Morgunblaðið - 27.08.2018, Síða 11
Gjaldtaka áformuð við
Reykjavíkurflugvöll
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Áform eru uppi um að gjaldtaka
hefjist á bílastæði flugstöðvar Air
Iceland Connect við Reykjavíkur-
flugvöll. Árið 2012 voru framkvæmd-
ir flugfélagsins, þá Flugfélags Ís-
lands, stöðvaðar af Reykjavíkurborg
að beiðni landeigenda, ríkisins, en
Isavia fer með umráð landsins. Nú
er malbikað bílastæði við flugstöðina
og malarstæði sem í upphafi var ætl-
að til bráðabirgða ögn lengra frá.
„Við höfum átt í samtali við Isavia,
fjármálaráðuneytið og Reykjavíkur-
borg auðvitað líka um málið. Við höf-
um leitað leiða til að koma þessari
framkvæmd á koppinn, þ.e.a.s. að
klára malbikun á bílastæðunum og
gera þarna snyrtilegt í kringum okk-
ur. Það er ekki komin nein tímasetn-
ing á það hvenær við getum farið í
þetta,“ segir Árni Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Air Iceland Connect.
Bæta lýsingu og leggja stéttir
„Við höfum rekið bílastæðin frá
upphafi og borið kostnað af þeim.
Við gerðum malarstæði þarna til
bráðabirgða fyrir nokkrum árum
síðan,“ segir hann. Það eitt stendur í
vegi fyrir gjaldtöku að samkomulag
milli aðilanna hefur ekki náðst, að
sögn Árna. „En það er hreyfing á
málinu og við teljum að við séum að
nálgast niðurstöðu,“ segir hann.
Árni segir að fyrirhuguð gjaldtaka
verði bæði á því svæði sem nú er
malbikað og núverandi malarplani,
en möguleiki er á því að hún verði
mismunandi eftir langtímastæðum
og skammtímastæðum. Einnig er
áformað að bæta lýsingu og gróður á
svæðinu og leggja gangstéttir, m.a.
að strætóbiðskýli og fyrir gangandi,
hjólandi og hreyfihamlaða.
Afstaða Isavia breytt
Í frétt Morgunblaðsins frá 2013
kom fram í svörum Isavia að stefna
félagsins væri að það annaðist sjálft
endurbætur á lóðum sem þessum,
m.a. með tilliti til jafnræðis með not-
endum Reykjavíkurflugvallar.
Stjórn Isavia hefði lýst áhyggjum af
því að aðalflugbraut Reykjavíkur-
flugvallar félli út af skipulagi
Reykjavíkurflugvallar og að það
jafngilti lokun flugvallarins í þeirri
mynd sem hann þá var. Því skyldi
ekki ráðist í endurbætur á flugvall-
arsvæðinu fyrr en skýr stefna lægi
fyrir um framtíð flugvallarins.
Í skriflegu svari til blaðsins nú
segir að Isavia sé hlynnt malbikun
og gjaldtöku á bílastæðunum og að
gjaldtakan verði til að fjármagna
verkefnið. Viðræður hafi átt sér stað
milli félaganna tveggja um uppbygg-
ingu og rekstur. Tekjur yrðu notaðar
til að styðja við uppbyggingu á
Reykjavíkurflugvelli. Isavia mun
enn vilja koma að málum enda hefur
afstaða félagsins um jafnræði not-
enda flugvallarins ekki breyst.
Að því er fram kemur í svari
Isavia verður verkefnið unnið með
þeim hætti að Isavia muni stofna
rekstrarfélag um bílastæðin með Air
Iceland Connect sem yrði ekki rekið
í hagnaðarskyni, heldur á kostnaðar-
grundvelli með lágmarksávöxtunar-
kröfu. Gjaldtakan myndi þá aðeins
standa undir raunkostnaði við upp-
byggingu og rekstur.
Fá lóðir ekki skilgreindar
Samkvæmt svörum Isavia virðist
sem framkvæmdirnar strandi á
borgaryfirvöldum einnig.
„Það sem hefur komið í veg fyrir
að Isavia hafi getað farið í að setja
fjármagn í verkefnið er að ekki er
skilgreind lóð fyrir bílastæðin. Flug-
völlurinn er bara ein lóð og Reykja-
víkurborg hefur ekki viljað skil-
greina lóðir undir byggingar eða í
þessu tilfelli bílastæði. Þetta hefur
valdið Isavia og rekstraraðilum
vandkvæðum við að fá þinglýstar á
sig eignir,“ segir í svari Isavia.
Í samkomulagi ríkisins og Reykja-
víkurborgar um endurbætur á að-
stöðu fyrir farþega og þjónustaðila
frá árinu 2013 segir að tekið verði
mið af samgöngustefnu Reykjavík-
urborgar á svæðinu við endurbætta
flugstöð. Isavia ohf. taki upp gjald-
töku á öllum bílastæðum og tryggð
verði endurgjaldslaus aðkoma al-
menningssamgangna við farþegaað-
stöðu.
Air Iceland Connect og Isavia í viðræðum um útfærsluna
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Bílaplan Nú er malbikað stæði upp við flugstöðina, en lengra frá er malar-
plan sem til stendur að malbika. Þá verður lýsing bætt og stéttar lagðar.
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2018
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
fyrir heimilið
VifturHitarar
LofthreinsitækiRakatæki
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Margar gerðir
af innihurðum
Hjá Parka færðu gullfallegar
innihurðir frá Grauthoff.
Mikið úrval, sjón er sögu ríkari!
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Margar gerðir
af innihurðum
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
„Áætlunin mín hækkaði í ár. Ég var
með 13 milljónir áætlaðar í fyrra og
núna er ég allt í einu kominn með
15,5 milljónir króna áætlaðar í árs-
tekjur, sem eru fjórföld árslaun hjá
mér,“ segir Sólrún Graham-Parker,
verkefnisstýra við
háskólann í
Mannheim, við
Morgunblaðið.
Sólrún er með-
al þeirra sem
deila reynslu
sinni í Facebook-
hópnum Greið-
endur LÍN náms-
lána í útlöndum.
Þar glíma margir
við þann vanda að
ná ekki að skila inn tekjuupplýs-
ingum til LÍN innan tiltekins tíma.
Skila þarf inn tekjuupplýsingum fyr-
ir 1. ágúst vegna tekjutengdrar af-
borgunar 1. september. Margir
greina frá því að þeir hafi fengið
áætlaðar árstekjur allt frá 12 til 16
milljóna króna.
Samkvæmt 10. grein laga um
Lánasjóð íslenskra námsmanna er
stjórn sjóðsins heimilt að áætla
tekjustofn lánþega til útreiknings ár-
legrar viðbótargreiðslu ef tekju-
upplýsingar berast ekki frá lánþega.
Sólrún bíður nú eftir því að þýsk
skattayfirvöld sendi henni skatta-
yfirlit svo hún geti skilað upplýs-
ingum til LÍN til þess að fá upphæð
tekjutengdrar afborgunar breytt.
Skilaði á réttum tíma í fyrra
„Ég skilaði öllu inn fyrir tiltekinn
tíma í fyrra en fékk samt tekju-
áætlun. Ég var svo hissa á þessu. Svo
koma innheimtubréf frá LÍN og allt-
af hækkaði skuldin,“ segir Sólrún.
Eftir langt samskiptaferli við LÍN
í fyrra barst loks endurútreiknuð
tekjutengd afborgun í október það
ár. „Þá þurfti ég ekki að borga nema
einn sjötta af því sem krafist var í
upphafi,“ segir Sólrún. Fyrir endur-
útreikning tekna Sólrúnar var af-
borgun lánsins um 600 þúsund kr.
„Það sem truflar mig mest er að ég
skil engan veginn af hverju er ekki
hægt að miða út frá tekjum síðastlið-
inna ára og af hverju þessi tekju-
áætlun er svona fjarstæðukennd.“
Blaðamaður sendi LÍN fyrirspurn
í nokkrum liðum í síðustu viku um
hvernig sjóðurinn áætlar tekjur lán-
þega. Ekki höfðu borist svör við þeim
fyrirspurnum í gær.
15 milljónir áætl-
aðar í árstekjur
Greiðendur námslána lenda í bobba
Sólrún
Graham-Parker