Morgunblaðið - 28.08.2018, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 8. Á G Ú S T 2 0 1 8
Stofnað 1913 201. tölublað 106. árgangur
TÓNLISTAR-
FÓLKIÐ HÉR
ER SVO NETT
FJÖLBREYTNIN
HÖFÐ Í
FYRIRRÚMI
FYLLIST VISSU
UM AÐ ÞETTA
VERÐI FRÁBÆRT
KLASSÍKIN OKKAR 33 ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ 30ARNAR EGGERT 12
Aðalmeðferð í máli Vals Lýðssonar
hófst fyrir Héraðsdómi Suðurlands í
gær. Valur er ákærður fyrir að hafa
banað bróður sínum, Ragnari Lýð-
ssyni, á bænum Gýgjarhóli II í Blá-
skógabyggð aðfaranótt 31. mars sl.
Fyrir dómi kvaðst Valur ekkert
muna til þess að átök hefðu átt sér
stað milli bræðranna. En þeir drukku
„heilmikið“ að hans sögn að kvöldi
dags 30. mars. „Eftir á að hyggja
hefði maður átt að vera hættur að
drekka fyrir löngu,“ sagði hann.
Í máli læknis sem gerði réttar-
fræðilega skoðun á Val kom fram að
hann hefði haft tvær rispur á höfði og
mar á hnúa baugfingurs hægri hand-
ar. Þeir áverkar hefðu komið eftir
einhvers konar högg. Rannsókn á
vettvangi leiddi í ljós að ummerki um
átök voru mjög staðbundin og var
Ragnari veitt högg, eitt eða fleiri, í
þvottahúsinu á heimili Vals. »6
Bar við
minnisleysi
Þessi hross á túni í Bláskógabyggð vöktu athygli ljósmyndara Morgun-
blaðsins í gær, en milli nokkurra þeirra varð barningur um stund. Prjón-
uðu þau upp á hvert annað, ýttu hvert öðru hraustlega til og frá og notuðu
hófa og tennur í kýtingnum, en allt var þetta líklega leikur.
Fjörugir fákar að leik
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Fjármögnun Vaðlaheiðarganga kann
að koma til kasta Alþingis í þriðja
sinn á næsta þingi, samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins, því verk-
takinn, Ósafl, dótturfélag ÍAV, hefur
gert háar fjárkröfur á verkkaupann,
Vaðlaheiðargöng hf., vegna þess
hversu verklok hafa dregist.
Ríkissjóður veitti 8,7 milljarða
framkvæmdalán til verksins árið
2012 og Alþingi veitti ríkissjóði einnig
heimild til að veita allt að 4,7 millj-
arða viðbótarlán í fyrravor til félags-
ins Vaðlaheiðarganga hf., sem stend-
ur að framkvæmdinni, en þá stóðu
vonir til þess að þeir fjármunir
nægðu til þess að ljúka ganga-
gerðinni.
Tafir hafi kostað milljarða
Ósafl hefur samhliða verktöku
sinni barist fyrir því að verkkaupinn
greiddi því bætur vegna þeirra tafa
sem orðið hafa á verklokum, m.a.
vegna þess að vélar Ósafls og tæki
hafi staðið hálfu öðru ári lengur fyrir
norðan en þau áttu að gera og hafi því
ekki nýst verktakanum í önnur verk.
Af því hafi hlotist mikill kostnaður,
bæði beinn og afleiddur.
Forsvarsmenn Ósafls telja að taf-
irnar hafi kostað fyrirtækið milljarða,
og þeir krefja verkkaupa um millj-
arða króna vegna þessa í yfir tuttugu
ólíkum kröfum. Langstærsta krafa
Ósafls kom fram í sumar og er hún
samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins vegna innflæðis heita vatnsins í
göngin. Sú einstaka krafa mun vera
yfir tveir milljarðar króna. Aðrar
kröfur munu vera mun lægri en
heitavatnskrafan.
Af þessum sökum var sett á lagg-
irnar sérstök sáttanefnd sem hefur
fjallað sérstaklega um ágreiningsat-
riðin sem uppi hafa verið. Sátta-
nefndin mun nú hafa fellt úrskurð og
það er svo í höndum hvors deiluaðila
um sig að ákveða hvort unað verði við
úrskurðinn eða farið með málið fyrir
dómstóla.
Krefur verk-
kaupann um
milljarða
Alþingi kann að þurfa að samþykkja
lán í þriðja sinn vegna Vaðlaheiðarganga
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Vaðlaheiðargöng Myndin sýnir
gangamunnann Eyjafjarðarmegin.
Skelfiskmark-
aðurinn, nýtt
veitingahús á
Klapparstíg í
Reykjavík, verð-
ur opnað í há-
deginu á morg-
un. Þar verður
rúm fyrir allt að
310 gesti.
Hrefna Sætran
kokkur segir að
þar verði m.a. boðið upp á ostrur
sem eigendurnir rækta ásamt öðr-
um á Húsavík. Fyrir eru sömu að-
ilar með veitingahúsin Fiskmark-
aðinn og Grillmarkaðinn auk
ölstofu. Alls munu veitingahúsin
þrjú rúma 545 gesti. »14
Opna eitt stærsta
veitingahús Íslands
Kokkur Hrefna
á nýja staðnum.
raunhæf,“ segir Elvar Ingi Möller,
sérfræðingur í greiningardeild Arion
banka, um nýja afkomuspá.
Áætlanir gengu ekki eftir
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri fé-
lagsins, sagði í gær starfi sínu lausu
og mun Bogi Nils Bogason, fram-
kvæmdastjóri fjármála félagsins,
gegna stöðu forstjóra tímabundið að
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Icelandair Group lækkaði í gær af-
komuspá sína fyrir árið um 40 millj-
ónir Bandaríkjadala og áætlar félagið
að EBITDA ársins 2018, þ.e. hagn-
aður fyrir fjármagnsliði, skatta og af-
skriftir, verði á bilinu 80-100 milljónir
Bandaríkjadala. Nemur heildarlækk-
un afkomuspár frá ársbyrjun, þegar
EBITDA var ráðgerð 170-190 millj-
ónir Bandaríkjadala, u.þ.b. 50%.
„Þetta kemur ekki á óvart. Afkom-
an á öðrum ársfjórðungi var vonbrigði
og meiri vonbrigði en greiningar- og
markaðsaðilar gerðu ráð fyrir. Af-
komuáætlun félagsins [frá því í júlí],
sem gerði ráð fyrir EBITDA upp á
120-140 milljónir Bandaríkjadala á
árinu, var í raun þess eðlis að
markaðsaðilar, og við þar á meðal,
höfðum efasemdir um að hún væri
ósk stjórnar. Í yfirlýsingu frá Björg-
ólfi segir að lækkun spárinnar skýrist
fyrst og fremst af því að tekjur verði
lægri en áður hafi verið gert ráð fyrir
af tveimur ástæðum.
Í fyrsta lagi muni hækkanir á
meðalfargjöldum, sem ráðgerðar voru
á síðustu mánuðum ársins, ekki skila
sér fyrr en á næsta ári. Í öðru lagi hafi
innleiðing breytinga sem gerðar voru
í byrjun sumars 2017 á sölu- og mark-
aðsstarfi félagsins ekki gengið nægi-
lega vel, auk þess sem breytingar á
leiðakerfi félagsins í byrjun þessa árs
hafi valdið misvægi á milli framboðs
flugferða til Evrópu annars vegar og
Norður-Ameríku hins vegar. „Vegna
þessa hafa spálíkön, sem meðal ann-
ars byggja á sögulegri þróun, ekki
virkað sem skyldi og er uppfærð
tekjuspá lægri en fyrri spá gerði ráð
fyrir,“ segir í yfirlýsingunni.
„Ég man ekki eftir að þessar upp-
lýsingar hafi komið fram áður, í það
minnsta ekki þar sem þetta er viður-
kennt,“ segir Elvar um þennan hluta
skýringanna. Hann nefnir að spá
deildarinnar um afkomu yfirstand-
andi árs hafi, í kjölfar uppgjörsins og
með hliðsjón af flutningatölum í júlí,
verið komin nálægt efri mörkum upp-
færðrar afkomuspár Icelandair
Group nú. „Að því leytinu til kemur
þetta ekki jafn mikið á óvart og í byrj-
un júlí þegar félagið hafði gefið vís-
bendingar til markaðarins um að
þessi margræddu meðalfargjöld væru
að hækka. Við vissum að það yrði
þrýstingur áfram á síðari hluta ársins.
Félagið er nú að segja okkur að hann
verði áfram fram á næsta ár, en jafn-
framt að viðurkenna að hagræðingar-
aðgerðir síðustu 12-18 mánaða hafi
ekki gengið nægilega vel,“ segir
Elvar.
Í yfirlýsingunni segir Björgólfur
ákvarðanirnar teknar á sinni vakt og
þær hafi valdið félaginu fjárhagslegu
tjóni á árinu. „Ég ber sem forstjóri fé-
lagsins ábyrgð gagnvart stjórn og
hluthöfum. Fyrr í dag tjáði ég stjórn
að ég óskaði eftir því að láta af starfi
forstjóra Icelandair Group. Þó að
vissulega sé búið að taka á fyrrnefnd-
um vandamálum þá er það ábyrgð-
arhluti að hafa ekki fylgt breytingun-
um eftir með fullnægjandi hætti og
brugðist fyrr við. Þá ábyrgð tel ég rétt
að axla og læt því af störfum sem for-
stjóri félagsins.“
Úlfar Steindórsson, stjórnarfor-
maður Icelandair Group, segir að-
dragandann að uppsögn Björgólfs
ekki hafa verið langan og að ákvörð-
unin hafi komið honum nokkuð á
óvart. Hann segir að stjórnin hafi ekki
endalausan tíma til að velja eftirmann
Björgólfs en þó verði ekki „rokið til“ í
þeim efnum.
Forstjóraskipti hjá Icelandair
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir upp Bogi Nils tekur við tímabundið
Afkomuspá félagsins lækkuð um 40 milljónir dala í gær Búist við minni tekjum út árið
Morgunblaðið/Júlíus
Icelandair Group Félagið lækkaði í
gær afkomuspá á ársgrundvelli.