Morgunblaðið - 23.08.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
RenaultKADJAR&CAPTUR
Sparneytnir sportjeppar
Renault Captur, verð frá: 2.790.000 kr.
Renault Kadjar, verð frá: 3.650.000 kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
9
3
2
9
Þyrla Landhelgisgæslunnar og
björgunarsveitir frá Siglufirði,
Skagaströnd og Sauðárkróki voru
kallaðar út um miðjan dag í gær
vegna báts sem strandað hafði í
fjöru við Reykjadisk í Skagafirði.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
barst neyðarkall frá bátnum klukk-
an 14. Einn maður var um borð.
Björgunarskipin Húnabjörg frá
Skagaströnd og Sigurvin frá Siglu-
firði héldu þegar á vettvang ásamt
liðsmönnum frá björgunarsveitinni
á Sauðárkróki, að því er segir á vef
Landhelgisgæslunnar.
Þyrlan Líf var við æfingar er út-
kallið barst og var henni flogið á
slysstað. Þar að auki var ákveðið að
varðskipið Týr, sem statt var aust-
an Grímseyjar, héldi í átt að strand-
stað. Á fimmta tímanum tókst að ná
bátnum af strandstað með aðstoð
fiskibáts sem staddur var í grennd-
inni. Þyrlan Líf var þá komin á
staðinn en áhöfn hennar var til taks
á meðan björgunaraðgerðum stóð.
Skipverjann sakaði ekki.
Tveir bátar vélarvana
Verkefnum Gæslunnar var ekki
lokið þann daginn því skömmu síð-
ar barst stjórnstöð Landhelgisgæsl-
unnar beiðni um að björgunar-
báturinn Gunnar Friðriksson frá
Ísafirði yrði kallaður út og færi til
móts við bát sem varð vélarvana
norður af Kögri. Báturinn var
færður til hafnar á Ísafirði. Þá varð
annar bátur vélarvana laust eftir
hádegi úti fyrir Vestfjörðum. Hann
var tekinn í tog og dreginn til hafn-
ar á Patreksfirði.
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Á strandstað Bátur strandaði í fjöru við Reykjadisk í Skagafirði í gær.
Bátur strandaði í
fjöru í Skagafirði
Skipverja varð ekki meint af
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
„Við þurfum núna að leggjast yfir
málið. Ég mun biðja Vegagerðina að
setjast yfir það hvaða leið er skyn-
samlegaust og hvenær er skynsam-
legast að hrinda
verkefninu af
stað. Ráðuneytið
mun einnig koma
að þeirri vinnu.“
Þetta segir
Sigurður Ingi Jó-
hannsson sam-
gönguráðherra
aðspurður hver
verði næstu skref
varðandi tvöföld-
un Hvalfjarðar-
ganga. Vegagerðin og verkfræði-
stofan Mannvit skiluðu í vor skýrslu
þar sem niðurstaðan var sú að
gangaleið með tvístefnuumferð væri
langhagkvæmasti kostur tvöföldun-
ar.
„Fyrsta skrefið er að ríkið er að
taka yfir núverandi göng um þar-
næstu mánaðamót væntanlega,“
segir Sigurður Ingi. Hin nýja
skýrsla sé svo grundvöllur fyrir um-
ræðuna sem framundan er um ný
göng. „Eins og fram kemur í skýrsl-
unni höfðu menn árið 2008 verið með
sambærilegar hugmyndir en síðan
þá hafa öryggisstaðlar breyst. Í ljósi
þess eru þessir nýju kostir allnokkru
öðruvísi en þegar menn voru að
skoða tvöföldun árið 2008.“
Starfshópur er að skoða hvaða
kostir eru fyrir hendi varðandi gjald-
töku til að flýta framkvæmd umferð-
armannvirkja. Hann mun væntan-
lega skila niðurstöðum fyrir árslok.
Sigurður Ingi segir að ný Hval-
fjarðargöng yrðu væntanlega ekki á
fyrstu 3-5 árum nýrrar samgöngu-
áætlunar, en væru engu að síður að-
kallandi eins og svo mörg önnur
verkefni.
„Samgönguáætlun er á lokametr-
unum hjá samgönguráði og munum
við fyrst og fremst leggja þar
áherslu á að ljúka umferðarþyngstu
vegum þar sem við fáum mest út úr
því að bæta umferðaröryggi,“ segir
Sigurður Ingi og bendir í því sam-
bandi á Reykjanesbraut, Suður-
landsveg og Vesturlandsveg. Aðrar
stærri framkvæmdir verða að vera
þar fyrir aftan.
Góð reynsla hefur verið af núver-
andi Hvalfjarðargöngum. Spölur
byggði þau og hefur rekið þau með
veggjöldum síðastliðinn 20 ár. Sig-
urður Ingi segir að það verði opið til
skoðunar að fela öðrum en Vega-
gerðinni framkvæmd og rekstur
nýrra ganga.
Tvöföldun ganganna
til frekari skoðunar
Áhersla lögð á að auka öryggi á umferðarþyngstu vegum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hvalfjarðargöng Ríkið mun taka við göngunum til eignar og rekstrar í lok
næsta mánaðar. Spölur byggði göngin og hefur rekið þau undanfarin 20 ár.
Siguður Ingi
Jóhannsson