Morgunblaðið - 27.08.2018, Page 8

Morgunblaðið - 27.08.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2018 Fjölmiðlanefnd ríkisins færir sigupp á skaftið með nýjum ákvörðunum um efni í litlum fjöl- miðli, Hringbraut. Ríkisstofnunin sekt- ar nú þennan fjöl- miðil vegna umfjöll- unar um tvö mál. Í annarri umfjöll- uninni kom fram gagnrýni á Seðlabankann, núver- andi seðlabankastjóra og gjaldeyr- iseftirlit bankans.    Ríkisstofnunin segir að hlut-lægni hafi ekki verið gætt í umfjölluninni og sektar miðilinn. Þegar ríkisafskipti af fjölmiðlum eru komin út á slíka braut hlýtur að verða að staldra við.    Ríkið getur haft mikil afskipti afefni frjálsra fjölmiðla með þeim rökum sem ríkisstofnunin ber fram gegn Hringbraut nú. Er það sú leið sem ráðamenn þjóðarinnar og alþingismenn vilja feta?    Ætlar ríkið að halda áfram aðritskoða íslenska fjölmiðla?    Slík ríkisstofnun getur líka látiðundir höfuð leggjast að gera nokkuð þó að hlutlægni sé ekki gætt. Í könnunum sem Fjölmiðla- nefnd lét gera fyrir tveimur árum kom fram að almenningur sér í gegnum fréttaflutning Rík- isútvarpsins gagnvart stjórn- málaflokkunum. Stuðningsmenn vinstri flokkanna töldu Rúv. fremur hlutlaust í umfjöllun en stuðnings- menn annarra flokka töldu Rúv. alls ekki hlutlaust.    Þetta stafar vitaskuld af því aðRúv. dregur taum vinstri flokkanna í umfjöllun sinni. Fjöl- miðlanefnd setti ekki ofan í við Rúv. vegna þessa og sektaði það ekki. Hættuleg braut ríkisritskoðunar STAKSTEINAR Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 690 12 POKI Fyrstu 5 0 viðski pta- vinir á d ag fá flo ttan gjafapok a GJAFA T A DROTTNINGSettu símanúmerið þittí Nova Diskó kúlunaog þú gætir unniðNokia 7 síma MÆTIRSérfræðingar frá Nokiaverða á staðnum ogveita góð ráðlaugardag NOKIA DISKÓ NOVA MÆTIR Sérfræð ingar frá Trust verða á staðnum og veita gó ð ráð laugarda g VEISLAMánudag til föstudags10:00 - 18:00Laugardag og sunnudag12:00 - 18:00 AFMÆLIS Veður víða um heim 26.8., kl. 18.00 Reykjavík 11 skýjað Bolungarvík 8 léttskýjað Akureyri 11 skýjað Nuuk 11 léttskýjað Þórshöfn 11 skýjað Ósló 17 rigning Kaupmannahöfn 18 léttskýjað Stokkhólmur 16 skúrir Helsinki 14 þrumuveður Lúxemborg 18 heiðskírt Brussel 17 rigning Dublin 16 skýjað Glasgow 12 alskýjað London 15 rigning París 23 heiðskírt Amsterdam 16 rigning Hamborg 18 léttskýjað Berlín 19 heiðskírt Vín 18 skýjað Moskva 24 heiðskírt Algarve 26 heiðskírt Madríd 32 heiðskírt Barcelona 25 léttskýjað Mallorca 28 léttskýjað Róm 23 rigning Aþena 29 léttskýjað Winnipeg 17 þoka Montreal 19 skúrir New York 26 léttskýjað Chicago 27 þoka Orlando 29 rigning Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 27. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:56 21:03 ÍSAFJÖRÐUR 5:52 21:17 SIGLUFJÖRÐUR 5:35 21:01 DJÚPIVOGUR 5:23 20:35 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Stór borgarísjaki strandaði í gær við Hornbanka, um 40 mílur norðaustur af Horni. Strandaði hann á u.þ.b. 100 metra dýpi. Ísjakinn festist á „besta blettinum“, að sögn Guðmundar Gísla Geirdal á Gísla KÓ-10. „Þetta er náttúrulega ógurlega stórt. Ég fór alveg að honum og það var að brotna aðeins úr honum,“ sagði hann í samtali við mbl.is í gær- kvöldi. „Hann er þarna á bletti þar sem ég hef verið að veiða voðalega stóran fisk og ég fór alveg upp að honum og náði þar svolítið miklu af þessum stóra. Fékk alveg fjögur kör af fiski sem var allur yfir 20 kíló. Það er náttúrulega bara ævintýri,“ sagði hann. Guðmundur hefur verið að veiða þorsk síðustu daga ásamt syni sínum Axel Erni Guðmundssini, en hann er á Glæ KÓ-9. „Það er voða gaman að vera svona saman að þessu,“ sagði hann. Veðurstofa Íslands tilkynnti í gærkvöldi um annan borgarísjaka sem var um sex kílómetra norðnorð- vestur af Reykjaneshyrnu og um 18 kílómetra frá landi. Jakinn sem er með tvo tinda, færðist vestar í gær, að því er fram kom í tilkynningu Veðurstofunnar. Stór ísjaki norðaustur af Horni  „Þetta er náttúrulega ógurlega stórt“  Annar stór jaki við Reykjaneshyrnu Ísjaki Glær KÓ-9 við Hornbanka og borgarísjakinn í bakgrunni. „Það er svo sem ekkert sérstakt nema að því leyt- inu til að frá því í lok júlí, eða frá síðustu viku júlí og fram í miðjan ágúst hafi verið hásumar. Þá fengum við sum- artíð á landinu, sérstaklega hvað varðar hitann,“ segir Einar Svein- björnsson veðurfræðingur í samtali við Morgunblaðið um hvernig skýra megi hið blíða veður, sem hefur ríkt á suðvesturhorninu í ágúst. „Það má segja að sumarið hafi náð hámarki á svæðunum í kring- um okkur. Við það hlýnaði um- hverfis okkur og við nutum góðs af því. Þetta sést á meðalhitanum og sólardögum, allt í einu komu sól- ardagar í ágúst, sem voru ekki í júní og júlí,“ segir Einar enn frem- ur. Hásumartíðin varði í um þrjár vikur en að sögn Einars hefur sumri hallað greinilega undanfarna viku. Kólnað hefur í veðri og næt- urfrost mælst á nokkrum stöðum en Einar segir það ekki vera óvenju- legt að sumri sé farið að halla á þessum tíma í lok ágúst. axel@mbl.is Einar Sveinbjörnsson Hásumar frá júlílokum  Skaplegra veður nú en í júní og júlí

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.