Morgunblaðið - 27.08.2018, Qupperneq 22
A
ðalheiður Valgeirsdóttir
fæddist í Reykjavík
27.8. 1958 og ólst upp í
Háaleitishverfinu. Hún
var í Ísaksskóla, Álfta-
mýrarskóla, tók landspróf í Ármúla-
skóla og lauk stúdentsprófi frá MH
1978, lauk námi úr grafíkdeild Mynd-
lista- og handíðaskóla Íslands 1982,
lauk BA gráðu í listfræði með menn-
ingarfræði sem aukagrein frá HÍ
2011 og MA gráðu í listfræði frá HÍ
2014.
Aðalheiður hefur unnið að mynd-
list frá því hún lauk námi frá MHÍ, í
fyrstu aðallega grafík, en sneri sér
síðar að málverki sem er nú hennar
aðalmiðill í myndlistinni. Hún hefur
haldið á þriðja tug einkasýninga, m.a.
í Ásmundarsal, Hallgrímskirkju,
Gerðarsafni, Grafíksalnum og Gall-
eríi Gróttu og tekið þátt í fjölda sam-
sýninga hér á landi og víða erlendis.
Aðalheiður er auk þess sjálfstætt
starfandi listfræðingur og sýningar-
stjóri, var sýningarstjóri sýningar-
innar Heimkynni – Sigrid Valt-
ingojer í Listasafni Árnesinga árið
2017, var sýningarstjóri sýninganna
Heimurinn án okkar í Hafnarborg
2015, Tímalög – Karl Kvaran og Erla
Þórarinsdóttir í Listasafni Árnesinga
2016 og K a p a l l í Skaftfelli á
Seyðisfirði, ásamt Aldísi Arnardóttur
listfræðingi, en sú sýning stendur til
2. september.
Aðalheiður Valgeirsdóttir, myndlistarm. og listfræðingur – 60 ára
Fjölskyldan Aðalheiður og Erlendur með börnum sínum, tengdabörnum og barnadætrum á suðrænum slóðum.
Nýtur myndlistarinnar
í starfi og listsköpun
Systkinin Hér er listakonan með systkinum sínum, Sigríði og Emil Hannesi.
BETA SUMARTILBOÐ
ekki bara gott verð...
skápur
Verkfæraskápur
Kr. 198.227.-
Beta EASY verkfæraskápur
374 stk
7 skúffur (588x367 mm) á rennibrautum
Skúffubotn varinn með mjúkri gúmmímottu
4 hjól - 125 mm
2 hjól föst og 2 með beygju, 1 bremsa
Miðlæg læsing á framhlið fyrir skúffur
Thermoplast vinnuborð, ber 800 kg
Hægt að bæta við pappírsrúlluhaldi
Fáanlegur flösku og brúsahaldari
Vörunúmer: BE024002101 -
024509011, 024509080,
024509130, 024509210
923E/C25
Kr. 14.228.-
Topplyklasett
1/2” - 25 hlutir
903E/C42
Kr. 5.490.-
Topplyklasett
1/4” - 42 hlutir
Öll sumartilboðin frá Beta má sjá á heimasíðu Iðnvéla: www.idnvelar.is
1263/D6
Kr. 3.906.-
Skrúfjárnasett
6 stk (+ og -)
2056 E/E17
Kr. 52.496.-
Verkfærataska
144 hlutir
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Margrét Helga Hjartardóttir, frönskukennari í Kvennaskól-anum, á 50 ára afmæli í dag. Hún hefur kennt við skólann írúm 20 ár. „Franskan hefur heillað mig alveg frá því að ég
var stelpa, mér hefur alltaf fundist það svo fallegt tungumál og allt
sem tengist Frakklandi spennandi. Ég valdi að læra frönsku strax í
grunnskóla en ákvað þó ekki strax að verða kennari, en þegar ég varð
stúdent stóð valið milli íslensku og frönsku og franskan hafði vinning-
inn. Mér hefur alltaf fundist gaman að læra erlend tungumál og víkka
sjóndeildarhringinn.“
Margrét Helga er einnig formaður Félags frönskukennara á Ís-
landi. „Það er frekar lítið en öflugt félag sem beitir sér fyrir því að
halda frönskunni á lofti. Við leitumst við að kynna frönskuna fyrir
grunnskólanemendum, höldum námskeið fyrir kennara, frönsku-
keppni fyrir grunnskóla- og framhaldsskólanemendur og berjumst
fyrir framgangi frönskunnar í skólakerfinu. Ég reyni að fara oft út til
Frakklands og næstum árlega förum við tveir frönskukennarar með
nemendur okkar til Parísar. Það er alltaf ótrúlega gaman að upp-
götva landið og menninguna með þeim.“
Áhugamál Margrétar Helgu eru m.a. útivist og kórsöngur. „Núna
er ég í litlum sönghópi sem kallar sig Stofukórinn. Við æfum heima
hvert hjá öðru og höfum aðallega verið að syngja fyrir eldri borgara.
Þetta er mjög gefandi og skemmtilegt.“
Eiginmaður Margrétar Helgu er Ingólfur Bruun leiðsögumaður.
Synir þeirra eru Hjörtur, f. 1996, Njörður, f. 2001, og Börkur, f. 2009.
Margrét Helga ætlar að njóta dagsins með fjölskyldunni en mun þó
ekkert slá slöku við í frönskukennslunni.
Ljósmynd/Ásta Emilsdóttir.
Uppábúin Margrét Helga er verkefnastjóri peysufatadags Kvenna-
skólans, en hún heldur dans- og söngæfingar og fer með nemendum
syngjandi og dansandi um borg og bý á sjálfum peysufatadeginum.
Franskan alltaf heillað
Margrét Helga Hjartardóttir er fimmtug
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2018
Brynja Sól Orradóttir og Hrafnhildur Steinunn Vignisdóttir héldu tombólu til styrkt-
ar Rauða krossi Íslands við Krónuna Jafnaseli í Breiðholti og söfnuðu 4.300 kr.
Hlutavelta
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is