Morgunblaðið - 27.08.2018, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2018
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
SÍGILD HÖNNUN Í 50 ÁR
Fyrir 50 árum hannaði danski hönnuðurinn Arne Jacobsen fyrsta kranann fyrir Vola.
Æ síðan hefur hönnun og framleiðsla Vola verið í fremstu röð.
ICQC 2018-20
VIÐTAL
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Í haust ætlar Reykjavík Kabarett að
standa fyrir vikulegum kabarettsýn-
ingum í Þjóðleikhúskjallaranum.
Margrét Erla Maack er einn að-
standenda sýninganna en hún hefur
verið kölluð „mamma“ kabarettsins
hér á landi. Að hennar sögn hefur
það verið draumur hennar og Lár-
usar Blöndal töframanns í einhvern
tíma að bjóða upp á reglulegar kaba-
rettssýningar á Íslandi. „Ástæðan
fyrir því að við Lalli settum þennan
kabarett af stað er sú að ég var búin
að vera að starfa með Sirkus Íslands
og þá sáum við t.a.m. hvað dragsúg-
ur og spunasýningarnar gengu vel
og okkur fannst þá vanta þetta púsl,
kabarettinn. Núna erum við komin
með hóp sem kemur reglulega á sýn-
ingar, sem hefur gaman af því að sjá
alltaf eitthvað nýtt. Reykvíkingar
virðast rosalega mikið til í svona.“
Áhorfendur hjálpa með valið
Búið er að bóka ýmsa erlenda
jafnt sem íslenska listamenn af öll-
um toga til að koma fram á sýning-
unum í haust. Þó grunaði þau Mar-
gréti og Lárus að hér á landi finnd-
ust svokallaðir „skúffulistamenn“ og
ákváðu því að efna til opinna prufa
og leyfa nýjum aðilum að láta ljós
sitt skína. Verða þau Lárus og Mar-
grét í dómarasætum ásamt heiðurs-
dómaranum Eddu Björgvins. „Við
ætlum að leyfa almenningi að hjálpa
okkur að ákveða atriðin sem verða í
haust. Við erum með ákveðinn stíl í
þessu við dómararnir en við viljum
líka sjá hvernig áhorfendur taka í at-
riðin þar sem við erum ekki alvitur.
Við munum horfa til hæfileika, frum-
leika, húmors, fagmennsku og við-
bragða áhorfenda, svo fátt eitt sé
nefnt. Einnig ætlum að spyrja þá
sem mæta hverja þeir eru komnir til
að sjá, því það gefur líka stig að geta
smalað fólki á sýningar,“ bætir Mar-
grét við hlæjandi.
Nú þegar hafa níu atriði skráð sig
til leiks en aðeins er gert ráð fyrir
tíu atriðum. Að sögn Margrétar eru
atriðin af fjölbreyttum toga. „Við er-
um komin með dansatriði, sirkus,
kabarettatriði, dragkónga og fleira.
Það er skemmtilegt því þetta er allt
annað en það sem við höfum verið að
gera. Öll þessi atriði henta vel í okk-
ar dagskrá.“
Aðspurð hvernig sé best að skil-
greina kabarett segir Margrét það
vítt hugtak en í grunninn er það sýn-
ing sem hefur ekki söguþráð. „Kaba-
rett er einskonar púsl skemmtiat-
riða þar sem börn eru ekki leyfð. Í
Bandaríkjunum kallast þetta „bast-
ard“ leikhús og er í rauninni allt það
sem mér finnst skemmtilegast við
leikhús og ekkert af því sem mér
finnst leiðinlegast. Þú stendur á eig-
in fótum og færð alveg að ráða þínu
atriði. Engar langar samæfingar eða
óþægilegir búningar, þú gerir allt á
þínum forsendum.“
Nýr merkimiði á
aldagamla skemmtun
Aðspurð hvað útskýri vinsældir
kabaretts og annarra sviðslista á Ís-
landi núna telur Margrét að þessi
sena hafi alltaf verið til á landinu.
„Við erum bara fyrst að setja merki-
miða á þetta núna held ég. Þorra-
blótin eru t.d. fullkomið dæmi um
þetta; þar eru oft einhver söngatriði,
leikatriði og maður í kjól, klassískt
grín alveg.“
Fyrsta kabarettsýningin verður 7.
september og í kjölfarið verða viku-
legar sýningar í Þjóðleikhúskjallar-
anum fram í nóvember. „Svo erum
við að skoða að fara til Akureyrar
eftir áramót en við höfum farið
þangað áður með sýningar sem hafa
gengið ótrúlega vel.“
Kabarett fer vel í Reykvíkinga
Reykjavík Kabarett stendur fyrir vikulegum sýningum í Þjóðleikhúskjallaranum í haust
Fólk hefur gaman af því að sjá alltaf eitthvað nýtt, segir einn stofnandi Reykjavík Kabarett
Gleði Í haust rætist draumur kabarettáhugamanna, þegar vikulegar sýningar í Þjóðleikhúskjallaranum hefjast.
Foreldrar Þau Margrét Erla Maack og Lárus Blöndal, hafa verið kölluð mamma og pabbi kabarettsins hér á landi.
Margrét Erla Maack sló nýverið í
gegn á Fringe-fjöllistahátíðinni í
Edinborg þar sem hún var beðin að
vera ein aðalstjarna sýningarinnar
Best of Burlesque á hátíðinni. Hún
segist í upphafi hafa verið bókuð í
prufu sem gekk það vel að hún var
bókuð aftur á aðra sýningu og svo
eina í viðbót. „Ég ætlaði bara rétt
að láta aðstandendurna vita að ég
verði sein fyrir og spyr hvenær ég
eigi að sýna. Þá segir hann að ég
eigi að vera aðalstjarna kvöldsins
og koma fram næstsíðust sem er
besta plássið. Fékk ég pláss sem
þekkt burlesque- og kabar-
ettstjarna í Skotlandi að nafni
Whiskey Falls hefur átt fyrir sig í
mörg ár. Það kom reyndar í ljós að
hann var veikur og gat ekki komið
fram, en þetta var þó mikill heið-
ur,“ segir Margrét kát í bragði.
„Þessi Fringe-hátíð er stór-
merkileg og þarna eru alls konar
senur í gangi, ég fór t.d. að sjá
Ladyboy of Bangkok-sýningu í
risastóru tjaldi. Það er svo gaman
að sjá hvað þetta er orðið við-
urkennt form og vinsælt, því þetta
er það sem fólk sækir í á Fringe-
hátíðum, þetta „avant-garde“ og
furðulega,“ segir Margrét.
Hún segir að þrátt fyrir aukinn
áhuga á ólíkum senum sviðslist-
anna á Íslandi yrðu slík atriði seint
bókuð á listahátíðum hér á landi.
„Ég fékk því strax þá hugmynd að
halda lágmenningarhátíð á Íslandi
og fá allt þetta fólk til að koma
fram. Ég er mjög hrifnæm,“ segir
Margrét hlæjandi.
Mikið hefur verið að gera hjá
Margréti í sumar en hún hefur
flakkað um Evrópu m.a. með drag-
stjörnunni Gógó Starr og flutt kab-
arettatriði sitt fyrir fjölda fólks.
Eftir veruna í Edinborg flaug hún
beint til Oslóar þar sem hún var
eitt af aðalatriðunum á Oslo Bur-
lesque Festival. Á döfinni hjá henni
hér á landi eru t.a.m. vikulegar
sýningar Reykjavík Kabarett í
Þjóðleikhúskjallaranum sem hefj-
ast 31. ágúst með opnum prufum.
Var aðalstjarna Fringe í Edinborg
STÆRSTA FJÖLLISTAHÁTÍÐ Í EVRÓPU
Glæsileg Margrét Erla Maack gengur
undir sviðsnafninu Miss Mokki.