Morgunblaðið - 22.08.2018, Page 4

Morgunblaðið - 22.08.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2018 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Eva Marín Hlynsdóttir, sérfræðing- ur í opinberri stjórnsýslu og lektor við stjórnmála- deild Háskóla Ís- lands, telur vel mögulegt að borgarritari og skrifstofustjóri Reykjavíkur- borgar hafi hlaupið á sig þeg- ar þau áminntu kjörinn fulltrúa borgarinnar, Vig- dísi Hauksdóttur, borgarfulltrúa Miðflokksins, og sök- uðu hana um trúnaðarbrest. Man ekki eftir tilviki sem þessu Annar sérfræðingur á sviði opin- berrar stjórnsýslu sem rætt var við tekur dýpra í árinni en Eva Marín og segist ekki muna eftir tilviki eins og þessu. „Það eru ákveðnar hefðir, hvort sem mönnum líkar betur eða verr, að embættismenn eru að starfa fyrir pólitíska fulltrúa og eru þjónar þeirra. Það felst í því að vera emb- ættismaður að gera það sem manni er sagt. Embættismaður hefur bara ekki sama tjáningarfrelsi og pólitískt kjörinn fulltrúi eða almenningur úti í bæ,“ segir hann. Sérfræðingurinn telur að líkja megi þessum „árásum“ borgarritara og skrifstofustjóra borgarinnar við það að ráðuneytisstjórar og skrif- stofustjórar væru að tjá sig um gjörðir ráðherra og gagnrýna sem bara gerist ekki. Sérstakar aðstæður Blaðamaður Morgunblaðsins spurði Evu Marín hvort það væri ekki sjaldgæft í opinberri stjórn- sýslu að opinberir embættismenn, eins og borgarritari og skrifstofu- stjórinn réðust með slíkum hætti að kjörnum fulltrúa eða fulltrúum: „Ég myndi nú ætla það. Það eru sérstak- ar aðstæður sem komu þarna upp og ég þekki engin nýleg dæmi þess að embættismenn hafi komið fram með þessum hætti,“ sagði Eva Marín. „Það er raunar mjög sérstakt að það eigi sér stað opinberlega átök á milli stjórnsýslunnar og kjörinna fulltrúa. Maður hlýtur að álykta að þarna séu einhver undirliggjandi átök sem eru að koma upp á yfir- borðið,“ sagði Eva Marín. Blaðamaður rifjaði upp að Vigdís lagði tvö bréf frá Kjarafélagi við- skipta- og hagfræðinga fram á fundi forsætisnefndar í síðustu viku og upplýsingarnar sem hún hafði áður vitnað til væru úr þeim bréfum sem hún og aðrir oddvitar minnihlutans í borgarstjórn fengu send, annars vegar 9. ágúst og hins vegar 16. ágúst. Ekki úr stjórnsýslunni „Þessi borgarfulltrúi fékk upplýs- ingarnar annars staðar frá, sam- kvæmt þessu, þannig að í rauninni var hún ekki að fara með upplýsing- ar sem hún hafði fengið innan úr stjórnsýslunni. Það er því vel mögu- legt að einhver eða einhverjir hafi hlaupið á sig og verið of fljótir að bregðast við með þeim hætti sem gert var,“ sagði Eva Marín. Eva Marín sagði jafnframt að það væri alls ekki gott þegar upp kæmi opinber ágreiningur á milli kjörinna fulltrúa og stjórnsýslunnar. „Stjórn- sýslan á að geta unnið með öllum kjörnum fulltrúum, hvort sem þeir eru í minnihluta eða meirihluta. Það á vitanlega einnig við um kjörna full- trúa, þeir eiga allir að geta unnið með stjórnsýslunni, hvort sem þeir tilheyra meirihluta eða minnihluta,“ sagði Eva Marín. Fer gegn öllum hefðum Hinn sérfræðingurinn sem rætt var við benti á að embættismenn í borgarkerfinu og sveitarstjórnum almennt væru að starfa fyrir alla kjörna fulltrúa, ekki bara fyrir meirihlutann. „Svo finnst mér furðu- legt að borgarstjóri skuli ekki hafa brugðist við. Það hefði verið hið eðli- lega ferli, vegna þess að þetta á ekki að vera samtal á milli embættis- manns borgarinnar og minnihlutans. Borgarstjóri ber ábyrgð á öllum sín- um embættismönnum og þessi fram- gangsmáti fer gegn öllum hefðum í stjórnskipan borgarinnar,“ sagði sérfræðingurinn. Hann telur að eðlilegt hefði verið ef embættismaðurinn hefði talið að ekki væri farið eftir reglum, að hann ræddi það sérstaklega við borgar- stjóra, sem samkvæmt hefðinni hefði komið athugasemdum, ef nauðsyn- legt hefði verið talið, á framfæri. „Svona framganga embættis- manna hlýtur að vera mjög stuðandi fyrir kjörna borgarfulltrúa í minni- hlutanum,“ sagði sérfræðingurinn. Embættismenn hlupu líklega á sig  Sérfræðingar í opinberri stjórnsýslu sammála um að embættismenn starfi fyrir alla kjörna fulltrúa  Borgarstjóri beri ábyrgð á öllum embættismönnum borgarinnar og hafi átt að bregðast við Morgunblaðið/Ómar Ráðhúsið Sérfræðingar í opinberri stjórnsýslu telja einsdæmi að embætt- ismenn hafi ráðist á kjörinn fulltrúa og sakað fulltrúann um trúnaðarbrest. Eva Marín Hlynsdóttir PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu Axel Helgi Ívarsson axel@mbl.is „Ég fagna þessum áformum,“ segir Gunnar Þorgeirsson, formaður Sam- bands garðyrkjubænda, í samtali við Morgunblaðið um drög að frumvarpi um framlengingu og víkkun gildis- sviðs laga um svæðisbundna flutn- ingsjöfnun. Frumvarpsdrögin fela í sér að gildissvið laganna er víkkað þannig að þau taki einnig til fram- leiðslu garðyrkjubænda sem rækta ávexti, blóm eða grænmeti og full- vinna framleiðslu sína í söluhæfar umbúðir. Dropinn holaði steininn „Ég hef furðað mig á því af hverju garðyrkjuafurðir hafa ekki verið inn- an gildissviðslaga um flutnings- jöfnuð til þessa. Við höfum beitt okk- ur í því að fá framleiðslu garðyrkju- bænda inn í lög, þannig að ég held að dropinn hafi holað steininn,“ segir Gunnar og hlær við. Þá er lagt til í frumvarpsdrög- unum að lágmarksflutnings- vegalengd styrk- hæfrar framleiðslu verði lækkuð úr 245 km í 150 km. Þessi aðgerð mun fjölga þeim sem rétt geta átt á styrk vegna framleiðslu sinn- ar. Er Gunnar að sama skapi afar ánægður með þau áform og segir lækkun á lágmarksflutnings- vegalengd skipta gífurlegu máli. „Það mun hafa heilmikil áhrif fyrir þá garðyrkjubændur sem eru hvað lengst í burtu og þurfa að greiða flutning fyrir afurðir sínar til höfuð- borgarsvæðisins t.d. frá Eyjafjarð- arsvæðinu, Hornafirði og Húsavík. Þetta telur allt saman,“ segir Gunn- ar. Aðspurður segir Gunnar að það sé ekki stór hluti garðyrkjubænda sem búi hvað lengst frá mörkuðum á höfuðborgarsvæðinu, en þeir eigi meira undir högg að sækja þess vegna þess hve langt þeir þurfi að sækja aðföng og senda afurðir. „Það er helst það sem við höfum verið að horfa til,“ segir Gunnar til viðbótar. „Auðvitað eru heilmargir kart- öflubændur í Eyjafirði sem senda kartöflur til höfuðborgarsvæðisins og eins er annar stærsti tómatafram- leiðandinn á Húsavíkursvæðinu.“ Önnur barátta tekur við Gunnar segir mikinn sigur unninn ef frumvarpið taki gildi, en önnur baráttumál taki þá við í staðinn. „Það er t.a.m. önnur barátta um hvað er þéttbýli og hvað er ekki þéttbýli þeg- ar kemur að raforku. RARIK er með eina skilgreiningu og Skipulags- stofnun er með aðra. Svo er ein garð- yrkjustöð að nota meira rafmagn en venjulegt þéttbýli en þá er stöðin samt skilgreind sem dreifbýli og þarf þá að borga hærra raforkuverð,“ segir Gunnar. Sú barátta hefur stað- ið lengi og Gunnar segir í léttu bragði að hann búist við því að sá slagur muni vara enn lengur og jafn- vel til eilífðarnóns. Fagnar drögum að frum- varpi um jöfnunarstyrki  Gildissvið taki einnig til framleiðslu garðyrkjubænda Morgunblaðið/Sigurður Guðmundsson Mál Garðyrkjubændur hafa barist fyrir því síðustu misseri að framleiðsla þeirra sé innan laga um flutningsjöfnun. Gunnar Þorgeirsson Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is 13% barna sem sótt hafa um leik- skólapláss í Reykjavík í haust eru á biðlista eða um 208 börn. Í fréttatilkynningu frá Reykjavíkur- borg kemur fram að ráðningar fyr- ir haustið hafi gengið betur nú en í fyrra. Í leikskóla borgarinnar á eftir að ráða í 61,8 stöðugildi, en búið er að ráða í 93,6% stöðugilda. Á sama tíma í fyrra var óráðið í um 120 stöðugildi á leikskólunum. Helm- ingur leikskóla er fullmannaður, í 17 þeirra er ómannað í eina til eina og hálfa stöðu, fimm leikskóla vantar starfsfólk í 2-2,63 stöður, fjóra leikskóla vantar þrjá starfs- menn og fjóra skóla vantar fjóra starfsmenn. Í einum leikskóla er óráðið í fimm stöður. Óvíst er með dagsetningar inn- töku 128 barna af þeim 1.400 sem hafa fengið boð um vistun á leik- skólum borgarinnar í haust vegna manneklunnar. Í grunnskóla á eftir að ráða í 33,4 stöðugildi, en búið er að ráða í 98,3% stöðugilda. Í 16 skólum hef- ur verið ráðið í allar stöður, en í 5 grunnskóla vantar í 0,5-0,75 stöð- ur, í 8 þeirra vantar í 1-1,5 stöður og í 4 grunnskóla vantar í 2-2,8 stöður. Í tvo skóla vantar í 3 stöð- ur og í einn vantar í 5,1 stöðu. Kennara vantar í 18 stöðugildi, stuðningsfulltrúa í 17 stöðugildi og 15,8 stöðugildi skólaliða. Í 3,5 stöðugildi þroskaþjálfa vantar og 4 stöðugildi í mötuneyti. Staða ráðninga er verst í frí- stundaheimilum, en þar vantar 211 starfsmenn í 103,3 stöðugildi, en yfirleitt er um 50% störf að ræða. Búið er að ráða í 71,1% stöðugildi, en aðeins á tveimur frístundaheim- ilum hefur verið ráðið í allar stöð- ur. 208 börn bíða eftir plássi í Reykjavík  Ráðningar gengið betur en í fyrra

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.