Morgunblaðið - 28.08.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.08.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Lögregluþjónarnir stóðu vaktina og gættu þess að ekki yrðu frekari umferðaróhöpp eftir árekstur þriggja bíla á Miklubrautinni í gær. Engin alvarleg slys urðu þar á fólki. Talsvert rigndi á höfuðborgarsvæðinu í gær og voru götur því blautar og hálar. Gangi veðurspár eftir verður áfram rigning sunnan- og vestanlands í dag. Lögreglan er alltaf á vaktinni í öllu veðri og vindum Morgunblaðið/Hari Enginn er verri þótt hann vökni Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Útlit er fyrir að deilur um framleng- ingu lóðarleigusamninga tveggja húsa sem standa við hlið nýrrar hótel- byggingar og íbúðarblokkar á mið- svæði Borgarness fari fyrir dómstóla. Bærinn hefur tilkynnt lóðarhöfum að lóðarleigusamningur verði ekki fram- lengdur þegar hann rennur út í apríl á næsta ári og beri að fjarlægja húsin fyrir þann tíma en eigendurnir telja sig eiga rétt á framlengingu. Umrædd hús eru á Borgarbraut 55. Verslun Líflands er í öðrum hluta hússins og Bifreiðaþjónusta Harðar í hinum hlutanum. Lóðarleigusamn- ingar sem gerðir voru fyrir 50 árum renna út 25. apríl á næsta ári. Þar er ekki kveðið á um sjálfkrafa framleng- ingu, að því er fram kemur í bréfi lög- manns Borgarbyggðar til fulltrúa húseigendanna, og ekki heldur um kaupskyldu sveitarfélagsins. Áréttar lögmaðurinn að sveitarfélaginu sé ekki skylt að greiða bætur þótt samn- ingurinn verði ekki framlengdur. Jafnframt er bent á að starfsleyfi Bif- reiðaþjónustunnar sé fallið úr gildi og starfsemin falli ekki að núgildandi skipulagi svæðisins. Þórarinn V. Þórarinsson, lögmaður eigendanna, er ósammála þessari túlkun. Hann bendir á að í umræddu ákvæði leigusamningsins sé kveðið á um að leigutaki geti óskað eftir endurnýjun á leigusamningi en þá eigi sveitarfélagið kost á að breyta leigukjörum. Það bendi til þess að til- gangur ákvæðisins sé að gefa sveitar- félaginu kost á að hækka leigugjaldið. Þá hafi starfsmaður sveitarfélagsins gefið seljanda annars hluta hússins fortakslausa staðfestingu á því þegar eignin var seld í árslok 2016 að leigu- samningurinn yrði endurnýjaður. Segist Þórarinn hafa ritað sveitar- félaginu bréf og óskað eftir svörum við því hvort það hygðist véfengja þessa yfirlýsingu og þá á hvaða grundvelli. Þurfa pláss fyrir innkeyrslu Mikið byggingarmagn er í húsum sem byggð hafa verið á lóðunum Borgarbraut 57-59. Til þess að opna leið að bílastæðum á bak við hótelið er talið að skerða þurfi lóð bifreiða- þjónustunnar og þar með athafna- svæði hennar sem grundvallast á þjónustu við bíleigendur. Það, ásamt breyttu skipulagi, virðist upphaf þeirra deilna sem leitt hafa til bréfa- skrifta aðila. Í bréfi lögmanns Borgarbyggðar er tekið fram að sveitarfélagið sé reiðubúið að koma til móts við hús- eigendur varðandi áframhaldandi starfsemi þeirra í Borgarnesi, meðal annars með því að útvega þeim nýja lóð eða lóðir og semja um forsendur þess að starfsemi þeirra verði flutt af Borgarbraut 55. Það sama hefur komið fram í umfjöllun um málið í byggðaráði og sveitarstjórn. „Bærinn er reiðubúinn að selja lóð undir þennan atvinnurekstur, það er ekki vandamálið. Eignirnar hafa mik- ið verðgildi, sérstaklega í þessum rekstri. Mönnum gengur illa að átta sig á því að þeir eigi að fórna eignum sínum af því að bærinn hafi klúðrað skipulagsmálum og þurfi að koma fyrir innkeyrslu á lóðinni. Það dregur fram með skilvíslegum hætti að ef það væri réttur sveitarfélagsins að geta að eigin geðþótta sagt eigendum að brjóta niður húsin gerir það hug- takið fasteign heldur losaralegra í Borgarnesi en í öðrum byggðar- lögum. Að minnsta kosti hlýtur áhættustigið að skoðast meira,“ segir Þórarinn. Gert að fjarlægja hús án bóta Morgunblaðið/Theódór Kr. Þórðarson Miðsvæði Húsnæði Líflands og dekkja- og smurverkstæðisins eiga að víkja.  Deilur um það hvort Borgarbyggð beri eða beri ekki skylda til að framlengja lóðarleigusamninga tveggja fyrirtækja  Húsin eru í nágrenni nýja hótelsins í Borgarnesi þar sem skipulag hefur breyst Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Rannsóknarnefnd samgönguslysa er ekki starfandi sem stendur. Skipunar- tími hennar rann út 31. maí síðastlið- inn og ný nefnd hefur ekki verið skip- uð. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að sá hluti nefndarinnar sem ann- ast rannsóknir sjóslysa hafi ætlað að funda síðastliðinn föstudag, eins og til- tekið var í starfsáætlun. Allmörg mál voru á dagskránni. Ekkert varð af fundinum því umboð nefndarmanna var runnið út. Rannsóknarnefnd sam- gönguslysa starfar samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa. Með lögunum, sem tóku gildi 1. júní 2013, var starfsemi rannsóknarnefndar flugslysa, rannsóknarnefndar sjóslysa og rannsóknarnefndar umferðarslysa sameinuð og féllu lög um nefndirnar þrjár þar með úr gildi. Markmið laganna um rannsóknar- nefnd samgönguslysa var að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarann- sóknir. Skipunartími nefndarinnar var frá og með 1. júní 2013 til og með 31. maí 2018, eða til fimm ára. Í nefndinni sátu sjö aðalmenn og sex varamenn. Geirþrúður Alfreðs- dóttir, flugstjóri og vélaverkfræðing- ur, var formaður nefndarinnar. Starfs- menn nefndarinnar eru sjö. Það er samgönguráðherra sem skipar nefnd- ina. Morgunblaðið fékk þær upplýs- ingar hjá samgönguráðuneytinu í gær að unnið væri að því að ganga frá skip- unarbréfum nefndarfólks. Ný nefnd verður skipuð á allra næstu dögum. Skipunartíminn rann út í maí Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Áhorfendamet íslenska kvenna- landsliðsins í fótbolta gæti fallið á laugardaginn kemur er Þýskaland kemur í heimsókn í undankeppni heimsmeistaramótsins (HM) í knattspyrnu kvenna, en liðin eigast við á Laugardalsvelli. Númeruð sæti í fyrsta sinn Í fyrsta sinn verður nú selt í núm- eruð sæti á leik kvennalandsliðsins á Laugardalsvelli, en töluverð eftir- spurn er eftir miðum á leikinn og er búist við mikilli aðsókn. Áhorfendametið er 7.521 seldur miði, en búið er að ráðstafa yfir 7.500 miðum fyrir leikinn og eru nú aðeins innan við tvöþúsund miðar eftir, að sögn Klöru Bjartmarz, framkvæmda- stjóra Knatt- spyrnusambands Íslands (KSÍ), en Morgunblaðið hafði samband við hana vegna þessa. „Það er ánægjulegt hvað miðasalan gengur vel og útlit fyrir að það verði uppselt, sem er jákvætt og sýnir öflugt starf. Þetta er úr- slitaleikur í riðlinum, þess vegna er mikill áhugi á þessum leik, því hann getur ráðið úrslitum um það hvort Ísland komist á HM,“ segir Klara, sem segir að vinsældir kvenna- landsliðsins fari vaxandi, en mikil- vægi leiksins spili líkast til stórt hlutverk. Aukinn áhugi í heiminum „Þróunin er sú að áhorfendum er að fjölga alls staðar í heiminum bæði í sjónvarpi og á leikjunum sjálfum,“ segir Klara og aðspurð segir hún að þátttaka Íslands á EM í fyrra og HM í sumar kunni að hafa aukið áhuga Íslendinga á fótboltaleikjum almennt. Með sigri nú myndi Ísland tryggja sér sæti á HM í Frakklandi og yrði það í fyrsta skipti sem Ís- land væri á meðal þátttakenda. Um 100 stuðningsmenn þýska liðsins eru væntanlegir á Laugar- dalsvöll ásamt um 70 manna sjón- varpsliði frá þýska ríkissjónvarpinu. Miðar eru til sölu á tix.is og er fólki ráðlagt að sækja þá tímanlega. Stefnir í nýtt áhorfendamet  Yfir 7.500 miðum þegar verið ráðstafað á kvennaleikinn Klara Bjartmarz Húseigendatrygging og sérstök óveð- urstrygging bætir tjón líkt og það sem varð á bænum Norðurhjáleigu í Álftaveri við Kúðafljót á föstudag er skýstrókar fóru þar yfir. Brunatrygg- ing, sem er eina lögboðna tryggingin, og náttúruhamfaratryggingin sem henni fylgir gera það hins vegar ekki. Þetta segir Þorsteinn Þorsteinsson, matsmaður eignatjóna hjá VÍS. Töluvert tjón varð á bænum er ský- strókurinn fór þar yfir. Stór jeppi með kerru þeyttist út í skurð, þak- plötur fuku fleiri hundruð metra og girðingar lögðust á hliðina er strók- arnir fóru þar yfir. Sæunn Káradótt- ir, bóndi á bænum, sagði í samtali við mbl.is að þau hefðu ekki verið með foktryggingu og því áliti trygginga- félag þeirra að þeim bæri að bera tjónið. Þorsteinn segir húseigendatrygg- ingu vera notaða til að tryggja venju- legt íbúðarhúsnæði og atvinnuhús- næði í þéttbýli. „Þar er verið að tryggja gegn vatni, skemmdum af völdum innbrota og svo óveðri,“ segir hann og kveður um frjálsa tryggingu að ræða. „Húseignir sem eru þannig tryggðar myndu fást bættar vegna atburðar líkt og varð á Norður- hjáleigu.“ Fyrir útihús í sveitum sé hins vegar algengt að bændur kaupi sérstaka óveðurstryggingu. „Þær byggingar eru almennt mjög einfaldar og sjald- an mikil hætta á vatnstjóni eða inn- brotum. Þannig að það er yfirleitt bara tekin sjálfstæð óveðurstrygging á svoleiðis hús,“ segir Þorsteinn og segir frekar algengt að bændur séu með slíka tryggingu. annaei@mbl.is Algengt að velja óveðurstryggingu  Ábúendur á Norðurhjáleigu bera sjálfir tjón af völdum skýstróka Norðurhjáleiga Töluvert tjón varð á bænum síðastliðinn föstudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.