Morgunblaðið - 27.08.2018, Side 23

Morgunblaðið - 27.08.2018, Side 23
Kallað var eftir tillögum að 20 ára afmælissýningu Skaftfells og tillaga þeirra varð fyrir valinu. Aðalheiður vann við hönnun náms- gagna hjá Námsgagnastofnun á ár- unum 1980-1987. Hún hefur haldið erindi um myndlist, kennt listfræði í Myndlistaskólanum í Reykjavík og kennir nú málun þar. Hún vinnur nú að gerð námsefnis um myndlist sem er samstarfsverkefni Menntamála- stofnunar og Listasafns Íslands. Aðalheiður hefur setið í stjórn SÍM og félagsins Íslensk grafík, setið í mats- og úthlutunarnefndum á sviði myndlistar og á nú sæti í innkaupa- nefnd Listasafns Íslands, er félagi í Listfræðafélagi Íslands og sat þar í stjórn 2017. Hún hefur setið í sóknar- nefnd Hallgrímskirkju frá 1995, var varaformaður og ritari sóknar- nefndar 1998-2018, hafði umsjón með útgáfu bókar um sögu Hallgríms- kirkju, Mínum Drottni til þakklætis, sem dr. Sigurður Pálsson skráði. Hjá Aðalheiði eru starf og áhuga- mál eitt og hið sama: „Ég hef mikið yndi af myndlist, hvort sem ég vinn að eigin verkum eða með öðrum myndlistarmönnum, t.d. sem sýningarstjóri. „Fjölskyldan á jörð í Biskups- tungum, Höfða II, þar sem við njót- um samverunnar í góðu tómi. Þar er- um við með hesta og þar hef ég góða vinnustofu þar sem ég vinn flest mín verk í nánum tengslum við náttúruna allan ársins hring. Ég hef gaman af því að ganga úti í náttúrunni, taka ljósmyndir og ígrunda síbreytileikann, birtuna og hverfulleikann sem skilar sér í mál- verkunum mínum. Í sóknarnefnd Hallgrímskirkju hef ég unnið með frábæru fólki að skemmtilegum og krefjandi verk- efnum sem spanna flest svið mann- lífsins á einum helsta ferðamanna- stað borgarinnar. Þá má geta þess að við hjónin höf- um bæði gaman af að skoða erlendar stórborgir, skoða þar myndlist og njóta annarrar menningar.“ Fjölskylda Eiginmaður Aðalheiðar er Erlend- ur Hjaltason, f. 21.11. 1957, rekstrar- hagfræðingur. Hann er sonur Hjalta Geirs Kristjánssonar, f. 21.8. 1926, húsgagnaarkitekts og fyrrv. for- stjóra í Reykjavík, og k.h., Sigríðar Th. Erlendsdóttur, f. 16.3. 1930, sagnfræðings. Synir Aðalheiðar og Erlendar eru Hjalti Geir Erlendsson, f. 4.5. 1987, lögfræðingur, í sambúð með Guðrúnu Þorsteinsdóttur en dóttir þeirra er Unnur Ásta, f. 2017, og Valgeir Er- lendsson, f. 23. 9. 1990, hagfræð- ingur, í sambúð með Thelmu Har- aldsdóttur en dóttir þeirra er Edda, f. 2016. Systkini Aðalheiðar eru dr. Sigríð- ur Valgeirsdóttir líffræðingur, sér- fræðingur í atvinnu-og nýsköpunar- ráðuneytinu, og Emil Hannes Valgeirsson grafískur hönnuður í Hvíta húsinu. Foreldrar Aðalheiðar eru Valgeir Jón Emilsson, f. 6.7. 1934, d. 21.11. 2013, prentmeistari í Reykjavík, og Unnur Kristinsdóttir, 16. 2. 1934, d. 30. 11. 2013, húsmóðir og fyrrv. starfsmaður Skýrr. Úr frændgarði Aðalheiðar Valgeirsdóttur Aðalheiður Valgeirsdóttir Hólmfríður Hannesdóttir húsfr. í Miðhópi Björn Þórsteinsson b. í Miðhópi í Víðidal, V-Hún. Aðalheiður Björnsdóttir húsfr. í Rvík Unnur Kristinsdóttir fulltr. og húsfr. í Rvík Lýður Kristinn Lýðsson ölgerðarm. í Rvík Sigríður Sigurðardóttir húsfr. í Hjallanesi Sigurður Lýðsson b. á elsundi á RangárvöllumS Kristín Sigurðardóttir húsfr. í Búðardal og Rvík Þórður Friðjónsson forstjóri Kauphallarinnar Helgi Þorgils Friðjónsson myndlistarmaður Lýður Árnason b. í Hjallanesi í Landsveit áll „pólití“ Árnason ögregluþjónn í Rvík P l igríður Pálsdóttir húsfr. í Rvík SPáll Benediktsson fv. fréttamaður Árni Árnason b. í Látalæti í Landsveit ngiríður Árnadóttir húsfr. í Kaldárholti og á Selfossi I Jóna Einarsdóttir fv. gjaldkeri við Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði Inga Jónsdóttir safnstjóri Listasafns Árnesinga Aðalheiður Kjærnested viðskiptafr. í Rvík Kristinn Kjærnested deildarstj. í Rvík og form. knattspd.KR Ásdís Kristinsdóttir ritari BjörgKristjanaSigurðardóttir stjórnmálafræðingur Sigurður Lýður Kristinsson rafvirkjameistari Vilhjálmur Þorsteinsson fjárfestir Björn Þorsteinsson prófessor í heimspeki Charlotte Kristjana Jónsdóttir húsfr. á Borg á Mýrum og í Rvík Ingibjörg Björnsdóttir fv. fulltrúi í Rvík Björn Björnsson prófessor emeritus í guðfræði við HÍ Björn Emilsson oftskeyta- maður l Edda Lyberth erðamálafulltrúi á Suður-Grænlandi f Marta María Jónasdóttir ritstjóri Heiðrún Geirsdóttir sagnfræðingur Gunnhildur Geirsdóttir búsett í Eistlandi Dagný Emilsdóttir móttökustjóri í Reykholti í Borgarfirði Elías Valgeirsson rafveitustjóri Jóhanna Sigríður Bjarnadóttir húsfr. á Kjalvegi Valgeir Narfi Guðbjörnsson sjóm. á Kjalvegi á Snæfellsnesi Valentína Finnrós Valgeirsdóttir húsfr. í Rvík Carl Emil Ole Möller Jónsson verslunarm. í Rvík Dóróthea Kristín Möller húsfr. í Stykkishólmi Jón Júlíus Björnsson verslunarm. í Rvík Valgeir Jón Emilsson prentmeistari í Rvík 95 ára Jón Egill Sveinsson 85 ára Guðlaug Guðmundsdóttir Halldóra Jónsdóttir 80 ára Davíð Guðnason Galyna Fedorets Gunnar Sigurðsson Sigurður Guðmundsson 75 ára Guðrún Ása Þorsteinsdóttir Hilmar Birgir Leifsson María Jóhanna Jónsdóttir Sigrún Albertsdóttir Þórhallur Sæmundsson 70 ára Anna María Hilmarsdóttir Elliði Norðdahl Ólafsson Hanna Kristín Sigmannsdóttir Hannes Ragnarsson Helga Valgerður Rósantsdóttir Kristín Guðrún Jósefsdóttir Melania Ostrowska Sigríður Karlsdóttir Þórormur Óskarsson 60 ára Aðalheiður Valgeirsdóttir Christian Gunnar J. Rigollet Gunnhildur Sveinsdóttir Hrönn Jóhannesdóttir Hulda Björk Magnúsdóttir Magnea Jóhannsdóttir Magnús Geir Sigurgeirsson Magnús Þór Haraldsson Ómar Kjartansson Sigurður Ágúst Guðmundsson Þórhildur Björnsdóttir 50 ára Aðalsteinn Sturla Sveinsson Anna Berglind Júlísdóttir Birgir Breiðdal Bozena Sakowicz Elísabet Karissa Millard Gunnar Magnús Jónsson Íris Olga Lúðvíksdóttir Jón Högni Stefánsson Jónína Helga Ólafsdóttir Magnús Rúnar Svavarsson Margrét Helga Hjartardóttir Sveinbjörg Ásgeirsdóttir Vitalijus Rimsa 40 ára Árni Ragnarsson Bernharður Filip Bernharðs Björn Þór Gestsson Engilbert Hauksson Gerður Alda Gylfadóttir Guðmundur Bjargmundsson Ingibjörg Marín Björgvinsdóttir Jacinta Da Silva Martins Linda Björk Eiríksdóttir Margarita Cruz Ramos Sverrir Árnason 30 ára Arnar Benjamín Krist- jánsson Arnar Guðmundsson Birgir Steinn Finnbjörnsson Birkir Fannar Gunnlaugss. Darius Jastrumskis Davíð Arnar Reynisson Guðjón Þorsteinsson Hrafnhildur M. Jóhannesd. Kamilla Þöll Finnbogadóttir Magnús Helgi Sigurðsson Mohammed R. Moghadam Phuong Duong Sandra Dís Jónsdóttir Wojciech Serwatka Til hamingju með daginn 40 ára Ingibjörg er Grind- víkingur og er skrifstofu- stjóri Fanndalslagna. Maki: Jón Fanndal Bjarn- þórsson, f. 1976, fram- kvæmdastj. Fanndalslagna. Börn: Sigríður Emma, f. 2004, Kristjana Marín, f. 2008, og Svala María, f. 2010. Foreldrar: Björgvin Vil- mundsson, f. 1947, d. 2018, og Sigríður Þórðar- dóttir, f. 1948, bús. í Grindavík. Ingibjörg Marín Björgvinsdóttir ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2018 Nýr stór humar Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00 Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686 Glæný lúða Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði fyrir þig til að taka með heim Ný línuýsa Klaustur- bleikja Siguroddur Magnússon fæddistí Reykjavík 27. ágúst 1918 ogólst þar upp. Foreldrar hans voru Magnús Pétursson iðnverka- maður, f. 1891, d. 1981, og Pálína Þorfinnsdóttir verkakona, f. 1890, d. 1977. Siguroddur lauk námi í Iðnskól- anum, nam rafvirkjun hjá Eiríki Hjartarsyni og tók sveinspróf 1944. Siguroddur var starfandi rafverk- taki frá 1949. Hann starfaði mikið fyrir Byggingarfélag verkamanna á árunum 1950-71, eða allt til þess tíma er lögum um verkamanna- bústaði var breytt. Frá þeim tíma starfaði Siguroddur að fjölbreyttum verkefnum á sínu sviði allt fram til áttræðisaldurs. Siguroddur var alla tíð mjög virk- ur í félagsmálum, starfaði í ýmsum félögum og sat í stjórnum þeirra. Má þar m.a. nefna Félag ungra jafn- aðarmanna, formaður þar 1945, í stjórn Alþýðuflokksfélags Reykja- víkur, fulltrúi flokksins í stjórn Inn- kaupastofnunar Reykjavíkurborgar 1978-1982 og sat í framkvæmdaráði Reykjavíkurborgar 1980-1982. Í stjórn Félags íslenskra rafvirkja 1946-48 og formaður þess 1947-48. Hann var í sveinsprófsnefnd raf- virkja í 45 ár, flest árin formaður nefndarinnar og lét af störfum 1996. Hann sat í stjórn Félags löggiltra rafvirkja í Reykjavík og síðar Félagi löggiltra rafverktaka og var gerður að heiðursfélaga þess 1994. Sig- uroddur átti í nokkur ár sæti í stjórn Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík. Hann gekk í Oddfellow-regluna 1962. Siguroddur var ritari í stjórn Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík í 25 ár og lét af störfum 1997. Hann var gerður að heiðursfélaga þess 1998. Þá var hann fulltrúi Iðn- aðarmannafélagsins í stjórn Hús- félags iðnaðarins 1978-1998 og var alllengi formaður framkvæmda- nefndar þess. Eiginkona Sigurodds var Fanney E. Long kjólameistari, f. 4.7. 1922, d. 13.11. 2002. Börn þeirra eru Magnús Georg, Einar Long, Pétur Rúnar, Sólrún Ólína og Bogi Þór. Siguroddur lést 29. október 2003. Siguroddur Magnússon Merkir Íslendingar 30 ára Guðjón er frá Rauðuskriðum í Fljótshlíð en býr í Mosfellsbæ. Hann er forritari hjá IMC Ísland ehf. Maki: Auður Elín Finn- bogadóttir, f. 1988, lyfja- fræðingur hjá Day Zero. Börn: Þuríður, f. 2014, og Matthildur, f. 2017. Foreldrar: Þorsteinn Guðjónsson, f. 1961, og Ingveldur Guðný Sveins- dóttir, f. 1965. Þau eru búsett á Rauðuskriðum. Guðjón Þorsteinsson 40 ára Sverrir er Kópa- vogsbúi og er öryggis- og gæðastjóri Into the Glacier sem sér um ísgöngin í Langjökli. Maki: Fanný Björg Miiller Jóhannsdóttir, f. 1978, hjúkrunarfræðingur á vökudeild LSH. Börn: Daníel Árni, f. 2006, og Hekla Sóley, f. 2010. Foreldrar: Árni Stefáns- son, f. 1938, d. 2002, og G. Halla Guðmundsdóttir, f. 1939, bús. í Rvík. Sverrir Árnason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.