Morgunblaðið - 11.08.2018, Page 34
34 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2018
Hvers vegna vill ríkisstjórnin
ekki leiðrétta lægsta lífeyri aldr-
aðra og öryrkja? Það hefur ítrekað
verið farið fram á það við forsætis-
ráðherra, að svo verði gert en án
árangurs. Undirritaður fór þessa á
leit við forsætisráðherra strax í
byrjun janúar. En ekkert hefur
gerst varðandi leiðréttingu. Rík-
isstjórnin setti málið í nefnd og
hún skilar ekki áliti fyrr en næsta
haust eða næsta vetur!
Kostar lítið að leiðrétta
kjör þessa hóps
Það liggur fyrir aldraðir og ör-
yrkjar geta ekki lifað af lægsta líf-
eyri almannatrygginga, þegar ekki
er um aðrar tekjur að ræða. Þessi
lífeyrir er við fátæktarmörk. Það
er tiltölulega lítill hópur sem er
eingöngu með tekjur frá almanna-
tryggingum, hefur svokallaðan
„strípaðan“ lífeyri almannatrygg-
inga. Þess vegna kostar það ekki
svo mikið að leiðrétta kjör þessa
hóps. Hvað er lífeyrir þessa fólks
hár? Hann er þessi: Giftir eldri
borgarar og öryrkjar hafa 204 þús.
kr. á mánuði eftir skatt. Einhleypir
eru með 239 þús. kr. á mánuði eftir
skatt. Öllum er ljóst, að það er eng-
in leið að lifa af þessum lágu upp-
hæðum; upphæðin dugar ekki fyrir
öllum útgjöldum. Fram til þessa
hefur verið algengt að lyf eða
læknisheimsóknir hafi orðið út-
undan en í einstaka tilvikum hafa
aldraðir eða öryrkjar ekki getað
keypt nægilegan mat. Húsnæðis-
kostnaður er stærsti útgjaldalið-
urinn. Hann getur verið á bilinu
150 þúsund til 190 þúsund kr. á
mánuði. Það er langstærsti út-
gjaldaliðurinn en kostnaður við
samgöngur getur einnig verið mik-
ill.
Vilja ekki hækka
lífeyri á undan launum
Hvers vegna hefur ríkisstjórnin
ekkert viljað gera til þess að leið-
rétta framangreind lægstu kjör?
Svarið er þetta: Ríkisstjórnin vill
ekki veita öldruðum
og öryrkjum kjara-
bætur áður en samið
er um launakjör á al-
mennum launamark-
aði. Ríkisstjórnin ótt-
ast greinilega að
hækkun lífeyris
þrýsti lægstu launum
upp! Keppikefli ríkis-
stjórnarinnar er að
halda hækkun lægstu
launa í skefjum,
þannig að þau hækki
helst ekki meira en 2-3% (Samtök
atvinnulífsins vilja helst ekki meiri
hækkun en 2%).
Nokkrir stjórnmálaflokkar vilja
tengja lífeyri aldraðra og öryrkja
og lægstu laun saman. M.ö.o: Þess-
ir flokkar segja að lífeyrir eigi að
fylgja lágmarkslaunum. En það
þýðir að lífeyrir megi ekki hækka
meira en lágmarkslaun. Þessari
stefnu er ég ósammála. Ég tel að
stjórnvöld og samtök aldraðra eigi
að berjast fyrir þeirri hækkun líf-
eyris sem nauðsynleg er til þess að
aldraðir og öryrkjar geti lifað
mannsæmandi lífi og geti lifað með
reisn. Það getur þurft að hækka líf-
eyri umtalsvert til þess að ná þessu
markmiði. Það er síðan verkefni
verkalýðshreytingarinnar að berj-
ast fyrir þeirri launahækkun sem
hreyfingin telur nauðsynlega til
þess að hækka laun nægilega mik-
ið. Það er ekki mál aldraðra eða
samtaka þeirra.
Ólga í röðum launafólks
Litlar líkur eru á því að það tak-
ist að halda launahækkunum
lægstu launa við 2-3%. Ofurlauna-
hækkanir stjórnmálamanna, emb-
ættismanna, dómara
og forstjóra einkafyrir-
tækja að meðtöldum
bankastjórum hafa
hleypt illu blóði í
launafólk og verkalýðs-
félög. Verkalýðsfélög
og launamenn telja að
það sé sanngirnismál
eftir það sem á undan
er gengið að leiðrétta
kaup verkafólks mynd-
arlega. Ég er sammála
því. Einkum er ég
óánægður með laun
þeirra lægst launuðu. Þeir eru í
sömu stöðu og lægst launuðu aldr-
aðir og öryrkjar. Það verður að
leiðrétta myndarlega kjör allra
þessara aðila.
Sumir stjórnmálamenn virðast
hikandi við að berjast fyrir hærri
lífeyri aldraðra en lágmarkslaun
eru. Ég tel ástæðulaus að hika við
það. Það er verkefni stjórnmála-
manna að berjast fyrir mannsæm-
andi kjörum aldraðra og öryrkja.
Og þeir eiga ekki að hika við að
tryggja þessum aðilum sómasamleg
kjör. Aldraðir eiga að geta lifað
ævikvöldið með reisn. Þeir eiga
ekki að þurfa að horfa í hverja
krónu. Og hið sama gildir um ör-
yrkja. Það er næg byrði fyrir þá að
glíma við erfiða sjúkdóma og
skerta starfsorku þó fjárhags-
áhyggjur bætist ekki við.
Aldraðir búnir að
skila sínu vinnuframlagi
Ég tel ekki nauðsynlegt að þeir
sem komnir eru á ellilífeyrisaldur
séu áfram á vinnumarkaðnum. Þeir
eru búnir að skila sínu vinnufram-
lagi til þjóðfélagsins. En ef þeir
kjósa að vinna eitthvað eftir 67 ára
aldur er gott að þeir eigi kost á því
án tekjuskerðingar ríkisvaldsins.
Öryrkjar eiga erfiðara með að
vinna vegna örorku sinnar, sjúk-
dóma og skertrar starfsorku. Þjóð-
félagið verður að tryggja þeim full-
nægjandi lífeyri.
Lægsti lífeyrir aldraðra
við fátæktarmörk?
Eftir Björgvin Guðmundsson
» Það liggur fyrir að
aldraðir og öryrkjar
geta ekki lifað af lægsta
lífeyri almannatrygg-
inga, þegar ekki er um
aðrar tekjur að ræða.
Björgvin Guðmundsson
Höfundur er fv. borgarfulltrúi.
vennig@btnet.is
Svanur Guðmunds-
son birtir greinina
„Landasala og raf-
orkusala“ um Þriðja
orkupakka Evrópu-
sambandsins í Morg-
unblaðinu 1. ágúst
2018.
Helsta umræðuefni
hans er Þriðji orku-
pakki ACER (Orku-
stofa Evrópusam-
bandsins) og varar hann við sam-
þykkt hans á Alþingi Íslendinga, en
pakkinn verður væntanlega tekinn
til umræðu og atkvæðagreiðslu eft-
ir sumarfrí á hausti komanda.
Nokkur atriði í grein Svans
Svanur nefnir Orkustofu ACER
á Íslandi „Landsreglara“ en ég
mun ekki nota það heiti enda minn-
ir það mig helst á þurs í Íslendinga-
sögunum með járnstaf í hendi og
ástæða væri að óttast, sem sagt
leiðandi nafngift.
Ég ætla hvorki að fara út í um-
ræður um landakaup útlendinga til
að geta stundað laxveiðar á Íslandi
eða kaup útlendinga á hlutum í
orkufyrirtækjum. Í svona umræðu
líta menn gjarnan á orkufyrirtækin
sem einhvers konar gullnámu sem
ávallt verði mikill gróði af, en það
er alls ekki gefið mál eins og dæm-
in sanna. Einnig kemur í hug að
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, seldi yfir 50 ríkis-
fyrirtæki á stjórnarárum sínum
1980-90, þar á meðal raforkufyr-
irtækin. Núna 30 árum síðar eru
þau flest í eigu erlendra aðila og
virðist ekkert vera að því.
Svanur heldur því fram að sam-
þykkt Annars orkupakkans í ís-
lensk raforkulög 2003 hafi verið
mistök. Þetta er að mínu mati alls
ekki rétt og þyrfti hann að útskýra
þá staðhæfingu sína nánar.
Svanur ber aðstæður á markaði í
Bretlandi saman við aðstæður á Ís-
landi og segir: „Raforkuframleiðsla
á ESB-markaði er að ráðandi hluta
keyrð á kolum og jarðgasi. Hér er
allt keyrt á vatni og jarðhita. Mark-
aðsaðstæður á jarðefnum stjórna
því verðinu í ESB-löndum en hér
sveiflast ekkert nema rigningin.“
Mér er fyrirmunað að skilja þetta
og botna reyndar bara ekkert í því.
Ég fylgist daglega með raf-
orkumarkaðnum á Bretlandi og get
upplýst Svan um að framleiðsla úr
kolum er nú sem komið er hverf-
andi. Raforkuframleiðsla úr
endurnýjanlegum orkuauðlindum
hefur á undanförnum árum verið að
taka forystu undir merkjum upp-
boðsmarkaða sem halda samkeppni
í heiðri. Þetta er vel hægt á Íslandi
og einhver meiri háttar misskiln-
ingur hjá Svani að svo sé ekki.
Svo er hér smá athugasemd um
að í grein Svans kemur fram að
heildarnotkun Íslands af raforku er
17 Twh (Terawattstundir). Hefði
mátt nefna að þetta væri árleg
notkun, en til að halda málum til
haga er hún víst nærri 19 TWh/ári.
Tímalína Þriðja
orkupakka ACER
Ekki er úr vegi að fara yfir
helstu atburðarás málefna Þriðja
orkupakkans:
1996: Fyrsti orkupakki ESB;
opnað á frelsi í viðskiptum með raf-
orku og bókhaldslegur aðskilnaður
vinnslu, flutnings og
dreifingar hjá raf-
orkufyrirtækjum. Há-
mark sett varðandi
magn gróðurhúsa-
lofttegunda. Útblástur
án endurgjalds.
2003: Annar orku-
pakki ESB; frelsi í raf-
orkuviðskiptum inn-
leitt þannig að
notendum var gert
kleift að velja sinn eig-
in framleiðanda raf-
orku. Hertari takmarkanir á út-
blæstri gróðurhúsalofttegunda og
útblástur yfir 90% af heimildum
verður gjaldkvæður.
2003: Ný raforkulög sett á Ís-
landi, þar sem tilskipanir fyrsta og
annars orkupakka eru innleiddar.
2009: Þriðji orkupakki ESB; lag-
færir tilskipanir annars orkupakka
og leggur grundvöll að innra orku-
markaði ESB. Sameiginlegur að-
gangur að millilandatengingum og
stýringu þeirra.
2011: Eftirlitsstofnun ESB í raf-
orkumálum ACER stofnsett.
2015: Fimm stoðir mótaðar hjá
ACER í rammaáætlun orkumála:
(1) Afhendingaröryggi raforku, (2)
Samþættur innri orkumarkaður,
(3) Orkunýting, (4) Loftslags-
aðgerðir og (5) Rannsóknir og ný-
sköpun.
2016: Fjórði orkupakki ESB eða
„Vetrar-pakkinn“ boðar hreina
orku fyrir alla Evrópubúa árið
2030: leggur grundvöll að virkjun
endurnýjanlegrar orku til raf-
orkuframleiðslu og setur ný ákvæði
um afhendingaröryggi raforku.
Apríl 2018: Norðmenn sam-
þykkja með 75% meirihluta í Stór-
þinginu að fella Þriðja orkupakk-
ann inn í EES samninginn milli
EFTA og ESB. Hið sama hefur
einnig gerst í Liechtenstein.
Maí.-ágúst 2018: Umræður á Ís-
landi um þriðja orkupakkann og
hvort eigi að samþykkja hann á Al-
þingi.
Verksvið ACER
ACER stefnir að því að koma á
fót sameiginlegum innri markaði
fyrir raforku í ESB og aðstoða
kerfisstjórnir einstakra ríkja við
aðlögun.
Verksvið ACER er nánar að: (1)
Stuðla að samræmingu í stjórnun
raforkukerfa milli landa í Evrópu;
(2) Aðstoða við að móta evrópskar
reglur um stjórnun á raforkukerf-
um; (3) Taka einstakar bindandi
ákvarðanir um skilmála og skilyrði
varðandi raforkutengingar yfir
landamæri í Evrópu; (4) Ráðleggja
evrópskum stofnunum um málefni
sem tengjast raforku; (5) Fylgjast
með innri markaði fyrir raforku í
hverju landi fyrir sig og (6) fylgjast
með heildsölumarkaði með raforku
í hverju landi fyrir sig til að greina
og hindra markaðsmisnotkun.
Eftirlitið verði í nánu samráði við
kerfisstjórnir landanna.
Þessi atriði eru flest tæknilegs
eðlis, en í umræðu hér á landi hefur
mest farið fyrir hinum lagalega
þætti ACER og hvort framsal á
þjóðlegu valdi eigi sér stað í bága
við heimildir í stjórnarskrá Íslands.
Það virðist ekki vera samkvæmt
upptalningunni hér að framan.
Svanur, ACER og
Þriðji orkupakkinn
Eftir Skúla
Jóhannsson
»Raforkuframleiðsla
úr endurnýjanlegum
orkuauðlindum hefur
verið að taka forystu á
Bretlandi undir merkj-
um uppboðsmarkaða.
Þetta er vel hægt á Ís-
landi.
Skúli Jóhannsson
Höfundur er verkfræðingur.
skuli@veldi.is
Bílar
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum
auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu
fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
R
og
og