Morgunblaðið - 22.08.2018, Síða 29

Morgunblaðið - 22.08.2018, Síða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2018 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Finndu út hvar þú best getur komið skoðunum þínum á framfæri því þú vilt að hlustað sé á þig. Þú ert komin/n yfir erfiðasta hjallann í peningamálum. 20. apríl - 20. maí  Naut Þetta getur orðið mjög afkastamikill dagur í vinnunni. Samskipti þín við aðra verða lágstemmd en ánægjuleg. Láttu glósur ann- arra sem vind um eyru þjóta. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Dagurinn í dag er kjörinn til hvers kyns viðgerða á heimilinu. Þú vildir geta snúið hjóli tímans til baka en það er ekki í boði. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Talaðu sem minnst um þitt starf, en hlustaðu þeim mun betur á aðra. Ekki mála sjálfa/n þig út í horn í samskiptum við aðra. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Reyndu að hafa hemil á tilfinningum þín- um þótt þér finnist erfitt að halda aftur af þér í persónulegum málum. Einbeittu þér að þeim sem þurfa á meiri hjálp að halda en þú. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er sjálfsagt að velta tilgangi lífsins fyrir sér. Mundu að neyðin kennir naktri konu að spinna og hikaðu ekki við að gera alvöru úr hugmyndum þínum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú hefðir gott af því að breyta til á ein- hvern hátt, hvort sem er heima fyrir eða í vinnunni. Farðu í stutta ökuferð til að njóta út- sýnisins eða skoðaðu þig um í búðum eða söfnum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú lendir í klemmu þegar náinn vinur leitar til þín um ráðgjöf en vill í raun heyra allt annað en sannleikann. Þar sem fólk fær eitthvað út úr því að gera þér greiða skaltu leyfa því það. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Vinir fara yfir strikið í einlægri við- leitni sinni til þess að hjálpa þér. Þú hefur verið eins og útspýtt hundskinn síðustu vikur, nú skaltu hvíla þig. 22. des. - 19. janúar Steingeit Á komandi vikum er allt eins líklegt að þér gefist kostur á að fara í skemmtiferð. Byrjaðu á því að losa þig við þá tilfinningu að þú eigir það ekki skilið. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Hættu að velta þér upp úr mistök- unum. Komdu vinum þínum á óvart með því að setja gamla uppskrift í nýjan búning. Ræddu málin því alltaf má eitthvað læra af öðrum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Gerðu þér ekki of miklar vonir því þá verða vonbrigðin ekki eins mikil ef hlutirnir ganga ekki upp. Samtöl koma upp um fólk. Kúrðu með ástvini þínum. Kötturinn Jósefína Meuleng-racht Dietrich mjálmaði: „Meðan fólkið þvældist til borg- arinnar gekk ég fram á marbakk- ann“: Föngulegan feng ég greip úr fangi sjávar, ýsu sem ég ætla að éta enda kann ég gott að meta. Sigurlín Hermannsdóttir skrifaði á fimmtudaginn: „Gröfur á gröfum. – Vinnustaður minn er beint á móti gafli Landssímahússins þar sem stórvirkar vinnuvélar hafa farið hamförum við niðurrif. Telja sumir að grafarró þeirra sem hvíla í Vík- urkirkjugarði sé ógnað: Hér handan við götu á hótel að rísa og harkið frá gröfum fer illa með taugar. En sjálfsagt við megum þó sæl okkur prísa ef sjást ei úr gröfunum rísa upp draugar. Guðrún Bjarnadóttir spurði: Sem gufa við lághitalaugar? Eða lurkar farnir á stjá? Ef upprísa einstaka draugar, ná augu vor þá að sjá??? Sigurlín Hermannsdóttir svaraði: „Nú á að fara í uppbyggingu og fyrsti áfangi er að reka niður stálþil svo ekki gæti flóðs og fjöru. Plöturnar í þetta þil komu í gær“: Kirkjugarðinn hylja haugar högg á okkur bylja. Úr gröfum hrekjast gamlir draugar. geymdir milli þilja. Þessa limru kallar Helgi R. Ein- arsson „Straumhvörf“: Ég þekki’ eina helst til hressa, samt háttprúða fram til þessa. Hvort syndin á bankar og sakleysið hankar er spurning um hormóna’og vessa. Jón Atli Játvarðarson skrifar: „Í tilefni af því að Landgræðslan hef- ur skipt um hlutverk og gengið í lið með eitursprautunum og mótororf- unum, gegn gróðurframvindunni eins og við besta þekkjum hana besta, þá varð þessi til nú í morgun: Bara sjá nú berjalyng og brekkur gróskuþunnar. Engan þola umfeðming árar Landgræðslunnar.“ Helgi Ingólfsson bætti við: Í vegagerð við varla neinn svíkjum og vörnum því að sprettan sé græn. Á vegaköntum ráða nú ríkjum Roundup-suddi og lúpína væn. Jón Thoroddsen orti á Mælifells- sandi: Mælifell í mósku vafið, merkjalaus þá verður andi. Strútur einn með stormahafið stingur höfði upp úr sandi. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af fangi sjávar og grafarró „EKKI HAFA ÁHYGGJUR AF ÞESSUM FUNDI. EINN DROPI AF ÞESSU Í KAFFIÐ HANS OG HANN SAMÞYKKIR ALLT SEM ÞÚ SEGIR.“ „HVAÐ ER „STÓRSLYS DAGSINS“?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að skilja að hún hefur marga hæfileika. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann EINHVER GAF ODDA LEIKFANGABANGSA MÉR ÞYKIR LEITT AÐ ÞÚ SKULIR HAFA SÉÐ ÞETTA SLÆMAR FRÉTTIR, HRÓLFUR! ÞÚ ERT GJALDÞROTA! KALLARÐU ÞAÐ SLÆMAR FRÉTTIR? HELGA! VIÐ ERUM FARNIR Í RÁNSFERÐ – SJÁUMST SEINNA!! ÞAÐ ERU GÓÐAR FRÉTTIR! Víkverji lagði leið sína í Selárdal ný-verið og hreifst af því hvernig verk Samúels Jónssonar heitins, sem var bóndi í Brautarholti, hafa verið gerð upp. Samúel var stórhuga með listræna taug. Þegar sóknarnefnd kirkjunnar í Selárdal vildi ekki þiggja altaristöflu, sem hann málaði, að gjöf á 100 ára afmæli hennar vegna þess að önnur var fyrir í kirkjunni ákvað hann að reisa sjálfur kirkju svo að taflan nyti sín. Fyrir vikið eru nú tvær kirkjur í dalnum. x x x Byrjað var að gera upp hús og verkSamúels í kringum aldamótin. Er nokkuð líklegt að hefði ekki verið hafist handa þá væri lítið eftir af styttunum sem hann gerði. Samúel, sem fæddist 1884 og lést 1969, hefur verið kallaður naívisti, en það má spyrja hvort sú nafngift sé sanngjörn. Þótt ekki væri hann víðförull var hann forvitinn um heiminn og sótti innblástur til fjarlægra landa. Hann gerði líkan af Péturskirkjunni í Róm og fyrirmyndina að ljónagosbrunn- inum, sem hann steypti, sótti hann til Alhambra á Spáni. x x x Hollvinafélagið um uppbyggingu ídalnum hefur unnið þarft starf og heimsókn í dalinn er vissulega þess virði. Þýski myndhöggvarinn Gerhard König hefur tekið ástfóstri við staðinn og á mikinn heiður af upp- byggingunni. Hann hefur um árabil unnið að því að gera upp húsin og listaverkin í Brautarholti, oft með er- lend ungmenni sér til aðstoðar. Hann segir að erfiðast hafi verið að vinna að uppbyggingunni á árunum eftir bankahrunið því að þá hafi lítinn stuðning verið að hafa og oft hafi hann verið einn að athafna sig. x x x Heimildir um hvernig umhorfs var íBrautarholti eru ekki miklar og oft þarf að geta sér til um til dæmis hvaða liti eigi að nota. Litir á ljós- myndum geta hafa dofnað og fölnað og gætu eins hafa verið teknar nokkru eftir að var málað og því borið vindi og veðrum vitni. Það er hins vegar til fyrirmyndar að minningu Samúels skuli haldið á lofti með þess- um hætti. vikverji@mbl.is Víkverji Og þetta er traustið sem við berum til hans: Ef við biðjum um eitthvað eftir hans vilja, þá heyrir hann okkur. (Fyrsta Jóhannesarbréf 5.14)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.