Morgunblaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
v
595 1000
GRAN CANARIA
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fr
irv
ar
a.
11 OKTÓBER Í 18 NÆTUR
HOTEL ROQUE NUBLO
Frá kr.
119.900
Flugsæti
59.900*
* Flugsæti báðar leiðir með tösku og handfarangri
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar krefst
þess að í nýrri vegaáætlun, sem lögð
verður fram á Alþingi í haust, verði
tryggt fjármagn til að ráðast í brýn-
ar framkvæmdir á Reykjanesbraut í
gegnum Hafnarfjörð. „Skilvirkar
samgöngur á svæðinu og öryggi veg-
farenda er í húfi,“ segir í ályktuninni,
sem samþykkt var samhljóða á
bæjarstjórnarfundi í gær.
Í ályktuninni er lýst vonbrigðum
með að framkvæmdir við Reykjanes-
braut séu ekki hafnar og að ekki sé
gert ráð fyrir þeim í nýjustu útboðs-
verkefnum Vegagerðarinnar.
„Umferð um Reykjanesbraut hef-
ur margfaldast. Þetta álag á einfalda
brautina í gegnum Hafnarfjörð hef-
ur leitt til mikilla umferðartafa á
þeim kafla og sífellt fleiri slysa. Er
því ljóst að ekki er hægt að bíða leng-
ur með að ráðast í tvöföldun hennar
á þeim kafla,“ segir í ályktuninni.
„Eins og allir vita er samgöngu-
áætlun á lokametrunum hjá sam-
gönguráði áður en hún kemur til
okkar. Samgönguáætlun verður eitt
af fyrstu skjölunum sem lögð verða
fram þegar þing kemur saman í
september og svarið kemur þá,“
sagði Sigurður Ingi Jóhannsson,
samgöngu- og sveitarstjórnarráð-
herra, þegar Morgunblaðið innti
hann svara um kröfu Hafnfirðinga í
gærkvöld.
Sigurður Ingi kveðst meðtaka
áhuga og áskorun Hafnfirðinga. „En
það er ekkert nýtt að sveitarfélög
um allt land knýi á um framkvæmdir
í nærumhverfi sínu. Það er heldur
ekkert nýtt að það sé samstaða um
þær framkvæmdir sem menn telja
helstar í bæjarstjórnum. Það eina
sem ég get sagt er að í þessari vinnu
við samgönguáætlun höfum við þann
forgang að hafa umferðaröryggi í há-
vegum – þar er mestur ávinningur.“
Hafnfirðingar krefjast fjár á
vegaáætlun til framkvæmda
Ráðherra svarar ekki hvort Reykjanesbraut verði tvöfölduð
Morgunblaðið/Hari
Reykjanesbraut Þrýst er á um tvö-
földun vegarins í Hafnarfirði.
Til stendur að
bjóða öllum sér-
fræðingum sem
starfa á ýmsum
stöðum við þjóð-
garða og á öðrum
friðlýstum svæð-
um starf þegar
stjórn þjóðgarða
og friðlýstra
svæði verður
sameinuð í nýrri
stofnun. Þetta kom fram í máli Guð-
mundar Inga Guðbrandssonar, um-
hverfis- og auðlindaráðherra, á
fundi í Hafnarfirði í gær með
hagsmunaaðilum vegna frumvarps-
ins um nýja stofnun sem mun fara
með umsýslu þjóðgarða og annarra
friðlýstra svæða.
Þá kom fram á fundinum að gert
væri ráð fyrir að heimila gjaldtöku
fyrir veitta þjónustu.
Fundargestur spurði ráðherra
hvaða breytinga mætti vænta varð-
andi störf sérfræðinga sem eru nú á
fleiri stöðum. Þessu svaraði Guð-
mundur Ingi og sagði að til stæði að
bjóða öllum starf en að ekkert væri
ljóst með starfsheiti og verksvið, að
undanskildum þjóðgarðsvörðum þar
sem starf þeirra er skilgreint í
lögum.
Haldi sjálfstæði sínu
Markmiðið með nýrri stofnun er
að „auka samleið og skilvirkni,“ að
sögn hans. Jafnframt verði stefnt að
því að þjóðgarðarnir haldi sjálfstæði
sínu en verði undir samræmdu utan-
umhaldi og að miðlægur stuðningur
við starfssvið þeirra efli starfsem-
ina.
Stefnt er að því að skipta landinu
upp í umdæmi sem munu hafa eigin
stjórnir með aðkomu sveitarfélaga
og hagsmunaaðilum og munu um-
dæmin vera samsett með svipuðum
hætti og svæðisráð Vatnajökuls-
þjóðgarðs eru nú.
Guðmundur Ingi sagði þó að land-
fræðileg skipun umdæmanna væri
ekki ákveðin og að það myndi koma í
hlut nýrrar stofnunar að móta hana.
Ráðherrann hefur haldið fundi
víða um land vegna frumvarpsins og
verða næstu fundir haldnir á Egils-
stöðum, Höfn í Hornafirði og Hvols-
velli. gso@mbl.is
Til stendur
að bjóða
öllum starf
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
Heimila gjaldtöku
fyrir veitta þjónustu
Líffræðingar hjá Náttúrufræðistofu Kópavogs
hafa í vikunni tekið sýni í Reykjavíkurtjörn.
Að sögn Haraldar Ingvasonar líffræðings er
annars vegar verið að kortleggja gróðurinn í
Tjörninni en hins vegar að leggja gildrur fyrir
hornsíli og smádýr. „Við erum bæði að fylgjast
með gróðurútbreiðslu og taka sýni af smádýra-
lífi. Vonandi segir það okkur einhverja sögu um
það sem er að gerast í Tjörninni,“ segir Har-
aldur.
Hann býst við að niðurstöður liggi fyrir á
næsta ári. Stakkaskipti hafa orðið hvað varðar
gróðurfar á botni Tjarnarinnar síðustu ár. Fyrir
áratug var hún nánast gróðurlaus en nú er
Tjörnin „kafgróin“ að stærstum hluta.
Rannsaka gróðurfar og hornsíli í Tjörninni
Morgunblaðið/Eggert
Starfsmenn Náttúrufræðistofu Kópavogs við árlega sýnatöku
Lísbet Sigurðardóttir
lisbet@mbl.is
Félag foreldra leikskólabarna í
Reykjavík telur frekari þörf á betr-
umbótum í málefnum leikskóla
borgarinnar. Þetta segir Helgi Þór
Guðmundsson, stjórnarmaður fé-
lagsins og foreldri leikskólabarns.
Hann segir foreldra leikskólabarna
vera áhyggjufulla vegna mönnunar-
skorts í leikskólum, en samkvæmt
frétt Morgunblaðsins í gær eru enn
203 börn sem bíða eftir leikskóla-
plássi í Reykjavík, eða um 13%
þeirra barna sem hafa sótt um
pláss á leikskólum. „Við erum mjög
áhyggjufull yfir stöðu mála og erum
búin að fylgjast
grannt með
þessu síðustu ár-
in,“ segir Helgi.
Hann segir að
foreldrar óttist
hve langvarandi
vandamálið sé
orðið og vill fé-
lagið kalla eftir
róttækum breyt-
ingum. „Við ótt-
uðumst einmitt þetta, að mannekl-
an yrði vandamál enn eitt árið, sem
hún er orðin, þótt hún sé ekki alveg
jafn mikil og í fyrra. Við bíðum
bara átekta, hvernig borgin bregst
við þessu vandamáli. Það þarf að
standa við stóru orðin,“ segir Helgi.
Helgi nefnir að hluti vandans sé
sá hópur sem vinnur undir lág-
mörkum kjarasamninga fyrir borg-
ina, ófaglærðir einstaklingar sem
vinna á leikskólum. „Það gengur
gríðarlega erfiðlega að halda fólki í
starfi [á leikskólum] og fá fólk til
starfa. Þetta er það fólk sem fyllir
upp í flest stöðugildin á leikskól-
unum í dag, ófaglærðir einstakling-
ar.“
Þá bendir hann á að mannekla á
leikskólum hafi áhrif á fjölskyldulíf.
„Vandamálið rúllar bara yfir á
heimilið. Einhvers staðar þurfa
börnin að vera og fólk hefur sínum
störfum að sinna. Þannig að í ein-
hverjum tilvikum hefur verið mikill
flumbrugangur með það að koma
börnunum í pössun hingað og þang-
að, eða jafnvel að foreldrar taki sér
frí. Margir foreldrar brenndu upp
sumarleyfi sitt á vinnustöðum í
manneklunni í fyrra til þess að vera
með börnunum sínum, til þess að
halda þeim öruggum. Þá á móti
gekk það á samverustundir fjöl-
skyldunnar yfir sumartímann.“
Jafnframt segir hann skorta úr-
ræði varðandi sumarfrí leikskóla-
barna. „Börnin eru skyldug til að
taka sér sitt sumarfrí. […] Þetta er
náttúrlega ekkert annað en skerð-
ing á þjónustu við börnin og skerð-
ing á námi þeirra,“ segir Helgi.
Borgin standi við stóru orðin
Staða leikskóla borgarinnar áhyggjuefni að mati foreldra leikskólabarna
Helgi Þór
Guðmundsson