Morgunblaðið - 11.08.2018, Side 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2018
Ég sá Freyju
Dröfn fyrst sumarið
1979 þar sem hún
stóð fyrir utan
Hrísalund 10 á Ak-
ureyri og segi ég við bílstjórann,
er þekkti Freyju, „rosalega er
þetta falleg stúlka.“ Hann var
fljótur að minnast á aldur hennar
en hún var aðeins 15 ára og ég
hafði talið hana eldri. Svo leið ár-
ið og ég fór að vinna á Svalbarðs-
strönd, á alifuglabúinu Fjöreggi.
Mér til mikillar ánægju byrjar
Freyja Dröfn einnig að vinna þar
og tókust á með okkur góð kynni,
við hófum fljótt sambúð sem ent-
ist í sex ár.
Þá var hún 16 ára og ég 18 ára,
við vorum ung þá.
Þar sem Freyja hafði mikinn
áhuga á tungumálum fór hún
fljótlega til Brighton í Englandi
þar sem hún lærði ensku. Hún
var þar í heila þrjá mánuði, frá
janúar 1981 og fram á vorið. Ég
beið þolinmóður, ástfanginn ung-
lingur, eftir því að hún kæmi
heim. Fljótlega eftir það fluttum
við út til Noregs þar sem ég fékk
vinnu við kúabú. Freyja hafði
minna að gera þar en fékk þó
vinnu við að tína jarðarber sem
henni þótti gaman. Kom alltaf
með nýtínd ber til mín á kvöldin.
Fyrsta sem Freyja bað um í Nor-
egi var köttur þar sem hún var
mikill kattavinur. Átti hún þó-
nokkuð af köttum gegnum tíðina.
Við vorum í Noregi í sex mán-
Freyja Dröfn
Axelsdóttir
✝ Freyja DröfnAxelsdóttir
fæddist 18. mars
1964. Hún lést 10.
júlí 2018.
Útför hennar fór
fram 20. júlí 2018.
uði og þrátt fyrir
ungan aldur Freyju
stóð hún sig vel í
ókunnu landi. Eftir
að við komum heim
settumst við að á
Akureyri, ég hóf
störf hjá Símanum
og Freyja á sjúkra-
húsinu, seinna vann
hún á dagblaðinu
Degi. Ári seinna
eignuðumst við
dóttur okkar, hana Söndru Berg-
ljótu Clausen. Þetta var árið 1983
og var það ár sérstakt fyrir okkur
bæði þar sem við urðum foreldr-
ar. Einnig var millinafnið þýðing-
armikið, Bergljót í höfuðið á móð-
ur minni sem lést aðeins 30 ára
gömul.
Árið 1985 varð Freyja fyrir því
áfalli að faðir hennar varð bráð-
kvaddur, aðeins 47 ára gamall,
hann Axel Björn Clausen. Hún
syrgði hann mikið.
En nú ert þú farin, elsku
Freyja mín, og takk fyrir allt sem
þú gafst mér og góða ferð, vinan.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Blessuð sé minning þín,
Freyja mín, sendi samúðarkveðj-
ur til Söndru og systkina hennar
sem og Maggýjar, Telmu, Huldu
og Jónasar.
Þráinn Stefánsson.
Afi Óli var ein-
stakur maður sem
við kveðjum með
söknuði í hjarta en
jafnframt ómældu þakklæti.
Hann var sannkallaður karl í
krapinu, sterkur og staðfastur, en
þó svo blíður og góður, með þétt-
ustu faðmlögin og létta lund. Haf-
sjór af fróðleik og sagði bestu sög-
urnar af lífinu eins og það var. Það
má með sanni segja að afi hafi
verið fyrirmynd okkar afkomend-
anna, hann virtist kunna allt og
hafa ráð við öllu.
Hvergi var betri staður en við
eldhúsborðið hjá þeim ömmu, afi
með gamalt kaffi í mjólkurglasi og
amma búin að reiða fram kræs-
ingar, helst pönnsurnar frægu.
Bæði svo ung í anda og skemmti-
leg, áhugasöm um allt sem á daga
okkar hafði drifið. Afi og amma
voru einstaklega samrýmd hjón
og einkenndist samband þeirra af
gagnkvæmri virðingu, ást og
þakklæti sem var auðsjáanlegt og
eftirsóknarvert að tileinka sér.
Afi var fjölmörgum mannkost-
um gæddur. Honum varð ávallt
hugað fyrst og síðast um aðra,
hann lagði ríka áherslu á stund-
vísi og aldrei heyrðist hann tala
illa um nokkurn mann. Afi kunni
síður við að upphefja sjálfan sig
eða hafa í frammi að óþörfu, en þó
var hann stoltur af afrekum sín-
um sem voru svo ótalmörg. Hann
sagðist oft hafa verið heppinn í líf-
Ólafur K.
Guðmundsson
✝ Ólafur Krist-berg Guð-
mundsson fæddist
29. maí 1930. Hann
andaðist 27. júlí
2018.
Útför Ólafs fór
fram 7. ágúst 2018.
inu, en lukka þeirra
ömmu var sannar-
lega engin tilviljun.
Lífið getur ekki ann-
að en leikið við svo
yndislegt fólk.
Margt kemur upp
í hugann sem ég
minnist afa fyrir og
þakka. Alltaf mátti
treysta á þau ömmu
ef eitthvað bjátaði á
og aldrei stóð á því
að fá Skodann lánaðan eftir að bíl-
prófið var í höfn með þeirra hjálp.
Ökukennslan einkenndist af
óþrjótandi metnaði og þolinmæði
og lögðu þau ríka áherslu á ná-
kvæmni í akstrinum. Ljóslifandi
eru einnig minningar um ótal
ferðir í skátaskálann við Hvaleyr-
arvatn sem kveiktu áhuga minn á
skáta- og útivistarlífi, að
ógleymdri dýrmætri leiðsögn um
berjalendur stór Hafnarfjarðar-
svæðisins svo berjatínslu fjöl-
skyldunnar yrði örugglega við-
haldið. Afa var mjög annt um að
kenna okkur öll kennileiti í nátt-
úrunni en hann þekkti hverja
þúfu og hól með nafni. Sameig-
inlegt áhugamál okkar afa, frí-
merkja- og myntsöfnun, er mér
einnig kært og mun svo verða um
ókomna tíð enda átti afi stóran
þátt í að móta heilbrigða söfnun-
aráráttu mína sem veitir fádæma
sælu og afi þekkti vel af eigin
raun.
Góðan Guð biðjum við um að
styrkja elsku ömmu Gógó, sem
kveður ekki bara eiginmann sinn
heldur líka sálufélaga og besta
vin. Við yljum okkur við allar
góðu minningarnar um yndisleg-
an afa og vin, full þakklætis fyrir
allt og allt.
Hjalti Þór og fjölskylda.
Kær vinur minn
frá liðnum dögum
austur á Horna-
firði, Hreinn Ei-
ríksson frá Mið-
skeri, er látinn.
Mig langar að minnast hans
með nokkrum orðum. Ég
kynntist Hreini fyrst þegar ég
var í unglingaskóla á Höfn, en
þar annaðist hann smíða-
kennslu. Kennsla lét honum
mjög vel enda átti hann alla tíð
afar létt með að umgangast
unglinga og ungt fólk. Hreinn
var einstaklega ljúfur maður í
allri viðkynningu og skemmti-
legur félagi, hvort heldur sem
var í starfi eða leik. Hann var
félagslyndur og lagði mikið af
mörkum í þeim efnum, ekki síst
í leikstarfsemi bæði á Höfn og í
Nesjum. Mörg hlutverk lék
hann með eftirminnilegum
hætti en best man ég hann í
Ævintýri á gönguför þar sem
hann lék bragðarefinn Skrifta-
Hans. Íþróttamaður hafði hann
verið á yngri árum og keppti
oft í ýmsum greinum á íþrótta-
mótum í héraðinu. Íþróttavöll
höfðu Nesjamenn gert sér í
sjálfboðavinnu sem þeir nefndu
Leikvang og þar kom unga
fólkið í sveitinni saman og
skemmti sér. Minnist ég þess
að á bernskudögum mínum
Hreinn Eiríksson
✝ Hreinn Eiríks-son fæddist 10.
mars 1931. Hann
lést 10. júlí 2018.
Útför Hreins fór
fram 19. júlí 2018.
mátti stundum sjá
þá Miðskersbræður
sýna þar gömul til-
þrif og var sem sjá
mætti gamlan
keppnisglampa í
auga.
Á seinni árum
sinnti Hreinn starfi
meðhjálpara í
Bjarnaneskirkju og
rækti það starf af
trúmennsku og
alúð. Umhirða um garð og
kirkju var í hans höndum til
fyrirmyndar. Kirkjuna þekkti
hann líka vel enda hafði hann
unnið að smíði hennar og hús-
búnaði. Vísast hefur hann líka
kunnað því vel að standa að
slætti í Bjarnaneskirkjugarði,
sem er svo skammt frá hans
eigin bernskuslóðum.
Ég kveð minn gamla vin og
mun sakna þess að heyra hann
ekki framar segja kímilegar
sögur af fyrri tíðar körlum og
kerlingum með sínu sérstaka
lagi sem erfitt er að lýsa, en
persónur birtust manni ljóslif-
andi í meðförum hans og un-
aðslegum tilburðum og
raddblæ. Ekki spillti skaft-
fellski framburðurinn og
spaugilegur tónn sem yljaði
alla frásögnina. En við beygj-
um okkur undir lífsins lögmál
því að allt hefur vissulega sinn
tíma.
Eiginkonu Hreins, Kristínu
Gísladóttur, og börnum þeirra
votta ég innilega samúð.
Gunnar Sveinn
Skarphéðinsson.
Ástkær faðir okkar, fóstri, tengdafaðir, afi
og langafi,
KRISTJÁN ÁRNASON,
rithöfundur og þýðandi,
Grundarstíg 12, Reykjavík,
sem lést laugardaginn 28. júlí, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 16. ágúst
klukkan 13.
Árni Kristjánsson
Þórarinn Kristjánsson
Alda Arnardóttir
Eyjólfur Kjalar Emilsson
tengdabörn
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar
ástkæru
INGIBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR
frá Holtsmúla,
til heimilis að Fellstúni 6,
Sauðárkróki.
Sérstakar þakkir viljum við færa því góða starfsfólki sem
kom að veikindum hennar og sýndi henni einstaka hlýju og
umhyggju.
Ragnar Eyfjörð Árnason
Sigurður Ingi Ragnarsson Steinunn Valdís Jónsdóttir
Árni Eyfjörð Ragnarsson Sigurrós Einarsdóttir
Smári Hallmar Ragnarsson Halla Mjöll Stefánsdóttir
Gunnur Pálsdóttir
Ástkær faðir okkar, tendafaðir, afi
og langafi,
HALLGRÍMUR GUÐJÓNSSON,
fv. bóndi,
Hvammi í Vatnsdal,
Verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 14. ágúst klukkan 13.
Ingibjörg R. Hallgrímsdóttir Gísli Ragnar Gíslason
Þuríður Kr. Hallgrímsdóttir Finnbogi Kjartansson
Margrét Hallgrímsdóttir Gunnar Þór Jónsson
Hafsteinn Gunnarsson Ásta Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir mín, systir og vinkona,
MAGNEA JENNY GUÐMUNDARDÓTTIR
frá Melgraseyri,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
mánudaginn 6. ágúst.
Kveðjuathöfn fer fram í Áskirkju
föstudaginn 17. ágúst klukkan 13. Útför verður frá
Melgraseyrarkirkju laugardaginn 18. ágúst klukkan 14.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á styrktarreikning
Krabbameinsfélagsins, 301-26-706, kt. 700169-2789.
Ragnheiður Kristín Finnbogadóttir
Finnbogi Kristjánsson
Jóhanna Halldórsdóttir
Snævar Guðmundsson Anna Guðný Gunnarsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁGÚSTA ÚLFARSDÓTTIR EDWALD,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
mánudaginn 6. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Grensáskirkju
föstudaginn 17. ágúst klukkan 13.
Jón Haukur Edwald Álfheiður Magnúsdóttir
Birgir Edwald Ragnheiður Óskarsdóttir
Helga Edwald
Eggert Edwald Jacqueline McGreal
Kristín Edwald
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
INGÓLFUR G. SIGURÐSSON
varð bráðkvaddur á heimili sínu
mánudaginn 6. ágúst eftir langa og farsæla
ævi. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í
Garðabæ föstudaginn 17. ágúst klukkan 15.
Theodóra Thorlacius
Jórunn Thorlacius Sigurðardóttir
Sigurður Ingólfsson
Þórarinn Ingólfsson
Oddur Ingólfsson
Hildur Ingólfsdóttir
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Okkar elskaði faðir, tengdafaðir, afi, sonur
og bróðir,
EINAR RÓSINKAR ÓSKARSSON
frá Ísafirði,
sem varð bráðkvaddur á Dynjanda í
Leirufirði 5. ágúst verður jarðsunginn frá
Ísafjarðarkirkju laugardaginn 18. ágúst
klukkan 14.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Björgunarfélag Ísafjarðar.
Hanna Rósa Einarsdóttir
Engilráð Ósk Einarsdóttir Jónas Þorkelsson
Eydís Eva Einarsdóttir
Gunnþóra Rós, Óskar Guðmundur og Eva Þórkatla
Lydía Rósa Sigurlaugsdóttir
Albert og Lydía Ósk Óskarsbörn
Eiginmaður minn, bróðir okkar,
tengdasonur, mágur og frændi,
EINAR RAGNARSSON,
Traunufer Arkade 10
Wels, Austurríki,
lést á Klinikum-sjúkrahúsinu í Wels
mánudaginn 16. júlí.
Útför hans fór fram frá Basilika Enns – St. Laurenz-kirkjunni í
Enns í Austurríki laugardaginn 21. júlí.
Minningarathöfn fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn
24. ágúst klukkan 15.
Claudia Gluck Ragnarsson
Kristín Ragnarsdóttir
Arne Nordeide
Þórunn Ragnarsdóttir Snorri Egilson
Málfríður Ragnarsdóttir
Guðmundur Ragnarsson Þóra Friðriksdóttir
og fjölskyldur
Hanna Cluck
Andrea, Harry, Max og Ivy
Martina, Albert, Steffi, Florian og Chrisi