þau Anna Claessen og Friðrik Agni Árnason, stofnendur Dans og kúlt- úrs sem stendur reglulega fyrir danskennslu, -ferðum og -kvöldum. Í gær héldu þau danskvöld á Gauknum þar sem leiðbeinendur úr hinum ýmsu dansskólum komu og kenndu dans. West coast swing, kizomba, zumba, jallabina, afro og fleiri dansar voru á dagskrá á Gauknum í gær en Anna segir danspartíin vera fullkominn vettvang fyrir þá sem vilja uppgötva sinn uppáhaldsdans. „Þetta er frábært bæði fyrir dans- félögin og fyrir dansunnendur sem langar að æfa dans en vita ekki al- veg hvar þeir eiga að byrja. Þeir geta komið á danskvöld og fundið strax sinn dans,“ segir Anna. Dans og kúltúr hélt fyrsta danspartíið í júní á Gauknum, sem heppnaðist svo vel að ákveðið var að endurtaka leikinn. „Staðurinn fylltist og þetta heppnaðist vel. Nú ákváðum við að hafa eitt kvöld þar sem fólk getur lært allt að fimm dönsum,“ segir Anna. Anna og Friðrik voru áður með danssýningar á Gauknum en ákváðu að fara skrefinu lengra og leyfa almenningi að taka þátt í dansinum. Fóru í dansferð til Spánar Kennarar í allskyns dönsum héldu uppi stemningu og kynntu dans en Anna og Friðrik stukku sjálf á svið og kenndu dansspor í zumba, jallabina og samkvæm- isdansi. Þau eru bæði vel kunn dansheiminum og hafa stundað dans frá fjögurra ára aldri. Nú kenna þau zumba og jallabina í Worldclass en Anna líka í Kram- húsinu auk þess að hún er fram- kvæmdastjóri Dansíþrótta- sambands Íslands. Friðrik er verkefnastjóri Listahátíðar í Reykjavík. „Það er svo æðislegt að geta starfað við það sem maður hefur áhuga á og að vinna með öðr- um. Okkur langar líka að kynna fólki dansinn og leyfa því að upplifa gleðina sem dansinn hefur gefið okkur,“ segir Anna. Dans og kúltúr starfar á víðu sviði og heldur ekki einungis dans- kvöld heldur býður einnig upp á danskennslu, skemmtiatriði á við- burðum og dansferðir. Í apríl efndi félagið t.a.m. til ferðar til Spánar, þar sem danskennsla var í fyrirrúmi. Deila dansgleðinni með öllum  Dans og kúltúr heldur danskvöld á Gauknum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Dansað á Gauknum Félagið Dans og kúltúr efndi til danspartís á Gauknum í gærkvöldi. Þar gátu dansunnendur lært allt að fimm nýja dansa. Skipuleggjendur vilja leyfa öðrum að upplifa gleðina sem dansinn hefur gefið þeim. Innlifun Félagar í Dans og kúltúr þekkja dansfræðin betur en flestir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.