Morgunblaðið - 11.08.2018, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 11.08.2018, Blaðsíða 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2018 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Heiðnar grafir í nýju ljósi – sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð Iben West og Else Ploug Isaksen – Augnhljóð í Myndasal Nanna Bisp Büchert – Annarskonar fjölskyldumyndir á Vegg Prýðileg reiðtygi í Bogasal Leitin að klaustrunum í Horni Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú grunnsýning Safnahússins Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið alla daga 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið alla daga 10-17 LÍFSBLÓMIÐ - FULLVELDI ÍSLANDS Í 100 ÁR – 18.7 - 16.12.2018 Sýningin Lífsblómið fjallar um Ísland sem fullvalda ríki. Hún fjallar um það hversu dýrmætt en um leið viðkvæmt fullveldið er. Að sýningunni standa Listasafn Íslands, Stofnun Árna Magnússonar og Þjóðskjalasafn Íslands. Handrit, skjöl og myndlistaverk frá þessum stofnunum mynda kjarnann í sýningunni, og eru verk eftir fremstu listamenn þjóðarinnar til sýnis. ÝMISSA KVIKINDA LÍKI - ÍSLENSK GRAFÍK – 11.5. - 23.9.2018 FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign – 7.4.2017 - 31.12.2019 SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga frá kl. 10-17. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR TVEIR SAMHERJAR – ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON 21.10.2017 - 7.10.2018 Opið alla daga frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SUMARTÓNLEIKAR Í LISTASAFNI SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR 14.8.2018 - kl. 20:30 - 21:30 Soren Bodker Madsen gítarleikari og Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari flytja sónötur. SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR 15.5. - 15.9.2018 Opið alla daga frá kl. 13-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Átta fjöll er einstök sagatveggja vina sem velja sérólíkar leiðir í lífinu eftir aðhafa að hluta til alist upp saman við rætur fjalla Norður-Ítalíu. Sagan segir frá borgarbarninu Pietro, sem ásamt fjölskyldu sinni flýr stór- borgarlífið í Mílanó á hverju sumri til þess að búa við rætur fjallsins sem heima- menn kalla Grenon. Þar kynnist Pietro kúahirðinum Bruno sem hefur hlotið allt annarskonar uppeldi. Með þeim hefst fljót- lega vinátta sem að- allega byggist á ósvalandi könnunar- þörf þeirra beggja. Þannig líða árin. Pietro kemur og fer en Bruno er ávallt á sínum stað. Vináttan tveggja drengja verður vin- átta tveggja karlmanna, en þeir sýna trygglyndi sitt ekki í orðum, heldur með gjörðum. Stór hluti sögunnar fer í lýsingar á göngum Pietros, Brunos og föður Pietros, sem einnig fær ansi stórt hlutverk í sögunni. Faðir Pietros virðist aldrei vera hann sjálfur nema þegar hann gengur á fjöll og á Pietro mjög flókið en á sama tíma fallegt samband við hann. Slíkar eru lýsing- arnar á fjallgöngunum að sá sem nýt- ur sögunnar gæti eins verið á staðn- um. Að minnsta kosti óskar hann sér að upplifa slíkar stundir sem lýst er. Átta fjöll er einstaklega vel skrifuð saga. Öllu er lýst með eins konar yfir- vegun sem veitir löngun til að svelgja í sig söguþráðinn sem teygir rólega úr sér og veldur því að erfitt er að leggja bókina frá sér. Á sama tíma er eitthvað sem fær lesandann til að hægja á sér og drekka innihaldið í sig eins og góðan, heitan tebolla, og jafn- vel vilja spara það. Engin er furðan á því að bókin hafi verið þýdd á yfir 30 tungumál, enda snilldarlega skrifuð og eflaust ennþá betri á móðurmál- inu, ítölskunni. Löngun „Öllu er lýst með eins konar yfirvegun sem veitir löngun til að svelgja í sig söguþráðinn sem teygir rólega úr sér,“ segir um bók Cognetti. Vinátta tveggja drengja Skáldsaga Átta fjöll bbbbb Eftir Paolo Cognetti. Brynja Cortes Andrésdóttir þýddi. Forlagið gefur út, 2018. Kilja, 233 bls. ÞORGERÐUR ANNA GUNNARSDÓTTIR BÆKUR Bandaríska tónlistarmanninum Kanye West varð orða vant þegar sjónvarpsþáttastjórnandinn Jimmy Kimmel spurði hann um stuðning tónlistarmannsins við Donald Trump Bandaríkjaforseta. West er annars þekktur fyrir að hafa munn- inn fyrir neðan nefið. Kimmel spurði West hvers vegna hann héldi að Bandaríkjaforseta væri umhug- að um þeldökkt fólk eða „hvaða fólk sem væri“. Með orðalagi sínu vísaði Kimmel í þau ummæli West um George W. Bush Bandaríkja- forseta að honum „stæði á sama um þeldökkt fólk“. West íhugaði þögull spurningu Kimmel svo lengi að á endanum lagði þáttastjórnandinn til að gert yrði auglýsingahlé. West hefur áður kallað Trump „bróður“ sinn og sagt að þeir deili sömu „drekaorku“. Frægt er þegar West studdi Trump opinberlega þegar sá síðarnefndi bauð sig fram til forseta. Þegar West var í viðtal- inu inntur eftir því hvers vegna hann hefði kosið að styðja Trump sagðist hann ekki hafa viljað láta undan þrýstingi og taka fyrir- sjáanlega ákvörðun. „Sem tónlist- armaður af afrískum ættum … allir í kringum mig voru að reyna að velja forsetaframbjóðanda fyrir mig,“ sagði West og gaf í skyn að reiknað væri með því að allt „þel- dökkt fólk styddi sjálfkrafa demó- krata“ og bætti við að hann nyti þess þegar fólk væri honum reitt. AFP Þögull Kanye West er þekktur fyrir að vera með munninn fyrir neðan nefið. Kjaftstopp rappari Axel Helgi Ívarsson axel@mbl.is Kvikmyndin Andið eðlilega í leik- stjórn Ísoldar Uggadóttur hlaut ný- verið Roger Ebert-verðlaunin fyrir bestu frumraun leikstjóra á Tra- verse City-kvikmyndahátíðinni, sem haldin er í Michigan í Banda- ríkjunum. Hlaut Andið eðlilega, eða And Breathe Normally eins og hún nefnist á ensku, verðlaunin í flokki leikinna kvikmynda. Verðlaunin eru kennd við hinn virta kvikmyndagagnrýnanda Roger Ebert. Stofnandi kvik- myndahátíðarinnar Traverse City er bandaríski kvikmyndagerðar- maðurinn og aðgerðasinninn Mich- ael Moore. Í upphafi ársins hlaut Ísold verðlaun á kvikmyndahátíð- inni Sundance í Park City í Utah. Ísold var þá valin besti leikstjórinn af þeim sem eiga kvikmynd í alþjóð- legum flokki, þ.e. flokki kvikmynda frá öðrum löndum en Bandaríkj- unum. Viðurkenningin kom á óvart Ísold Uggadóttir, leikstjóri kvik- myndarinnar Andið eðlilega, segir í samtali við Morgunblaðið að verð- launin hafi komið henni á óvart. „Það kom mér einnig skemmtilega á óvart hvað Michael Moore var mikill þátttakandi á hátíðinni, þ.e.a.s. að hann veitti sjálfur verð- launin og var í raun allt í öllu,“ segir Ísold. „Þetta var afar hrífandi og falleg hátíð við Michiganvatn þar sem áhersla er lögð á kvikmyndir sem hafa ríka þýðingu og eru t.d. af póli- tískum eða samfélagslegum toga. Þannig að það var einfaldlega mjög gaman að taka þátt,“ segir Ísold um kvikmyndahátíðina. Stemning hjá íbúum Michigan Íbúar Traverse City í Michigan, þar sem kvikmyndahátíðin er hald- in, eru virkir þátttakendur á hátíð- inni að sögn Ísoldar, en íbúafjöldi borgarinnar er um 15 þúsund. „Michael Moore tekst ekki einungis að fá frábærar kvikmyndir og frá- bæra leikstjóra á staðinn, heldur tekst honum líka að virkja bæjar- búa Traverse City afskaplega vel. Það var mikil stemning í kringum hátíðina og bærinn er eiginlega undirlagður hátíðinni þar sem allir taka þátt,“ segir Ísold. Hátíðin hef- ur farið fram frá árinu 2005. Kvikmyndin er enn sýnd hér- lendis í Bíó Paradís og í komandi viku verður hún tekin til almennra sýninga í bíóhúsum um alla Svíþjóð. Auk þess er hún sýnd á kvikmynda- hátíðum víðsvegar um heiminn, t.d. í Ástralíu, Póllandi og Ísrael. „Þær Kristín Þóra Haraldsdóttir og Babetida Sadjo, aðalleikkonur myndarinnar, mættu fyrir okkar hönd til Slóvakíu fyrr í sumar, svo fór ég þegar myndin var sýnd á Karlovy Vary-kvikmyndahátíðinni í Tékklandi,“ segir Ísold. Er á leið til Færeyja Í komandi viku fer Ísold til Sví- þjóðar vegna frumsýningar á Andið eðlilega þar í landi og þá liggur leið- in einnig til Haugesund í Noregi á alþjóðlega kvikmyndahátíð seinna í mánuðinum. Einna spenntust segist Ísold vera fyrir kvikmyndahátíð í Færeyjum, en þangað hefur hún ekki komið áður, næstu mánaðamót þar sem Andið eðlilega verður sýnd. Ferðalag til Íraks í október „Áhugaverðasta boð á kvik- myndahátíð, sem hefur komið, hingað til allavega, er boð til Íraks, nánar tiltekið til sjálfstjórnarhér- aðs Kúrda, í október. Það verður saga að segja frá því,“ segir Ísold um væntanlegt ferðalag kvikmynd- arinnar. Um er að ræða alþjóðlega kvikmyndahátíð í borginni Duhok í sjálfstjórnarhéraði Kúrda, sem er í norðurhluta Íraks. Og stefnir þú þangað? „Já, ég kunni ekki við annað en að þiggja boðið, enda sennilega eina skiptið sem ég mun eiga erindi á þær slóðir. Þannig að ég verð stödd í Kúrdistan seinni hluta október,“ segir Ísold Uggadóttir að lokum. Verðlaun fyrir bestu frumraun leikstjóra Leikstjórar Ísold Uggadóttir ásamt Michael Moore á Traverse City kvik- myndahátíðinni í Michigan í Bandaríkjunum. Moore er frá Michigan.  Andið eðlilega verðlaunuð á kvikmyndahátíð í Michigan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.