Morgunblaðið - 23.08.2018, Qupperneq 72
FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 235. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Erlendir fjölmiðlar fjalla um Stefán Karl
2. Hermann Hreiðars skráir sig í samband
3. Gömlu Hringbrautinni lokað
4. Fundu heróín fyrir tilviljun
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitin Grúska Babúska held-
ur tónleika í Hannesarholti í kvöld kl.
20. Sveitin lýsir tónlist sinni sem
gáskafullri og barnslegri, en á sama
tíma sé hún dimm og þrungin alvöru.
Nýjasta plata sveitarinnar er senn
væntanleg hjá Möller Records.
Grúska Babúska leik-
ur í Hannesarholti
Ragna Ragnars-
dóttir hlýtur
Formex Nova-
hönnunarverð-
launin í ár. Að
mati dómnefndar
er hönnun Rögnu
samtímis per-
sónuleg, afger-
andi og full af
húmor. Hönnun hennar hafi yfir sér
dulúðugan andblæ sem veki hug-
renningatengsl við Íslendindasög-
urnar og einstæða náttúru landsins á
sama tíma og hún beri vott um kín-
verska fagurfræði. Verðlaunin hafa
verið veitt frá 2011 með það að mark-
miði að vekja athygli á framúrskar-
andi ungum norrænum hönnuðum.
Ragna hlýtur Formex
Nova-verðlaunin í ár
Á föstudagNorðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og víða skúrir, eink-
um norðantil, en sums staðar þokusúld með norður- og austur-
ströndinni. Hiti 7 til 14 stig að deginum, hlýjast sunnanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt 3-8 m/s, skýjað og skúrir syðra
og sumstaðar þokusúld með ströndinni. Skýjað með köflum syðra
og stöku skúrir. Dálítil rigning nyrðra síðdegis en rofar til syðra.
VEÐUR
Blóðtappi í lungum kemur í
veg fyrir að fyrirliði Þýska-
lands og ein frægasta
knattspyrnukona heims,
Dzsenifer Marozsán, mæti á
Laugardalsvöll í „úrslita-
leikinn“ við Ísland 1. sept-
ember, í undankeppni HM.
Þjóðverjar tilkynntu í gær
hvaða leikmenn yrðu í
landsliðshópi „skalla-
skrímslisins“ Horst Hrub-
esch, en þar er Alexandra
Popp markahæst. »2
Fyrirliði Þjóðverja
ekki til Íslands
„Fyrri aðgerðin mistókst að því leyt-
inu til að læknirinn lagaði aðeins
tvær rifur í liðþófanum af þremur.
Hann sagðist ekki hafa séð þriðju rif-
una í aðgerðinni þó svo að hann hefði
séð hana á mynd frá segulómun,“
sagði Birna Berg Haralds-
dóttir, landsliðskona í hand-
knattleik. Hún hefur far-
ið í tvær aðgerðir á hné
á síðustu mánuðum
og sér ekki fram á að
leika með liði sínu í
dönsku úrvalsdeild-
inni fyrr en undir
árslok vegna mis-
taka læknis sem
gerði fyrri aðgerð-
ina í Danmörku í
vor. »1
Mistök læknis hafa sett
strik í reikning Birnu
„Jú, það má orða það þannig að mín-
úturnar hafi nýst vel. Þetta er klár-
lega besta innkoma mín síðan ég
byrjaði í Þór/KA. Ég er því mjög
ánægð með þetta,“ sagði Margrét
Árnadóttir sem kom inn á sem vara-
maður í síðari hálfleik hjá Íslands-
meisturunum og skoraði tvö mörk í
markaveislu á Þórsvelli þegar liðið
tók á móti FH. »4
Mjög ánægð með
frammistöðu sína
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Íslenskar sumarbúðir fyrir börn og
unglinga hafa verið starfræktar í ná-
grenni við Gimli í Manitoba í Kanada
vikuna fyrir verslunarmannahelgina
í nær hálfa öld og hefur Guðmundur
Hafliðason komið frá Íslandi og verið
í teymi leiðbeinenda undanfarin tíu
ár. „Þetta er alltaf jafn skemmtilegt
og við bryddum upp á einhverju nýju
á hverju ári, erum með sérstakt
þema eins og til dæmis víkingaþema,
fótboltaþema og landsliðsþema,“
segir hann.
Haustið 2009 fór Guðmundur í
enskuskóla í Winnipeg. Hann segir
að Kent Björnsson hafi bent sér á
sumarbúðirnar og spurt hvort hann
vildi ekki aðstoða þar áður en hann
byrjaði í skólanum. „Ég sló til og sé
ekki eftir því enda hef ég unnið í búð-
unum á hverju ári síðan,“ segir hann.
„Það er líka erfitt að segja nei þegar
börnin segja „sjáumst aftur á næsta
ári“.“
Guðmundur hefur æft og leikið
knattspyrnu síðan hann var sjö ára.
Hann hefur verið í íþróttafélaginu
Ösp um árabil og tvívegis keppt á
Special Olympics; fyrst í Belgíu 2014
og síðan í Los Angeles 2015. Á næsta
ári verður leikið í furstadæminu Abu
Dhabi. Í sumar ákvað hann að taka
fótboltaliðið með sér í sumarbúðirnar
og spilaði hópurinn með heimamönn-
um á Gimli daginn fyrir Íslendinga-
daginn.
„Mér þótti sorglegt að sjá fótbolta-
völlinn á Gimli alltaf tóman og eftir
að hafa rætt við Grant Stefanson,
formann Íslendingadagsnefndar-
innar, ákváðum við að ég kæmi með
liðið og við myndum spila á
Íslendingadagshátíðinni.“
Í íslenska landsliðsbúningnum
Fótboltalið Asparinnar æfir þrisv-
ar í viku og keppir í íslenska lands-
liðsbúningnum erlendis. Guðmundur
segir að gott samstarf hafi verið við
Knattspyrnusamband Íslands, sem
hafi gefið félaginu keppnisbún-
ingana. „Við fórum 15 saman í
sumarbúðirnar og skiptum svo í tvö
blönduð lið með heimamönnum,“
segir hann um leikinn.
Íslenskir krakkar hafa stundum
verið í sumarbúðunum en aldrei hafa
verið eins margir frá Íslandi og nú.
„Þetta gekk mjög vel og krakkarnir
voru ánægðir að sjá strákana og
kynnast íslensku fótboltaliði,“ segir
Guðmundur.
Foreldra- og kennarafélag Öskju-
hlíðarskóla stofnaði Íþróttafélagið
Ösp 1980. Guðmundur segir að mest
sé um æfingaleiki innanlands en í
fyrra hafi verið fjölmennt Íslands-
mót með þátttöku liða frá eyjunni
Mön og Færeyjum auk 3. flokks
Fjölnis. „Strákarnir voru svo hrifnir
af sumarbúðunum að nokkrir þeirra
ætla að mæta og vinna með mér í
þeim á næsta ári,“ segir Guðmundur.
Færandi hendi
Guðmundur hefur alltaf komið
færandi hendi til Gimli. Hann þakkar
það stuðningi fyrirtækja, félaga og
einstaklinga. Þannig hafi Mjólkur-
samsalan til dæmis gefið honum skyr
fyrir þátttakendur í sumarbúðunum.
„Krakkarnir fá aldrei nóg af skyrinu
og undanfarin tvö ár hefur KSÍ gefið
landsliðstreyjur, boli og fleira sem ég
hef útdeilt, bæði í sumarbúðunum og
í skrúðkeyrslunni á Gimli á Íslend-
ingadeginum. Svo hef ég líka stund-
um fengið sælgæti hjá Nóa Síríusi.“
Tónlist er ríkur þáttur í sumarbúð-
unum og Guðmundur hefur fært
krökkunum kveðju með ýmsum
hætti frá íslenskum tónlistar-
mönnum. „Sverrir Bergmann gaf
eitt sinn öllum krökkunum áritað
eintak af fyrsta albúmi sínu, Jón
Jónsson sendi kveðju í myndbandi
sem ég útbjó og Of Monsters and
Men hefur gefið þeim diska, svo fátt
eitt sé talið.“ Hann segir að krakk-
arnir hafi lært lög með viðkomandi
tónlistarfólki og sent því sönginn á
myndbandi til baka sem örlítinn
þakklætisvott. „Það bíða allir
spenntir eftir næstu sumarbúðum,“
segir hann.
Gefur skyr, treyjur og sælgæti
Guðmundur hefur verið leiðbeinandi í íslenskum sumarbúðum í Kanada í 10 ár
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Sumarbúðir á Gimli Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heilsaði upp á liðið fyrir leikinn. Guðmundur Hafliðason fyrirliði er fremstur nr. 9.
Allt sem er fallegt í lífinu nefnist
sýning sem Mooz sýnir í félagsheim-
ilinu á Seltjarnarnesi í kvöld kl. 20 og í
Gaflaraleikhúsinu 8. september kl. 15
og 20. Sýningin stendur á mörkum
sviðslista og myndlistar, er lifandi
innsetning, sem rannsakar karl-
mennsku, kvenmennsku, tvíhyggju og
ofbeldi. Þátt taka Friðrik
Margrétar Guðmunds-
son, Stefán Ingvar Vig-
fússon, Brynhildur
Karlsdóttir, Hólm-
fríður María Bjarn-
ardóttir og Tómas
Gauti Jóhanns-
son.
Allt sem er fallegt
í lífinu sýnt í kvöld