Morgunblaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 45
UMRÆÐAN 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018 Kringlunni 4c – Sími 568 4900 Nýjar haust vörur Nú liggur fyrir Al- þingi þingsályktun- arfrumvarp um að um- bylta núverandi kerfi í leigubílaakstri sem í marga áratugi hefur verið mjög gott. Nokkrar stað- reyndir sem liggja fyr- ir: Leigubílstjórar geta ekki lifað á 8-17-vinnu fimm daga vikunnar. Hvernig stendur á því að umbylta þarf þessu leigubílakerfi sem hefur verið í marga áratugi? Hvað er það sem fólki líkar ekki? Ég hef grun um að það liggi aðrar ástæður að baki. Ég hef keyrt Íslendinga árum saman og alltaf gengið vel og allir sáttir. Almennt hefur fólk verið mjög ánægt með leigubílaþjón- ustuna hér á landi og það skiptir miklu máli, sérstaklega útlendingar sem hafa aldrei kynnst annarri eins leigubílaþjónustu og hér er. Margir sáttir farþegar vilja hafa þetta eins og er. Erum við leigubílstjórar ein- hver ógnun við framtíðina? Ef svo er þá vil ég fá rökstuðning fyrir því. Hvað á að taka við og er það eitt- hvað betra? Ef við horfum til ann- arra landa þá er þjónustan þar víða lakari. Sem dæmi get ég nefnt að systir mín, sem býr í Noregi, þarf oft að taka leigubíl frá sínum vinnustað, sem er flugvöllurinn í Osló, Garder- moen. Um daginn tók hún leigubíl þaðan og heim. Leigubílstjórinn sagði að hún þyrfti að borga far- gjaldið með reiðufé því posinn hjá sér væri ekki í lagi. Hún kom því við í hraðbanka á leiðinni heim til að ná í reiðufé. Ég spurði systur mína hvort leigubílstjórinn hefði ekki stöðvað mælinn meðan hún var í hrað- bankanum og leiðrétt gjaldið út af króknum sem þurfti að taka til að fara í hraðbankann en hún kvað nei við. „Af hverju tókstu þá ekki næsta leigubíl?“ spurði ég. Hún sagði að það væru engir, það væri svo oft bíllaust þarna. Er þetta í lagi? Hér heima gætum við ekki boðið viðskiptavinum okkar upp á þetta og viljum það ekki. Ég veit fjölmörg dæmi um laka leigubílaþjónustu erlendis, mjög víða þarf að panta leigubíl með eins dags fyrirvara. Of margir eru í leigubílaakstri hér á landi, það er vandamálið. Það eru leigubílabreiður um allt höfuðborg- arsvæðið og við Leifsstöð – alþjóða- flugstöðina í Sandgerði dögum sam- an, þar hangsa þeir í allt að fjórar klukkustundir. Staðreyndin er sú að það þarf að fækka leigubílum um hundrað til að byrja með og sjá svo til um framhaldið. Þá fyrst gætum við hugsað um lækkun á gjaldi. Kæru viðskiptavinir og ágætu Ís- lendingar: Við viljum allt fyrir ykkur gera og tökum að sjálfsögðu við ábendingum. Er leigubíla- kerfið ekki ágætt eins og það er? Eftir Árna Arnar Óskarsson » Of margir eru í leigubílaakstri hér á landi, það er vandamálið. Árni Óskarsson Höfundur er leigubílstjóri. járnbentur steyptur steinveggur, nokkuð sem við verðum að lifa við líkt og gen foreldranna. Að vísu er tré notað í frístundahús og mörg ein- býlishús og oftast með betri árangri en með steinhúsin. Það sem ég hef reynt að leggja til málanna er að taka í notkun gler- frauðsplötur. Kosturinn er að þær eru rakaþéttar og hafa ávallt sömu einangrunarhæfni. Þá má líma þær á steinveggi og þétta síðan milli platna og er þá náð öllum þessum fjórum þáttum sem nútíma frágangur þarf að hafa. Að vísu mun steinveggurinn þorna inn en með einfaldri loftræst- ingu sem héldi inni raka undir 60°C af mettun lofts við ákveðið hitastig og svo CO2 (öndun og arinn) undir 1000 ppm. Nú er tryggt að gró mygl- unnar spíri ekki og hér er komin ein- angrun sem endist og endist – eða minnst 50-100 ár! Og umhverfisvænt er þetta í meira lagi því nota má allt úrgangsgler sem til fellur hér á landi, líklega 10-13.000 tonn, og blása í 4-5 sinnum meira rúmmál einangrunar. Öll vinna við burð- arsterkar plöturnar þarfnast ekki rykgríma og afskurði og gamalli ein- angrun mætti skila aftur og end- urvinna. Geymsla er auðveld því ekki þarf að verja plöturnar fyrir regni. Og myglan og skordýr geta ekki nýtt sér glerfrauð sem er inert- efni. Gengið er út frá að til lengri tíma litið yrði reist verksmiðja í nágrenni við markaðinn en notast við innflutt þangað til. Jæja kostnaðurinn? Sé kostnaður 10-20% af byggingarkostnaði við frágang útveggja og þaks þá yrði þessi lausn dýrari (e.t.v. 50%) en engir bakreikningar og mygla eða heilsuvandamál sem eru dýr. Sem einangrun hefur frauðgler sömu gildi og þurr steinull, þykktin yrði sú sama. Þeir fagmenn sem ég hef leitað álits hjá eru hissa á að þetta hafi ekki verið reynt hér þar sem veðr- áttan býður upp á það. Mín skoðun er sú að 20 ára ábyrgð eigi að vera á steinullareinangrun húsa. » Losna þarf því við myglu í híbýlum og spara þannig þjóðfélag- inu og einstaklingum háar fjárhæðir. Höfundur er efnaverkfræðingur. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu. Atvinnublað alla fimmtudaga og laugardaga ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ? Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og ámbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.