Morgunblaðið - 11.08.2018, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2018
✝ Sigurður Þor-leifsson fæddist
á Akranesi 30. sept-
ember 1931. Hann
lést á heimili sínu í
Eirborgum, Fróð-
engi 11, 22. júlí 2018.
Sigurður var son-
ur hjónanna Þorleifs
Sigurðssonar og
Þuríðar Daníels-
dóttur í Nesi á Akra-
nesi. Hann ólst upp á
Akranesi ásamt systkinum sínum
sjö, þau eru: Agatha Sigurást,
fædd 27. maí 1928 og dáin 4. maí
2005, Ingvar, fæddur 27. sept-
ember 1929 og dáinn 4. desember
1987, Anna Dagbjört, fædd 22.
september 1930 og dáin 3. sept-
ember 2016, Sæunn, fædd 13.
ágúst 1933, Steinunn Dagný,
fædd 3. ágúst 1938, Bergmann,
fæddur 8. maí 1943, og Ingunn
Dagmar, fædd 8. október 1946.
Sigurður kvæntist 23. júlí 1958
Hebu Stefánsdóttur frá Hrísey,
fæddri 24. janúar 1938, dóttur
Stefáns Stefánssonar og Agnesar
Grétari Gíslasyni, og Sigurður
Már. Þorleifur Geir og Ásthildur
eiga tvö barnabörn og búa í Hafn-
arfirði.
Sigurður og Heba fluttu til
Reykjavíkur 1990 en þar lést
Heba 29. ágúst 2001. Sigurður
hélt þar heimili áfram uns hann
kynntist eftirlifandi eiginkonu
sinni Sigríði Ragnheiði Oddsteins-
dóttur, fæddri 26. mars 1931, en
þau giftust 1. október 2005. Hún
dvelst á hjúkrunarheimilinu
Skjóli í Reykjavík.
Sigurður byrjaði snemma að
taka til hendinni, aðeins sjö ára
var hann farinn að taka þátt í úti-
störfum með foreldrum sínum og
svo sendur í sumarvinnu að
Eystri-Leirárgörðum í Leir-
ársveit. Ungur að árum fór hann
á sjóinn og sinnti sjómennsku á
ýmsum bátum aðallega við síld-
veiðar en þegar dró úr síldveiðum
fór Sigurður að vinna á Nóta-
stöðinni á Akranesi við netagerð.
Hann hóf síðan störf við verk-
smiðju Íslenska járnblendi-
félagsins á Grundartanga 1979.
Þar vann hann uns hann fluttist til
Reykjavíkur í kjölfar veikinda.
Þar tók hann að sér stöðu hús-
varðar í Austurveri og vann við
það þar til hann fór á eftirlaun.
Útför Sigurðar fór fram 30. júlí
í kyrrþey að ósk hins látna.
Lísbetar Stef-
ánsdóttur. Sigurður
og Heba bjuggu sér
heimili á Akranesi,
þar sem synir þeirra
þrír slitu barns-
skónum. Þeir eru: 1)
Stefán Þór, fæddur
9. nóvember 1958,
hann á þrjár dætur,
þær eru: Heba Ag-
neta, sambýlismaður
Bjarni Þórðarson,
Eygló Hlín, eiginmaður Hannibal
Hauksson, og Ína Rut, eiginmaður
Fjölnir Fjalarsson. Stefán á sjö
barnabörn, sambýliskona hans er
Kristín Frímannsdóttir sem átti
fyrir fimm dætur, þau búa í Borg-
arnesi. 2) Sigurður Maríus, fædd-
ur 29. ágúst 1961, sambýliskona
hans er Elísa Dagmar Andersen,
þau eiga tvær dætur: Emmu Dís
og Ástu Maríu. Elísa átti fyrir
einn son. Þau búa í Reykjanesbæ.
3) Þorleifur Geir, fæddur 4. sept-
ember 1962, kvæntur Ásthildi
Benediktsdóttur, þau eiga tvö
börn, þau eru: Anna María, gift
Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vorn grætir,
þá líður sem leiftur úr skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(Hallgr. J. Hallgr.)
Elsku afi minn,
þó að ég eigi eftir að sakna þín
og hefði viljað fá meiri tíma með
þér þá er svo margt að þakka og
svo margs að minnast, ég var
nefnilega svo heppin með afa.
Að leiðarlokum segi ég því
takk, elsku afi.
Takk fyrir samveruna, að
nenna að fara með mér hingað
og þangað, ef ég bað þig nokkr-
um dögum áður vildir þú ekki
lofa, því við vitum jú ekki hverju
lífið tekur upp á. Ég átti alltaf að
tékka á þér bara daginn áður
eða samdægurs.
Takk fyrir að koma og taka
óhræddur þátt í að smakka til-
raunir okkar Bjarna í eldhúsinu,
kaffibollann eftir matinn og
spjallið um daginn og veginn.
Takk fyrir símtölin þegar ég
gat ekki beðið með að segja þér
eitthvað þangað til við hittumst
næst eða þegar þér fannst of
langt liðið síðan ég hringdi með
fréttir af dagsdaglegum afrekum
hjá okkur.
Takk fyrir væntumþykjuna
sem þú sýndir mér og mínum
svo sannarlega í orðum og gjörð-
um.
Takk fyrir ráðin sem þú gafst
og allar sögurnar sem þú sagðir.
Takk fyrir samfylgdina í
gegnum lífið, elsku afi. Það er
ekki sjálfsagt að hafa fengið að
eiga afa eins og þig, heppin ég
og heppin börnin mín Stefán
Bjarki, Kolfinna Dröfn og Þórð-
ur Nói með langafa sinn sem
þeim þótti svo vænt um.
Ég tékka á Lillu þinni eins og
þú varst búinn að biðja mig um.
Sumir hverfa fljótt úr heimi hér
skrítið stundum hvernig lífið er,
eftir sitja margar minningar
þakklæti og trú.
Þegar eitthvað virðist þjaka mig
þarf ég bara sitja og hugsa um þig,
þá er eins og losni úr læðingi
lausnir öllu við.
Þó ég fái ekki að snerta þig
veit ég samt að þú ert hér,
og ég veit að þú munt elska mig
geyma mig og gæta hjá þér.
(Bob Dylan/Ingibjörg Gunnarsd.)
Takk fyrir allt, elsku afi minn.
Þín
Heba.
Sigurður
Þorleifsson
Elsku besta nafna
mín er fallin frá, það
sem maður mun
sakna hennar. Hún
var einstaklega góð og hjartahlý,
það var ávallt gestagangur hjá
henni og í hvert skipti sem maður
kíkti til hennar var einhver í heim-
sókn hjá henni.
Hrafnhildur var systir hans
pabba og voru þau 11 systkinin og
stundum fannst mér hún vera
amma mín og ég elskaði að fara í
heimsókn til hennar, það var alltaf
nýbakað hjá henni, þvílík undra-
kona sem hún var, man að ég hugs-
aði alltaf: rosalega er hún dugleg,
alltaf á fótum að hugsa um alla aðra.
Um jólin og afmælin hjá mér þá var
ég alltaf spenntust að fá gjafirnar
frá Hrafnhildi, hún gaf mér alltaf
flottustu gjafirnar. Svo þegar leið á
árin hjá mér þá sagði ég alltaf að
þetta yrði nú síðasta árið mitt sem
ég fengi gjöf frá henni, en alltaf kom
gjöf ár eftir ár og ég var orðin 23 ára
þegar ég fékk síðustu jólagjöfina frá
henni.
Fyrir nokkrum árum þá bjargaði
ég villiketti og hann vantaði heimili
því ég gat ekki verið með hann því
ég átti tvær læður sem vildu ekki
taka á móti honum, hún ákvað að
passa hann fyrir mig í þrjá mánuði,
Hrafnhildur
Jónsdóttir
✝ HrafnhildurJónsdóttir
fæddist 6. sept-
ember 1944. Hún
lést 15. júlí 2018.
Útför hennar var
gerð 27. júlí 2018.
svo þegar ég ætlaði
að taka hann og fara
með hann á Kattholt
þá vildi hún bara eiga
hann, gat ekki hugsað
sér að láta hann á
Kattholt. Þannig var
hún Hrafnhildur mín
alltaf svo hugulsöm
og mikill dýravinur.
Núna er hann Grettir
á kattakaffihúsinu og
er appelsínugulur og með skarð í
vörinni ef einhver vill kíkja á þenn-
an gullmola. Ég get talað endalaust
um hversu yndisleg og góð hún
Hrafnhildur var, ég bjóst ekki við
að hún myndi fara strax, ef ég hefði
vitað það þá hefði ég heimsótt hana
meira undanfarið, maður heldur oft
að maður hafi meiri tíma en svona
er lífið og krabbameinið vann þessa
baráttu. En þú barðist við þennan
sjúkdóm í mörg ár og loksins ertu
komin í hvíld. Það er hálf ótrúlegt
að pabbi, Nonni bróðir ykkar og þú
hafið öll dáið langt fyrir aldur fram
síðustu þrjú ár, þið Nonni af
krabbameini og pabbi af hjarta-
áfalli. Svo er það Beni og Guðmund-
ur sem fóru líka langt fyrir aldur
fram, Beni 20 ára og Guðmundur
64 ára ef ég fer með rétt mál. En
þið systkinin eruð samankomin
núna og ég hlakka til að hitta ykkur
öll. Knúsaðu nú pabba fyrir mig.
Mun sakna þín alveg rosalega og
á mjög erfitt að sætta mig við það
að hitta þig ekki aftur hér á jörð-
inni.
Kær kveðja,
Hrafnhildur Harðardóttir.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÖNNU STEINDÓRSDÓTTUR,
Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Asparhlíðar
fyrir góða og hlýja umönnun.
Úlfar Hauksson Hólmfríður Andersdóttir
Selma Hauksdóttir Þengill Ásgrímsson
barnabörn og barnabarnabörn
Við þökkum alla þá hlýju og samúð sem þið
sýnduð okkur við andlát og útför elskulegs
eiginmanns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
SIGMARS JÓNSSONAR,
stórkaupmanns.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Hlíf Jóhannsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og
langafa,
ÞÓRARINS FRIÐJÓNSSONAR,
Sólheimum 23.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sóltúns fyrir
einstaka umönnun.
Ólöf Jónsdóttir og fjölskylda
FALLEGIR LEGSTEINAR
Verið velkomin
Opið: 10-17
alla virka daga
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Systir mín,
ÁSLAUG ÁSMUNDSDÓTTIR,
Árskógum 8,
lést á Dvalarheimilinu Grund fimmtudaginn
2. ágúst. Útför hennar verður frá Seljakirkju
fimmtudaginn 16. ágúst klukkan 15.
Tryggvi Ásmundsson
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur, laga
ryð á þökum
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að
dugmiklu fólki 13 ára og eldra,
til að bera út blöð.
Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440
eða dreifing@mbl.is
Hafðu samband í dag
www.mbl.is/laushverfi
Hressandi morgunganga
Vantar þig
lögfræðing?
FINNA.is