Morgunblaðið - 23.08.2018, Síða 54

Morgunblaðið - 23.08.2018, Síða 54
54 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018 ✝ Ólafía GuðrúnÁgústsdóttir fæddist á Þingeyri 5. september 1929. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Eiri 13. ágúst 2018. Foreldrar henn- ar voru hjónin Ágúst Aðalsteinn Jónsson, sjómaður á Þingeyri, f. 5.8. 1897 í Lambadal í Mýrahreppi, d. 3.10. 1937 á Víf- ilsstöðum, og Guðmunda Ágústa Jónsdóttir, húsfreyja og fisk- verkakona á Þingeyri, f. 19.8. 1901 á Brekku í Þingeyrar- hreppi, d. 30.6. 1990 á Akranesi. Systkini Ólafíu eru: 1) Ragnar Jón Ágústsson, f. 12.9. 1926, d. 19. 12. 2011, kvæntur Guðnýju Pétursdóttur, f. 15.3. 1927, d. 27.3. 2004. 2) Margrét, f. 30.3. 1928, d. 8.10. 1994, gift Ársæli Jónssyni, f. 31.1. 1928, d. 18.3. 1988. 3) Ólafur, f. 27.10. 1935, kvæntur Helgu Guðmundsdótt- ur, f. 6.8. 1937. 4) Ágústa Að- alheiður, f. 20.6. 1937, gift síra Gunnari Björnssyni, f. 15.10. 1944. Ágúst, faðir Ólafíu, dó á sótt- arsæng þegar hún var á 9. ald- ursári; ólst hún eftir það upp hjá hjónunum Jóni Bjarnasyni, f. 12.6. 1894, d. 14.9. 1980, hálf- bróður Þórleifs Bjarnasonar, Hrafnhildur, f. 30.5. 1974; mað- ur Hrafnhildar er Bjarni Grétarsson, f. 26.7. 1974; börn þeirra eru a) Aron, f. 14.10. 1995, unnusta hans er Karen Sól Sævarsdóttir, f. 10.12. 1995, b) Andrea Rut, f. 26.9. 2003, og c) Aníta, f. 10.10. 2012; sonur Júl- íusar með Jórunni Sigríði Birg- isdóttur, f. 6.8. 1955, er Birgir Þór, f. 3.5. 1980. Kona hans er Eva Þorbjörg Schram, f. 23.3. 1990, dætur þeirra eru a) Magdalena, f. 25.1. 2012, og b) Æsa, f. 10.7. 2017. 3) Bryndís, f. 30.3. 1958, gift Conrad Joseph Cawley, f. 21.7. 1953; börn þeirra eru a) Ásdís Eva, f. 12.6. 1980, maður hennar er Ben Hickford, f. 8.11. 1980, börn þeirra eru a) Lilja Rós, f. 17.9. 2002, b) Fjóla Mae, f. 17.3. 2008, c) Harry Joseph Hreinn, f. 16.4. 2011, b) Kristófer Hreinn, f. 2.6. 1984, og c) Alex Oliver, f. 25.8. 1986; kona hans er Anya Hamil- ton Wancke, f. 11.7. 1991. 4) Íris, f. 2.12. 1962, maki Ole Anton Bieltvedt, f. 31.5. 1962; börn þeirra eru a) Elín Rut, f. 4.4. 1989, b) Zara Rún, f. 19.5. 1997, og c) Óli Anton, f. 24.9. 1999. Veturinn 1949 gekk Ólafía í Húsmæðraskóla Reykjavíkur og hlaut verðlaun fyrir afburða námsárangur. Hún vann um skeið hjá Fríðu Proppé, fyrsta lyfsala Akraness-apóteks, starf- aði hjá Skagaprjóni, lengi hjá Karnabæ og loks hjá Saumastof- unni Lexa/Artemis. Útför Ólafíu fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 23. ágúst 2018, og hefst athöfnin kl. 13. námsstjóra, og frænku sinni, Maríu Snæbjörgu Hjartardóttur, f. 12.1. 1900, d. 31.7. 1987, afasystur Ólafs Ragnars Grímssonar, for- seta. Uppeld- issystkini hennar voru Jóhanna Svava Proppé, f. 13.6. 1919, d. 30.8. 2005, og Hans Bjarnason, f. 23.4. 1923, d. 22.11. 1991. Ólafía giftist 12.7. 1953 Hreini Árnasyni, málarameist- ara, f. 30.8. 1931 á Akranesi, d. 12.9. 2007. Foreldrar hans voru hjónin Árni Björgvin Sigurðs- son, f. 23.7. 1895, d. 19.6. 1968, og Þóra Einarsdóttir, f. 20.7. 1898, d. 7.6. 1939. Þau Ólafía og Hreinn hófu bú- skap á Akranesi, en fluttust til Reykjavíkur 1971. Börn Ólafíu og Hreins eru: 1) María Jóna, f. 11.2. 1953, maður hennar er Rosario Ómar Russo, f. 18.2. 1952 á Ítalíu; börn þeirra eru a) María, f. 15.6. 1984, og b) Giuseppe Árni, f. 28.11. 1986, unnusta hans er Anna Lilja Elv- arsdóttir, f. 1.10. 1990. 2) Þóra, f. 24.3. 1954, maður hennar er Júlíus Brynjarsson, f. 25.9. 1954. Dóttir Þóru með Herði Kára Jó- hannessyni, f. 8.11. 1954, er Mig langar til að minnast ástkærrar tengdamóður minnar sem lést að kvöldi 13. ágúst. Mig langar að þakka henni fyrir samfylgdina síðusu 35 ár sem hafa verið mjög ánægjuleg í alla staði, ég gæti ekki verið heppnari með tengdamóður sem vildi manni alltaf vel í gegnum tíðina. Við ferðuðumst talsvert sam- an, bæði innanlands og utan, fórum til dæmis saman til Hong Kong fyrir 20 árum. Var það mjög ánægjulegur tími sem við áttum þar; það var alveg undravert hvað hún og Hreinn gátu gengið um allar trissur þar. Vorum við á ferðalgi í heilan mánuð saman, sem var afskap- lega ánægjulegur tími. Langar mig að kveðja ást- kæra tengdamóður mína með eftirfarandi ljóði, Skólaminni, eftir Matthías Jochumsson: Í sálarþroska svanna býr sigur kynslóðanna því hvað er menning manna ef menntun vantar snót? Hvað gagnar glys og auður og gullið draumavor, ef vitra vantar móður að vernda barnsins spor? Hvar lærðu ljóssins hetjur, sem lýða ruddu braut, hinn fyrsta manndóms metnað? – við móður sinnar skaut! Júlíus Brynjarsson. Hún Ollý mágkona mín er látin tæplega 89 ára gömul, hún átti farsæla ævi. Hún Ollý fékk margar góðar gjafir í vöggugjöf. Hún gat sungið og leikið og var mynd- arleg í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Hún var ekki há í loftinu þegar frændur hennar í móð- urætt stilltu henni upp á stól og létu hana syngja fyrir sig. Hún var aðeins átta ára þegar pabbi hennar dó. Þau feðgin lágu saman á spítalanum á Þingeyri en pabbi hennar hafði smitast af berkl- um og Ollý líka. Hún lá í átta mánuði á spít- alanum en var svo heppin að ná fullum bata þegar frá leið. Pabbi hennar var ekki eins heppinn því hann lést á Vífils- stöðum 1937. Mamma hennar stóð ein eftir með fimm börn, það yngsta þriggja mánaða. Hún varð að vinna fyrir fjölskyldunni og þá voru engar barnabætur, engir leikskólar eða annað til að hjálpa. Það var engin vinna nema við frystihúsið eða að hjálpa til hjá betur stöddum fjölskyldum. Þá varð úr að Ágústa yngsta barnið varð eftir hjá afa sínum og ömmu á Brekku og Ollý fór til sæmdarhjónanna Maríu Hjartar og Jóns Bjarnarsonar og ólst upp hjá þeim. Hún varð þeim til fyrirmyndar á allan hátt. Hún hélt alltaf góðu sam- bandi við mömmu sína og systkini enda var þorpið ekki stórt og hún gat alltaf farið til þeirra. Maðurinn minn sagði að hon- um hefði aldrei fundist vera komin jól fyrr en Ollý var kom- in til þeirra á aðfangadags- kvöld. Ég held að hún hafi aldrei sagt styggðaryrði um mömmu sína vegna þess að hún þurfti að láta hana frá sér. Guðmundur föðurbróðir hennar var fjölskyldunni ein- staklega umhyggjusamur. Hann vissi að bróðurdæturnar (Magga og Ollý, sem voru elst- ar) voru vel gefnar og vel gerð- ar og kostaði hann þær í Hús- mæðraskólann í Reykjavík. Þær sýndu sannarlega hvað í þeim bjó og skiptu með sér verðlaununum um vorið enda jafn flinkar í matreiðslu og handavinnu. Þær systur Ollý og Magga fluttu á Akranes og byrjuðu að vinna þar. Þær voru bestu vinkonur og systur. Þá settu Skagamenn upp leiksýningar sem gengu mjög vel og mig minnir að Ollý segði að það hefðu verið sýndar átta sýningar fyrir fullu húsi sem var mjög gott þá og hún fékk mikið hrós fyrir frammi- stöðu sína. En hún var ekki fyrir að hreykja sér og hafði ekki frekari áhuga á þessari braut. Hún kynntist honum Hreinsa sínum, góðum dreng og skemmtilegum manni og áttu þau stelpurnar sínar fjórar sem eru bæði góðar og fallegar og hafa staðið sig vel í lífinu. Við fórum til hennar annað slagið eftir að hún fór á Eir og það var alltaf svo gaman að hitta hana. Hún var alltaf svo fín og vel til höfð og alltaf svo glöð að hitta okkur, sérstaklega Olla bróður sinn, en þeim þótti mjög vænt um hvort annað. Síðustu mánuðina lá hún mikið í rúminu og hún var svo falleg á koddanum, alltaf fín og hárið eins og hún hefði verið í lagningu. Elsku Ollý mín, við kveðjum þig með virðingu og þökk og trúum því að nú hafið þið Hreinsi sameinast í eilífðinni. Guð geymi þig, elsku mágkona. Sofnar drótt, nálgast nótt, sveipast kvöldroða himinn og sær. Allt er hljótt, hvíldu rótt. Guð er nær. (Kvöldsöngur skáta.) Helga Guðmundsdóttir. Ólafía Guðrún Ágústsdóttir ✝ Sigríður Magn-úsdóttir fædd- ist á Brekku í Langadal í Naut- eyrarhreppi við Ísafjarðardjúp 7. maí 1931. Hún lést á Dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Grund 11. ágúst 2018. Foreldrar henn- ar voru Magnús Jensson, f. 1896, d. 1969, og Jensína Arnfinnsdóttir, f. 1894, d. 1996, á Brekku og síðar á Hamri. Systkini Sigríðar voru Jón Arnar, f. 1926, d. 2002, Guð- mundur, f. 1927, d. 2018, Jens, f. 1928, d. 1930, Kristín, f. 1929, d. 2011, Margrét Guðrún, f. 1932, d. 1994, Halldór, f. 1933, d. 1976, Ragnar Heiðar, f. 1935, og Edda, f. 1937. Hinn 23. ágúst 1952 giftist frá 1937 dvaldi hún alla sína skólagöngu hjá móðursystur sinni, Þórdísi Arnfinnsdóttur, og manni hennar, Bjarna Guð- mundssyni, á Ísafirði. Sigríður hóf störf við símstöð- ina í Ingólfsfirði 1947 og síðar á Borðeyri. Eftir það fór hún að vinna á símstöðinni á Blönduósi þar til hún flutti að Bálkastöð- um 1950. Einnig starfaði Sigríður utan heimilis í Staðarskála og í Sím- stöðinni í Brú og eftir að þau fluttu í Hveragerði starfaði hún hjá Náttúrulækningafélagi Ís- lands og á Dvalarheimilinu Ási. Sigríður og Eiríkur hófu bú- skap á Bálkastöðum 1950 og byggðu þar nýtt íbúðarhús 1953 og í framhaldi af því ný gripa- hús og ræktuðu jörðina. Þau bjuggu þar til 1982 er þau brugðu búi og fluttu í Hvera- gerði þar sem þau bjuggu áfram til 2007 er þau fluttu í Dvalar- heimilið Ás. Til Reykjavíkur fluttu þau svo 2013 á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund þar sem Sigríður dvaldi til æviloka. Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju í dag, 23. ágúst 2018, klukkan 14. Sigríður Eiríki Jónssyni frá Bálka- stöðum í Hrúta- firði, f. 1924. Börn þeirra eru: 1) Bryndís, f. 1951, maki Halldór R. Halldórsson, f. 1946, d. 2015. Dæt- ur þeirra eru Sig- ríður Gyða, Kristín Halldóra og Birna Margrét. 2)Ólafía Jóna, f. 1954, maki Hjalti Garð- ar Lúðvíksson, f. 1951. Dætur þeirra eru Nína Kristbjörg, Hugrún Elfa og Valdís Eva. 3) Jón, f. 1959, maki Hólmfríður Kristjánsdóttir, f. 1962. Börn þeirra Kristján, Gyða Dögg og Eiríkur. 4) Magnús, f. 1962, maki Unnur Fanney Bjarnadótt- ir, f. 1959. Börn þeirra Metta og Davíð. Barnabarnabörnin eru 15. Sigríður ólst upp á Brekku en Nú höfum við kvatt ömmu Siggu í síðasta sinn, við kveðju- stund reikar hugur okkar systk- ina til þeirra minninga sem við eigum um ömmu. Finnum í þeim huggun og þakklæti fyrir að hafa verið samferða ömmu í þann tíma sem við áttum með henni. Flestar eru minningarnar um ömmu af fallegu heimili hennar og afa í Hveragerði eða af ferðum um landið með tjaldvagn í eftir- dragi, eða í veiði með þeim ömmu, afa, Óla og Guddu, frænk- um, frændum og frændsystkin- um. Okkur finnst ljóðlínur Davíðs frá Fagraskógi eiga vel við þegar við sendum ömmu Siggu okkar hinstu kveðjur. Því aðeins færð þú heiðrað og metið þína móður, að minning hennar verði þér alltaf hrein og skír, og veki hjá þér löngun til að vera öðr- um góður og vaxa inn í himin – þar sem kærleik- urinn býr. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.) Minningar okkar um ömmu einkennast af yfirvegun og trausti, amma var róleg og hóg- vær kona, iðin og vinnusöm. Sannkölluð kjarnorkukona sem sat aldrei auðum höndum. Heimili ömmu og afa var ein- staklega fallegt og einkenndist af snyrtimennsku og skipulagi. Hver hlutur átti sinn stað og al- veg sama hvaða skápa eða skúff- ur maður stalst í að skoða, alls staðar var röð og regla. Það var gott að koma á heimili ömmu og afa, þar var alltaf hægt að bralla eitthvað skemmtilegt. Matmálstímar voru reglulegir, við systkinin gistum nokkrum sinnum hjá ömmu og afa en vistin einkenndist einmitt af regluleg- um matmálstímum. Á milli þess sem maður fékk morgunmat, morgunkaffi, hádeg- ismat, kaffi, kvöldmat og svo auð- vitað kvöldkaffi höfðum við nóg fyrir stafni. Heimilið þeirra hafði allt sem barni gat þótt spennandi, gróð- urhús, smíðaverkstæði, sauma- herbergi, heitan pott, rabarbar- abeð, og svo var alltaf hægt að treysta á að amma ætti kökur. Birgðastaðan í búrinu hjá ömmu var alltaf góð og þar mátti alltaf finna alls kyns góðgæti. Þegar við vorum börn voru jólaboðin hjá ömmu og afa í Hveragerði fastur liður í jóla- haldi. Þar áttum við frændsystk- inin góðar stundir og horfðum meðal annars á ótal áramóta- skaup, sem öll voru til á vel merktum VHS-spólum. Amma og afi tóku þá á móti börnum og barnabörnum með mikilli veislu sem byrjaði snemma og stóð langt fram á kvöld. Amma og afi voru einstaklega samheldin og samstiga hjón, þær eru fáar minningarnar um ömmu þar sem afi kemur ekki við sögu. Enda telja árin þeirra saman ára- tugi. Minningarnar eru margar hverjar af þeim saman við eld- húsborðið í Hveragerði, hlið við hlið í fortjaldinu á tjaldvagninum eða núna undanfarin ár þar sem afi hefur haldið í hönd ömmu, veitt henni stuðning og sýnt henni skilyrðislausa ást eftir því sem heilsu hennar hrakaði. Sam- band þeirra hefur verið eins og klettur í tilverunni sem ekkert fær haggað. Hugur okkar systkina er hjá afa sem við sendum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Gyða, Kristján og Eiríkur Jónsbörn. Amma. Amma var ekta amma í augum okkar systra. Amma bjó með afa á Bálka- stöðum í Hrútafirði. Amma gerði frábærar súkku- laðikökur með perlusykri, amma gerði gómsæta kanilsnúða og kleinurnar hennar voru bestu kleinur sem við höfðum smakkað og það fannst heimilishundinum Nellý líka, ömmu til armæðu, en við systur laumuðumst til að gefa Nellý með okkur. Amma var líka ekta amma að taka slátur og maður minn, hún átti sko flottasta sláturpott sem við höfðum nokkurn tíma séð. Amma og afi fluttu svo í Hveragerði. Við fórum alltaf í jólaboð á jóladag til ömmu og afa. Amma var alltaf amma, tók svo vel á móti okkur og knúsaði. Amma átti alltaf súkkulaði inni í skáp til að gefa okkur. Amma var líka alltaf prjónandi og það gerði hún listavel eins lengi og hún gat. Amma var líka sniðug. Þegar þau fluttu í Hveragerði setti amma alltaf teygjur á hnúðana á skáphurðunum til að leirtauið færi nú ekki af stað í smá jarð- skjálfta. Elsku amma, nú ertu farin frá okkur en ekki úr hjörtum okkar, það er okkur þó huggun að þú sért laus úr viðjum veikinda þinna. Takk fyrir allt, amma. Sigríður Gyða Halldórs- dóttir, Kristín Halldóra Halldórsdóttir, Birna Mar- grét Halldórsdóttir. Elsku Sigga amma. Hvernig viltu láta minnast þín eru orð sem eru mikið í umræðunni í dag. Ég held að Sigga amma hafi verið mjög meðvituð um þetta hugtak, hreinskilin er orð sem kemur fyrst upp í hugann, amma var t.d. mjög fljót að benda manni á það ef maður var orðinn fullmjúkur, þetta gerði hún eingöngu vegna þess að hún vissi að aukakíló gera lífið allt erfiðara, hún vissi líka að það er bara engan veginn hollt að vera feitur eins og hún orðaði það. Amma var alltaf heilsuhraust og var t.d. fljótari að standa upp úr stól en við unga fólkið alveg fram á síðasta dag. Húmor ömmu var líka mjög hreinskilinn og hún var flink í að koma fyrir sig orð- inu og hnyttin. Það síðasta sem hún sagði sniðugt við okkur var þegar ég og maðurinn minn, Kjartan, komum að heimsækja þau og Kjartan heilsar henni og segir: „Sæl Sigga, gaman að sjá þig,“ og þá allt í einu svarar hún með glampa í augunum: „Ég veit það vel“. Hún kunni sko alveg að slá á létta strengi al- veg fram á síðasta dag. Amma vildi alltaf að maður væri duglegur í handavinnu, prjóni eða hekli eða bara að leggja kapal, bara að maður hefði eitthvað fyrir stafni. Eftir að ég fékk bílpróf fórum við þrjú (ég, amma og afi) í nokkur samvinnu- verkefni þar sem við gerðum upp nokkrar mublur. Við gerðum upp gamalt snyrti- borð frá föðurlangömmu minni (Margréti), við gerðum einnig upp stól sem pabbi minn fékk í fermingargjöf, amma saumaði allt nýtt utan um stólinn og utan um pullu sem honum fylgir. Ég bað ömmu um í brúðkaupsgjöf eins peysur á okkur hjónin sem hún myndi prjóna, það var nú auðsótt. Ég valdi lopann og munstrið og mætti svo með þetta í Kambahraunið og setti ömmu inn í verkefnið, þessar peysur passa ég og þykir ógurlega vænt um. Allar þessar mublur eru inni í stofu hjá mér núna ásamt solo- eldavélinni sem við Kjartan gerð- um upp sem var fyrsta eldavélin í þeirra búskap á Bálkastöðum í Hrútafirði. Mér þykir gríðarlega gaman og vænt um þessi hand- verk öll og passa þau vel. Það er heiðarleikinn og handverkið sem maður tekur með sér og þykir svo vænt um. Amma prjónaði í áratugi fyrir Handprjónasambandið lopapeys- ur og svo prjónaði hún hosur á afa úr afgangslopa, ég man eftir að hafa fengið nokkur pör af stórum hosum sem maður sleit svo við heimanám í menntaskóla og háskóla. Amma fékk alzheimer og hvarf því smátt og smátt síðustu ár. Það er þakklæti mitt gagnvart hreinskilninni og góðar minning- ar og margar kennslustundir til ýmissa verka sem standa upp úr. Hvíl nú í friði elsku amma, kveðja Nína. Sigríður Magnúsdóttir Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Kristín IngólfsdóttirSverrir Einarsson Margrét Á. Guðjónsd. Hannes Ó. Sampsted

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.