Morgunblaðið - 22.08.2018, Page 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2018
/////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
///////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
Skálmöld og Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands taka höndum saman á ný og
halda alls ferna tónleika í vikunni í
Eldborgarsal Hörpu. Samstarf þeirra
komst fyrst í hámæli árið 2013 þegar
sveitirnar héldu nokkra tónleika
saman við frábærar undirtektir. Í ár
munu þrír kórar veita þeim liðsinni á
tónleikunum; Karlakór Reykjavíkur,
Kammerkórinn Hymnodia og Barna-
kór Kársnesskóla. Hljómsveit-
arstjóri er Bernharður Wilkinson.
Leikið verður nýtt efni í bland við
gamalkunn lög.
Fyrstu tónleikarnir verða í kvöld,
miðvikudag, kl. 20. Næstu tónleikar
verða á fimmtudagskvöld og föstu-
dagskvöld kl. 20. Síðustu tónleik-
arnir verða laugardaginn 25. ágúst
kl. 17.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Prufa Við æfingu í Hörpu. Fjöldi tónlistarmanna kemur að tónleikunum í ár.
Skálmöld og Sinfó snúa aftur
lendis fyrir tæpum 30 árum. Leiðar-
stef verksins um vald og valdleysi
kallast með öflugum hætti á við um-
ræðu samtímans,“ segir Kristín og
bendir á að þótt verkið hafi verið
skrifað 1980 og látið gerast í Sovét-
ríkjunum hafi það elst mjög vel. „Í
huga margra er þetta mjög eftir-
minnileg sýning. Það verður gaman
að færa áhorfendum þetta verk í
nýjum búningi.“
Leikritið fjallar um hóp mennta-
skólanemenda sem kemur óvænt í
heimsókn til umsjónarkennara síns
með gjafir undir því yfirskini að
óska henni til hamingju með afmæl-
ið. Fljótlega kemur í ljós að raun-
verulegur tilgangur heimsóknar-
innar er allt annar en að gleðja
kennara sinn. „Í Kæru Jelenu tak-
ast á kynslóðir í verki sem spyr
stórra spurninga um siðferðisleg
mörk, einstaklingshyggju og hug-
sjónir.
Hvar liggja mörk okkar frá því að
vera framagjörn og metnaðarfull
yfir í að vera yfirgangssöm, ofbeld-
isfull og siðblind,“ segir Kristín og
bendir á að Kristín Eiríksdóttir hafi
yfirfarið þýðingu móður sinnar,
Ingibjargar Haraldsdóttur, og fært
það nær áhorfendum bæði í stað og
tíma. Halldóra Geirharðsdóttir leik-
ur kennslukonuna, en í hlutverkum
nemendanna eru Aron Már Ólafs-
son, Haraldur Ari Stefánsson, Sig-
urður Þór Óskarsson og Þuríður
Blær Jóhannsdóttir.
Þenja þolmörk leikhússins
Síðasta frumsýning leikársins
verður á Nýja sviðinu 27. apríl. Þar
er um að ræða Bæng! eftir Marius
von Mayenburg í þýðingu Hafliða
Arngrímssonar og leikstjórn Grétu
Kristínar Ómarsdóttur. „Hér er um
að ræða nýjasta leikritið eftir eitt
þekktasta núlifandi leikskáld Þýska-
lands,“ segir Kristín og tekur fram
að hún sé mikill aðdáandi Mayen-
burg sem leikskálds, en hún leik-
stýrði leikritinu hans, Hinum ljóta,
fyrir nokkrum árum. „Það er mjög
gaman að vinna með leikritin hans
sem leikstjóri, því hann gefur svo
mikið rými til túlkunar. Það er eins
og að leysa gestaþraut þegar maður
vinnur með verkin hans, því hann
leyfir manni ekki að vera hefðbund-
inn. Maður verður að sleppa öllu
lausu og leyfa ákveðið kaos í fagur-
fræðinni. Hann er alltaf að reyna að
þenja þolmörkin í leikhúsinu og það
er skemmtileg áskorun fyrir leik-
stjóra og leikhóp,“ segir Kristín og
bendir á að Bæng! sé gegnsýrt af
pólitískum tilfinningum og kolsvört-
um húmor sem ekkert er heilagt.
Leikritið fjallar um undrabarnið
Hrólf Bæng, sem að eigin áliti er
bjargvættur mannkyns. „Björn
Thors túlkar þetta einstaka undra-
barn sem fæðist fullskapað. For-
eldrar hans, sem eru víðsýnt, vel
stætt og gott fólk, eru staðráðnir í
að ala upp óskabarn þjóðar. Þeir líta
á hann sem snilling þó svo hann vaði
yfir alla á skítugum skónum og hafi
rutt tvíburasystur sinni úr vegi í
móðurkviði.“
Fimm sýningar snúa aftur
Ein gestasýning fer á svið þetta
leikárið, en það er Kvenfólk eftir
Hjörleif Hjartarson og Eirík Steph-
ensen, sem skipa Hund í óskilum, í
leikstjórn Ágústu Skúladóttur sem
frumsýnd var hjá Leikfélagi Akur-
eyrar á síðasta leikári. „Þeir hafa
verið tvisvar áður með sýningar
hérna og mjög gaman að fá þá í hús.
Þeir eiga mjög stóran aðdáendahóp
meðal okkar áhorfenda.“
Fimm sýningar frá fyrra leikári
rata aftur á svið. Söngleikurinn Elly
verður tekinn aftur til sýningar á
Stóra sviðinu 31. ágúst; söngleik-
urinn Rocky Horror verður tekinn
aftur til sýningar á Stóra sviðinu 8.
september; einleikurinn Jólaflækja
snýr aftur á Litla sviðið í nóvember
þar sem Björgvin Franz Gíslason
tekur við hlutverki Einars af Bergi
Þór; gamanleikurinn Sýningin sem
klikkar flyst yfir á Stóra sviðið frá
og með 6. apríl auk þess sem Fólk,
staðir og hlutir snýr, vegna mikillar
eftirspurnar, aftur á Litla sviðið frá
og með 13. febrúar, en aðeins er
hægt að sýna 20 sýningar.
Alltaf að leita að nýjum góðum
verkum eftir konur
Líkt og í fyrra er kynjahlutfall
leikstjóra jafnt á komandi leikári,
en athygli vekur að það hallar nokk-
uð á konur í hópi leikskálda. Spurð
hvernig henni líði með það svarar
Kristín: „Við ræddum þetta gaum-
gæfilega þegar við skipulögðum
leikárið. Við erum alltaf að leita að
nýjum góðum verkum eftir konur
og finnst þess vegna spennandi að
vera með tvær ungar konur í hópi
höfunda í Núna 2019. Leikhúsheim-
urinn hefur í gegnum tíðina verið
mjög karllægur og það er enn þann-
ig að mörg af þeim nýju verkum
sem slá í gegn úti í hinum stóra
heimi eru eftir karlmenn. Þannig að
slagsíðan frá fyrri tíma er enn til
staðar. Við erum mjög meðvituð um
kynjahlutfallið í hópi höfunda og
erum alltaf að leitast við að gera
betur.“
Starfsmenn leikhússins komi
sér saman um samskiptareglur
Ekki er hægt að sleppa Kristínu
án þess að ræða hvernig stjórn-
endur hafa tekið á kynferðislegri
áreitni innan menningarstofnana í
sviðslistum. Kristín er formaður
SAVÍST, samtaka atvinnuveitenda
í sviðslistum, sem í kjölfar #metoo-
byltingarinnar síðasta vetur létu
sálfræðistofuna Líf og sál gera fag-
lega úttekt á stöðunni hjá þeim
menningarstofnunum sem aðild
eiga að samtökunum, en það eru
Borgarleikhúsið, Harpa, Íslenska
óperan, Íslenski dansflokkurinn,
Menningarfélag Akureyrar, RÚV,
Sinfóníuhljómsveit Íslands og Þjóð-
leikhúsið. Rannsóknarniðurstöður
lágu fyrir fyrr í sumar og þar sögð-
ust alls 7,5% svarenda hafa orðið
fyrir einelti í starfi, 7% sögðust hafa
orðið fyrir kynferðislegri áreitni,
7,6% sögðust hafa orðið fyrir kyn-
bundinni áreitni og 5,1% sagðist
hafa orðið fyrir ofbeldi, einkum
andlegu eða sálrænu, á því 24 mán-
aða tímabili sem til rannsóknar var.
„Hver stofnun fékk síðan niður-
stöðurnar sem snúa að henni. Á
starfsdegi með öllum starfs-
mönnum Borgarleikhússins í upp-
hafi leikárs kynnti starfsmaður frá
Lífi og sál niðurstöður sem snúa að
okkur og kom með tillögur að leið-
um að því að vinna framhaldið. Lið-
ur í því er að starfsmenn leikhúss-
ins komi sér saman um samskipta-
reglur,“ segir Kristín og bendir á að
ráðning mannauðsstjóra við Borg-
arleikhúsið sé einnig ein af tillög-
unum sem fylgt verði. Bendir hún á
að nokkur ár séu síðan því fyrir-
komulagi var komið á hjá Borg-
arleikhúsinu að hafa trúnaðarmann
í hverri leiksýningu auk þess sem
trúnaðarmenn stéttarfélaga gegni
mikilvægu hlutverki í að taka á
þeim málum sem upp kunna að
koma. „Ég upplifi ákveðna viðhorfs-
breytingu og að fólk eigi almennt
auðveldara með að ræða þau erfiðu
mál sem upp kunna að koma. Ég
vona að minnsta kosti að svo sé.“
hug og hjarta“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
» Við erum stolt af þvíað sjá hverju þetta
ræktarstarf okkar við
íslenska höfunda hefur
skilað. Það skiptir miklu
máli að eiga gott samtal
við höfunda, styðja við
þá og gefa þeim tíma og
rými til að þróa verk sín.
Fjölbreytileiki „Sýningar
vetrarins eiga það sameig-
inlegt að skoða manneskjuna
og samfélagið í öllum sínum
myndum,“ segir Kristín
Eysteinsdóttir borgarleik-
hússtjóri um komandi leikár.