Morgunblaðið - 11.08.2018, Page 52

Morgunblaðið - 11.08.2018, Page 52
LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 223. DAGUR ÁRSINS 2018 Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Eftirsóttustu einhleypu konur … 2. Dróni í veg fyrir þyrlu í Reykjavík 3. Komnar aftur til Bandaríkjanna 4. „Eric elskaði lögregluna“  Strákarnir í Pollapönki flytja sam- ansafn af sínum bestu smellum á stofutónleikum Gljúfrasteins á morg- un, sunnudag, kl. 16. Miðar eru seldir í safnbúð Gljúfrasteins samdægurs. Morgunblaðið/Golli Pollapönk á stofu- tónleikum á morgun  Í tilefni af 40 ára afmæli Sam- takanna ’78 verð- ur næsta vetur boðið upp á hin- segin vegvísi um grunnsýningu Þjóðminjasafns Íslands til að sýna m.a. hvernig hug- myndir um kyn og kynhneigð taka á sig ýmsar myndir á ólíkum tímum. Á morgun kl. 13 er verkefnið kynnt og fulltrúar þess leiða gesti í gegnum sýninguna. Aðgangur er ókeypis. Regnbogaþráður á Þjóðminjasafninu  Þættir úr náttúrusögu óeirðar nefnist sýning sem Unnar Örn opnar í Úthverfu á Ísafirði í dag kl. 16. Sýn- ingin markar endalok vettvangs- athugunar Unnars Arnar á sögu óeirðar hér á landi þar sem hann hef- ur kannað hvernig óeirð birtist í sam- eiginlegu minni þjóðarinnar með margvíslegum hætti. Sýningin stendur til 9. sept- ember og er opin eft- ir samkomulagi. Unnar Örn sýnir í Úthverfu á Ísafirði FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða suðaustan 3-10 m/s, 10-15 syðst. Rigning öðru hvoru suð- vestan til, en annars bjart með köflum. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast inn til landsins. Á sunnudag Austlæg átt, 8-15 m/s, hvassast við suðurströndina. Rigning eða súld víða syðra, annars bjart með köflum, en þokubakkar við norður- og austurströndina. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast nyrðra. Á mánudag Austlæg átt, víða 3-10 m/s og skýjað með köflum, en 10-13 og sums staðar væta við suðurströndina. Stöku skúrir inn til landsins. Topplið Breiðabliks mátti sætta sig við 1:1-jafntefli á Hásteinsvelli í gær- kvöldi þegar liðið sótti ÍBV heim í 13. umferð Pepsi-deildar kvenna í knatt- spyrnu. Breiðablik er áfram á toppn- um, með tveggja stiga forskot á meistara Þórs/KA. Valur og Stjarnan komust bæði nær efstu sætunum með naumum sigrum í sínum leikj- um. »2 og 3 Toppliðið varð af stigum í Vestmannaeyjum Íslandsmeistarar Þórs/KA unnu Wexford frá Írlandi af öryggi, 3:0, í Belfast í gær þar sem fram fer einn tíu undanriðla í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu kvenna. Þar með eru Ak- ureyringar á leið í úrslita- leik við Ajax frá Hollandi á mánudaginn. Þeir þurfa á sigri að halda í þeim leik til þess að tryggja sér efsta sæti riðilsins. »4 Þór/KA í úrslita- leik gegn Ajax „Ég er bara vikilega spenntur fyrir tímabilinu og að fá nýja sýn á hlut- ina,“ segir landsliðs- maðurinn Rúnar Alex Rúnarsson í viðtali við Morgunblaðið en tímabilið hjá hon- um og félögum hans í Dijon fer af stað í dag þegar liðið mætir Montpellier í frönsku 1. deildinni í knatt- spyrnu. »1 Spenntur fyrir frumraun í Frakklandi Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég féll svo illa fyrir flamenco að ekki var annað að gera en að flytja til Spánar. Í þessari tónlist kristall- ast allt sem ég hef verið að læra og gera í tónlist hingað til,“ segir Reynir Hauksson gítarleikari sem stendur ásamt félögum sínum fyrir nokkrum flamenco-sýningum hér á landi. Reynir lærði klassískan gítarleik í tónlistarskóla FÍH og einnig á rafgítar. Hann komst í kynni við flamenco í Noregi, af öllum stöðum! Hann fór að leggja flamenco fyrir sig fyrir tveimur árum og flutti til Granada í Andalúsíuhéraði þar sem hjarta flamenco-tónlistarinnar slær. „Mér leið eins og mér hafi alltaf líkað við flamenco þótt ég hafi ekki þekkt tónlistina og fannst eins og öll mín tónlistarástundun hafi leitt mig þangað,“ segir Reynir. Flókinn dans Þau eru fjögur í sýningunni. Tveir félagar Reynis koma frá Spáni, Jacób de Carmen söngvari og Julian Fernández gítarleikari. Jade Alejandra er flamenco- dansarinn. Hún er ættuð frá Mexíkó og kom hingað til lands fyrir þremur árum til að stunda framhaldsnám í tónlist við Listahá- skóla Íslands og kennir nú fla- menco-dans í Kramhúsinu. Alej- andra segir að flamenco sé flókinn og erfiður dans. Þess vegna staldri sumir nemendur stutt við en núna sé hún með tólf áhugasama og dug- lega nemendur. Alejandra segir að Íslendingar kunni að meta flamenco. Reynir bætir því við að landinn hafi aðra nálgun á þessa tónlistarstefnu en fólk sem alist hafi upp með suð- rænni tónlist. Þetta sé framandi veröld fyrir okkur. „Fólk þarf að aðlagast henni.“ Reynir veit hvað hann syngur því hann hefur farið víða um land í sumar með einleiks- tónleika og eingöngu leikið flam- enco-tónlist. Hann lék þar þekkt stykki og jafnframt eigin tónsmíðar og reyndi að útskýra fyrir gestum út á hvað flamenco gengur. Fyrsta flamenco-sýningin verður í Tjarnarbíói í Reykjavík næstkom- andi miðvikudag, 15. ágúst, næst í Gamla kaupfélaginu á Akranesi 16. ágúst, Hofi á Akureyri 17. ágúst og endað verður í Hjálmakletti í Borg- arnesi laugardaginn 18. ágúst. Elti drauminn til Spánar  Íslendingur, Mexíkói og Spánverjar sýna flamenco Morgunblaðið/Hari Æfing Reynir Hauksson og Jade Alejandra æfa atriði fyrir flamenco-sýningarnar í næstu viku. Tveir félagar þeirra eru væntanlegir frá Spáni. Þau æfa í Kramhúsinu þar sem Alejandra kennir flamenco-dans. Flamenco varð til við samruna ólíkra menningarstrauma á Suður- Spáni, aðallega í Andalúsíu, og hefur verið að þróast þar í rúmar tvær aldir. Þetta er tónlistarstefna með yfir 50 stílum og nær yfir söng, dans, gítarleik og klapp af ýmsu tagi. Reynir Hauksson er að þróa gít- arleik sinn í Granada og vinnur einnig við að semja og flytja fla- menco-tónlist. Hann tekur undir þau orð að samkeppnin sé mikil enda margir góðir tónlistarmenn í borginni og héraðinu. Segir Reynir að sér hafi verið vel tekið. Hann skeri sig úr sem útlendingur og mörgum finnst það fyndið eða áhugavert að hann skuli vera að leika tónlistina þeirra. Samruni menningarstrauma HJARTA FLAMENCO SLÆR Í ANDALÚSÍU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.