Morgunblaðið - 22.08.2018, Side 16

Morgunblaðið - 22.08.2018, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2018 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Í fréttatilkynningu frá flugfélaginu WOW air sem dagsett er 14. nóv- ember 2017 kom fram að flugfélag- ið hefði fullfjármagnað rekstur fé- lagsins út árið 2019 er fyrirtækið gerði sölu- og endurleigusamning við flugvélaleiguna Sky Leasing vegna tveggja Airbus 321ceo-véla. Fékk flugfélagið þá við afhendingu vélanna fjóra milljarða króna í hendur, sem var að hluta til sölu- hagnaður vegna vélanna en einnig endurgreiðsla vegna kaupanna. Þrátt fyrir það stendur yfir fjár- mögnunarferli á WOW air í dag og í fréttum síðustu daga hefur krefj- andi fjárhagsstaða félagsins komið í ljós. Hefur hún meðal annars kallað á skuldabréfaútgáfu sem norski fjár- festingabankinn Pareto Securities hefur umsjón með. Nemur fjárhæð útgáfunnar 500-1.000 milljónum sænskra króna, sem jafngildir 6 til 12 milljörðum íslenskra króna. Í fjárfestakynningu fyrir skulda- bréfaútgáfuna kom fram að litið væri á hana sem brúarfjármögnun til næstu átján mánaða eða allt þar til WOW air verður sett á markað. Indland ekki í áætlunum Aðspurð hvað hafi breyst frá því að fréttatilkynningin var send út í nóvember til yfirstandandi fjár- mögnunarferlis segir Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air, að misræmið skýrist af áætlunum félagsins um áætlana- flug til Indlands. „Í nóvember á síðasta ári þegar tilkynningin var send út var ekki búið að taka ákvörðun um að hefja áætlunarflug til Indlands sem er umtalsverð fjárfesting fyrir félag- ið. Jafnframt viljum við styrkja okkur til mun lengri tíma en til loka árs 2019 og er því núverandi fjármögnun liður í því,“ sagði Svanhvít er Morgunblaðið leitaði svara. Spurð hvort skilja megi það sem svo að flugfélagið hefði ekki þurft á því fjármagni sem nú er sóst eft- ir að halda ef ekki hefði verið fyrir Indlandsflugið sagði Svanhvít í skriflegu svari til Morgunblaðsins: „Indland er meðal þeirra verkefna sem eru í gangi hjá félaginu og eins og fyrr segir erum við að fjár- magna uppbyggingu félagsins til mun lengri tíma en út 2019.“ Fyrr í sumar kom fram að WOW air hygðist hefja áætlunarflug til Indlands þar sem stendur til að fljúga nýrri Airbus330neo-þotu þangað fimm sinnum í viku. Lista- verð slíkrar þotu er 296,4 milljónir bandaríkjadala, eða um 32 millj- arðar íslenskra króna. Orðrómur þess efnis var aftur á móti löngu kominn á kreik og í frétt á vefsíðu Forbes sem birtist sama dag og tilkynnt var um fjármögnun fé- lagsins út árið 2019, staðfesti Skúli Mogensen, eigandi WOW air, að félagið hygðist bjóða upp á áætl- unarflug til Asíu. Þar nefndi blaða- maður Forbes að Indland væri lík- legasti áfangastaður flugfélagsins í Asíu. Indlandsflug vegur þungt Morgunblaðið/Árni Sæberg Indland Áætlunarflug til Indlands er umtalsverð fjárfesting fyrir WOW air.  Áætlunarflug WOW air til Indlands sagt breyta fjármögnunarforsendum milljörðum króna en var tæpir 23 milljarðar ári fyrr. Handbært fé félagsins hækkar um 1,3 millj- arða milli ára og nemur nú 1,4 milljörðum króna, en var 81 milljón í lok árs 2016. Enn deilur við Glitni Í ársreikningi félagsins er reifað að félagið á enn í deilum við Glitni HoldCo vegna skipta- samninga að upphæð tæplega tveir milljarðar króna auk dráttarvaxta. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá hafa orðið þær breytingar á rekstri félagsins á þessu ári að Brim keypti 34,01% hlut í HB Granda í apríl fyrir 21,7 milljarða króna. Brim gerði öðr- um hluthöfum yfirtökutilboð í kjölfarið og sam- kvæmt því eykur Brim fjárfestingu sína um 1,9 milljarða króna og á því nú alls 37,02% í HB Granda. Þá seldi Brim hf. frystitogarann Brim- nes RE 27 í maí, sem hafa mun jákvæð áhrif á fjárhagsstöðu Brims, eins og segir í ársreikn- ingnum. tobj@mbl.is Hagnaður af rekstri samstæðu útgerðarfyrir- tækisins Brims hf. nam tæpum 1,7 milljörðum króna á árinu 2017, en til samanburðar var hagnaður af rekstri félagsins 116 milljónir árið á undan. Þess ber að geta að árið 2016 voru tveir milljarðar gjaldfærðir vegna áhrifa af gengisdómi sem féll fyrirtækinu í óhag. Rekstartekjur Brims drógust saman um 7,5% á árinu og námu ríflega 7,6 milljörðum króna á síðasta ári en voru 8,3 milljarðar árið 2016. Eigið fé Brims hf. nam um áramótin 24,3 Brim hf. hagnaðist um 1,7 milljarða  Fyrirtækið tekst enn á við Glitni HoldCo um gjaldmiðlaskiptasamninga 22. ágúst 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 107.54 108.06 107.8 Sterlingspund 138.0 138.68 138.34 Kanadadalur 82.56 83.04 82.8 Dönsk króna 16.608 16.706 16.657 Norsk króna 12.758 12.834 12.796 Sænsk króna 11.774 11.842 11.808 Svissn. franki 108.88 109.48 109.18 Japanskt jen 0.9746 0.9804 0.9775 SDR 149.93 150.83 150.38 Evra 123.88 124.58 124.23 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.8008 Hrávöruverð Gull 1188.75 ($/únsa) Ál 1998.0 ($/tonn) LME Hráolía 71.77 ($/fatið) Brent ● Hlutabréf olíufé- lagsins Skeljungs hækkuðu um 8,59% í við- skiptum í Kauphöll Íslands í gær. Námu viðskipti með bréf félagsins tæpum hálfum milljarði króna. Hækkunin varð í kjölfar afkomuviðvör- unar sem félagið sendi frá sér seint á mánudagskvöld í aðdraganda birtingar hálfsársuppgjörs. Þar kemur fram að EBITDA spá ársins 2018 hækki um 300 milljónir króna og er eftir tilkynn- inguna 3.100-3.300 milljónir króna. Áætlanir um fjárfestingar félagsins haldast hins vegar óbreyttar eða í kringum 750-850 milljónir króna. Félagið segir að hækkaða EBTIDA spá megi fyrst og síðast rekja til auk- innar eldsneytissölu, bæði þegar kemur að flugvélaeldsneyti en einnig elds- neyti til erlendra skipa. Skeljungur hækkar í kjölfar viðvörunar STUTT citroen.is Nýir og notaðir bílar: Söludeildir opnar virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 Brimborg Reykjavík Bíldshöfða 8 Sími 515 7040 Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 Sími 515 7050 TRYGGÐU ÞÉR CITROËN SENDIBÍL Á FRÁBÆRU TILBOÐI! ALLT AÐ 500.000 KR.AFSLÁTTUR Komdu og ný ttu þér frábært tilboð ! Gildir til 8. se pt. CITROËN BERLINGO STUTTUR 1,6 dísil beinsk. VERÐLISTAVERÐ MEÐ AUKABÚNAÐI: 2.600.000 KR. MEÐ VSK. TILBOÐSVERÐ: 2.300.000 KR. M. VSK 1.854.000 KR. ÁN VSK. CITROËN JUMPY VAN LANGUR 1,6 dísil beinsk. VERÐLISTAVERÐ MEÐ AUKABÚNAÐI: 4.145.000 KR. MEÐ VSK. TILBOÐSVERÐ: 3.645.000 KR. M. VSK 2.939.000 KR. ÁN VSK. AFSLÁTTUR 300.000 KR. AFSLÁTTUR 500.000 KR. VERÐDÆMI:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.