Morgunblaðið - 27.08.2018, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2018
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Að minnsta kosti fjórir eru látnir og níu særðust í
skotárás á tölvuleikjamóti á pizzustað í versl-
unarmiðstöð í miðbæ Jacksonville í norðurhluta
Flórídaríkis í Bandaríkjunum, um sexleytið síð-
degis að íslenskum tíma gær, hefur AFP-
fréttastofan eftir bandarískum fjölmiðlum.
Yfirvöld á staðnum hvöttu fólk til að halda sig
frá svæðinu, og þá sem földu sig fyrir árásar-
manninum inni í verslunarmiðstöðinni, að halda
kyrru fyrir og hringja í neyðarlínuna til að láta
vita af sér.
Haft var eftir vitni að árásarmaðurinn hefði
verið spilari sem tapaði, en verið var að spila í
undankeppni í vinsælum nettölvuleik, Madden 19
American football. Vitni sem var að fylgjast með
syni sínum spila sagði að maður einn hefði allt í
einu tekið upp byssu og byrjað að skjóta. Virtist
hann miða á fórnarlömb sín að sögn fleiri vitna.
Heimildarmenn fjölmiðilsins news4jax.com í
Jacksonville, sögðu að árásarmaðurinn, sem er
einn hinna látnu, hefði fyrirfarið sér og lögregla
telur ekki að um hryðjuverk sé að ræða.
Á myndskeiði af síðunni Twitch sem
streymdi mótinu, má heyra tólf byssuskot og
skelfingaróp viðstaddra áður en slökkt var á
streyminu. Ríkisstjórinn í Flórída, Rick Scott,
hefur þegar boðið opinbera aðstoð í kjölfar árás-
arinnar.
Skotárás á tölvuleikjamóti í Flórída
Að minnsta kosti fjórir létust og níu særðust Árásarmaðurinn féll fyrir eigin hendi og er tal-
inn hafa verið einn að verki Sagður hafa tekið þátt í mótinu og tapað áður en hann hóf að skjóta
AFP
Skotárás í Jacksonville Lögreglubílar loka götu við verslunarmiðstöðina þar sem árásin var gerð.
Ekki talið hryðjuverk
» Fjórir féllu og níu eru sárir
eftir skotárás í verslunarmið-
stöð í Jacksonville í Flórída.
» Árásarmaðurinn sem var
einn að verki er talinn hafa fallið
fyrir eigin hendi.
» Verið var að spila í tölvu-
leikjamóti á veitingastað þegar
árásin var gerð.
» Vitni segir árásarmanninn
hafa tapað á mótinu áður en
hann hóf að skjóta.
» Lögregla telur árásina ekki
vera hryðjuverk. Ríkisstjóri Flór-
ída hefur lofað opinberri aðstoð
vegna árásarinnar.
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
John McCain, þingmaður Repúblik-
anaflokks Bandaríkjanna, lést á
laugardagsmorgun, 81 árs að aldri,
greindi Reuters frá.
McCain hafði barist við krabba-
mein í heila síðan í fyrra. Hann var
álitinn stríðshetja úr Víetnam-stríð-
inu, en hann slasaðist er flugvél hans
var skotin niður óvinamegin. Þar var
hann tekinn höndum, og var stríðs-
fangi í fimm og hálft ár, mátti þá
sæta pyntingum.
Fór sínar eigin leiðir
McCain var þingmaður Arizona-
ríkis í meira en þrjátíu ár og sat bæði
í fulltrúa- og öldungadeild banda-
ríska þingsins á þeim tíma. Þingmað-
urinn var óhræddur við að fylgja
sannfæringu sinni þvert á flokkslín-
ur og er hans m.a. minnst fyrir að
þjóna heimalandinu umfram allt.
Hann bauð sig fram sem forsetaefni
Repúblikanaflokksins árið 2000 þeg-
ar hann tapaði fyrir George W. Bush
yngri og en var síðar kosinn fram-
bjóðandi repúblikana til forseta
Bandaríkjanna árið 2008 og tapaði
fyrir forsetaefni Demókrataflokks-
ins, Barack Obama.
McCain varð áberandi gagnrýn-
andi forseta Bandaríkjanna, Donald
Trump, en þeir hafa eldað saman
grátt silfur í forsetatíð hans.
Þingmaðurinn gagnrýndi forset-
ann m.a. fyrir að grafa undan frjálsri
fjölmiðlun, landslögum og að gæla
við þjóðernishyggju, en Trump
reiddist McCain fyrir að styðja ekki
heilbrigðisfrumvarp Repúblikana-
flokksins í þinginu, sem átti að koma
í stað Obamacare. McCain óskaði
eftir að Trump yrði ekki viðstaddur
útför hans, en Trump tjáði þó fjöl-
skyldu þingmannsins „dýpstu samúð
og virðingu“ með tísti í fyrrinótt.
Leiðtogar heims hafa minnst Mc-
Cain, sem verður jarðsettur í Anna-
polis í Maryland í Bandaríkjunum.
Hvikaði ekki frá sannfæringu sinni
AFP
Látinn John McCain er víða minnst fyrir að standa vörð um bandarísk gildi.
John McCain lést úr heilakrabbameini Hann var þingmaður, fyrrverandi stríðsfangi og forsetaefni
Repúblikanaflokks Bandaríkjanna Þótti sjálfstæður stjórnmálamaður og gagnrýndi Trump forseta
Frans páfi lauk í gær tveggja daga opinberri
heimsókn á Írlandi, þeirri fyrstu í 39 ár.
Hann bað guð um fyrirgefningu vegna mis-
beitingar valds og kynferðisbrota presta kaþ-
ólsku kirkjunnar þarlendis. Á sama tíma sak-
aði Carlo Maria Vigano, erkibiskup og
fyrrverandi sendiherra Páfagarðs í Banda-
ríkjunum, Frans páfa um að hafa vitað um
fjölda ásakana í garð bandaríska kardínálans
Theodore McCarrick vegna kynferðisbrota
hans, allt frá árinu 2013, án þess að hafa að-
hafst í málinu.
AFP
Það blés um Frans páfa í Írlandsheimsókninni
Páfinn bað guð um að fyrirgefa klerkastéttinni í fyrstu opinberu heimsókninni til Írlands í 39 ár
Lágfargjalda-
flugfélagið
Ryanair hyggst
rukka í kringum
tólf hundruð
krónur fyrir
handfarangur
sem ekki kemst
undir sætið, frá
og með 1. nóv-
ember nk., að því
er fram kemur á
nettavisen.no.
Fram að þessu hefur verið leyfi-
legt að taka allt að tíu kílóa handfar-
angur af stærðinni 55x40x20 senti-
metrar meðferðis á almennu
fargjaldi hjá Ryanair án þess að
greiða fyrir hann farangursgjald, en
nú hefur rúmmálið fyrir gjald-
frjálsan handfarangur verið minnk-
að niður í 35x20x20 sentimetra, fyrir
þá sem greiða almennt fargjald.
Vonast Ryanair til að draga úr töf-
um með þessari breytingu og verður
eina stóra flugfélagið í Evrópu sem
rukkar fyrir stærri handfarangur.
Önnur flugfélög leyfa farþegum að
koma með stóran og smærri hand-
farangur frítt. ernayr@mbl.is
Frír hand-
farangur
minnkar
Ryanair rukkar
fyrir stærri töskur
Ryanair Vill minni
handfarangur.
McCain, sem kominn var af
flotaforingjum og hafði sjálfur
gegnt hermennsku, var ötull
andstæðingur pyndinga og yfir-
heyrsluaðferða á borð við
vatnsyfirheyrslu (e. water-
boarding) sem bandarísk yfir-
völd notuðu í stríðinu gegn
hryðjuverkum. Hann lenti slas-
aður í óvinahöndum í Víetnam-
stríðinu og var þar stríðsfangi í
mörg ár þar sem hann var pynd-
aður og kom örkumla til baka.
Stríðsfanginn
VAR ÖTULL ANDSTÆÐ-
INGUR PYNDINGA