Morgunblaðið - 11.08.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 11.08.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2018 Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Handverkshátíðin í Hrafnagili er nú haldin í 26. sinn og hófst hún með kvöldvöku síðastliðið fimmtu- dagskvöld. Um það bil hundrað hönnuðir og annað handverksfólk selja vörur sínar á hátíðinni. Á meðal þess sem verður til sölu er fatnaður, ker- amik, snyrtivörur, textílvörur og skart sem er gjarnan unnið úr rammíslenskum hráefnum. Mikill undirbúningur hefur verið fyrir há- tíðina sem haldin er í Hrafnagils- skóla í Eyjafirði og stendur fram á sunnudag. „Við breytum íþrótta- húsinu og skólastofum í sýning- arrými. Nú í ár er sýningakerfið að- eins öðruvísi en áður þannig að núna er allt meira opið og rýmra Aðgangs- eyrir í formi þjóðbúnings Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is „Vikan fyrir Fiskidag er fiskidags- aðventan, það er bara þannig. Við erum búin að vera á fullu að und- irbúa, skreyta húsin okkar og gera allt klárt,“ segir Björn Friðþjófsson Dalvíkingur, sem hefur eldað súpu á Fiskisúpukvöldinu mikla frá upp- hafi. Fiskisúpukvöldið var haldið á Dalvík í gærkvöldi en þegar blaða- maður Morgunblaðsins ræddi við Björn í gær voru hann, fjölskylda hans og nágrannar í óðaönn við að elda súpu fyrir kvöldið. „Við tökum okkur saman í nokkr- um húsum í hverfinu sem ég bý í og eldum saman súpu. Við skiptum á milli okkar, hver með sinn súpupott og komum svo saman á einum stað og gefum gestum og gangandi.“ Björn segir að þau eldi í sameiningu að minnsta kosti hundrað lítra af fiskisúpu. „Það er alveg gríðarlegur fjöldi sem kemur þarna. Við byrjum að skammta súpuna klukkan kortér yf- ir átta og svo á öllu að vera lokið tveimur tímum síðar, oftar en ekki er öll súpan búin aðeins fyrr.“ „Ekkert nema skemmtilegt“ Þrátt fyrir mikla mannmergð seg- ir Björn engan asa ríkja á Fiski- súpukvöldinu. „Gestirnir sem koma eru bara ánægðir og afslappaðir og þarna er enginn troðningur. Fólk bara tekur þessu rólega og spjallar saman. Þetta veitir okkur mikla gleði að gera þetta og fólk er þakk- látt og ánægt sem kemur til okkar, þetta er bara ekkert nema skemmti- legt.“ Fiskidagurinn mikli er haldinn há- tíðlegur á Dalvík í dag. Björn segir Dalvíkinga almennt jákvæða fyrir hátíðinni. „Þetta er gríðarlega mikil hátíð fyrir okkur og þetta hjálpar okkur íbúunum að halda bænum snyrtilegum og gera hann áhuga- verðan fyrir fólk að heimsækja.“ Margir Dalvíkingar horfa á árið út frá Fiskideginum mikla. „Það eru margir sem segja að hér sé tímatalið fyrir og eftir Fiskidag, hér miða margir við það að klára eitthvað fyr- ir Fiskidag,“ segir Björn og hlær. Framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla, Júlíus Júlíusson, segir und- irbúning fyrir hátíðina hafa gengið eins og í sögu. „Þetta hefur bara gengið afskap- lega vel, tugir aðila eru í sjálfboða- vinnu við að græja og gera og það er alveg magnað að sjá það.“ Aðspurður hvort búist sé við met- Tímatal miðast við Fiskidaginn  Mikill undirbúningur liggur að baki Fiskideginum mikla sem er haldinn hátíðlegur í dag  Gera má ráð fyrir metaðsókn  Tjöld, tjaldvagnar og húsbílar þekja hvern einasta græna blett á Dalvík Morgunblaðið/Björn Friðþjófsson Fjölskyldan Helga Níelsdóttir, Erna Rós Bragadóttir, Rósa Kristín Níelsdóttir og Karen Nóadóttir elda fyrir svanga gesti Fiskidagsins mikla. Morgunblaðið/Atli Rúnar Sjálfboðaliðar Konur í óðaönn að smyrja rúgbrauð sem verður boðið upp á ásamt síld á Fiskideginum mikla á Dalvík í dag. Yfirkokkur Fiskidagsins, Friðrik V., verkstýrði framleiðslunni. Hann segir um undirbúninginn: „Hér er bara unnið með hjartanu!“ Það munu ábyggilega fáir fara svangir heim af hátíðinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.