Morgunblaðið - 27.08.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Ólík sýn í aðdraganda kjaraviðræðna
Almenn ánægja með samtal við stjórnvöld um kjaraviðræður í haust KÍ lítur til loforða frá því í vor
Skýrsla Gylfa Zoëga gott veganesti inn í veturinn Skiptar skoðanir um svigrúm til launahækkana
Axel Helgi Ívarsson
Jón Birgir Eiríksson
„Við eigum eftir að fjalla um skýrsluna formlega
innan okkar raða, en ég tel hana vera ágætis
samantekt og lýsingu á stöðunni í efnahagslíf-
inu. Hún skýrir ágætlega hvaða afleiðingar of-
urvöxtur í ferðaþjónustunni hefur haft, m.a. á
gengi gjaldmiðilsins. Hún greinir vel hvaða
hættur steðja að okkur og sem slík verður hún
vonandi grundvöllur til að taka upplýsta um-
ræðu um stöðuna,“ segir Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir, formaður BHM, um skýrslu Gylfa
Zoëga, hagfræðiprófessors við HÍ, um stöðu
efnahagsmála í aðdraganda kjaraviðræðna.
Skýrslan, sem var unnin fyrir forsætisráðuneyt-
ið, var birt fyrir helgi og segir Þórunn hana gott
upplegg fyrir kjaraviðræður og að það sé virð-
ingarvert af forsætisráðherra að efna til sam-
talsins á grundvelli hennar.
„Það er gott að sjá að þarna er bent á atriði
sem við og fleiri á vinnumarkaði höfum bent á,
að stjórnvöld þurfi að gera sitt til að stuðla að
stöðugleika á vinnumarkaði. Gylfi bendir á
ákveðna hluti, t.d. varðandi stöðuna á húsnæð-
ismarkaði, vinnuálagið í samfélaginu og annað
slíkt. Ég vona að þær ábendingar verði teknar
alvarlega. Einnig nauðsyn þess að fólk njóti þess
kaupmáttar sem mælst hefur,“ segir Þórunn.
Halldór Benjamín Þorbergsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir
þann hluta skýrslunnar sem snýr að efnahags-
legri stöðu hagkerfisins ríma við málflutning SA
síðustu misserin. „Gylfi dregur fram að kaup-
máttur launa hefur vaxið meira en nokkur dæmi
í Íslandssögunni eru um og bendir á að það sé
óvarlegt að halda áfram að hækka laun með
þeim takti sem við gerðum síðast. Ég held að all-
ir sanngjarnir menn sem eru í sambandi við ein-
hver fyrirtæki í landinu finni það og sjái að síð-
ustu kjarasamningar voru of bólgnir. Nú sé tími
til að staldra við og leyfa fyrirtækjunum að fá
byr í seglin á nýjan leik áður en við höldum
áfram frekari hækkunum,“ segir Halldór og
kveðst ánægður með samtalið við stjórnvöld.
„Það má deila um það hvort það er nóg eða
hvort það sé of mikið. Ég held þetta sé gott
veganesti inn í veturinn. Við byrjum á því að
koma okkur saman um það hvað sé til skiptanna
og mér finnst Gylfi hafa dregið það ágætlega
fram. Það sem eftir stendur er hvernig við eig-
um að skipta því,“ segir hann og bendir á að það
sé verkefni aðila vinnumarkaðarins.
Ráðist af því hvernig svigrúmið er nýtt
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir það
eðlilegt skref að rýna í stöðu efnahagsmála við
undirbúning kjarasamninga og móta aðkomuna
á grundvelli efnislegra raka. „Auðvitað ræðst
þetta af því hvernig þetta svigrúm verður nýtt,“
segir hann og bendir á að oft hafi skapast sátt
um svigrúm til launahækkana á vettvangi ASÍ
þegar hluta þeirra er sérstaklega ráðstafað til
þeirra tekjulægstu.
„Það er margt þarna sem ég myndi vilja fá að
rýna betur áður en við mótum okkar afstöðu,“
segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB,
sem kveðst aðspurð ósammála því mati Gylfa að
minna svigrúm sé til launahækkana nú en 2015.
Félög BSRB muni skoða málin á breiðari grund-
velli við kröfugerð. „Það gefur augaleið að ým-
islegt hefur gerst frá 2015. Þá voru sett fram
ákveðin markmið sem hafa bara að hluta til
gengið eftir, að öðru leyti ekki,“ segir hún og
nefnir að nú sé m.a. ákall um félagslegan stöð-
ugleika, umbætur í húsnæðismálum, bætt kjör
fjölskyldna með barnabótum og húsnæðisbót-
um, styttingu vinnuvikunnar. „Félögin munu
síðan gera launakröfur eftir því sem hefur gerst
á vinnumarkaði frá 2015 og þar hefur skiptingin
ekki verið jöfn,“ segir hún.
„Það sem Gylfi Zoëga gerir í þessari skýrslu
og fór yfir á fundi var að mála sviðsmynd, að það
væri svona og svona mikið svigrúm til hækkana
út frá hefðbundnum mælikvörðum,“ segir Ragn-
ar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands
Íslands. „Samningar allra kennarafélaga losna
ekki fyrr á næsta ári. Við höfum tekið þátt í
þessu samtali með stjórnvöldum og gerum það
áfram. Það liggur alveg fyrir að það þarf að
bæta kjör þeirra hópa sem starfa í skólunum,“
segir Ragnar Þór og bendir á að sumir flokkar
hafi gefið loforð um bætt kjör kennara í sveit-
arstjórnarkosningum í vor, m.a. í Reykjavík.
Morgunblaðið/Eggert
Smiðir Margir og fjölbreyttir hópar launa-
fólks munu eiga í kjaraviðræðum í vetur.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er stefnt að því að rann-
sókn lögreglunnar á Suðurnesjum á
meintum grófum kynferðisbrotum
gegn tveimur börnum verði lokið á
innan við viku til tíu dögum. Sætir
maður sem grunaður er um verkn-
aðinn gæsluvarðhaldi til 18. sept-
ember. Hinn kærði hefur játað að
hluta, en brotaþoli lagði fram kæru á
hendur honum og konu hans 10. júlí
sl. Sama dag kærði annar ein-
staklingur parið fyrir kynferðis- og
ofbeldisbrot gegn ólögráða barni.
Í frétt RÚV kom fram að börnin
væru á grunnskólaaldri og tengd
fólkinu fjölskylduböndum. Ólafur
Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á
Suðurnesjum, vildi ekki tjá sig um
rannsóknina í gær, en umfang
meintra brota er m.a. til skoðunar.
Ljúki innan
tíu daga
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Nýr uppgröftur í landi Auðkúlu í
Arnarfirði sýnir fram á að þar hafi
búið auðugir bændur á landnáms-
öld. Þar hefur nú verið grafinn upp
23 metra skáli sem er sá stærsti
sem fundist hefur í greftri á Vest-
fjörðum.
Fornleifafræðingurinn Margrét
Hrönn Hallmundsdóttir er umsjón-
armaður verkefnisins Arnarfjörður
á miðöldum í landi Auðkúlu og
Hrafnseyrar í Arnarfirði sem hófst
árið 2011. „Ég kemst að því að
þarna er skáli árið 2013 eftir að
hafa framkvæmt könnunarskurð.
Tveimur árum síðar byrjum við að
grafa og opnum skálann loks allan í
sumar,“ útskýrir Margrét. Hún seg-
ir skálann þann stærsta af þeim
fimm skálum sem fundist hafa á
Vestfjörðum. „En þó eru líklega til
fleiri skálar ógrafnir sem ekki hafa
verið rannsakaðir.“
Ýmsir munir hafa fundist í skál-
anum sem gefa til kynna að býlið
hafi verið auðugt. Þ. á m. silfur-
hringur, ellefu perlur, snælda og
exi, ásamt því að í ljós komu minjar
um bænhús og kirkjugarð. „Þó er-
um við ekki enn komin niður í gólf-
in þar sem oftast er mest að finna
en það er á dagskrá næsta sumar.“
Fyrir ofan skálann fannst járn-
vinnslusvæði og bendir allt til þess
að mikil járnvinnsla hafi átt sér
stað í Arnarfirðinum en einnig
fundust merki um járn á Hrafnseyri
og á Grelutóftum skammt frá.
„Það er nóg eftir“
Margrét sér ekki fyrir endann á
vinnu þeirra í Arnarfirðinum þar
sem næg verkefni bíði úrvinnslu.
„Það er nóg eftir. Það er líklegast
fjós við hliðina á skálanum og stór
smiðja á túninu sem tengist líklega
járnvinnslunni svo það er áhuga-
verð vinna framundan. Þá er mögu-
lega annar skáli ekki langt frá þess-
um.“
Fyrsta aldursgreining skálans
bendir til þess að hann sé frá 9. öld
og telst því landnámsskáli. Áður
hafði Margrét grafið upp 10. aldar
jarðhýsi á Hrafnseyri og telur lík-
legt að þar megi einnig finna skála.
„Þetta sýnir okkur að hér í Arnar-
firðinum var búið mjög snemma en
það virðist hafa verið búið á þessum
þremur bæjum strax á 9. og 10. öld.
Sumir hafa haldið því fram að Vest-
firðir hafi ekki byggst jafn fljótt og
aðrir landshlutar en það bendir allt
til þess að fólk hafi verið komið
hingað mjög snemma. Mér finnst
það ekki skrýtið, þetta er svo fal-
legur fjörður,“ segir Margrét og
hlær.
Gróska í Arnarfirði á landnámsöld
Fornleifafræðingar Kristín Sylvía Ragnarsdóttir aðstoðaruppgraftarstjóri
og Margrét Hrönn Hallmundsdóttir uppgraftarstjóri verkefnisins.
Ljósmynd/Margrét Hrönn Hallmundsdóttir
Ríkidæmi Skálinn sem fannst er 23 metrar á lengd og því stærsti skáli þess tíma sem fundist hefur á Vestfjörðum.
Stærsti skáli
sem fundist hefur
á Vestfjörðum
Silfurhringur Var meðal þeirra
muna sem fundust í greftrinum.
Fjórir voru fluttir, mismikið slasaðir
eftir bílveltu, með þyrlu Landhelg-
isgæslunnar á Landspítalann í Foss-
vogi síðdegis í gær. Slysið varð á
þjóðveginum í Eldhrauni og var bif-
reiðin á vesturleið frá Kirkjubæjar-
klaustri. Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglunni á Suðurlandi var
fernt í bílnum, erlendir ferðamenn
sem allir eru í sömu fjölskyldu. Einn
farþeginn, stúlka fædd 2003, er al-
varlega slösuð en hún kastaðist út úr
bílnum. Annar aðili er minna slas-
aður og hinir tveir með minniháttar
áverka. Umferð var stöðvuð á meðan
þyrla athafnaði sig á slysstað. Rann-
sóknarnefnd samgönguslysa og
tæknideild lögreglu luku vinnu á
vettvangi síðdegis í gær.
Ljósmynd/Jónas Erlendsson
Slys Fernt var í bílnum sem valt og
er eitt alvarlega slasað.
Bílvelta í
Eldhrauni
Flutt með þyrlu