Morgunblaðið - 11.08.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2018
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 184.800 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
sp
ör
eh
f.
Aðventublær í Bamberg
Aðventan í Þýskalandi er heillandi og mikil jólastemning
er í borgum og bæjum. Ferðin hefst í borginni Bamberg,
komið verður til Nürnberg, þar sem finna má elsta
jólamarkað landsins og til borgarinnar Würzburg sem er
töfrandi á aðventunni og státar af líflegum jólamarkaði.
30. nóvember - 7. desember
Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Afgreiðsla Skipulagsstofnunar á nýju
deiliskipulagi fyrir Hveradalasvæðið
hefur dregist úr hömlu, þrátt fyrir að
sveitarfélagið Ölfus, hafi fyrir sitt
leyti samþykkt tillögur að nýju deili-
skipulagi fyrir mörgum mánuðum.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, for-
stjóri Skipulagsstofnunar, staðfesti í
samtali við Morgunblaðið í gær, að
óæskilegur dráttur, svo mánuðum
skiptir, hefði orðið á afgreiðslu máls-
ins hjá stofnuninni, en nú eftir sum-
arfrí yrði verkefnið í algjörum forgangi hjá stofnuninni og
von á niðurstöðu á allra næstu vikum.
Það er félagið Hveradalir ehf., þar sem Þórir Garðars-
son, stjórnarformaður Gray Line og framkvæmdastjóri
Hveradala ehf., er í forsvari, sem yrði framkvæmdaaðili að
uppbyggingu baðlóns og hótels á landi Skíðaskálans í
Hveradölum, ef nýtt deiliskipulag verður samþykkt.
Fram kom í frétt hér í Morgunblaðinu í desember 2017
að Skipulagsstofnun væri að meta hvort fyrirhuguð upp-
bygging í Stóradal á baðlóni og hóteli, inn af Skíðaskál-
anum í Hveradölum, þurfi að fara í mat á umhverfisáhrif-
um.
„Afgreiðsla þessa máls hjá okkur hefur því miður dreg-
ist á langinn, það er alveg rétt. Það eru nokkrar skýringar
á því,“ sagði Ásdís Hlökk, „eins og það þurfti að afla frekari
gagna, fá umsagnir og fá frekari gögn frá framkvæmda-
aðila“.
„Lokaúrvinnsla hjá okkur hefur vissulega dregist um-
fram það sem æskilegt er, sem einkum hefur helgast af
manneklu og verkefnafjöld. Það var ætlunin að ljúka þessu
verkefni fyrir sumarið en þar sem það náðist ekki verður
verkefnið á algjörum forgangslista hjá Skipulagsstofnun
eftir sumarleyfi og við stefnum að því að ljúka þessu máli á
allra næstu vikum,“ sagði Ásdís Hlökk.
Enn beðið niðurstöðu
Skipulagsstofnunar
Forstjórinn segir að afgreiðsla á nýju deiliskipulagi á
Hveradalasvæðinu verði sett í forgang hjá stofnuninni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hveradalir Forsvarsmenn Hveradala og sveitarfélagið
Ölfus hafa lengi beðið niðurstöðu Skipulagsstofnunar.
Ásdís Hlökk
Theodórsdóttir
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Þetta er auðvitað frábrugðið öllu því
sem maður þekkir,“ segir Sigurjón
Ragnarsson, staðarstjóri Kæli-
smiðjunnar Frosts í Shikotan sem er
ein Kúrileyja austast í Rússlandi.
Vísar hann í máli sínu til dvalar sinn-
ar á svæðinu en hann hefur nú dvalið
þar í um þrjár vikur ásamt þremur
öðrum starfsmönnum fyrirtækisins.
Miklar framkvæmdir eru að hefjast
á svæðinu en ráðgert er að uppsjáv-
arfrystihús rísi þar á næstu mán-
uðum. Verkefnið er samvinnuverk-
efni nokkurra íslenskra tæknifyrir-
tækja, þar á meðal Skagans 3X,
Kælismiðjunnar Frosts og Rafeyrar.
„Við erum mættir hingað til að
byggja stórt sjálfvirkt frystihús
ásamt starfsmönnum nokkurra ann-
arra fyrirtækja. Það eru enn sem
komið er einungis starfsmenn
tveggja fyrirtækja mættir á svæðið
en þeim á eftir að fjölga. Við erum
fjórir komnir hingað og svo er Raf-
eyri með sjö menn, en þess utan er-
um við með nokkra verktaka á staðn-
um á okkar snærum, bæði frá
Armeníu og Rússlandi,“ segir Sigur-
jón.
Gríðarlega afskekkt eyja
Það eru eflaust fáir sem kannast
við eyjuna, Shikotan, en eyjan er
staðsett á landamærum Rússlands
og Japans. Eignarréttur eyjunnar
hefur verið þrætuepli milli landanna
frá lokum seinni heimsstyrjaldar
þegar Rússar tóku Shikotan af Jap-
önum. Fáir búa á eyjunni en talið er
að núverandi íbúar Shikotan séu um
tvö þúsund talsins. „Þrátt fyrir að
vera öðruvísi en það sem maður
þekkir hér heima hefur dvölin verið
virkilega góð. Það sem má þó setja út
á er að sjaldgæft er að menn tali
ensku auk þess sem samgöngur eru í
molum,“ segir Sigurjón. Til að kom-
ast til Shikotan þurftu starfsmenn
Frosts að fara í fjögur flug auk
þyrluferðar. „Við flugum til Helsinki
þaðan sem við fórum beint til
Moskvu. Næsta stopp var í Sakalín
áður en við tókum eitt flug í viðbót til
eyjar á svæðinu. Í stað þess að taka
ferju þaðan ákváðum við að fara með
þyrlu á milli eyjanna,“ segir Sig-
urjón.
Spurður um hvar starfsmenn ís-
lensku fyrirtækjanna dvelji segir
Sigurjón að reist hafi verið hótel á
svæðinu sem rúma eigi um 30
manns. Nauðsynlegt hafi verið að
reisa hótelið enda sé gistiaðstaða á
eyjunni lítil sem engin. „Hótelið er
svona IKEA-einingahús með fullt af
herbergjum fyrir okkur. Þetta sam-
félag er of lítið til að geta tekið á móti
30 manns þannig að þessi ákvörðun
var tekin. Armenarnir og Rússarnir,
sem einnig starfa við framkvæmd-
irnar, eru hins vegar ekki í alveg eins
vistlegum híbýlum en þeir búa á öðr-
um stað í nágrenninu,“ segir Sig-
urjón. Hann bætir því við að gest-
risni íbúa sé til fyrirmyndar. Þá sé
ýmislegt gert til að stytta verka-
mönnum stundir.
Dvelja í fimm vikur í senn
„Rússarnir eru mjög gestrisnir og
er mjög umhugað um að menn vilji
vera hérna og þetta verkefni verði að
veruleika. Til að stytta okkur stundir
höfum við t.d. skoðað eyjuna auk
þess sem nú um helgina ætlum við að
halda alþjóðlegt fótboltamót. Þar
mun Ísland mæta Rússlandi og
Armeníu sem verður skemmtilegt,“
segir Sigurjón.
Íslensku starfsmennirnar dvelja á
Shikotan í fimm vikur í senn en koma
þess á milli heim til Íslands. Að sögn
Sigurjóns hefur tekið talsvert á að
dvelja á eyjunni þó að það hafi einnig
verið mikil upplifun. „Það tekur auð-
vitað á að vera svona langt í burtu en
eins og ég segi þá hefur dvölin hér
verið mjög góð. Hitinn hérna hefur
farið yfir 30 gráður undanfarið og
þetta er að mörgu leyti para-
dísareyja á þessum árstíma,“ segir
Sigurjón.
Góð dvöl á framandi stað
Starfsmenn íslenskra tæknifyrirtækja hafa undanfarnar vikur dvalið á Shi-
kotan á Kúrileyjum austast í Rússlandi Upplifun sem er frábrugðin öllu öðru
Ljósmynd/Aðsend
Starfsmennirnir Sigurjón hefur ásamt þremur öðrum starfsmönnum Frosts dvalið á Shikotan undanfarið.
Frystihúsið Ráðgert er að húsið verði tekið í notkun um áramótin.
Ágústmánuður hefur farið betur af
stað en aðrir sumarmánuðir 2018
hvað veður varðar í Reykjavík.
Fyrstu 9 dagana í ágúst hafa
mælst 72 sólskinsstundir í Reykja-
vík, samkvæmt upplýsingum
Trausta Jónssonar veðurfræðings.
Er þetta 15 stundum fleira en að
meðaltali.
Til samanburðar mældust aðeins
14 sólskinsstundir fyrstu 10 daga
hins sólarlitla júlí og 23 stundir
fyrstu 10 dagana í júní. Maí var hins
vegar skárri með 51,3 stundir sömu
daga.
Þegar Trausti gerði upp miðsum-
arið 2018 hinn 26. júlí s.l. kom í ljós
að sólskinsstundirnar voru 344
fyrstu 14 vikur sumars og höfðu
aldrei verið færri í sögu mælinga í
höfuðborginni.
Miðað við síðustu tíu ár er hiti í
Reykjavík fyrstu 9 dagana -0,9 stig-
um neðan meðallags og úrkoma er
um þrír fjórðuhlutar meðalúrkomu
sama tíma, segir Trausti.
sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Valli
Sumar og sól Mannlíf við Austur-
völl á góðum degi í síðasta mánuði.
Sólin hefur
skinið glatt í
ágústmánuði