Morgunblaðið - 23.08.2018, Side 18

Morgunblaðið - 23.08.2018, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018 100x70x85 Einnig 120 - 140 100x70x85 Einnig 120 - 140 - 160 60x70x95 Einnig 70 - 80 - 100 - 120 Ítölsk stál vinnuborð með eða án án handlaugar Ryðfrytt burstað stál l Hilla að neðanlStillanlegir fæturl Auðvelt að setja samanl Frístan- dandi vinnuborð 5 1 6 8 # Draghálsi 4 110 Reykjavík sími: 535 1300 verslun@verslun.is Ryðfrí stál vinnuborð- og fráleggsborð fyrir atvinnueldhús Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Stjórnvöld verða að stíga varlega til jarðar í skattlagningu á íslenska bif- reiðaeigendur segir Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri hjá Félagi ís- lenskra bifreiðaeigenda (FÍB), innt- ur eftir viðbrögðum vil tillögum starfshóps um skattlagningu öku- tækja og eldsneytis. Í Morgunblaðinu í gær kom fram í máli Bjarna Benediktssonar, fjár- mála- og efnahagsráðherra, að frumvarp, byggt á skýrslunni yrði sett á þingmálaskrá. Sagði hann nærtækt að taka skatta af umferð til að standa undir kröfum um upp- byggingu samgöngumannvirkja, heimta í auknum mæli gjöld fyrir ekna kílómetra í stað seldra lítra á bensínstöðvum. Ekki þurfi til gjöld af notkun „Bifreiðaeigendur eru nú þegar að borga mikla skatta. Stór hluti fjármunanna hefur ekki farið í þær framkvæmdir sem þeir eiga að fara í. Ef þessir peningar fara að fullu í viðhald og uppbyggingu, þá held ég að það þurfi ekki að leggja á veg- gjöld og annað með þeim hætti sem hefur verið til umræðu hjá íslensk- um stjórnvöldum,“ segir Jón Krist- ján. Vegagerðarinnar bíður mikil vinna í uppbyggingu á vegakerfinu að sögn Jóns Kristjáns. „Eftir hrun- ið var lítið sem ekkert gert í þessum málum og fyrst á síðustu tveimur árum sem farið er að verja meira fé til uppbyggingar og viðhalds á vega- kerfinu. Niðurstaða Eurowrap- könnunarinnar á vegakerfinu sem FÍB hafði framkvæmd á sýnir að við þurfum verulega að taka til hend- inni,“ segir hann. „Álögur og skattar á bílaeigendur hafa í gegnum tíðina verið meiri en góðu hófi gegnir. Ís- lenskir bifreiðaeigendur greiða eina hæstu skatta sem í gildi eru í Evr- ópu. Stjórnvöld þurfa að stíga var- lega til jarðar í þessum aðgerðum,“ segir hann. Jón Kristján segist sammála Bjarna um að sjálfbærni Íslendinga í orkumálum, með tilkomu raf-, tvinn- og tengiltvinnbíla sé jákvæð fyrir íslenska bifreiða eigendur. „Þessari þróun í tækni mun fleygja fram, en ég held það muni ekki gerast jafn hratt og búist hefur verið við. Við fögnum innkomu þess- ara bíla því þeir munu menga minna en bílar knúnir af jarðefnaeldsneyti, bensíni og dísil,“ segir hann. Stjórnvöld stígi varlega til jarðar í skattheimtu  FÍB segir rafbílaþróun ekki eins hraða og búist var við Morgunblaðið/Valli Umferð Í farvatninu er frumvarp sem byggt verður á skýrslu starfshóps um skattlagningu ökutækja og eldsneytis. Skattheimta » FÍB telur skatta sem þegar eru heimtir af bifreiðaeig- endum geta staðið undir upp- byggingu samgöngu- mannvirkja. » Ekki er þörf á veggjöldum eða öðrum slíkum leiðum til fjármögnunar, að mati FÍB. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Framkvæmdir eru að byrja við bygg- ingu brúar á Helluvað á Norðlinga- fljóti í Kalmanstungulandi, á leiðinni úr Borgarfirði upp á Arnarvatnsheiði. Vaðið er hættulegt og aðeins fært jeppum á sumrin og oft alveg ófært á veturna. Það hefur verið baráttumál Borgfirðinga og Húnvetninga í mörg ár að fá brú á ána. „Búið er að laga veginn það mikið yfir heiðina að umferð hefur aukist, sérstaklega að norðan, og menn eru að lenda í vandræðum þegar þeir koma að vaðinu. GPS-tækin senda menn þessa leið, bæði suður og norð- ur, og þarna hafa orðið þó nokkrar skemmdir á bílum og það lá við stór- slysi fyrir um fimm árum þegar bíll fór í ána,“ segir Snorri H. Jóhannes- son, bóndi á Augastöðum í Hálsasveit og félagi í Veiðifélagi Arnarvatnsheið- ar. Hann hefur ásamt fleirum barist lengi fyrir því að fá brú á Helluvað, sérstaklega eftir að vegurinn upp úr Borgarfirði var lagaður. 27 metra stálbitabrú Snorri segir að það hafi iðulega komið fyrir að fólk hafi verið komið á litlum bílum suður yfir Arnarvatns- heiði og ekki treyst sér til að fara yfir á Helluvaði og því orðið að snúa við og fara sömu leið til baka. Vegagerðin hefur samið við Vest- firska verktaka um að byggja brú á Norðlingafljót við Helluvað. Þeir eru að undirbúa verkið og hefjast handa á staðnum í byrjun september, sam- kvæmt upplýsingum Guðmundar S. Péturssonar, tæknifræðings hjá Vegagerðinni í Borgarnesi. Efnið er komið að Kalmanstungu og munu bændur flytja það að brúarstæðinu næstu daga. Brúin verður aðeins ofan við Hellu- vað og mun vestari endinn liggja ofan á stórri hraunklöpp. Þetta verður 27 metra löng stálbitabrú með steyptum stöplum og timburgólfi. Brúin verður einbreið. Búið er að leggja veg að brúarstæð- inu. Þar þurfti að moka úr hrauninu til að losna við krappa beygju. Verk- takinn stefnir að því að ljúka verkinu í septembermánuði. Áætlað er að smíði brúarinnar kosti tæpar 60 milljónir króna. Fleiri geta upplifað „Ég er þannig stemmdur að ég lít á þetta sem framför,“ segir Snorri á Augastöðum. Hann segir að einstaka fólk gagnrýni þessar samgöngu- bætur, telji það hluta af sjarmanum við ferðir inn á Arnarvatnsheiði að þurfa að vaða ána eða aka bílum um vaðið. Segist hann benda fólkinu á að það þurfi ekki að nota brúna frekar en það vilji. „Bílum sem fara þarna yfir mun trúlega fjölga eitthvað og það er já- kvætt að fleiri geti upplifað það að fara þarna um,“ segir Snorri. Brú við Helluvað byggð í haust  Opnar betri leið inn á Arnarvatnsheiði Brúargerð Brúin verður stálbitabrú með timburgólfi. Mynd úr safni. Arnarvatnsheiði » Á Arnarvatnsheiði og Tví- dægru eru vinsæl veiðivötn og ár. Þangað kemur fjöldi fólks á hverju sumri. » Allgreið leið er upp úr Húna- vatnssýslu, ekki síst Miðfirði, inn að Arnarvatni stóra og síð- an slóði niður í Borgarfjörð. Brú á Norðlingafljót bætir að- gengið að vestan. Jónína Guðrún Britt- on, fædd Jónasson, lést 18. ágúst í Winni- peg, 103 ára að aldri. Jónína var fædd 14. janúar 1915 á bænum Engimýri við River- ton í Manitoba, dóttir hjónanna Magnúsínu Helgu Jónsdóttur Borgfjord og Tóm- asar Jónassonar. Afi og amma Jónínu í föðurætt voru Tómas Ágúst Jónasson og Guðrún Egedía Jó- hannesdóttir, sem fluttust vestur um haf árið 1876 úr Öxnadal og settust að í Riverton. Bróðir Tómasar var Sig- tryggur Jónasson, sem oft hefur verið nefndur faðir Nýja Íslands, enda var hann forystumaður ís- lenskra innflytjenda í Kanada í ár- daga hinna miklu fólksflutninga. Móðurfólk Jónínu kom frá Borgarfirði og af Mýrum. Langamma hennar, Helga Þor- steinsdóttir, flutti vestur um haf frá bænum Litlu-Brekku við Langá á Mýrum ásamt seinni manni sínum Hákoni og börnum sínum. Einn sona hennar var Jón Magnússon, afi Jónínu, sem tók sér nafnið Borgfjord til aðgreiningar frá fjöl- mörgum nöfnum sínum vestra. Jónína var þriðja í röð sjö systkina. Þær voru sex systurnar og einn bróðir, Tóm- as, sem var yngstur. Jónína giftist árið 1944 Norman Brit- ton, sem var af breskum ættum, og áttu þau tvær dætur, Judith Normu og Donnu Valdine, sem báðar lifa móður sína. Norman lést ár- ið 1992. Jónína var afar stolt af sinni íslensku arfleifð og hafði unun af að tala íslensku, sem hún hafði viðhaldið á aðdáunarverðan hátt. Hún fylgdist vel með gangi mála á Íslandi, bæði með lestri Lögbergs Heimskringlu og með samtölum við frændfólkið á Íslandi bæði í síma og svo við heimsóknir þeirra til hennar. Á 100 ára afmæli Jónínu árið 2015 sendu forseti Íslands og utanríkisráðherra henni afmæl- iskveðjur og þótti henni afar vænt um þá hugulsemi og virðingu sem henni var sýnd. Útför Jónínu fer fram frá útfararstofu Bardals – Bardals Funeral Homes – í Winnipeg 26. ágúst. Andlát Jónína Guðrún Britton

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.