Morgunblaðið - 22.08.2018, Side 36
MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 234. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Stefán Karl Stefánsson látinn
2. Sóttu þýfið sjálf í kjallarageymslu
3. Til Íslands á sæþotu frá Færeyjum
4. Sést á öryggismyndavélum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kammerkór Hallgrímskirkju,
Schola cantorum, syngur í dag, mið-
vikudag, kl. 12 íslenskar og erlendar
kórperlur, m.a. eftir Jón Ásgeirsson,
Jón Nordal, Sigvalda Kaldalóns,
Händel, Byrd og Þorkel Sigurbjörns-
son. Tónleikagestum er eftir á boðið í
kaffi og spjall við kórinn.
Kórperlur í
Hallgrímskirkju
Hljómsveitin Grúska Babúska leik-
ur á lokatónleikum tónleikaraðar-
innar KÍTÓN Sumar í Hannesarholti á
morgun, fimmtudag, kl. 20.
Tónlistin færir áhorfandann og
hlustandann inn í draumheim, oft
gáskafullan og barnslegan, en á
sama tíma dimman og þrunginn al-
varleika.
Grúska Babúska
í Hannesarholti
Orkester Norden heldur tónleika í
dag, miðvikudag, kl. 19.30 í Norður-
ljósasal Hörpu. Sinfóníuhljómsveit
þessi er skipuð efnileg-
asta tónlistarfólki
Norðurlandanna og
er sígild tónlist í
forgrunni.
Stjórnandi er
hinn sænski Olof
Boman og einleikari er
píanistinn Víkingur
Heiðar Ólafsson.
Framtíðarstjörnur í
Norðurljósum Hörpu
Á fimmtudag og föstudag Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og
víða skúrir, en sums staðar þokusúld við N-ströndina. Hiti 8 til 15
stig að deginum, hlýjast syðst.
Á laugardag Hæg suðlæg eða breytileg átt. Hiti 7 til 13 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlægari og áfram skúrir, einkum síð-
degis. Hiti 8 til 15 stig, mildast S-lands.
VEÐUR
„Auðvitað er það alltaf mik-
ið áfall þegar maður meiðist
svona alvarlega. Þetta er
erfitt, líka í ljósi þess að ég
hef komið nokkrum sinnum
til baka áður og var ekkert
að stefna á að þurfa að gera
það aftur,“ segir Harpa Þor-
steinsdóttir, landsliðs-
framherji í knattspyrnu,
sem er með slitið kross-
band í hné. Hún segir
óljóst hvort hún snúi aft-
ur til keppni. »2
Óljós framtíð eftir
krossbandsslit
Náði fljótt einbeitingu á
ný eftir HM í Rússlandi
Stjörnukonur voru ekki lengi að vinna
úr vonbrigðunum eftir að hafa tapað
fyrir Breiðabliki í bikarúrslitaleiknum
í knattspyrnu um liðna helgi. Þær
völtuðu yfir HK/Víking, 7:1, þegar 14.
umferð Pepsi-deildarinnar lauk í gær.
Breiðablik kom sér upp fyrir Þór/KA
á topp deildarinnar með 2:0-sigri á
KR, þar sem mörkin komu með mín-
útu millibili í seinni hálfleik. »2 og 3
Bikarmeistararnir á
toppi deildarinnar
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Lísbet Sigurðardóttir
lisbet@mbl.is
Einar Sigurjónsson, 37 ára þrí-
þrautarkappi, lauk á sunnudag við
sinn annan járnkarl á innan við ári.
Járnkarl er þríþrautarkeppni þar
sem byrjað er á að synda 3,8 km,
hjólaðir 180 km í kjölfarið og endað á
heilu maraþonhlaupi, eða 42 km.
Einar segir að þríþrautin gefi lífi
sínu fyllingu og stefnir nú ótrauður á
að keppa í fleiri járnkarlakeppnum
um allan heim.
Einar er sjúkraþjálfari og hafði
áður verið virkur í íþróttum, stund-
aði fótbolta, körfubolta og handbolta
á sínum yngri árum, en hafði ekki
stundað skipulagðar íþróttir í nokk-
ur ár þegar hann var fenginn til þess
að keppa í WOW cyclothon árið
2015.
„Þá byrjaði þetta fyrir alvöru hjá
mér. Ég keypti mér götuhjól (e.
racer) og fór að æfa mig með vina-
hópnum mínum úr Mosfellsbæ. Eftir
að við kláruðum keppnina þurfti ég
að finna mér eitthvað nýtt,“ segir
Einar, en þá var þegar ákveðið að
hópurinn skyldi taka aftur þátt í
hjólreiðakeppninni að ári. Það sama
ár þreytti Einar einnig Landvætta-
þrautirnar frægu, sem samanstanda
af skíðagöngu, hjólreiðakeppni,
hlaupi og sundi. Þegar því var lokið
þurfti Einar enn og aftur á nýrri
áskorun að halda.
„Ég var í fjölskylduboði með
frænda mínum sem hafði verið með
mér í WOW cyclothoninu. Hann
plataði mig í járnkarlahóp á Face-
book. Við ákváðum að fara saman á
kynningarnámskeið hjá Ægi 3, þrí-
þrautarfélagi. Þegar ég var kominn í
þann félagsskap ákvað ég strax að
setja mér það markmið að skrá mig í
járnkarlinn sem fór fram í Barce-
lona í október. Það þarf mjög mikinn
grunn til þess að þjálfa sig fyrir
svona keppni. Ég hafði þá lítið synt
og var mjög slakur sundmaður. En
ég hafði grunn í hjólreiðunum og svo
hef ég alltaf verið léttur á fæti og átt
auðvelt með að hlaupa,“ segir Einar.
Einar er kvæntur Birnu Maríu
Karlsdóttur og saman eiga þau tvö
börn. Hann segir að samstarfið þurfi
að vera gott á milli þeirra hjóna svo
að stífar æfingar, full vinna og fjöl-
skyldulíf geti farið saman. „Ég tók
samtal við konuna mína og sagði
henni að mig langaði að fara í járn-
karlinn. Ég spurði hana hvort hún
væri tilbúin að styðja mig, því þetta
kostar mikinn tíma og miklar æfing-
ar en getur gengið ef maður skipu-
leggur sig vel,“ útskýrir Einar.
Hann líkir tilfinningunni sem
fylgdi í kjölfar fyrri járnkarlsins við
það að eignast sitt fyrsta barn. „Til-
finningarnar báru mig ofurliði. Ég
grét og þetta varð allt þess virði.
Þetta er með betri tilfinningum í líf-
inu, þegar maður eignast börn, þeg-
ar maður giftir sig og þegar maður
klárar járnkarl,“ segir Einar og
hlær.
Og þá varð ekki aftur snúið. Einar
tók sér fjórar vikur til þess að leyfa
líkamanum að jafna sig frá æfingum
en fann svo fljótlega til lögunar til
þess að fara að æfa á ný. „Ég skráði
mig um páskana aftur í heilan járn-
karl. Ég skipulagði sumarfríið í
kringum þetta, tók þátt í keppnum
og bætti í álagið þegar nær dró að
keppninni sjálfri.“
Keppnin fór fram á sunnudag í
Kaupmannahöfn og lauk Einar
keppni á 10 klukkustundum og 5
mínútum, sem telst afar góður ár-
angur, og bætti hann sig um heilar
25 mínútur frá fyrri járnkarlinum.
Nú setur Einar stefnuna á að klára
fleiri járnkarla en segir að hann láti
hálfan járnkarl líklegast duga á
næsta ári.
Einar hefur að miklu leyti náð
eins langt og raun ber vitni vegna
þekkingar sinnar sem sjúkraþjálf-
ari. „Ég er mjög meðvitaður um að
hlusta á líkamann og stilla álaginu í
hóf. Það skiptir svakalega miklu
máli að gera stöðugleikaæfingar fyr-
ir mjaðmir, hné og ökkla,“ segir
Einar, auk þess sem hann segist
hafa aðgang að góðum þjálfurum hjá
Ægi 3, og vill sérstaklega þakka
þjálfurum sínum, Geir Ómarssyni og
Karen Axelsdóttur, fyrir góða leið-
sögn.
Tvöfaldur járnkarl á einu ári
„Með betri til-
finningum í líf-
inu,“ segir Einar
Járnkarl Einar Sigurjónsson lauk keppni á góðum tíma og bætti sig um 25 mínútur frá fyrri járnkarli.
„Jú, jú, hætt er við því að spennufall
verði en ég held að mér hafi tekist að
leysa það nokkuð vel. Mér fannst tak-
ast ágætlega að halda einbeitingu
þegar ég kom aftur til liðs við Val og í
fyrstu leikjunum eftir HM,“ segir
Birkir Már Sævarsson meðal
annars í samtali við Morgun-
blaðið, en hann var atkvæða-
mikill í sigri Vals á Breiða-
bliki og hefur á
heildina
litið leik-
ið vel á
Íslandsmótinu eftir
HM í Rússlandi. »4