Morgunblaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 23.08.2018, Blaðsíða 68
68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018 Tónlistarmennirnir Lord Puss- whip, Good Moon Deer og Allen- heimer koma fram á tónleika- staðnum Húrra í kvöld og verður hleypt inn frá kl. 20. Þeir félagar hafa getið sér gott orð fyrir spenn- andi tilraunir á jaðri taktfastrar tónlistar, eins og því er lýst í til- kynningu. Réttum nöfnum heita listarmennirnir Þórður Ingi Jóns- son (Lord Pusswhip), Guðmundur Úlfarsson (Good Moon Deer) og Atli Bollason (Allenheimer). Þeir munu leggja mikið upp úr sjónrænum þætti tónleikanna í kvöld og minna úr eigin viðveru, eins og því er lýst og mun Atli t.d. koma með myndbandsspólur sem hann hefur sankað að sér og snúið út úr og skælt og ætlar sjálfur að dyljast að hálfu bak við tjald. Milli þess sem Lord Pusswhip, Good Moon Deer og Allenheimer spila stendur DJ Bervit vaktina við plötuspilarana, segir í tilkynningu. Aðgangseyrir er 1.500 kr. Leggja mikið upp úr því sjónræna Tilraunaglaður Lord Pusswhip er lista- mannsnafn Þórðar Inga Jónssonar. Á slóðum fullveldis er yfirskrift kvöldgöngu sem Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur leiðir í kvöld. Gengið verður um miðbæ Reykjavíkur og rifjaðir upp atburðir hins viðburðaríka árs 1918. „Ef aðeins eru skoðaðir íslenskir atburðir má helst nefna að hér var þvílíkur fimbulkuldi að veturinn árið 1918 var kallaður frostavet- urinn mikli. Sama ár gaus Katla og fylgdi gosinu mikið jökulhlaup og urðu bændur fyrir miklum skemmdum. Aðeins viku síðar barst spænska veikin til landsins og kostaði hátt í 500 íslensk mannslíf. Hinn 1. desember þetta ár átti hins vegar sá merki og jákvæði atburður sér stað að Ísland varð frjálst og fullvalda ríki í konungs- sambandi við Danmörku. Lítið var þó um hátíðahöld vegna eftirkasta spænsku veikinnar,“ segir í tilkynningu. Lagt verður af stað frá listaverki Ólafar Pálsdóttur Tónlistarmanninum við Hörpu kl. 20. Gangan tekur um það bil 90 mínútur og hentar öllum. Leiðsögnin fer fram á íslensku. Þátttaka er ókeypis. Gengið á slóðum fullveldis í kvöld Gunnar Þór Bjarnason Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík, RIFF, verður haldin 27. september til 7. október, en hátíðin á 15 ára afmæli í ár. Flestar myndir há- tíðarinnar í ár verða sýndar í Bíó Paradís, en einnig á Loft hosteli og Stúdentakjallaranum. Umræðu- dagskrá og bransadagar fara fram í Norræna húsinu. Á hátíðinni verða sýndar um 70 kvikmyndir í nokkrum flokkum. Þar er um að ræða verð- launamyndir frá hátíðum víða um heim auk þess sem fjölmargar mynd- ir verða Norðurlanda- og Evrópu- frumsýndar á hátíðinni. Jonas Mekas heiðraður „Eins og vanalega mun hátíðin hafa svæði eða land í fókus á RIFF. Eystrasaltslöndin urðu fyrir valinu enda mikil gróska verið þar í kvik- myndagerð undanfarin ár, auk þess sem 100 ár eru liðin síðan öll þrjú rík- in fengu sjálfstæði frá Sovétríkjunum árið 1918,“ segir í tilkynningu. Þar kemur einnig fram að litháíski kvikmyndagerðarmaðurinn Jonas Mekas hljóti heiðursverðlaun RIFF fyrir æviframlag sitt til kvikmynda- gerðar. „Hann hefur af mörgum verið kallaður guðfaðir bandarískrar fram- úrstefnukvikmyndagerðar.“ Mekas fæddist í Litháen 1929 og flúði til Bandaríkjanna 1944. „Á löngum og viðburðaríkum ferli hefur hann gert ótal myndir, jafnt stuttar sem langar, og unnið til verðlauna víða um heim. Myndir hans eru margvíslegar en hann er hvað þekktastur fyrir að gera svokallaðar „dagbókarmyndir“, sem samanstanda af myndskeiðum úr hversdagslífi hans. Mekas hefur unn- ið í nánu samstafi við marga af nafn- toguðustu listamönnum heims, þar má nefna Andy Warhol, Allen Gins- berg, Salvador Dalí, Yoko Ono og John Lennon. Mekas er margt til lista lagt. Hann hefur ávallt verið ið- inn við að skrifa um kvikmyndir og stofnaði meðal annars tímaritið Film Culture ásamt bróður sínum Adolfas Mekas sem var helgað kvikmynda- listinni. Hann er einnig afkastamikið ljóðskáld og telst eitt merkasta sam- tímaljóðskáld Litháens.“ Fókus á Eystrasaltslöndin Morgunblaðið/Árni Sæberg Ern Jonas Mekas í Reykjavík 2008. Elsa Nielsen, myndlistarmaður og grafískur hönnuður, opnar í dag kl. 17 sýningu í Galleríi Gróttu sem er í Bókasafni Seltjarnarness á 2. hæð Eiðistorgs. Sýninguna nefnir hún Díla og vísar þar í depil eða pixil sem er tvívíð myndeind og minnst eining stafrænnar ljósmyndar og alltaf ein- lit, eins og segir í tilkynningu. Elsa leikur sér með díla sem viðfangsefni og mun útkoman koma skemmtilega á óvart, skv. tilkynningu. Elsa er fædd árið 1974, útskrif- aðist frá Listaháskóla Íslands árið 1999 og rekur nú eigin hönnunar- stofu en á að baki fjölda sam- og einkasýninga á sviði málaralistar. Elsa var útnefnd bæjarlistamaður Seltjarnarness fyrir tveimur árum. „Á sviði málaralistarinnar hefur Elsa einkum einbeitt sér að því að mála uppstækkaðan grafískan myndflöt á striga með akrýllitum. Verkunum ljær hún dýpt með því að byggja flötinn upp með sparsli og sandi. Þó að málverk Elsu standi sjálfstæð sýna þau glöggt hvernig henni tekst að færa margra ára reynslu og kunnáttu með grafíska miðlun yfir á annað stig,“ segir í til- kynningu um málverk Elsu. Elsa sýnir í Galleríi Gróttu Dílar Elsa Nielsen opnar sýninguna Dílar í Galleríi Gróttu í dag kl. 17. Adrift 12 Morgunblaðið bbbmn Metacritic 56/100 IMDb 6,7/10 Bíó Paradís 20.00, 22.00 Undir trénu 12 IMDb 7,1/10 Bíó Paradís 22.00 Hearts Beat Loud Metacritic 65/100 IMDb 7,1/10 Morgunblaðið bbbmn Bíó Paradís 22.00 Studniówk@ (The Prom) Bíó Paradís 18.00 Svanurinn 12 Morgunblaðið bbbmn IMDb 6,6/10 Bíó Paradís 20.00 Loveless 12 Metacritic 86/100 IMDb 7,7/10 Bíó Paradís 17.30 Hleyptu sól í hjartað 16 Bíó Paradís 22.00 101 Reykjavík Metacritic 68/100 IMDb 6,9/10 Bíó Paradís 18.00 The Meg 12 Metacritic 46/100 IMDb 6,2/10 Sambíóin Álfabakka 17.00, 17.30, 19.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 17.00, 19.40, 22.10 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.30 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.30 Slender Man 16 Smárabíó 17.30, 19.10, 19.50, 21.40, 22.10 Háskólabíó 21.00 Borgarbíó Akureyri 21.50 Mile 22 16 Laugarásbíó 20.00, 22.10 Sambíóin Keflavík 22.30 Smárabíó 20.10, 22.30 Háskólabíó 18.20, 21.10 Borgarbíó Akureyri 19.30 Mamma Mia! Here We Go Again Morgunblaðið bbbbn Metacritic 60/100 IMDb 7,3/10 Laugarásbíó 17.20, 19.50 Sambíóin Kringlunni 17.00, 19.30 Sambíóin Keflavík 20.00 Smárabíó 16.30, 17.00, 20.00, 22.30 Háskólabíó 17.50, 20.40 Borgarbíó Akureyri 17.00, 19.30 The Spy Who Dumped Me 16 Metacritic 51/100 IMDb 6,4/10 Laugarásbíó 20.00, 22.25 Borgarbíó Akureyri 21.30 The Equalizer 2 16 Metacritic 50/100 IMDb 7,1/10 Smárabíó 19.40, 22.20 Hereditary 16 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 87/100 IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 22.15 Sambíóin Egilshöll 22.30 Book Club Metacritic 53/100 IMDb 6,3/10 Háskólabíó 18.00, 20.50 Tag 12 Metacritic 56/100 IMDb 7,1/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 Ocean’s 8 Morgunblaðið bbbnn Metacritic 61/100 IMDb 6,4/10 Sambíóin Álfabakka 17.20 Sambíóin Kringlunni 21.55 Jurassic World: Fallen Kingdom 12 Morgunblaðið bbmnn Metacritic 51/100 IMDb 6,5/10 Laugarásbíó 17.20 Christopher Robin Christopher Robin hittir skyndilega gamlan vin sinn Bangsimon, og snýr með honum aftur í ævintýraheim bernskunnar. Metacritic 59/100 IMDb 8,0/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.00 Sambíóin Egilshöll 17.30 Sambíóin Kringlunni 17.00 Sambíóin Akureyri 17.15 Úlfhundurinn Frábær teiknimynd byggð á metsölubókinni White Fang efti Jack London. Ungur maður vingast við úlfhund og leitar að föður sínum sem er horfinn. Metacritic 61/100 IMDb 6,9/10 Smárabíó 15.10, 17.40 Borgarbíó Akureyri 17.30 Hin Ótrúlegu 2 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 80/100 IMDb 8,1/10 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00 Sambíóin Egilshöll 17.30 Sambíóin Akureyri 17.30 Hótel Transylvanía 3: Sumarfríið Metacritic 54/100 IMDb 6,4/10 Laugarásbíó 17.30 Smárabíó 15.00, 17.20 Draumur Smárabíó 15.20 Ethan Hunt og sérsveit hans og bandamenn, eiga í kappi við tímann eftir að verkefni mis- heppnast. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 86/100 IMDb 8,4/10 Sambíóin Álfabakka 18.00, 21.00, 22.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 18.00, 20.00, 22.00 Sambíóin Kringlunni 19.30, 22.30 Sambíóin Akureyri 19.30, 22.30 Mission Impossible - Fallout 16 Kona fer í stríð Kona á fimmtugsaldri ákveður að bjarga heiminum og lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdar- verkamaður og er tilbúin að fórna öllu fyrir móður jörð og há- lendi Íslands þar til mun- aðarlaus stúlka frá Úkraínu stígur inn í líf hennar. Morgunblaðið bbbbb Háskólabíó 18.10 Bíó Paradís 20.00 Ant-Man and the Wasp 12 Hope van Dyne og dr. Hank Pym skipuleggja mikilvæga sendiför, þar sem Ant-Man þarf að vinna með The Wasp til að leiða í ljós leyndarmál úr fortíðinni. Morgunblaðið bbbnn Sambíóin Álfabakka 22.30 Sambíóin Egilshöll 20.00 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.