Morgunblaðið - 22.08.2018, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 22.08.2018, Qupperneq 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2018 Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Alþjóðlega tónlistarhátíðin Melodica Festival Reykjavík fer fram um næstu helgi á Kex Hostel í Reykja- vík. Þetta er í tíunda sinn sem hátíð- in fer fram hér á landi en hátíðir af svipuðum toga eru haldnar í borgum víða um heim, t.d. í New York, Berl- ín, París og Osló. Að sögn Svavars Knúts Kristins- sonar, tónlistarmanns og eins skipu- leggjanda hátíðarinnar, er heildar- hugsun hátíðarinnar að safna saman söngvaskáldum og fá þau til að deila tónlist sinni og sögum með öðrum. „Á hátíðinni kemur saman fólk úr ýmsum áttum og frá öllum löndum. Kjarni hátíðarinnar felst í því að veita söngvaskáldum og trúbadorum sem semja og flytja sína eigin tónlist ákveðinn vettvang til kynnast og deila með hvort öðru sínum sögum,“ segir hann. Hátíð sem skapar vinatengsl Svavar Knútur segir ákveðna stemningu myndast ár hvert í kring- um hátíðina, listamennirnir nái að tengjast böndum og myndi gott tengslanet erlendis. „Við leggjum áherslu á það að fólk kynnist og fari svo og heimsæki hinar hátíðirnar og myndi vinatengsl milli landa. Þetta er eins og skiptinemaprógramm, nema bara hátíð og tónlistarmenn. Þetta snýst um nærumhverfið og samfélagið.“ Atriðin í ár eru hátt í þrjátíu og þar af erlendir listamenn um þriðj- ungur þátttakenda. Svavar Knútur segir ekki vandamál að fá fólk til að koma og spila heldur hafi stjórn- endur þurft að hafna hópi fólks ár hvert þar sem ekki komist allir að. „Við reynum alltaf að fá nýja lista- menn þó að okkur þyki alltaf vænt um að fá eldri fastagesti. Svo reyn- um við einnig að fá unga íslenska listamenn.“ Aðspurður hverju vinsældirnar sæti segir Svavar Knútur að bæði sé hátíðin vinsæl meðal söngvaskálda en eins heilli Ísland erlenda tónlist- armenn. „Svo er þetta er ekki þessi hefðbundna hátíð þar sem þú ert eins og kjöt á færibandi, þetta er manneskjuhátíð; það er farið í sund og hangið saman og svo hvetjum við til þess að fólk semji saman.“ Svavar segir innilega stemningu myndast á tónleikunum þar sem lögð er áhersla á að segja sögur sín- ar með órafmögnuðum flutningi. „Þetta er tilgerðarlaus hátíð. Það er enginn að reyna að vera neitt, og það sem allir eiga sameiginlegt er þessi saga sem listamennirnir segja. Það er ekki verið að halda uppi neinu stuði eða neyslu. Bara fólk að segja sínar sögur í gegnum söng og texta og lagasmíðar. Til dæmis höf- um við fengið raftónlistarmenn á við Sykur og Bloodgroup sem hafa flutt tónlist sína alveg strípaða, þar sem t.d. var notast við orgel í stað syntha.“ Melodica-hátíðin fer fram á Kex Hostel dagana 24.-26. ágúst. Frítt er inn en tekið er við frjálsum fram- lögum á staðnum. Ljósmynd/Sigurjón Már Innilegt Frá Melodica 2016. Á hátíðinni flytja listamenn órafmagnaða tónlist. Tónlistarhátíð söngvaskálda  Melodica Festival fer fram á Kex Ítalska leikkonan og leikstjórinn Asia Argento var með fyrstu konum í kvikmyndabransanum til að ásaka Harvey Weinstein opinberlega um kynferðislegt ofbeldi. Í kjölfarið varð hún leiðandi í #MeeToo- byltingunni og hélt t.a.m. áhrifa- mikla ræðu á Cannes-verðlaunaaf- hendingunni í maí sl. þar sem hún greindi frá því að Weinstein hefði nauðgað sér á þeim sama stað árið 1997. Nú hafa skjöl litið dagsins ljós sem sýna fram á að Argento hafi á þeim mánuðum eftir að hún upp- ljóstraði um ofbeldi Weinstein, greitt 380 þúsund dollara í vasa fyrrverandi barnastjörnunnar Jimmy Bennetts. Bennet þessi lék son Argento í kvikmyndinni The Heart Is Deceit- ful Above All Things árið 2004, var hann þá 7 ára. Fjölmiðlar ytra hafa farið í saumana á sam- bandi þeirra en þau virðast hafa haldið góðu sam- bandi alla tíð síð- an og t.a.m. kallað hvort annað „móðir“ og „sonur“ á samfélagsmiðlum. Bennett ásakar Argento um að hafa beitt sig kynferðislegu ofbeldi á hótelherbergi í Kaliforníu árið 2013. Hann var þá tæplega 17 ára en hún 38 ára. Lögreglan rannsakar nú ásakanirnar á hendur Argento. Ein forsprakka #MeToo sökuð um kynferðisofbeldi Asia Argento Adrift 12 Morgunblaðið bbbmn Metacritic 56/100 IMDb 6,7/10 Bíó Paradís 22.00 Undir trénu 12 IMDb 7,1/10 Bíó Paradís 20.00 Hearts Beat Loud Metacritic 65/100 IMDb 7,1/10 Morgunblaðið bbbmn Bíó Paradís 20.00 Studniówk@ (The Prom) Bíó Paradís 20.00 The Killing of a Sacred Deer 16 Metacritic 73/100 IMDb 7,1/10 Bíó Paradís 17.40 Personal Shopper 16 Metacritic 77/100 IMDb 6,2/10 Bíó Paradís 18.00 Svanurinn 12 Morgunblaðið bbbmn IMDb 6,6/10 Bíó Paradís 22.00 Mýrin 12 Metacritic 75/100 IMDb 7,0/10 Bíó Paradís 18.00 The Meg 12 Metacritic 46/100 IMDb 6,2/10 Sambíóin Álfabakka 17.00, 17.30, 19.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 17.00, 19.40, 22.10 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.30 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.30 Slender Man 16 Smárabíó 17.30, 19.20, 19.50, 21.40, 22.10, 22.20 Háskólabíó 21.00 Mile 22 16 Laugarásbíó 20.00, 22.15 Sambíóin Keflavík 22.30 Smárabíó 20.10, 22.30 Háskólabíó 18.20, 21.10 Borgarbíó Akureyri 19.30 Mamma Mia! Here We Go Again Morgunblaðið bbbbn Metacritic 60/100 IMDb 7,3/10 Laugarásbíó 17.20, 19.50 Sambíóin Kringlunni 17.00, 19.30 Sambíóin Keflavík 20.00 Smárabíó 17.00, 20.00 Háskólabíó 17.50, 20.40 Borgarbíó Akureyri 17.00, 19.30 The Spy Who Dumped Me 16 Metacritic 51/100 IMDb 6,4/10 Laugarásbíó 20.00, 22.10 Borgarbíó Akureyri 21.30 The Equalizer 2 16 Metacritic 50/100 IMDb 7,1/10 Smárabíó 19.40, 22.30 Hereditary 16 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 87/100 IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 22.15 Sambíóin Egilshöll 22.30 Book Club Metacritic 53/100 IMDb 6,3/10 Háskólabíó 18.00, 20.50 Tag 12 Metacritic 56/100 IMDb 7,1/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 Ocean’s 8 Morgunblaðið bbbnn Metacritic 61/100 IMDb 6,4/10 Sambíóin Álfabakka 17.20 Sambíóin Kringlunni 21.55 Jurassic World: Fallen Kingdom 12 Morgunblaðið bbmnn Metacritic 51/100 IMDb 6,5/10 Laugarásbíó 17.20 Christopher Robin Christopher Robin hittir skyndilega gamlan vin sinn Bangsimon, og snýr með honum aftur í ævintýraheim bernskunnar. Metacritic 59/100 IMDb 8,0/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.00 Sambíóin Egilshöll 17.30 Sambíóin Kringlunni 17.00 Sambíóin Akureyri 17.15 Úlfhundurinn Frábær teiknimynd byggð á metsölubókinni White Fang efti Jack London.Ungur maður vingast við úlfhund og leitar að föður sínum sem er horfinn. Metacritic 61/100 IMDb 6,9/10 Smárabíó 15.10, 17.40 Hin Ótrúlegu 2 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 80/100 IMDb 8,1/10 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00 Sambíóin Egilshöll 17.30 Sambíóin Akureyri 17.30 Hótel Transylvanía 3: Sumarfríið Metacritic 54/100 IMDb 6,4/10 Laugarásbíó 17.30 Smárabíó 15.00, 17.20 Draumur Smárabíó 15.20 Ethan Hunt og sérsveit hans og bandamenn, eiga í kappi við tímann eftir að verkefni mis- heppnast. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 86/100 IMDb 8,4/10 Laugarásbíó 22.25 Sambíóin Álfabakka 18.00, 21.00, 22.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 18.00, 20.00, 22.00 Sambíóin Kringlunni 19.30, 22.30 Sambíóin Akureyri 19.30, 22.30 Mission Impossible - Fallout 16 Kona fer í stríð Kona á fimmtugsaldri ákveður að bjarga heiminum og lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdar- verkamaður og er tilbúin að fórna öllu fyrir móður jörð og há- lendi Íslands þar til mun- aðarlaus stúlka frá Úkraínu stígur inn í líf hennar. Morgunblaðið bbbbb Háskólabíó 18.10 Bíó Paradís 22.00 Ant-Man and the Wasp 12 Hope van Dyne og dr. Hank Pym skipuleggja mikilvæga sendiför, þar sem Ant-Man þarf að vinna með The Wasp til að leiða í ljós leyndarmál úr fortíðinni. Morgunblaðið bbbnn Sambíóin Álfabakka 22.30 Sambíóin Egilshöll 20.00 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.