Morgunblaðið - 22.08.2018, Side 14

Morgunblaðið - 22.08.2018, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2018 Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Framkvæmdir eru hafnar á Land- spítalalóðinni vegna byggingar nýs hátæknisjúkrahúss. Nýr Landspít- ali ohf. (NLSH) hefur í samvinnu við Framkvæmdasýslu ríkisins, samið við lægstbjóðanda, Íslenska aðalverktaka hf. (ÍAV) vegna GVL- verkefnis (götur, veitur og lóð) og jarðvinnu fyrir meðferðarkjarna, sem verður stærsta bygging nýja spítalans, alls um 66 þúsund fer- metrar. Íslenskir aðalverktakar voru lægstir og buðust til að vinna verkið fyrir 2,8 milljarða króna. Um er að ræða framkvæmdir við götur, göngustíga, bílastæði og ann- an lóðafrágang á afmörkuðum svæðum við Hringbrautina auk þess sem jarðvinna verður í grunni húss- ins. Einnig er hugað að gerð bíla- kjallara á síðari stigum til hliðar við meðferðarkjarnann. Um er að ræða 20 mánaða framkvæmdatíma, allt fram á vorið 2020. Meðferðarkjarninn verður stað- settur sunnan við Barnaspítalann og mun ná yfir gömlu Hringbrautina. Breytingar á gatnakerfi sunnan nú- verandi athafnasvæðis Landspítala verða óhjákvæmilegar og munu þær breytingar haldast í hendur við áfangaskiptingu verksins. Áætlað er að gömlu Hringbraut verði lokað á móts við Barónsstíg og Götu 6 (inn- keyrsla á bílaplön LSH) í lok nóv- ember 2018 og mun umferð að og frá Barónsstíg því vera um gömlu Hringbraut til vesturs með núver- andi tengingum við Hringbraut. Þá hefur í sumar verið unnið að gerð bílastæða norðan megin við Umferðarmiðstöðina(BSÍ), og er verkið langt komið. Engar takmark- anir á umferð hafa verið á svæðinu til þessa en tengingar frárennslis- lagna út í götur við BSÍ munu tak- marka þar umferð síðar í þessum mánuði. Reykjavíkurborg leigir Nýjum Landspítala ohf. þetta svæði tíma- bundið, á meðan framkvæmdir standa yfir. Vegna framkvæmdanna innan lóðar Landspítalans lendir stór hluti núverandi bílastæða innan framkvæmdasvæðisins. Á fram- kvæmdatíma er nauðsynlegt talið að tryggja aðgengi að spítalanum fyrir sjúklinga, gesti spítalans og starfs- fólk. Því sé þörf á bráðabirgðabíla- stæði, bæði innan og utan lóðar Landspítalans. Samanlagður fjöldi stæða verður 237, 150 stæði á vest- ari reit og 87 á eystri reit. Gjald- skylda verður á bílastæðunum. Morgunblaðið/sisi Ný bílastæði Unnið hefur verið að gerð nýrra bílastæða fyrir Landspítala norðan við Umferðarmiðstöðina. Jarðvinna vegna nýs Landspítala hafin  Gömlu Hringbrautinni lokað fyrir bílaumferð í nóvember Nýr Landspítali Hinn nýi meðferð- arkjarni verður risastór bygging. Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Þetta er bara svona í dýraríkinu, við ráðum ekki við það. Samtals hafa komið ellefu fóstur í sumar,“ sagði Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., í samtali við mbl.is spurður um veiði á kelfdri lang- reyðarkú, sem dýraverndunar- samtökin Hard to Port birtu myndir af í fyrradag. „Þetta gerist í hvalveiðum, og víðar í dýraríkinu þar sem veiðar eru stundaðar, alls staðar í heim- inum. Þetta hefur verið birt í skýrslum árlega frá 1948. Þetta er ekkert að gerast í fyrsta skipti í dag,“ sagði Kristján. Hann benti einnig á að kelfdar kýr hlytu að vera góðar fréttir fyrir hvalastofninn. „Ef við veidd- um hér heilt sumar og það kæmu engin fóstur væri eitthvað að.“ Leyft að veiða kelfdar kýr „Með því að leyfa hvalveiðar ertu alltaf að leyfa veiðar á kálf- fullum kúm.“ Þetta sagði Edda Elísabet Magnúsdóttir, hvalasér- fræðingur og aðjúnkt í líffræði við Háskóla Íslands, í samtali við mbl.is „Þegar verið er að veiða þessa hvali er ekki nokkur leið að gera greinarmun á kynjum. Kýrn- ar ganga með í ár, svo það eru töluverðar líkur á að veidd sé kýr sem er á einhverju stigi meðgöng- unnar.“ Samkvæmt 2. gr reglugerðar um hvalveiðar er bannað að veiða hvalkálfa, hvali á spena og kven- hvali sem kálfar eða hvalir á spena fylgja. Hins vegar er ekki bannað að veiða kelfdar hvalkýr, enda engin leið að vita hvort þær eru kelfdar eða ekki áður en þær eru veiddar. „Ef þú ert að veiða þessi dýr veistu aldrei hvað þú ert að veiða nema bara hvort dýrið er um það bil fullorðið eða ekki. Þú gerir ekki greinarmun á törfum og kúm, eða hvort þær eru kynþroska eða ekki,“ sagði Edda Elísabet. Afstaða ráðherra er óbreytt Kristján Þór Júlíusson, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, telur ekki rétt að hverfa frá þeirri meginstefnu Íslands að viðhalda rétti til að nýta hvalastofna við landið með sjálfbærum hætti líkt og aðrar lifandi auðlindir hafsins, samkvæmt svari hans við fyrir- spurn um hvalveiðar, sem birt var á vef Alþingis 28. júní. Við spurningunni Styður ráð- herra að hvalveiðistefna Íslend- inga verði endurmetin? svarar ráðherra m.a.: „Í ljósi þeirra miklu hagsmuna sem Ísland hefur af sjálfbærri nýtingu auðlinda hafsins hefur stefna stjórnvalda verið sú að standa gegn því að grafið verði undan meginreglunni um sjálfbæra nýtingu sem byggð er á vísindalegri ráðgjöf, þ.m.t. með því að gerðar séu sérstakar undantekningar frá meginreglunni varðandi ákveðna flokka dýra svo sem sjávarspendýr. Sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra telur ekki rétt að hverfa frá þessari megin- stefnu Íslands.“ Ekki náðist í Kristján Þór við vinnslu fréttarinnar en aðstoðar- maður hans staðfesti að svarið stæði ennþá. Ellefta langreyð- arfóstrið í sumar  Náttúruverndarsamtök birtu mynd- ir af veiðum á kelfdri langreyðarkú Morgunblaðið/Ómar Kristján Loftsson Ekki má veiða kálfa en veiða má kelfdar kýr. „Hún sást í sjónum við bryggjuna í fyrradag. Þetta er fyrsta lundapysj- an sem við fréttum af í ár,“ segir Guðrún Ósk Jóhann- esdóttir, starfsmaður sæ- dýrasafnsins Sæheima í Vestmannaeyjum, í samtali við Morgunblaðið. „Fyrsta pysjan í fyrra kom 15. ágúst en það er misjafnt á milli ára; stund- um sjást þær ekki fyrr en í september. En nú má fólk fara að hafa augun opin á kvöldin og á nóttunni og taka með sér lugt og kassa til að setja þær í,“ segir Guðrún Ósk, en Sæheimar taka við pysjunum til að telja, vigta og mæla áður en þeim er sleppt aftur. Séu þær horaðar og svang- ar eru þær skildar eftir til að fá loðnu í gogginn þar til þær hafa braggast, eða fólk fær að taka þær með sér heim með loðnu í nesti. „Þó að þessi pysja hafi fundist við bryggjuna viljum við benda fólki á að sleppa þeim ekki aftur þar, vegna þess að það gæti verið olíubrák eða grútur í sjónum, sleppa þeim heldur Í vigtun Lundapysjurnar eru mældar í Sæ- heimum áður en þeim er sleppt. Fyrsta lundapysja ársins komin til Eyja  Aðeins seinna á ferðinni en í fyrra Ljósmynd/Sæheimar úti í Klauf eða við Hamarinn,“ segir Guðrún Ósk, sem býst við svipuðu pysjuári og í fyrra, en lítils háttar fjölgun hafi orðið og lundarnir séu að verða úrræðagóðir við að afla sér annarrar fæðu í sandsílaskortinum. ernayr@ mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.