Morgunblaðið - 11.08.2018, Side 29
29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2018
Steinkarl Gengið fram hjá Bárði Snæfellsás á Arnarstapa, heljarmiklum steinkarli sem Ragnar Kjartansson myndhöggvari hlóð. Bárður er aðalsöguhetja í fornsögunni Bárðar sögu Snæfellsáss.
Eggert
Enska aðgerðar-
sinnanum og blaða-
manninum Tommy
Robinson var sleppt úr
haldi í liðinni viku eftir
tveggja mánaða helvíti
í fangelsi fyrir að flytja
fréttir á götu fyrir
framan Sakadóm í
Leeds. Tommy var í 13
mánaða fangelsi í al-
ræmdasta fangelsi
Stóra-Bretlands. Við fáum skyggnst
inn í hið semi-íslamska Bretland.
Tommy Robinson hefur verið hund-
eltur og réttindi margbrotin á þess-
um alþýðumanni sem hefur tekið til
varna fyrir óbreytt alþýðufólk.
Með dóminum í Leeds slokknaði
ljós frelsis í Bretlandi en var tendrað
á ný þegar áfrýjunarréttur dæmdi
að sakadómarinn í Leeds hefði ekki
farið að lögum og skipaði fyrir um
lausn Tommy. Íslenskir falsmiðlar
hafa látið sér fátt um finnast líkt og
breskir falsmiðlar sem hafa fjallað
um mál Tommy neðanmáls og sagt
að Tommy sé laus á „technical issu-
es“. Tommy var sendur í alræmd-
asta fangelsi Bretlands í klefa á
jarðhæð gegnt mosku fangelsisins;
ruddar, hrottar og illmenni stöpp-
uðu, öskruðu og svívirtu Tommy ut-
an klefans; hræktu og köstuðu aur í
gegn um litlu klefalúguna svo hann
varð að hafa hana lokaða. Tommy
missti 20 kíló á tveimur mánuðum í
fangelsinu.
Af umræðustjóra ríkisins
Egill Helgason, umræðustjóri rík-
isins, kallar Tommy „sérlega ógeð-
fellt eintak“ og spyr
kollega, sem hafði
skrifað stutta frétt í
DV um frelsi Tommy
og sett á vegg sinn á
Facebook, hvort
Tommy Robinson sé
virkilega „nýja átrún-
aðargoðið hans“. Um-
ræðustjóri ríkisins
hvatti blaðamanninn
Ágúst Borgþór Sverr-
isson til að þagga niður
mál Tommy Robinson:
„...þú ert of góður
náungi til þess að hafa áhuga á þessu
liði, Gústi.“ Blaðamaðurinn hafði
skrifað þrjú orð á vegg sinn með
frétt sinni; Oh Tommeh, Tommeh.
Skilaboðin eru kjánaleg en þau eru
ógnvænleg og þau lýsa hroka og slá-
andi fordómum; „þú ert of góður
Gústi.“ Sumsé: þú ert í liði góða
fólksins og átt ekki að láta þig varða
málefni bresks alþýðupakks.
Málið snýst ekki um það hvort ég
eða Egill séum sammála eða ósam-
mála Tommy Robinson. Það snýst
um réttarríkið og frelsið. Ég for-
dæmi ríkisofbeldi og vil verja helgan
rétt einstaklingsins til frelsis. Það
liggur hins vegar fyrir að Egill
Helgason styður ríkisofbeldi gegn
manni vegna andstæðra skoðana.
Dýrabær á Efstaleiti
Egill Helgason er fulltrúi hinnar
nýju stéttar í Dýrabæ okkar tíðar;
diplómu-elítu ríkisins, makráðrar yf-
irstéttar sem í menntahroka ræðst
gegn alþýðufólki. Dýrabær okkar
tíðar hefur lögfesti á Efstaleiti. Þar
að baki luktum dyrum djúpt í kjall-
aranum situr sjálfumglöð hjörðin við
stóra borðið með mynd af félaga
Napóleon upp á vegg. Rétttrúnaður-
inn er stimplaður ... hamar glymur.
Pia er rasisti líkt og norska Siv og
sænska últra-öfgapakkið. Hin
danska Metta er svikari. Hinir fyr-
irlitlegu kusu Brexit og Trump.
Tommy er ógeðfellt eintak; gyðingar
drepa börn og saklaust fólk; kanar
eru skotglaðir hálfvitar; Trump er
rasískur fasisti haldinn kvenfyrirlit-
ingu; Rússar berja homma og Pútin
er skúrkur. Pólverjum og Ungverj-
um er stjórnað af últrahægri pakki á
móti múslimum. Og svo er þessi
ítalski últra skúrkur Matteo Salvini
sem neitar að hlýða Brussel og jafn-
vel henda evru. Grikkir eru spilltir
letingjar og í Katalóníu er ok að siga
lögreglu á fólk og fangelsa for-
ingjana eða flæma í útlegð.
Íhaldið lækkar skatta hinna ríku;
Bjarni Ben ver barnaníðinga; SDG
felur sitt í skattaskjólum, krónan er
ónýt, samfó er okkar og píratar um-
bótaafl. Brussel er friðelskandi, evr-
an töframynt, JÁ við Icesave. Fiski-
miðin og orkan til Brussel. Open
Society eru góðgerðasamtök, opin
landamæri fyrir alla.
Ein ríkisgleraugu ...
ein ríkisskoðun
Hjörðin djúpt í kjallara Efstaleitis
kýlir vömbina og rýtur bergmála um
salinn. Diplómu-elíta ríkisins veit
best. Hin „deplorabla“ fyrirlitlega
ólesna alþýða éti það sem úti frýs.
Marteinn Mosdal gengur lymsku-
legur í salinn, lagar lokkinn, hristir
sig og skrækir: „Ein ríkisgleraugu!
Ein ríkisskoðun! ... Einn ríkis-
flokkur!“ Bergmann og SBára
dásama Brussel og fordæma Trump.
Hjörðin stígur dans á borðum enda
frelsið í hlekkjum í horninu. Dýra-
bær á Efstaleiti er sannarlega höf-
uðból hins íslenska rétttrúnaðar.
Martröð Animal Farm er að rætast,
aðeins rúmum 70 árum eftir útgáfu
hinnar sígildu sögu George Orwell
og 80 árum eftir að Winston Churc-
hill stóð einn gegn dólgum og ill-
mennum sinnar tíðar.
Sannleiksandi horfinn
úr fjölmiðlum
Sannleiksandi er horfinn úr vest-
rænum fjölmiðlum og rétttrúnaður
tekinn yfir. Falsmiðlar hafa hylmt
yfir hryllinginn í Bretlandi og hér á
landi fer RÚV fyrir falsmiðlum. Um
helgina sendi ég Reykjavíkurbréf
Morgunblaðsins inn á vef áhugafólks
um fjölmiðla; fjölmiðlanörda. Bréfið
var um „Deep State“ í Washington
sem ritstjóri blaðsins, einn íslenskra
blaðamanna fjallar um. Upphófust
fjörlegar umræður sem í megin-
atriðum snérust um að svívirða Dav-
íð Oddsson og mína aumu persónu.
Greinin var fjarlægð.
Ég sendi Moggagrein mína á dög-
unum um frelsi Tommy inn á vegg
fjölmiðlanörda. Þar hófust strax um-
ræður um lygar og blekkingar Halls
Hallssonar. Þjóðkunnir blaðamenn
tóku málstað myrkursins. „Hvað er
þetta að gera hér?“ var spurt og
augnabliki síðar var greinin horfin.
Vinur minn, einn sex umsjón-
armanna, segir vefinn aðeins vett-
vang um „verklag og vinnubrögð“
fjölmiðla. Þöggun fellur sumsé ekki
undir verklag og vinnubrögð fjöl-
miðla.
Jú, kæru vinir. Það er bara ein
ríkisskoðun.
RÚV stöðugt ýktara
í öfgum
Af hverju ertu svona harður, spyr
fólk mig. Jú, ég trúi að sjálft frelsi
okkar sé að veði. Það er kerfisvilla í
gangverki RÚV sem segist vera í
„eigu okkar allra“ en enginn á og
enginn er ábyrgur. Draumsýnin er
að enginn eigi neitt líkt og enginn á
RÚV. Alþýðan verði leiguliðar og
ríkið alltumvefjandi. Hinir lægstu
samnefnarar fátæktarvitundar yf-
irgnæfa umræðu. Þegar kemur að
fréttum og þjóðmálum er fjandinn
laus. Fámenn klíka hefur stolið RÚV
til þess að koma eigin pólitík á fram-
færi.
RÚV verður stöðugt ýktara í öfg-
um og rétttrúnaði. Gróa í Efstaleiti,
sagði gamall kollegi í vor. RÚV elur
á fordómum, andúð og hatri og
minnkar vitund okkar Íslendinga.
RÚV ýtir undir þrælslund rétttrún-
aðar. Börnin okkar eru alin upp í
hinni einu sönnu ríkisskoðun í hinum
skelfilegu Krakkafréttum RÚV.
Hjörðin í djúpi Dýrabæjar hrín og
rýtir meðan frelsið liggur hlekkjað í
horni. Framtíð barna okkar og
barnabarna er að veði. Þess vegna
hef ég dregið línu í sandinn og læt
rödd mína heyrast. Það verður að
stöðva RÚV. Það verður að loka
RÚV. Góðu tíðindin eru að RÚV
eyðir sjálfu sér. Lygin eyðir alltaf
sjálfri sér. Það er lögmál.
Eftir Hall
Hallsson » Fámenn klíka hefur
stolið RÚV til þess
að koma eigin pólitík á
framfæri.
Hallur Hallsson
Höfundur er fréttamaður
og sagnfræðingur.
Dýrabær á Efstaleiti