Morgunblaðið - 27.08.2018, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 27.08.2018, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2018 Meira til skiptanna Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama og sál Laugarnar í Reykjavík Frá morgnifyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Framsetning reglugerða í reglu- gerðasafni Stjórnarráðsins á vefnum reglugerd.is er óskýr, að mati Viðskiptaráðs Ís- lands. Í umsögn um Grænbók sem lið í stefnumótun á málefnasviði hagskýrslugerð- ar, grunnskráa og upplýsingamála, vekur ráðið at- hygli á þessu og segir að einfalt sé að ráða bót á þessum vanda með því að birta reglugerðir í heild með öllum síðari breytingum og bæta þar með upplýsingagjöf til þegna landsins. Tíu breytingar hjálagðar „Nú er sá hátturinn hafður á að reglugerðir eru birtar í reglugerðar- safni Stjórnarráðsins og allar síðari breytingar á þeirri reglugerð birtar í aðskildum skjölum. Í mörgum tilvik- um hefur tiltekinni reglugerð verið ítrekað breytt svo flókið getur verið að fá heildarsýn yfir reglugerðir,“ segir í umsögn Viðskiptaráðs. Í laga- safni á vef Alþingis eru lagabreyting- ar felldar inn í lögin, þó þannig að þær megi lesa einar og sér. Viðskiptaráð vísar til lagafrum- varps Pírata sem lagt var fram á þingi veturinn 2015-16. Þar var lagt til að texta breytinga skyldi fella við gildandi stjórnvaldsfyrirmæli eða samninga og birta á vefjum þeirra ráðuneyta sem færu með fram- kvæmd málaflokksins. „Það virðist borðleggjandi að framkvæmdavaldið uppfærir reglu- gerðir á vefnum. Það er nú þegar gert í nokkrum tilfellum hjá ríkis- stofnunum. Þær eru þokkalegar í því að halda utan um þetta,“ segir Gunn- ar Dofri Ólafsson, lögfræðingur Við- skiptaráðs. „Ef þú ert til dæmis að hefja rekstur, þá þarftu að þræða vefina hjá þessum stofnunum til að vita hvaða reglum þarf að fylgja og hvaða leyfi þarf að hafa, nema þú far- ir inn á reglugerðasafnið til að skrapa þeim öllum saman. Þetta er óþarfa vesen fyrir fólk og það ætti að vera lítið mál að laga þetta,“ segir hann. Líkt og áður sagði eru mörg dæmi um að erfitt sé að fá heildarsýn yfir efni reglugerða vegna framsetningar þeirra á vefnum. „Reglugerð um leigubifreiðar hefur t.d. verið breytt tíu sinnum, alltaf byggt á uppruna- legu reglugerðinni. Þá er grunnsk- jalið inni á vefnum og til hliðar eru allar breytingar sem hafa verið gerð- ar. Þetta dregur úr skýrleika,“ segir Gunnar Dofri. „Á þessum tímum, þegar nýsköp- unar- og frumkvöðlastarfsemi er mikið í deiglunni, þá finnst manni eðlilegt að allt sé gert til að auðvelda fólki lífið að þessu leyti. Þetta er al- veg óháð efni reglugerðanna, þetta er bara formið. Það er ekki hægt að vera ósammála því að reglur eigi að vera aðgengilegar, hverjar sem þær eru,“ segir hann. Reglugerðasafn á vefnum óskýrt  VÍ gagnrýnir framsetningu reglna Gunnar Dofri Ólafsson Mörg þúsund Akureyringar og gestir þeirra skemmtu sér hið besta á Akureyrarvöku, árlegri bæjar- hátíð, sem haldin var um helgina í mildu ágústveðri. Dagskráin hófst á föstudaginn með setningarræðu formanns stjórnar Akureyrarstofu, Hildu Jönu Gísladóttur, og í kjölfar- ið fylgdu hinir ýmsu viðburðir um allan bæ. Meðal þess sem boðið var upp á var brúðuleikhús, tónleikar, ljósmyndasýning, sirkusfjör og hægt var að fara í siglingu með bátnum Húna II meðfram strönd- inni að Krossanesi. Hátíðinni lauk síðan á laugar- dagskvöldið með stórtónleikum í Listagilinu og þar voru meðfylgj- andi myndir teknar. Í tilkynningu frá Akureyrarbæ segir að lögreglan sé afar ánægð með framkomu gesta hátíðarinnar. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Stórtónleikar Meðal þeirra fjölmörgu listamanna sem fram komu á stór- tónleikum í Listagilinu á laugardagskvöldið var Svala Björgvinsdóttir. Mannfjöldi Mörg þúsund manns komu saman til að njóta tónleikanna sem voru lokaatriði Akureyrarvöku og fór allt vel fram að sögn lögreglunnar. Vel heppnuð Akureyr- arvaka í mildu veðri Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarkall skömmu eftir há- degi í gær frá fiskibáti, sem staddur var 28 sjómílur vestur af Straum- nesi, eftir að leki kom upp í vélar- rúmi hans. Einn var um borð í bátn- um og fylltist vélarrúmið hratt. Í frétt á vefsíðu Landhelgisgæsl- unnar segir að svo heppilega hafi viljað til að bæði þyrla Landhelgis- gæslunnar, TF-LIF, og varðskipið Týr voru stödd á nálægum slóðum þegar neyðarkallið barst. Líf var við Straumnes og Týr í Aðalvík. Áhafnir Týs og þyrlunnnar héldu þegar í stað á vettvang og björgunarskipið Gunn- ar Friðriksson var ræst út frá Ísa- firði. Skip í grenndinni voru einnig beðin um að halda á vettvang. Líf var komin að bátnum laust fyr- ir klukkan eitt, 13 mínútum eftir að neyðarkallið barst. Áhöfn þyrlunnar bað skipverjann að fara strax í flot- galla. Hann kom sér svo yfir í fiski- bát sem kom til aðstoðar og tók bát- inn í tog. Varðskipsmenn hófu svo björgunaraðgerðir stuttu seinna. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni gekk greiðlega að koma dælu frá varðskipinu fyrir í bátnum og skömmu síðar tókst að dæla sjónum úr vélarrúminu. Skipverja var bjargað úr lekum fiskibáti Ljósmynd/Landhelgisgæslan Björgun Skip og bátar í grenndinni komu fiskibátnum til aðstoðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.