Morgunblaðið - 27.08.2018, Page 4
BAKSVIÐ
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Talsverður munur getur verið á
kostnaði við tannlæknaþjónustu hér
á landi og í sumum öðrum löndum,
fjöldi Íslendinga fer til tannlækna
erlendis og dæmi eru um að þeir
borgi þar um fimmtung þess sem
þeir hefðu þurft að borga hér. Elín
Sigurgeirsdóttir, formaður Tann-
læknafélags Íslands, segir erfitt að
fullyrða um gæði þeirrar tann-
læknaþjónustu sem framkvæmd sé í
öðrum löndum, hún sé eins mismun-
andi og hún sé mörg. Félaginu hafi
þó verið tilkynnt um nokkur tilvik
þar sem vinnu erlendra tannlækna
hafi verið ábótavant.
A.m.k. tvær tannlæknastofur í
Póllandi auglýsa þjónustu sína á ís-
lensku á samfélagsmiðlum og á vef-
síðum sínum á netinu. Þar er m.a.
boðið upp á pakkaferðir með ókeyp-
is skoðun og niðurgreiddu flugi og
gistingu, fari kostnaðurinn yfir til-
tekið viðmið.
160.000 í stað 800.000
Ingvar Jónsson ráðgjafi og fram-
kvæmdastjóri fór í síðustu viku til
tannlæknis í borginni Gdansk í Pól-
landi. Nokkurra viðgerða var þörf á
tönnum Ingvars, m.a. að skipta um
krónur og smíða brú og hafði tann-
læknir hans hér á landi áætlað að
þær myndu kosta um 800.000 krón-
ur. Ingvar ákvað að kanna fleiri
möguleika og hafði samband við
tannlæknastofuna Euromiladent í
borginni Gdansk í Póllandi sem er
með íslenska heimasíðu og face-
booksíðu og fékk þar verðmat.
Hann segist hafa kynnt sér starf-
semi stofunnar vel og lesið umsagn-
ir fólks sem hafði farið þangað.
Hann flaug síðan utan í síðustu viku
og fékk viðgerðir á tönnum sínum.
Fyrir það greiddi hann 160.000
krónur, eða um 20% af verðinu sem
honum hafði verið gefið upp hér á
landi. Að auki greiddi Ingvar fyrir
flugferðir og gistingu í Gdansk.
Eflaust hægt að
réttlæta verðið
„Íslenskir tannlæknar geta ef-
laust réttlætt verðlagninguna hjá
sér, enda miklir fagmenn,“ segir
Ingvar. „En sem neytandi hef ég
þetta val og ég sparaði mér um
hálfa milljón þegar allt er reiknað
saman. Ég geri mér auðvitað grein
fyrir að ég gæti verið að taka
áhættu með þessu, ef eitthvað kem-
ur upp á er ég líklega í verri málum
en ef ég hefði látið gera þetta hérna
heima,“ segir Ingvar sem segist
mæla heilshugar með því að fólk
beri saman verð og gæði hjá ís-
lenskum og erlendum tannlæknum
áður en það leggur út í kostnaðar-
samar tannlækningar.
Tilkynnt um yfirmeðhöndlun
Elín segir að engar tölur séu til
um fjölda þeirra Íslendinga sem fari
til annarra landa í þeim tilgangi að
fara til tannlækna en ljóst sé að það
sé að aukast. „Þetta er auðvitað
ekkert nýtt, t.d. fóru nokkuð margir
til tannlækna í Búlgaríu fyrir 20-30
árum og á þeim tíma voru uppgrip
hjá mörgum af okkar tannlæknum
við að endurgera og lagfæra það
sem þá var gert,“ segir Elín.
Að sögn Elínar hafa tannlækna-
félaginu borist nokkrar tilkynningar
um svokallaða yfirmeðhöndlun hjá
tannlæknum í útlöndum en þar er
átt við að unnin séu tannlæknisverk
sem engin þörf sé fyrir.
„Ég get nefnt dæmi um einstak-
ling sem þurfti á einni krónu að
halda samkvæmt mati íslensks
tannlæknis, hann fór til útlanda og
kom til baka með sex krónur og
hafði verið sagt að það væri bráð-
nauðsynleg meðferð. Þarna var
verulega illa farið með tennur, því
betri er ókrýnd tönn en krýnd ef
hún þarf þess ekki með.“
Spurð hvers vegna svona mikill
verðmunur sé á tannlæknaþjónustu
hér á landi og t.d. í löndum Austur-
Evrópu, segir Elín að á því gætu
verið nokkrar skýringar. Hugsan-
lega sé verið að nota ódýrari hráefni
þar en hér. „Það verður líka að hafa
í huga að vinnuafl er almennt ódýr-
ara í löndum Austur-Evrópu en hér
á landi. Þá gætu gæði verið lakari
ytra en hér á landi, en ég vil taka
fram að það er ekki hægt að full-
yrða neitt um það.“
Elín segir að yfirleitt stoppi fólk
stutt við og vilji fá meðferðina fram-
kvæmda á sem stystum tíma þegar
það fer til útlanda í þeim tilgangi að
fara til tannlæknis. Hætta sé á að
mikill hraði og pressa komi niður á
vinnunni.
„Svo er eitt sem fólk verður að
hafa í huga og það er að ef eitthvað
fer alvarlega úrskeiðis, eins og t.d.
ef andlitstaug lamast eða rótarbólg-
ur myndast, þá er ekki víst að regl-
ur um sjúklingatryggingar séu alls-
staðar þær sömu og hér á landi. Þá
er alveg inni í dæminu að smitast af
fjölónæmum bakteríum. Í Noregi
þurfa sjúklingar sem leggjast inn á
sjúkrahús til að mynda að skila inn
blóðsýni hafi þeir þegið tannlækna-
meðferð í löndum Austur-Evrópu á
síðustu 12 mánuðum. Svo má ekki
gleyma að í heiminum eru um 2.000
tannplantakerfi, en hér á landi eru
4-5 í notkun. Það þýðir að íslenskir
tannlæknar geta tæplega orðið að
liði ef skrúfur eða eitthvað annað
losnar. Þannig að þetta er ekkert
einfalt og að mörgu að hyggja,“ seg-
ir Elín.
Borgaði einn fimmta í Póllandi
Dæmi eru um að tannlækningar erlendis kosti brot af því sem þær kosta hér á landi Sífellt fleiri
fara utan til tannlækninga og hópferð skipulögð Ódýrara vinnuafl og hráefni gæti skýrt verðmuninn
Thinkstock/Getty Images
Á tannlæknastofu Talsverður verðmunur getur verið á þjónustu tannlækna hér á landi og erlendis, t.d. í löndum
Austur-Evrópu. Formaður Tannlæknafélags Íslands segir að að mörgu sé að hyggja í þessum efnum. Ingvar
Jónsson
Elín
Sigurgeirsdóttir
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2018
Bir
tm
eð
fyr
irv
a
lík
Ah
ðv
er
ðg
etu
rb
re
yst
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
ill
H
i
f
ði
ás
kil
j
é
é
ill
ið
é
i
á
LONDON
ar
au
mm
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
FYRSTA BROTTFÖR 13. DESEMBER
slí
ku
.A
th.
að
as
ér
ré
ttt
ill
eið
ré
ttin
ga
á FLUGSÆTI
* FLUGSÆTI BÁÐAR LEIÐIR MEÐ TÖSKU OG HANDFARANGRI
Verð frá
29.900*
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Kulnun í starfi er vaxandi vandamál
í kennarastéttinni að sögn Ragnars
Þórs Péturssonar, formanns Kenn-
arasambands Íslands. Ástandið er
verst hjá leikskólakennurunum og
næstverst hjá grunnskólakennurum.
Margir leita aðstoðar hjá VIRK
starfsendurhæfingarsjóði, óháð aldri
og árafjölda í starfi sem kennari,
segir Ragnar í samtali við Morg-
unblaðið.
Þá segir hann að mjög lítill hluti
þeirra kennara sem hverfa frá starfi
vegna kulnunar skili sér í kennara-
starf á ný.
Aðspurður hvers vegna ástand-
ið sé verst í leik- og grunnskólum
bendir Ragnar m.a. á að aukið álag í
starfsumhverfi skólanna taki mikinn
toll af kennurum. Þá bendir hann
einnig á að skortur á leikskólakenn-
urum hafi sín áhrif. „Eitt öflugasta
vopnið gegn álagi í skólastarfi er
aukin fagþekking,“ segir Ragnar.
Hann birti á miðvikudaginn
pistil undir titlinum „Pössum hvert
annað“ á vef Kennarasambands Ís-
lands þar sem hann vakti athygli á
vandanum. Í lok pistilsins segir: „Ég
veit að eini hópurinn sem ekki þarf
að minna okkur á að passa upp á eru
síðan nemendurnir. En í því liggur
kannski rót vandans.“ Aðspurður
hvað hann eigi við með þessum orð-
um segir hann að það sé mjög auð-
velt að lenda í því að gefa meira af
sér en maður hefur að gefa.
„Það er að segja: nemendur
glíma við alls konar hluti og maður
setur velferð þeirra alltaf í fyrsta
sæti en maður þarf einnig að hugsa
um sjálfan sig og kennarar þurfa að
passa hver upp á annan,“ segir
Ragnar.
Kulnun í starfi er vaxandi
vandamál hjá kennurum
Staðan verst hjá leikskólakennurum, segir formaður KÍ
Morgunblaðið/Valli
Starf Ragnar segir eitt einkenna
kulnunar vera neikvætt viðhorf.
Dominika Majewska starfar hér
á landi fyrir tannlæknastofuna
Euromiladent í Gdansk í Pól-
landi en þangað leitaði Ingvar.
Hún segir að þeir Íslendingar
sem fari á stofuna séu á öllum
aldri og sú tannlæknaþjónusta
sem þeir þurfi á að halda sé af
ýmsum toga og mis-viðamikil,
en algengt sé að verið sé að
koma svokölluðum tann-
plöntum fyrir í tannstæði fólks.
Það sem af er þessu ári hafi
yfir 100 Íslendingar farið þang-
að til tannlækninga, núna séu
um tíu manns þar ytra og í
byrjun september fari 15
manns út. Þá hefur hópferð á
stofuna í byrjun október verið
skipulögð og að sögn Dominiku
hafa margir sýnt áhuga á
henni.
Fjölbreyttur
hópur fólks
HÁTT Á ANNAÐ HUNDRAÐ