Morgunblaðið - 22.08.2018, Síða 30

Morgunblaðið - 22.08.2018, Síða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2018 VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Sýningar vetrarins eiga það sam- eiginlegt að skoða manneskjuna og samfélagið í öllum sínum myndum. Við leggjum upp með mikla fjöl- breytni og kraftmikil verk sem ætl- að er að örva hug og hjarta áhorf- enda,“ segir Kristín Eysteinsdóttir borgarleikhússtjóri um komandi starfsár. Fyrsta frumsýning vetrarins er á Litla sviðinu 14. september þar sem Valur Freyr Einarsson leikur í ein- leiknum Allt sem er frábært eftir Duncan Macmillan í þýðingu Krist- ínar Eiríksdóttur og leikstjórn Ólafs Egils Egilssonar. „Okkur hefur lengi langað til að nýta Litla sviðið sem hringsvið, enda besta hringsvið landsins og frábært leikrými, og þarna gefst tækifæri til þess,“ segir Kristín. Hún lýsir leikritinu sem vel- líðunarverki þótt vissulega sé um- fjöllunarefnið bæði vandasamt og brýnt. „Verkið fjallar um samband drengs við móður sem er að glíma við þunglyndi og sjálfsvígstilraunir. Hann ákveður að gera lista yfir allt sem er gott í heiminum og gerir lífið þess virði að lifa því. Til að byrja með rata inn á listann hlutir eins og ís og vatnsslagur, en breytist með árunum í ævilanga áminningu um það að gleði er ekki síst að finna í hlutum sem við fyrstu sýn virðast léttvægir.“ Nóra snýr aftur 15 árum síðar Fyrsta frumsýningin á Nýja svið- inu verður 21. september, en þar er um að ræða Dúkkuheimili, 2. hluta eftir Lucas Hnath í þýðingu Sölku Guðmundsdóttur og leikstjórn Unu Þorleifsdóttur. Í verkinu, sem er frá 2017, skoðar Hnath hvað gerist þeg- ar Nóra Helmer, sem yfirgaf eigin- mann sinn og börn undir lok Dúkku- heimilis Ibsens, snýr aftur 15 árum síðar. „Verkið hefur sópað að sér Tony- verðlaunum vestanhafs og er ótrú- lega vel skrifað verk um hjónaband- ið og hvað það inniber að eiga í sam- bandi við aðra manneskju,“ segir Kristín og tekur fram að stjórn- endum leikhússins hafi þótt spenn- andi að gefa Unni Ösp Stef- ánsdóttur og Hilmi Snæ Guðnasyni, sem fóru með hlutverk Helmer- hjónanna í margverðlaunaðri upp- færslu Borgarleikhússins á Dúkku- heimilinu sem frumsýnd var í árslok 2014, tækifæri á að nálgast sömu persónur aftur í nýjum kring- umstæðum enda ekki oft sem leik- arar fá tækifæri til þess. Með önnur hlutverk fara Ebba Katrín Finnsdóttir og Margrét Helga Jóhannsdóttir. „Það er ótrú- lega gaman að fá Margréti Helgu aftur á svið, en hún leikur fóstruna sem ól fyrst upp Nóru og síðan dótt- ur hennar. Með hlutverk dóttur- innar fer Ebba Katrín, sem er nýút- skrifuð leikkona sem við kynnum til leiks. Leikritið byggist mikið á upp- gjörsdrifnum tveggja manna senum. Það sem heillaði mig mest við verk- ið, fyrir utan hvað það er vel skrifað, eru hugleiðingarnar um stöðu hjónabandsins í nútímasamfélagi. Í uppfærslu okkar á Dúkkuheimili Ibsen fórum við þá leið að færa klassíkina nær samtímanum. Dúkkuheimili, 2. hluti er staðsett í kringum aldamótin 1900, en verkið á í afar áhugaverðu og virku samtali við samtímann.“ Alltaf gaman að kynna nýtt íslenskt leikskáld til leiks Að vanda leggur Borgarleikhúsið rækt við íslensk leikskáld, en fyrsta frumsýning leikársins á íslensku verki er Tvískinnungur eftir Jón Magnús Arnarsson í leikstjórn Ólafs Egils Egilssonar á Litla sviðinu 3. nóvember. „Við erum stolt af því að sjá hverju þetta ræktarstarf okkar við íslenska höfunda hefur skilað. Það skiptir miklu máli að eiga gott samtal við höfunda, styðja við þá og gefa þeim tíma og rými til að þróa verk sín,“ segir Kristín og rifjar upp að á Listahátíð í Reykjavík 2016 hafi Jón Magnús tekið þátt í höfunda- smiðju Borgarleikhússins í sam- starfi við Félag leikskálda og hand- ritshöfunda. „Við vorum mjög hrifin af örverk- inu hans sem þá var sýnt og hvött- um hann til að skrifa örverkið út sem verk í fullri lengd,“ segir Krist- ín og tekur fram að það sé alltaf gaman að kynna nýtt leikskáld til leiks. „Jón Magnús hefur einstakan stíl og nýja rödd, en hann vinnur mikið með nútímatexta sem er að stórum hluta í bundnu máli.“ Tví- skinnungi er lýst sem einvígi þar sem tveir leikarar takast á við tví- saga fortíð. „Þetta er hrátt verk og sveitt, þar sem fíkn, meðvirkni, ást- ríður og þráhyggja eru leiðarstefið,“ segir Kristín. Með hlutverk fara Haraldur Ari Stefánsson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir. Ríkharður glímir við fimm kynslóðir kvenna Síðasta frumsýningin í ár og jafn- framt sú fyrsta á Stóra sviðinu er Ríkharður III eftir William Shake- speare í þýðingu Kristjáns Þórðar Hrafnssonar og leikstjórn Brynhild- ar Guðjónsdóttur. Uppfærslan verð- ur frumsýnd 29. desember. „Það er orðið töluvert langt síðan við negld- um þetta verk sem næstu jólasýn- ingu okkar. Þetta er einstakt verk og kominn tími á þessa sögu núna. Það er ótrúlega spennandi að fá Brynhildi til að leikstýra þessu leik- riti sem er frá þeim tíma í leiklistar- sögunni sem hún hefur mikinn áhuga á og hefur grúskað mikið í. Hennar sýn á verkið heillaði okkur mjög,“ segir Kristín og bendir á að Brynhildur leggi áherslu á átök kynjanna. „Í verkinu setja valdamiklir karl- ar leikreglur heimsins og valdalitlar og fámálar konur eiga ekki annarra kosta völ en að hlýða. Markmið Rík- harðs er að ná algerum yfirráðum og leið hans til valda er blóði drifin. Ríkharður glímir við fimm kynslóðir kvenna sem gera allt sem þær geta til að hindra framgöngu hans,“ segir Kristín og bendir á að oft þegar leik- ritið sé sett upp sé kvenhlutverkum fækkað og meiri áhersla lögð á karl- hlutverkin. „Við erum með miklar hæfileika- konur í hlutverkum lykilkvenna í lífi Ríkharðs. Kristbjörg Kjeld leikur Margréti, Sigrún Edda Björnsdóttir leikur Sesselju móður Ríkharðs, Edda Björg Eyjólfsdóttir leikur Elísabetu, Þórunn Arna Kristjáns- dóttir leikur lafði Önnu og dans- arinn Sólbjört Sigurðardóttir túlkar Elísabetu yngri,“ segir Kristín, en með titilhlutverkið fer Hjörtur Jóhann Jónsson. „Hann er á hár- réttum stað á sínum ferli til að tak- ast á við þetta hlutverk og það verð- ur afar spennandi áskorun fyrir hann að glíma við þetta hlutverk.“ Lífið frá sjónarhóli dauðans Fyrsta frumsýning á nýju ári og jafnframt fyrra samstarfsverkefni Borgarleikhússins af tveimur þetta leikárið er þriðji einleikur Charlotte Bøving. Hann nefnist Ég dey og verður frumsýndur á Nýja sviðinu 4. janúar. „Við vitum auðvitað öll að við munum einhvern tímann deyja, engu að síður er dauðinn útilokaður úr samfélaginu. Þegar vinkona Charlotte veiktist fór hún að skoða lífið frá sjónarhóli dauðans og dauð- ann frá sjónarhóli lífsins. Hún gerir þetta á fallegan, skemmtilegan og einlægan hátt. Ég held að þetta verði sýning sem muni rista mjög djúpt, en jafnframt vekja ákveðna vellíðan.“ Leikstjóri uppfærslunnar er Bergur Þór Ingólfsson, en hún er unnin í samstarfi við Opið út. Núna 2019 er yfirskrift sýningar sem frumsýnd verður á Litla sviðinu 11. janúar þegar liðin verða 122 ár frá stofnun Leikfélags Reykjavíkur. „Þetta er framhald af sýningunni Núna sem rataði á svið 2013, en þá voru sýnd stuttverk eftir Tyrfing Tyrfingsson, Kristínu Eiríksdóttur og Sölku Guðmundsdóttur sem hafa öll skipað sér í framvarðarsveit íslenskra leikskálda. Okkur langaði að endurtaka leikinn og leituðum til sex ungra höfunda um hugmyndir að 30 mínútna leikritum og urðu þrjár kraftmiklar og spennandi hug- myndir fyrir valinu.“ Höfundar þeirra eru Hildur Selma Sigbertsdóttir, Matthías Tryggvi Haraldsson og Þórdís Helgadóttir. „Verk þeirra hafa síðan verið þróuð áfram í samvinnu við dramatúrga Borgarleikhússins og leikstjóra verkefnisins, Kristínu Jó- hannesdóttur, og verða sýnd saman á einu kvöldi,“ segir Kristín og tekur fram að sér hafi þótt spennandi að tefla ungum óreyndum höfundunum saman við mjög reyndan leikstjóra. „Það býr til afar spennandi samtal á báða bóga,“ segir Kristín og tekur fram að vonandi verði hægt að sýna ný íslensk leikrit undir yfirskriftinni Núna á um þriggja ára fresti. „Enda finnst okkur mikilvægt að leggja rækt við og efla ung upprenn- andi leikskáld. Á síðustu misserum höfum við aukið þróunarstarf okkar með höfundum. Ef við höfum trú á einhverri hugmynd eða drögum sem við sjáum veitum við viðkomandi leikskáldi starfslaun í tvo til þrjá mánuði til að vinna verkið lengra og ef okkur líkar afraksturinn kaupum við það til uppsetningar. Markmið okkar er að styðja við leikskáldin og fá fleiri íslensk verk til að fara alla leið.“ Matthildur stútfull af töfrum Seinna samstarfsverkefni ársins nefnist Club Romantica og er eftir Friðgeir Einarsson í leikstjórn höf- undar. Uppfærslan, sem unnin er í samtarfi við Kriðpleir, verður frum- sýnd á Nýja sviðinu 28. febrúar. „Þetta byrjaði allt með mynda- albúmi ókunnugrar konu sem Frið- geir keypti á flóamarkaði í Belgíu. Í sýningunni reynir hann, út frá myndunum, að geta í eyðurnar um það hvernig líf þessarar konu hafi verið. Sýningin spyr áhugaverðra spurninga um hvernig við sköpum minningar, ekki síst á tímum þar sem við erum stanslaust að taka myndir,“ segir Kristín og bendir á að með Friðgeiri á sviðinu verður tónlistarmaðurinn Snorri Helgason sem semur tónlist sérstaklega fyrir verkið. Söngleikurinn Matthildur, sem byggist á samnefndri skáldsögu Roalds Dahl í leikgerð Dennis Kelly og með tónlist eftir Tim Minchin, verður frumsýndur á Stóra sviðinu 15. mars í leikstjórn Bergs Þórs Ingólfssonar, en þýðandi er Gísli Rúnar Jónsson. „Við höfum um nokkurra ára bil haft áhugastað á þessu verki,“ segir Kristín, en söng- leikurinn var frumsýndur hjá Royal Shakespeare Company 2010 og fór þaðan á bæði West End og Broad- way þar sem hann hefur slegið að- sóknarmet. Að sögn Kristínar gildir um Matthildi, líkt og fyrri söng- leikjauppfærslur Borgarleikhússins, að listrænir stjórnendur hafa frjáls- ar hendur í sínu sköpunarferli og fylgja ekki neinni forskrift að utan. „Þetta er frábær fjölskyldusöng- leikur því hann virkar á tveimur plönum og talar samtímis til barna og fullorðinna. Þetta er mjög mikil- væg saga um stúlku sem býr við erf- iðar aðstæður þar sem foreldrar hennar sjá ekki úr hverju hún er gerð og hvar hæfileikar hennar liggja. Hún berst við ranglæti heimsins með töfrum, en skólastjór- inn Karítas Mínherfa er hreinasta martröð,“ segir Kristín og bendir á að Matthildur þrói með sér ofur- krafta. „Það er spennandi áskorun að útfæra þá krafta fyrir leiksviðið. Það er smá Harry Potter-andblær yfir þessari sögu og djúpur boð- skapur. Þetta er sýning sem er stút- full af töfrum og húmor, þótt hún sé dökk,“ segir Kristín og tekur fram að skemmtilegt hafi verið að leita að öllum þeim hæfileikabörnum sem taka þátt í sýningunni. Vald og valdaleysi leiðarstef í Kæru Jelenu Leikritið Kæra Jelena eftir Ljúd- mílu Razúmovskaju í leikstjórn Unnar Aspar Stefánsdóttur verður frumsýnt á Litla sviðinu 12. apríl. „Við lásum og heilluðumst af þessu leikriti, sem sló rækilega í gegn hér- „Verk sem ætlað er að örva  Þrír nýir einleikir rata á svið hjá Borgarleikhúsinu í vetur  Hjónabandið og samskipti kynjanna til skoðunar í verkum leikársins  Sex ný verk eftir íslenska höfunda frumsýnd Leitar þú að traustu BÍLAVERKSTÆÐI Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR 587 1400 Við erum sérhæfðir í viðgerðum á amerískum bílum. Mótorstilling býður almennar bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.